Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Blaðsíða 24
52 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 DV 'Tilvera lí f iö Haustveisla á Hallormsstað Það er mikið um að vera í Hússtjómarskólanum á Hall- ormsstað nú sem endranær. Þeg- ar haustverkunum er lokið, sveppa- og berjatinslu, svo og sláturgerð, verður sjötíu ára af- mæli skólans fagnað með því að halda mikla haustveislu í dag þar sem boðið er upp á haustaf- urðir af Héraði. Krár ■ ROLEGT A ROMANCE Það er lif- andi tónlist á Café Romance öll kvöld en þaö er enski píanóleikarinn og söngvarinn Miles Dowley sem skemmmtir gestum staöarins. ■ SOULBRÆÐUR Á PRIKINU Það er kominn miðvikudagur og þá er kominn tími á Soulbræður á Prikinu. Þeir Herb Legowitz og Tommy White kunna þetta allt saman, spurningin er hvort þú kannt þetta og hvort þú þorir. ■ 360* KVÖLP Thomsen verður til- einkaöur 360* Adda Exoz. Að þessu sinni er það þýska teknógyðjan Monika Kruzo sem opnar hugi fimmtudagsdjammara og fer hamför- um viö mixerinn. Exoz og Ohm snúa bökum saman og aðstoða gelluna. Það kostar 300-kall inn fyrir klukkan 23 en einn Jón Sigurösson eftir það. 18 ára aldurstakmark. Klassík ■ ART-2000 Alþjoöleg raf- og tölvutónlistarhátíö í fyrsta skipti á íslandi í Salnum í Kópavogi. Leikhús ■ HORFÐU REWPUR UM OXL Horfðu refður um öxl í Þjóðleikhús- inu í kvöld á Litla sviðinu, kl. 20.00. Uppselt. ■ KIRSUBERJAGARÐURINN í kvöld verður sýnt í Þjóðleikhúsinu leikritiö Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekhov. Örfá sæti laus. ■ TRÚÐLEIKUR í kvöld frumsýnir ■*' Leikfélag Islands leikritiö Trúðleik eftir Hallgrím H. Helgason í Iðnó. Sýningin er hluti af leiklistarhátíöinni A mörkunum, sem er samvinnuverk- efni Bandalags sjálfstæðu leikhús- anna og Reykjavíkur, menningar- borgar 2000.Trúðana tvo í sýning- unni leika þeir Friðrik Friöriksson og Halldór Gylfason. Leikstjóri sýn- ingarinnar er María Reyndal. Hljóm- sveitin Geirfuglarnir semur og flytur tónlist viö sýninguna. Kabarett ■ TRÍÓ VOX í KAFFILEIKHÚSINU Þrjár raddir og tveir gítarar flytja notalegar ballööur bæði frumsamd- ar og annars staöar að. Flytjendur eru Trío Vox eða Ruth Reginalds, Eyjólfur Kristjánsson og Ingi Gunnar Jóhannsson. Dagskráin hefst kl. ^ 21.00. Fundir ■ FYRIRLESTUR I LHI Hildur Bjarnadóttir, myndlistarmaður og kennari, flytur fyrirlestur í LHÍ í Skip- holtl 1, stofu 113, klukkan 12.45. Hún stndaði nám í myndlistardeild Pratt Institut í Brooklyn í USA og lauk þa/ námi meö meistaragráðu 1997. I fyrirlestrinum fjallar Hildur um eigin verk og dvölina í New York. ■ MYNDASÝNING FERÐAFÉLAGS- INS Mvndasvning verður í FLsalnum í kvöld kl. 20.30. Þar sýnir Ólafur Sigurgeirsson fararstjóri myndjr úr Vestfjaröaferöum sumarsins. Ólafur fór í ferð um Aöalvíkur, Skálavíkur, í Selárdal og út á Látrabjarg, svo nokkuð sé nefnt. Aðgangseyrir er krónur 500 og kaffiveitingar í hléi. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is y Söngvari og lögregluþjónn Eiríkur Hreinn Helgason yfirlögregluþjónn lítur yfír nóturnar og tekur lagiö. Eiríkur Hreinn Helgason syngur íslensk sönglög á nýrri plötu: Söngurinn er skemmtilegt hliðar- starf og nauðsynlegt mótvægi „Það má segja að komin voru ákveöin tímamót hjá mér, ég hafði verið að syngja í tuttugu og fimm ár ásamt því að hafa verið í lögreglunni jafnlangan tíma. Þannig að það var góð ástæða til að gera eitthvað á þess- um tímamótum svo ég fór út í það að gefa út plötu og fékk með mér vini og kunningja úr tónlistarbransanum til að gegna ýmsum hlutverkum í þessari útgáfu," segir Eiríkur Hreinn Helga- son, yfirlögregluþjónn við Lögreglu- skólann og söngvari til margra ára, en þessa dagana er að líta dagsins ljós plata sem inniheldur að mestu leyti íslensk sönglög, eitt erlent, færeyskt sönglag fær að fljóta með í lokin. „Þetta eru lög sem ég hef sungið í gegnum tíðina og hef haldið mikið upp á.“ Eiríkur Hreinn segist hafa verið að syngja allt sitt líf. „Ég fór þó ekki að Bíógagnrýni læra söng fyrr en ég var kominn á þri- tugsaldurinn. Um sama leyti hóf ég störf í lögreglunni. Söngurinn hefur alltaf verið til hliðar hjá mér. Ég hef sungið mjög víða og komið á marga staði, bæði í kórum en síðan haft all- nokkurn feril sem einsöngvari og á að baki nokkur óperuhlutverk, fjölmörg hlutverk í óratoríum og kirkjulegum verkum ýmiss konar og komið fram sem söngvari á stundum sorgar og gleði í flestum kirkjum landsins. Starfið í lögreglunni hefur þó alltaf verið mitt aðalstarf og síðastliðin átta ár hef ég verið yfirlögregluþjónn við Lögregluskóla ríkisins þar sem ég stýri framhaldsdeild skólans." Eirikur Hreinn er spurður hvort hann hafi aldrei hugleitt það að gerast atvinnusöngvari. „Eftir nám bæði hér heima og erlendis var ég stundum að velta þessu fyrir mér en ég hef aldrei haft nógu mikinn metnað í þessa átt til að hella mér út í það og hef litið á sönginn sem skemmtilegt hliðarstarf sem stundum hefur verið bráðnauð- synlegt til mótvægis við aðalstarfið, hinu á stundum litt jákvæða starfi í lögreglunni. Það hefur þurft kjark til að vera atvinnusöngvari hér heima vegna stopullar vinnu og fárra tæki- færa. Flestir sem hafa kosið að gera sönginn að aöalatvinnu kenna söng, ég aftur á móti kenni í Lögregluskól- anum og hef mjög gaman af því. Það má þó segja að breyting verði á starfs- sviði atvinnusöngvara hér á landi ef fastráðnir verða söngvarar við ís- lensku óperuna, sem vonandi verður, þá er kominn grundvöllur fyrir söngv- ara að starfa hér heima.“ Plötu sína gefur Eiríkur Hreinn út sjálfur en Skífan mun dreifa henni. „Ég fékk Bjarna Jónatansson til að leika undir hjá mér á píanó og í tveimur lögum syng ég dúett með einni af björtustu vonum okkar af yngri kynslóðinni, Garðari Thor Cortes. Svo stofnaði ég kór skipaðan atvinnusöngvurum sem nefndur hef- ur verið Karlakór íslands og nágrenn- is og þó ég segi sjálfur frá þá tel ég hann meðal bestu kóra, hvað annað er hægt að segja um kór sem hefur Garð- ar Cortes sem annan tenór.“ Eiríkur Hreinn segist ekki alveg vera viss hvemig hann muni fylgja plötunni eftir. „Æskilegast væri að halda tónleika eða koma fram ein- hvers staðar en þessa dagana er mjög mikið að gera hjá mér í skólanum svo ég veit ekki hvemig ég kem til með að geta fylgt plötunni eftir." -HK Bíóborgin - In the Mood for Love: 'k'k'k Astin er skepna Gunnar Smári Egilsson skrifar gagniýni um kvikmyndir. In the Mood for Love Aðalpersónurnar In the Mood for Love er hæg, falleg, hlýleg og svo nostalgísk að þegar ég gekk út á Snorrabrautina að lokinni sýningu þá saknaði ég Hong Kong eins og borgin var á sjö- unda áratugnum. Samt á ég fullt i fangi með að muna Reykjavík þess tima. Svona hefur fjölþjóðlega menningin gert mig skrítinn. Ég sakna orðið þess sem ég þekkti aldrei en man ekki lengur hver ég er; eða hvað ég er. Ég veit þó að ég get aldrei skilið þessa mynd sama skiln- ingi og höfundur hennar, Kar- wai Wong. Ég get látið mér detta í hug að sviðið sem hann velur sögu sinni sé eitthvaö í líkingu við sögusvið Guð- bergs í Það rís úr djúpinu. Hjá Guð- bergi vora allir að vestan, nýkomnir í bæinn að venja sig við nýtt líf og nýtt fólk sem þaö þekkti ekki og hefði ekki fundið neina samsömun með nema af því það var svipað komið fyrir því í fólksflutningum eftirstríðsáranna. Og það bjó við þrengsli, nálægð og var því berskjaldað, nakið i umkomuleysi sínu, stefnulaust í leit sinni að betra lífi. í mynd Wongs halda allir síðan áfram ferðinni, flytja ýmist til Filipps- eyja eða Singapúr, eins og fólkið hans Guðbergs hefði ílutt til Gautaborgar þegar síldin hvarf; það er ef Guðberg- ur sjálfur hefði ekki hangið á Spáni og misst sjónar af fólkinu sínu. Og af því að In the Mood for Love er svo nostalgisk þá er ég farinn að sakna þess að enginn nema Guðbergur skuli hafa sagt sögu þessa fólks og þessa tímabils; upprifjanir barna þess teljast ekki með, þau virðast alltaf misskilja erfið- leikana við sambúð drauma og skyldurækninnar. In the Mood for Love fjall- ar um ástina. Og eins og í góðum ástarsögum þá sigrar ástin persónurnar svo ræki- lega að þær verða næstum óhæfar til að lifa; einnig að njóta ástarinnar. Og hún seg- ir frá framhjáhaldi betur en ég hef séð lengi. Við sjáum ekki hina seku en fylgjumst með fómarlömbunum leita huggunar hvort hjá öðm þar til ástin kemur aftan að þeim og gerir þau að því sem þau fyrirlíta: ástfóngnu fólki. Þannig dregur Wong upp mynd af ást- inni sem eyðandi afli og græðandi; aldrei öðru hvoru. Og allt er þetta fallega gert, svo fal- lega að þeir sem eru enn með óbragð í sálinni eftir keimlíka sögu í banda- rísku bíómyndinni Random Hearts geta hér fengið nokkra bót meina sinna. Hér er sparlega og smekklega farið með allt, nema hvað kvikmynda- takan jaðrar stundum við tilgerð. En þótt Wong og félagar séu sparsamir á flest þá eru þeir ekki haldnir ein- hverri delluhugmynd um að minna sé meira; þvert á móti beita þeir alls kyns brögðum - ekki síst í klippiher- berginu - og finnst auðsjáanlega gam- an að búa til bíó. Sparsemin er frem- ur í anda endurminningarinnar: lit- irnir eru samtóna, hreyfingar hægar, það sem er utan sögunnar er kirfilega fest í bakgrunni. Niðurstaðan er eins og eftirsjá á dánarbeði. Þá sjáum við ekki svo mikið eftir því sem við gerð- um heldur söknum þess sem við gerð- um ekki. Leikstjórn og handrlt: Kar-wai Wong. Leikarar: Tony Leung Chiu Wai, Maggie Cheung, Lai Chen o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.