Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Blaðsíða 22
50 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 DV Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson ^SZIujSí 90 ára _______________________________ Vilhjálmur Óskarsson, Víðimýri 10, Sauöárkróki. 85 ára________________________________ Lára Magnúsdóttir, Torfnesi, Hlíf 2, Isafiröi. 70 ára________________________________ Erla Blandon, Sléttuvegi 15, Reykjavlk. Halldóra Petra Oddsdóttir, Vatnsendabletti 101, Kópavogi. Svanhildur Jónsdóttir, Réttarholti 10, Selfossi. 60 ára________________________________ Friðgeir Björnsson, Granaskjóli 76, Reykjavík. Þórólfur Valgeir Þorleifsson, Blikahólum 12, Reykjavík. Reynir Björnsson, Garðhúsum 49, Reykjavík. Valdimar Gíslason, Laufási 2, Garöabæ. Guðjón Ragnarsson, Hlíðarbraut 2, Blönduósi. 50 ára________________________________ Viðar Aðalsteinsson, Þingholtsstræti 6, Reykjavík. Sigríður Einarsdóttir, Engjaseli 58, Reykjavík. Bjami Gunnarsson, Furugrund 81, Kópavogi. Magnús Þorsteinsson, Sjávargrund 14b, Garðabæ. Björgólfur Lauritsson, 4 Helgafelli 11, Eskifirði. 40 ára________________________________ Ingibjörg Lydía Yngvadóttir, Strandgötu 79, Hafnarfiröi. Anna Dórothea Tryggvadóttir, Lerkigrund 5, Akranesi. Hugrún Thorlacius, Ægisbraut 17, Búðardal. Linda Lee Bluett, Odda, Súöavík. Vilborg Magnúsdóttir, Smáragili, Brú. Kristín Guðveig Sigurðardóttir, Múlavegi 41, Seyðisfiröi. 1 i n g a r DV © 550 5000 </> @ vísir.is W) FAX 3 CS 550 5727 'Œ 1 " 1 S m Þverholt 11, 105 Reykjavík Andlát Anna Björnsdóttir frá Hörgsholti, lést á Dvalarheimili aldraöra í Borgarnesi föstud. 13.10. Jarðarförin verður aug- lýst síðar. Guðný Vigfúsdóttir Kristoffersen er lát- in. Útför hennar fór fram I Alta í Noregi, miðvikud. 11.10. Ásgeir Páll Úlfarsson frá Seyöisfiröi, Amtmannsstíg 6, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, föstud. 13.10.. Guðmundur Pálsson lést á heimili sínu, Furuvöllum 9, Egilsstöðum, mánud. 9.10. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Úlfar Haraldsson, Álfaskeiði 92, Hafnar- firði, lést á Landspítalanum, Fossvogi, að morgni sunnud. 15.10. Fjóla Ósk Bender kennari, Sörlaskjóli 94, Reykjavík, lést föstud. 13.10. > Fólk í fréttum Gunnar Ingi Gunnarsson fyrrv. varaformaður Frjálslynda flokksins Gunnar Ingi Gunnarsson, heilsu- gæslulæknir við Heilsugæslustöð- ina í Árbæ og fyrrv. varaformaður Frjálslynda flokksins, greindi ítar- lega frá því í DV-frétt í gær hvers vegna hann sagði skilið við Frjáls- lynda flokkinn. Starfsferill Gunnar Ingi fæddist í Reykjavík 21.8.1946 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófl frá MR 1968, kandi- datsprófi í læknisfræði frá Gauta- borgarháskóla 1972 og embættis- prófi í læknisfræði þaðan 1976. Gunnar Ingi var aðstoðarlæknir á Landspítalanum 1973, heilsugæslu- læknir í Bolungarvík 1974, aðstoðar- læknir á Sahlgrenska sjukhuset í Gautaborg 1975, heOsugæslulæknir á Þórshöfn, Raufarhöfn og í Vest- mannaeyjum 1976, aðstoðarlæknir á Sjukhuset í Lidköping 1976-77 og 1978, og á Sjukhuset i Falköping 1977- 78, við Borgarspítalann 1978- 79, heilsugæslulæknir í Hvera- gerði og Þorlákshöfn 1979 og hefur verið heilsugæslulæknir við Heilsu- gæslustöðina í Árbæ frá 1979. Gunnar sat í stjóm Félags ís- lenskra heimilislækna og var rit- stjóri Fréttabréfs félagsins um ára- bil, var formaður nokkurra samn- inganefnda Læknafélags íslands 1980-98, meðstofnandi Læknavakt- arinnar sf. 1986 og formaður 1986-97, hefur setiö í opinberum nefndum um heilsugæslu og heil- brigðisþjónustu, var fulltrúi Alþing- is í stjórn Ríkisspítala 1991-95, for- maður Alþýðuflokksfélags Reykja- víkur 1996-97, meðstofnandi Frjáls- lynda flokksins 1998, varaformaður flokksins frá stofnun og þar til nú og varaþingmaður frá 1999. Fjölskylda Gunnar Ingi kvæntist 3.5. 1969 Ragnhildi Björnsdóttur, f. 6.7. 1947, d. 5.5. 1998, hjúkrunarfræðingi. Þau skildu 1978. Dætur Gunnars Inga og Ragnhild- ar eru Hulda Margrét, f. 2.10. 1966, búsett í Reykjavík; Guðrún Katrín, f. 16.2. 1972, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, en sambýlismaður henn- ar er Ingólfur Arnór Magnússon raf- virki; Svanhildur Ásta, f. 4.11. 1974, ritari í Kópavogi, en maður hennar er Konráð Þór Snorrason tækni- maður. Gunnar Ingi kvæntist 10.11. 1979 Brynhildi Sverrisdóttur Scheving Thorsteinsson, f. 2.1. 1954, sálfræð- ingi og BA í frönsku og ensku. Þau skildu 1991. Böm Gunnars Inga og Brynhildar eru Sverrir Ingi, f. 22.1. 1981, menntaskólanemi; Áslaug Heiða, f. 12.9.1983, menntaskólanemi. Gunnar Ingi kvæntist 24.8. 1991 Ernu Matthíasdóttur, f. 27.9. 1957, hjúkrunarfræðingi og sölufulltrúa. Sonur Gunnars Inga og Emu er Gunnar Þorbjörn, f. 7.3.1993. Stjúpsonur Gunnars Inga og son- ur Ernu eru Daníel Jónsson, f. 28.10. 1984, nemi. Systkini Gunnars Inga eru Hjör- dís Thors, f. 17.7. 1948, húsmóðir í Reykjavík; Ólafur Þór, f. 17.4. 1953, viðskiptafræðingur hjá Vegagerð ríkisins; Ingibjörg, f. 2.8.1959, deild- arstjóri hjá Landssímanum. Foreldrar Gunnars Inga: Gunnar Þorbjöm Gunnarsson, f. 8.8. 1926, fyrrv. forstjóri íslenskra aðalverk- taka, búsettur í Reykjavík, og Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir, f. 16.11. 1923, d. 26.8. 1988, snyrtifræðingur. Ætt Gunnar Þorbjöm er sonur Gunn- ars, kaupmanns í Reykjavík, bróður Péturs, læknis á Akureyri, og Hann- esar, kaupmanns í Reykjavík, afa dr. Hannesar, forstöðulæknis og dósents, og Sólveigar dómsmálaráð- herra Pétursbarna. Gunnar var son- ur Jóns, kaupmanns á Hvamms- tanga, Hanssonar, skálds og hrepp- stjóra á Þóreyjarnúpi, hálfbróður Guðnýjar, langömmu Baldurs Lín- dals efnaverkfræðings. Önnur hálf- systir Hans var Þóranna Rósa, lang- amma ívars H. Jónssonar, fyrrv. rit- stjóra Þjóðaviljans og skrifstofu- stjóra Þjóðleikhússins, og og langamma Sigurpáls, foður Bjöms Vignis, ritstjórnarfulltrúa á Morg- Gunnar Ingi Gunnarsson, fyrrv. varaformaöur Frjálslynda flokksins Gunnar Ingi starfaði mikið í Alþýðuflokknum áður en hann gekk til liðs við Sverri Hermannsson og var m.a. formaöur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur. unblaðinu. Hans var sonur Natans, skálds og læknis á Illugastöðum á Vatnsnesi, Ketilssonar. Móðir Jóns kaupmanns var Kristín Þorvarðar- dóttir. Móðir Gunnars kaupmanns var Þorbjörg Sigurðardóttir, b. á Klömbrum í Vesturhópi, Sigurðar- sonar, b. á Grund á Álftanesi, Þor- bergssonar. Móðir Þorbjargar var Ragnhildur Snorradóttir, hrepp- stjóra á Klömbmm, Jónssonar, b. á Klömbrum, Snorrasonar, pr. á Hjaltastað, Bjömssonar. Móðir Gunnars Þorbjörns var Ingibjörg, systir Gunnlaugs, fóður Jóns Steinars hrl. Ingibjörg var dóttir Ólafs, steinsmiðs í Reykjavík, Þórarinssonar, b. á Kjaransstöðum í Biskupstungum, Jónssonar, b. á Iðu, Jónssonar. Móðir Ingibjargar var Þorgerður, dóttir Gunnars, b. á Skálahnjúki, Hafliðasonar. Móöir Gunnars var Björg, systir Pálma í Valadal, afa Jóns á Nautabúi, langafa Jóns Ásbergssonar, for- stjóra Útflutnignsráðs. Guðrún Jóhanna var dóttir Ólafs, togarasjómanns og vörubifreiða- stjóra í Reykjavík, bróður Gunnars, forstjóra Leifturs, afa dr. Ninu Ás- mundsdóttur. Annar bróðir Ólafs var Brynjólfur, afi Gunnars I. Birg- issonar, forseta bæjarstjómar Kópa- vogs. Ólafur var sonur Einars, sjó- manns í Skálholtskoti í Reykjavík, Ólafssonar og Katrínar Gunnars- dóttur, b. í Norðurkoti í Holtum, Guðmundssonar. Móðir Guðrúnar Jóhönnu var Magdalena Margrét Benediktsdótt- ir, starfsmanns við stjórnarráðið í Reykjavík, Daníelssonar, bróður Solveigar, seinni konu Sigfúsar Ey- mundssonar ljósmyndara. Móðir Magdalenu Margrétar var Guðrún Snorradóttir. Fertugur Þórir Guðmundsson upplýsingafulltrúi Rauða kross íslands Þórir Guðmundsson, upplýsinga- fulltrúi Rauða kross íslands, Hverafold 6, Reykjavik, er fertugur í dag. Starfsferill Þórir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Verslunarskóla fslands 1976-77, við Rhode Island School of Photography 1979-80, lauk BS-prófi í fjölmiðla- fræði við University of Kansas 1984, og MA-prófi í alþjóðasamskiptum við Boston University Bmssels 1994. Þórir var blaðamaður við Vísi og síðar DV, í fullu starfi eða meðfram skóla á árunum 1976-85, var frétta- maður á fréttastofu Ríkisútvarpsins 1985-86 og yfirmaður erlendra frétta á fréttastofu Stöövar tvö 1986-96. Þórir starfaði við hjálparstörf á vegum Alþjóða Rauða krossins sem sendifulltrúi Rauða kross íslands 1996-99, fyrst sem upplýsingafull- trúi á svæðisskrifstofu fyrir Mið- Asiu í fyrrum Sovétríkjunum og síðar sem upplýsingafulltrúi í Asíu- og Kyrrahafslöndum. Hann hefur verið upplýsingafulltrúi Rauða kross íslands frá 1999. Þórir var umsjónarmaður fiölda sjónvarpsþátta um alþjóðleg málefni og skrifaði bókina Úr álögum, ásamt eiginkonu minni, Öddu Steinu Bjömsdóttur. Fjölskylda Þórir kvæntist 27.8. 1988 Öddu Steinu Björnsdóttur, f. 14.10. 1963, guðfræðingi. Hún er dóttir Björns Friðfinnssonar, f. 23.12. 1939, ráðu- neytisstjóra og k.h., Iðunnar Steins- dóttur, f. 5.1. 1940, rithöfundur í Reykjavík. Böm Þóris og Öddu Steinu eru Unnar Þór Þórisson, f. 14.9. 1991; Bjöm Þórisson, f. 1.5. 1995. Systkini Þóris eru Erlendur Guð- mundsson, f. 2.1.1968, kafari, búsett- ur í Mosfellsbæ; Kristinn Guð- mundsson, f. 15.10.1969, kvikmynda- gerðarmaður og útsendingastjóri, búsettur á Seltjarnarnesi. Dætur fósturfóður Þóris frá fyrra hjónabandi: Hafdís Guðmundsdótt- ir, f. 5.8. 1964, verslunarmaður, bú- sett í Reykjavík; Berglind Magneu- dóttir, f. 10.8. 1962, verslunarmaður, búsett í Reykjavík. Foreldrar Þóris: Guðmundur Kristinsson 17.8. 1936, innrammari, búsettur á Seltjamarnesi, og k.h., Þórann Erlendsdóttir, f. 31.7. 1935, skólastarfsmaður. 'OBB1 Útför Rögnu Kristínar Þórðardóttur kennara, Blöndubakka 5, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju föstud. 20.10. kl. 15.00. Jarðarför Hólmfríðar Rögnvaldsdóttur fer fram frá Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugard. 21.10. kl. 14.00. Ottó Svavar Jóhannesson, Skjólbraut la, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstud. 20.10. kl. 13.30. Jón S. Guðmundsson, Ljósvallagötu 22, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni miö- vikud. 18.10. kl. 15.00. Ingólfur Baldvinsson frá Naustum verö- ur jarðsunginn frá Akureyarkirkju fimmtud. 19.10. kl. 13.30. Guðmundur Alexandersson, áður að Miðtúni 22, verðurjarðsunginn frá Foss- vogskirkju miðvikud. 18.10. kl. 13.30. Merkir Islendingar Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri og al þingismaður, fæddist í Laufási við Eyjafiörð 18. október 1835. Hann var son- ur Gunnars Gunnarssonar, prests í Lauf- ási, og Jóhönnu Kristjönu Gunnlaugs- dóttur Briem. Tryggvi var bróðir Egg- erts alþm. og móðurbróðir Hannesar Hafsteins ráðherra. Kristjana, móðir Tryggva var systir þjóðfundarmann- anna séra Jóhanns Briem í Hruna, og Eggerts sýslumanns, foöur alþm. Ei- ríks prófessors, Ólafs á Álfgeirsvöllum og Páls amtmanns, en systir þeirra var Kristín, amma Gunnars Thoroddsens. Þriðji bróðir Jóhönnu var Ólafur á Grund, langafi Stefáns, alþm. í Fagraskógi, og Odds, föður Davíðs forsætisráðherra. Tryggvi Gunnarsson Tryggvi lærði trésmíði hjá Ólafi á Grund, lærði ljósmyndun í Kaupmannahöfn og var í búnaðarskóla í Noregi. Hann var bóndi á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal 1959-73, stofnaði Gránufélagið og var kaupstjóri þess 1871-93 og bankastjóri Landsbank- ans 1893-1909 er Björn Jónsson ráð- herra vék honum frá. Bjöm veikti stöðu sína meö bankafarganinu svo- nefnda og hrökklaðist sjálfur frá völd- um 1911 en Alþingi ákvað full eftirlaun til Tryggva til æviloka. Tryggvi var alþm. 1869-85 og sat í lengi í bæjarstjóm Reykjavíkur. Hann var virtur athafnamaður, sá m.a. um bygg- ingu ölfusárbrúarinnar 1891 og gerði Al- þingisgarðinn þar sem hann er jarðsettur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.