Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 Skoðun DV Þaö er þægilegt aö víkja og hleypa þeim sem ætla sér hraöar fram úr Á Reykjanesbrautinni. Reykjanesbrautin: Harður húsbóndi sem refsar... Spurning dagsíns Hvernig leggst skammdegið í þig? Dagný Einarsdóttir sjúkraliöi: Bara mjög vel. Notalegt aö kveikja á kertum. Berglind Rafnsdóttir nemi: Ekki nógu vel, þaö er erfitt aö vakna og dagurinn er of stuttur. Birna Hrönn Björnsdóttir nemi: Bara ágætlega. Helga Huld Halldórsdóttir nemi: Mjög vel, þaö er notarlegt, sérstak- lega um helgar. Svo sef ég betur í skammdeginu. Helgi Guövarðson versiunarstjóri: Aiveg rosalega vel. Þaö er svo nota- legt og rómantískt aö kveikja á kert- um í skammdeginu. Ólafur Þórisson verslunarstjóri: Rosatega vel, ég er svo rómantískur aö þaö er ekkert notalegra en skammdegiö. Jón Gröndal umferöaröryggisfulltrúi skrifar: Segja má að það séu þrenn mistök við akstur á Reykjanesbrautinni sem harðast er refsað fyrir. Þau eru; hraðakstur, framúrakstur á 95-100 km hraða og þar yfir og svo miðlínuakst- ur. Þessi mistök eiga það öll sameigin- legt að hafa valdið ljótustu umferðar- slysum sem við sjáum eða a.m.k. átt þar stóran hlut að. Akstur eftir aðstæðum er aðals- merki ökumanna. Aðstæður vísa til birtu, veðurs, ástands vega og öku- manna ásamt annarri umferð. Mat á aðstæðum lærist að mestu leyti með reynslunni. Að minnka hraðann mun hiklaust leiða til færri alvarlegra slysa. Við- bragðstími minnkar og áhrifin af að- gerðum okkar verða öfgakenndari með meiri hraða .Hægjum því ferðina og fækkum slysum. Sennilega verða flest alvarlegustu slysin á Reykjanesbraut við framúr- Guöjón Jónsson skrifar: Ráðstefna sem haldin var um síð- ustu helgi í Reykjavík, um iandgrunn- ið og auðlindir þess, var stefnumark- andi í þeim skilningi að nú er þögnin loks rofin af hinu opinbera sem gengst fyrir löggjöf um olíuleit og ol- íuvinnslu á landgrunni íslands. Er talað um stjórnarfrumvarp sem kvað vera í fæðingu hjá iðnaðarráðherra og taka til leitar, rannsókna og vinnslu kolvetnis og flutnings þess eftir leiðslukerfi í landhelgi, efnahagslög- sögu íslands. Ég minnist umfjöllunar um þetta á sínum tíma í DV, bæði af nokkrum þingmönnum og eins af sérfræðingum hjá Orkustofnun. Þar kom fram að „Nú er ekki lengur afsökun fyrir því að halda fyrir aft- an sig langri lest bíla. Vegaxlirnar þola alveg akstur á 80-90 km hraða.“ akstur. Það jafngildir dauðaósk að fara fram úr bílum sem keyra á 95-103 km hraða. Jafnvel við góðar aðstæð- ur, þegar einhver umferð er. Þeir sem helst stunda þennan ósóma eru líka þeir sem minnsta reynslu hafa, ungu ökumennirnir. Nú hafa skilyrði til framúraksturs hins vegar batnað nokkuð. Það gerðist með tilkomu breiðra vegaxla með bundnu slitlagi sem nú eru lausar við lausa- möl. Nú er ekki lengur afsökun fyrir því að halda fyrir aftan sig langri lest bíla. Vegaxlimar þola alveg akstur á 80-90 km hraða. Það er þægilegt að víkja og hleypa þeim sem ætla sér „Vitað er um áhrifamikla að- ila hér sem vilja hélst þagga allt málið niður að fullu. En fróðlegt verður að fylgjast með áhuga þingmanna og sér- fræðinga um orkumál og hvemig þeir taka á málinu á komandi vikum.“ þegar er búið að uppgötva setlög út af norðanverðu landinu og sem talin eru vera þess eðlis að þar sé olíu að finna. Alla vega er nú komið að því að ís- lenska ríkið ætlar ekki lengur að tefja framkvæmd málsins eins og búið er að gera um alllangt skeið. Kannski er hraðar fram úr. Ekki er lengur þörf á að leggja þá í lífshættu sem ætla að spara 1 minútu milli Keflavíkur og Hafnaríjarðar með því að keyra á 110 km. Flestir ökumenn eru hræddir við vegbrúnina. Þá hlið bílsins sem þeir sitja fjærst. Þannig finnst þeim þeir vera öruggari við miðlínuna og oft aka þeir eftir henni ef skyggni er slæmt. Hvað gerist þegar tveir öku- menn, sem báðir hugsa svona, mæt- ast, t.d. í Kúagerði? Þá er bilið á milli þeirra, aðskilnaðurinn, um og undir 50 cm. Þá má bíllinn ekkert rása. Sek- úndubrot og slysið gerist. Reynið að aka nær vegbrúninni. Við getum í öllum tilfellum treyst henni. Á Keflavíkurveginum eru oft hjólför. Ökumenn eiga að forðast þau. Sérstaklega ef þau eru full af vatni. Þá skal reynt að fara upp úr þeim hægra megin þar sem vegbrúnin er. - Sýnum sérstaka aðgát nú þegar akstursskil- yrði versna. olíuborun við Færeyjar hvatinn að lagasetningu okkar íslendinga. Á ráðstefnunni um sl. helgi, sem ég hefði haft áhuga á að sækja, voru, að sögn, engir þingmenn aðrir en tvær þingkonur sem sitja í iðnaðarnefnd. Margir furðuðu sig á íjarveru þing- menna, a.m.k. seinni daginn (á laug- ardegi). Ráðstefnan hefði a.m.k. átt að vekja áhuga þingmanna kjördæmis Norðurlans eystra en þar er helst að vænta olíu í setlögum. Vitað er um áhrifamikla aðila hér sem vilja helst þagga allt málið niður að fullu. En fróðlegt verður að fylgjast með áhuga þingmanna og sérfræðinga um orku- mál og hvemig þeir taka á málinu á komandi vikum. Löggjöf um olíuleit og olíuvinnslu Dagfari Þrjár stjörnur í frjálsu falli Dagfari hefur alltaf hrifist af þeim mönn- um sem hafa áræði og kjark til að synda á móti straumnum og vera trúir sannfæringu sinni. Enda telur Dagfari sig í hópi slíkra manna. Það er hins vegar verra þegar slíkir stórlaxar fara að synda hver á móti öðrum í beljandi fljóti samtímans sem engu eirir. Sverrir bankastjóri, Gunnar Ingi Gunnars- son læknir og Valdimar kvótabani eru allir þjóðkunnir menn af þeirri sort sem fyrr var lýst. Þeir hafa borið gæfu til að starfa saman í stjórnmálaflokki sem hefur á stefnuskrá sinni öll helstu réttlætismálin sem brenna á þjóðinni. Samt vill enginn kjósa flokkinn. Þetta hefur Dagfari aldrei skilið. Eins og Sverrir er nú skemmtilegur, Gunnar Ingi myndarlegur og Valdimar sækinn sér. Sjá kjósendur ekki þá hæfileika sem fara forgörð- um þegar þeir setja krossinn við eitthvað annað en þá félaga í kosningum? Stjömurnar þrjár bjóða sig fram en eftirspumin er nánast engin. Dagfari er hissa. Ástæðan er ef til vfil sú að þessir þrír menn geta ekki verið saman í herbergi og hvað þá í framboði. Fyrir siðustu kosningar fengu þeir félagar þá snjöllu hugmynd að láta prenta einhvem óþverra um Framsóknarflokkinn og dreifa meðal kjósenda. Þetta var heldur frjálslynd útgáfa; Valdimar átti að Dagfara er ekki kunnugt um að þjóðin hafi óskað eftir starfskröftum þre- menninganna í opinberu lífi. Mœlir- inn er fullur. Eða, eins og danskurinn segir: - Farvel, tossede trio. sjá um prentunina þar sem hann var gamall blaða- maður með sambönd í prentsmiðjum, Sverrir ætl- aði að borga brúsann, enda gamall bankastjóri og fésýslumaður, og Gunnar Ingi átti svo að sleikja sárin þar sem hann var læknir. Allt fór þetta úr böndum þegar læknirinn neitaði að sleikja sárin þó svo Valdimar væri búinn að láta prenta og Sverrir að borga. Framsókn- armenn stóðu hins vegar í forundran yfir þessari óvæntu árás sem enginn vissi deili á, enda ætluðu fijálslyndu stjörnunar þrjár aldrei að kjafta frá. Þar til nú. I Ijósi alls þessa er Dagfari á því að þessir kappar eigi að snúa sér að því sem þeir eru bestir í. Sverrir er búinn að reyna fyrir sér í pólitík og bankamálum með landsfrægum ár- angri. Hann á bara að vera í laxi. Valdimar hefur ítrekað reynt að koma sér á framfæri við þjóðina og tókst meira að segja að selja henni uppstoppaðan geirfugl fyrir morð fjár þegar nóg var tfi af honum erlendis. Það eitt nægir til að réttlæta uppstoppun á Valdimar sjálf- um. Þá ætti Gunnar Ingi að fara að lækna fólk aft- ur, enda til þess menntaður af skattfé almennings. Menn þurfa ekki læknismenntun tfi að sleikja sár í pólitík. Dagfara er ekki kunnugt um að þjóðin hafi óskað eftir starfskröfum þremenninganna í op- inberu lífi. Mælirinn er fufiur. Eða, eins og dansk- urinn segir: - Farvel, tossede trio. Sameining ríkisbankanna Jóhann Sigurðsson skrifar: Ég tek fram að ég er ekki andsnú- inn einkavæðingu á mörgum sviðum, t.d. RÚV og Landssímans, en ég styð hefis hugar sameiningu ríkisbank- anna Búnaðarbanka og Landsbank- ans. Hvað er eðlilegra en að þjóðin, ríkið, haldi utan um sameinaða bankastofnun sem þessi nýi banki yrði? Og hvað með það þótt hann hefði 50 eða 60% markaðshlutdefid? Ég vil fremur sjá þessa stofnun sterka en að vita af t.d. einhverjum tveimur öðrrnn bankastofnunum sem berjast um markaðshlutann. Og öruggari er ég með ávísun eða tékka í vasanum, t.d. í viðskiptum erlendis frá banka sem ríkið stendur á bak við, en alls óþekktri bankastofnim islenskri. Nýi bankinn gæti sem best borið nafnið Þjóðbankinn (á ensku: The National bank of Iceland). Tveir ríkisbankar í einn sterkan þjóðbanka 50 eöa 60% markaöshlutdeild - og hvaö meö þaö? Hvílíkur afsláttur! Ragnar skrifar: Ég sá stóra frétt (ekki auglýsingu) í Mbl. fyrr í þessum mánuði um tvær verslanir (og voru nefndar afsláttar- verslanir) sem opnaðar heföu verið í Faxafeni hér í borginni og myndu að bjóða væntanlegum viðskiptavinum sínum svona 50-80% afslátt. Þetta voru verslanirnar Toppskórinn og Herramarkaðurinn, hlið við hlið, sem buðu þessi kostakjör. Ég fór á staðinn og ætlaði að gera reyfarakaup en varð fyrir vonbrigðum með verð á flestum vörutegundum. Hálsbindi voru þarna t.d. seld á 1.900 kr. og annað var eftir þessu. Ég heföi víða annars staðar fengið fatnað á því verði sem þarna var boðið. Mér fannst ég hafa verið ginntur á staðinn að tilefnislausu. Hollywood eöa ríkið? G.G. skrifar: Mikið er rætt um velgengni myndar- innar 101 Reykja- vík, og höfundur- inn, Baltasar Kor- mákur, útlistar af miklum dugnaði að Baltasar Kor- hann hafi ekki haft mákur kvik- tóm til að fara yfir myndaleikstjóri. fjölda tilboða sem honum hafi borist frá Hollywood. Þeim mun skrýtnara er að hann skuli þegar vera að reyna að kría út styrk frá Kvikmyndasjóði fyrir næsta meistaraverk. í blaðavið- tali sagðist hann þurfa á slíku að halda til að gleymast ekki. Er Hollywoodáhuginn virkfiega ekki meira virði en svo að Balthasar gleymist strax í hinum stóra heimi, nema íslenskir skattborgarar sjái aumur á hinum hæfileikaríka en fá- tæka manni? Landbúnaðar- banki íslands Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: í DV þann 10. okt. sl. lagði Loki til aö nýi bankinn sameinaði úr Búnað- arbanka og Landsbanka skyldi heita Landbúnaðarbankinn. Satt að segja fmnst mér þetta óvitlaus nafngift og góð hugmynd. Nafnið Landbúnaðar- banki íslands, LBÍ segir sitthvað úr uppbyggingarsögu og starfsemi lands og þjóðar á síðustu öld. Um leið óska ég bönkunum tveimur góðs gengis og fagna því að enginn af starfsmönnum bankanna muni missa vinnu sína. Starfsmenn ættu nefnfiega sérstak- lega að fagna þessari sameiningu. DV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.