Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Qupperneq 7
7
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
DV Fréttir
Ríkissmalinn smalaði þúsund fjár en slysum fækkaði lítt:
Hugmyndir um varð-
hald á vegarollur
- og eigendum verði gert að greiða sektir
DV. BORGARNESl:____________________
I sumar réð Vegagerðin í Borg-
arnesi ríkissmala sem svo hefur
verið kallaður. Hann starfaði í tvo
mánuði til reynslu í því augnamiði
að fæla burt fé frá þjóðveginum og
koma því inn fyrir girðingar. Slys
af völdum búfjár eru flest á Borg-
arnessvæðinu ef allt landið er tek-
ið. Smalað var alla fimmtudaga frá
í ágúst til loka september og segir
Jenni R. Ólason, fulltrúi hjá Vega-
gerðinni í Borgarnesi, sem sá um
verkefnið, að smal-
að hafi verið um
1000 fjár.
„Þeir staðir sem
voru smalaðir var
hringvegurinn frá
göngum og upp að
Hellisá í Norðurár-
dal, Akrafjallsveg-
urinn allur, Hvít-
árvallavegurinn að
Andakílsá og Snæ-
fellsnesvegur vestur að Hítará.
Verkefnið tókst að mörgu leyti vel,
viðbrögðin voru svo jákvæð og ég
held það komi í ljós að tilraunin
hafi verið fullkomlega þess virði
að reyna hana. Ég veit ekki hvort
farið verður af stað með verkefnið
aftur að ári, það var engin fjárveit-
ing í þetta ,“ sagði Jenni við DV.
Samkvæmt tölum yfir slys af
völdum búfjár frá áramótum til 7.
október í umdæminu virðist slys-
um lítið hafa fækkað. Þau eru um
50 eins og í fyrra en umferðin hef-
ur hins vegar aukist. Á morgum
verður fundur í Hyrnunni þar sem
verkefnið verður kynnt og er ætl-
un manna að knýja fram fjárveit-
ingar til þess að Ríkissmali verði
aftur ráðinn á næsta ári. DV hefur
áreiðanlega heimildir fyrir þvi að
meðal þeirra bragða sem menn
ætla að beita sé að hneppa vega-
sækinn búfénað i varðhald. Verði
skepnunum ekki sleppt nema
greiðsla komi frá eiganda búfjár-
ins. -DVÓ
F
Jenni
R. Ólason
Blönduós:
Heimafólk hélt í
rækjuvinnsluna
vinnslan hér á Blönduósi á sér
lengri sögu. Þetta varð því að sam-
komulagi og allt í góðu með það,“
sagði Kári, og vitaskuld eru Blöndu-
ósingar ánægðir með að þama hafi
verið tryggt eignarhald yfir stærsta
atvinnufyrirtækinu á Blönduósi,
fyrir utan Heilbrigðisstofnunina.
Að sögn Kára hefur vinnslan
gengið ágætlega að undaníörnu. Um
30 manns vinna hjá Særúnu á
tveimur vöktum. Erfiðlega gekk um
tíma að fá fólk til vinnu og Kári réð
sjö Pólverja sem verða á Blönduósi
í vetur, en fullmannað er um þessar
mundir. Kári kvíðir ekki hráefnis-
öfluninni, segir að Særún fái nóga
rækju af Nökkvanum og Gissuri
hvíta, sem eru í eigu fyrirtækisins,
og einnig er það með nokkra báta í
viðskiptum. -ÞÁ
„Mér fannst
frekar að þró-
unin ætti að
vera í hina átt-
ina, þar sem
DV-MYND MAGNÚS ÓLAFSSON
í rækjunni
Unniö í rækjunni í Særúnu fyrir nokkrum árum. Þessi smái
fiskur hefur bjargað miklu á Blönduósi um árabil og svo
veröur eflaust áfram.
DV. BLÖNDUÖSI:
Kári Snorrason,
framkvæmdastjóri
rækjuvinnslunnar
Særúnar á Blöndu-
ósi, og fjölskylda
hans hafa eignast
meirihluta í fyrir-
tækinu, en fyrir
skömmu var gengið
frá eignaskiptum
Snorrason Kara °S Óttars
Yngvasonar i
Reykjavík. Kári lét af hendi eignar-
hlut í þrem skipum sem gerð eru út
á Flæmska hattinum undir eist-
neskum fána, Merika, Kan og Tár-
us, ásamt hlutabréfum í nokkrum
öðrum félögum, þar á meðal Dögun
á Sauðárkróki. Kári fékk í staðinn
það sem Óttar átti í Særúnu og
Nökkvanum.
Meginástæð-
an fyrir þessum
skiptum var sú
að Óttar hafði
áætlanir um að
leggja niður
rækjuvinnslu á
Blönduósi og
auka í staðinn
vinnsluna á
Sauðárkróki.
Kári var ann-
arrar skoðunar.
Skatan kæsist dvmyndsveinn
Fiskbúö Hafliöa á Grandagaröi er nú í óöaönn aö undirbúa „skötufárið“ sem
veröur dagana fyrir Þorláksmessu. Níu tonn afskötu eru komin í verkun og
von á meiru. Stööug aukning er í neyslu á þessum þjóölega rétti en þó eru
enn margir sem grípa fyrir nefiö. Hér er Þorkell Hjaltason, einn eigenda fisk-
búöarinnar, og Marokkómaöurinn Mohamed Tayni sem óöum er aö venjast
lyktinni.
Verslun Samkaups.
Kaupás þenst út:
Samkaupsmenn
áhyggjulausir
Forráðamenn verslanakeðjunnar
Samkaups hafa engar áætlanir um
að bregðast við hinum nýju lágvöru-
verðslunum sem Kaupás hyggst
opna. Guðjón Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa, segist
ekki hafa áhyggjur af aukinni sam-
keppni: „Þetta raskar ekkert ró okk-
ar og við höfum ekki ráðgert neinar
sérstakar breytingar vegna þessa.
Það eru alltaf einhverjar hræringar
á markaðnum og ef maður hrykki
alltaf við væri maður löngu orðinn
vitlaus. Við erum með lágvöruverðs-
verslun í Keflavík sem við ætlum að
stækka, en það hefur verið á dag-
skránni um nokkurt skeið. Það fjölg-
ar náttúrlega á lágvöruverðsmark-
aðnum á höfuðborgarsvæðinu, enda
hefur fólksflóttinn þangað það í fór
með sér að menn vilja helst vera
með rekstur þar. Það er svo annað
mál að gaman væri að vita hversu
mikið hefur verið fjárfest í verslun á
íslandi miðað við önnur lönd. Ég
gæti trúað því að fermetrarnir séu
orðnir töluvert fleiri hér en víðast
hvar annars staðar, en það hefur
auðvitað áhrif á verðlagið." -MT
Aflahæstir
Akureyringar eru aflakóngar síðasta
fiskveiöiárs.
Baldvin Þorsteinsson EA:
Aflakóngar síð-
asta fiskveiðiárs
DV, AKRANESI:
Baldvin Þorsteinsson EA var afla-
hæsti togari landsmanna á síðasta
fiskveiðiári með alls 9048 tonna afla.
Þetta er 1700 tonnum meiri afli en
hjá þeim togara sem næstur kom en
það var Höfrungur III AK sem var
með 7348 tonn.
Þetta kemur fram i yflrliti Fiski-
stofu yfir togaraaflann á sl. ári og er
miðað við allar tegundir. Á eftir
þessum skipum koma Þerney RE
með 7123 tonn, Akurejrin EA með
6794 tonn, Kleifaberg ÓF með 6717
tonn, Arnar HU með 6668 tonn,
Málmey SK með 6464 tonn, Vigri RE
með 6405 tonn, Víðir EA með 6256
tonn og Örfirisey RE með 6228 tonn.
-DVÓ
Mikið úrval
af úlpum
Nóatúni
Mikið úrval
ódýrt - ódýrt
• Innanhússskór, kr. 500-1.990
• Speedo-sundfatn., 30-50% afsl.
• Úlpur frá kr. 1.990
• Barnaskór nr. 24-36, kr. 500
• íþróttagalli m/2 buxum,
barnast. 4-14, kr. 3.490,
fullorðinsst. kr. 3.990
• Gerry Micro-galli, S-XXL,
SPAR Li SPORT
TOPPMERKI A LÁGMARKSVERÐÞ
kr. 2.990 Nóatúni 17 s: 511 4747 #
Fleecepeysur- hjólabuxur
Reef-bandaskór, st. 36-46, kr. 1.990
Töflur, st. 35-36, kr. 995