Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 __________________________________________________________________________________________£ DV Tilvera Dropi í hafið Verkið á myndinni, sem er i fjöruborðinu rétt fyrir innan Suð- rn-eyri, hefur vakið athygli vegfar- enda í sumar. Þetta er rautt dropalaga form sem listamaður- inn hefur kallað „Dropi í hafið“. Það marar ýmist í hálfu kafi, er allt upp úr eða hverfur alveg, allt eftir því hvernig stendur á sjávar- follum. Höfundur verksins, Ólöf Björk Oddsdóttir, vill með þessu verki minnast þeirra mörgu sem haflð hefur heimtað. Rauði litur- inn og dropalögunin vísa til lífs- blóðsins sem hefur dropið í hafíð við íslandsstrendur i gegnum ald- imar. Verkið er hluti sýningarinnar Sjávarmyndir sem haldin hefur verið í fjórum þéttbýlisfjörðum Isafjarðarbæjar nú í sumar. Höf- undar myndanna em, auk Ólafar, þau Elísabet Gunnarsdóttir arki- tekt og myndlistarmennimir Högni Sigurþórsson og Pétur Guð- mundsson. -VH DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON Dropi í hafið. Höfundur verksins er Ólöf Björk Oddsdóttir. Síðasti spölurinn. Hér er stóöiö rekiö í réttina og margar hendur á lofti viö reksturinn. Laufskálaréttir: Stóðið dró að fjölmenni - á annað hundrað manns rak 700 hross til réttar DVH1YNDIR ORN ÞÓRARINSSON. Fræknir félagar. Mættir í Laufskálarétt enn einu sinni voru þeir Stefán Steingrímsson, Bessi Vésteinsson og Ingólfur Helgason. DV, SKAGAFIRÐI: ________ Mikið fjölmenni var samankomið við Laufskálarétt í Hjaltadal þegar stóð var réttað þar á dögunum. Réttin hefur verið ein fjölsóttasta stóðrétt landsins undanfarin ár og miðað við fólksfjöldann nú virðast vinsældir hennar síst í rénun. Talið er að um 700 hross að folöld- um meðtöldum hafi komið í réttina að þessu sinni. Flest koma úr afréttinni í Kolbeinsdal en um 200 eru í beitar- hólfi seinni part sumars í Viðvíkur- sveit og eru þau réttuð á undan aðal- stóðinu. Flestir sem koma í stóðréttina koma til að fylgjast með þvi sem þar fer fram og hitta vini og kunningja. Undanfarin ár hefur verið vaxandi ásókn i að fara með heimafólki til að smala stóðinu og er talið að talsvert á annað hundrað manns hafl rekið hrossin til réttar að þessu sinni. Þá er talsverður fjöldi sem kemur til að að- stoða bændur við að draga hrossin í dilka og reka þau síðan heim á eftir. Því fylgja talsverð átök sem freista ungra og hraustra manna. Þegar fjölmenni heimsækir Skag- firðinga eins og við þetta tækifæri reynir á ferðaþjónustuaðila. Talið er að nánast allt gistirými i héraðinu sé fullnýtt þessa helgi og raunar er þeg- ar búið að panta fyrir þessa helgi að ári. Þá var mikið að gera á matsölu- og veitingastöðum í héraðinu. Tveir stóðréttardansleikir voru haldnir, á Hofsósi og í Varmahlíð, og var fjöl- mennt á báðum stöðum. -ÖÞ Hestar og menn. Hér eru Laufskálaréttir í fjallasalnum fagra, menn kannski lítt færri en hross- in, sem rekin voru til réttar, trúlega um 700 talsins. Glaðhlakkalegir þre- menningar Egill Helgason ásamt listamönnun- um Huldu Hákon og Jóni Óskari. Hönnun fest á filmu Valgeröur Matthías- dóttir, innanhúss- arkitekt og þátta- geröarkona, mundar myndavélina á Kjar- valsstööum. í léttum dúr Þaö var létt yfir Þor- grími Gestssyni rit- höfundi og Guörúnu Jónsdóttur, formanni menningarmála- nefndar Reykjavikur- borgar, á opnun hönnunarsýningar- innar. DV-MYND EINAR ÖRN íbyggnir á svip Jón Viöar Jónsson leikhúsfræöingur og Þorvaldur Þor- steinsson, rithöf- undur og myndlist- armaöur, í djúpum samræöum. Kjarvalsstaðir: íslensk hönnun á sýningtu Um sídustu helgi var opnuð sýningin Mót - hönnun á íslandi - íslenskir hönnuðir, á Kjarvalsstöðum. Sýningin er sameiginlegt framlag Form ísland, samtaka hönnuða, Hönnunarsafns ís- lands og Listasafns Reykjavíkur til menningarborgarinnar. Eins og við var að búast mœtti fjöldi gesta til opnunar- innar og ekki annað að sjá en sýningin vekti hrifningu viðstaddra. KAUPTU MIÐA Á LEIKRITIÐ SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM! Nöfn þeirra sem kaupa miða á Vitleysingana á www.visir.is fara í pott sem dregið verður úr Þrír heppnir einstaklingar geta unnið þriggja rétta leikhúsmáltíð fyrir tvo á veitingaskipinu Thor. THOR Veitinga og söguskip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.