Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Page 13
c
Það eru 22 ár síðan nokkrir írskír skólastrákar rottuðu sig saman og stofnuðu band að frumkvæði Larrys
nokkurs Mullens. Til liðs við sig fékk hann fugla sem hafa sumir skipt bæði um hljóðfæri og nöfn síðan
lagt var upp. Nafnið vafðist nokkuð fyrir þeim fyrst í stað en þegar Rússar skutu niður bandaríska
njósnaflugvél af U2-gerð var sá vandi úr sögunni. Kristján Már Ólafsson skoðaði hljómsveitina sem
virðist alltaf ætla að verða vinsæl.
Þó er ekki þar með sagt að öll
þeirra vandamál hafl verið úr sög-
unni. Líkt og svo mörg bönd sem
komu fram með og í kjölfar pönk-
bylgjunnar var fyrst á dagskrá að
setja saman bandið og síðan að
læra að spila. Fljótlega kom í ljós
að sá sem síðar tók sér nafnið
Bono (Paul Hewson) var ekki efni í
gítarleikarann sem hann vildi
verða. í sárabætur fékk hann emb-
ætti söngvara og þó svo hann væri
álíka hörmulegur í þeirri iön bætti
hann getuleysið upp með eldmóðn-
um. Adam Clayton fór á bassann,
Dave Evans á gítar (siðar The
Edge) og fyrmefndur Larry Mul-
len sat við settið.
Lærdómsferlið
U2 liðar brýndu tennumar á
klúbbum Dublinar og tóku upp EP
plötuna U23 fyrir CBS-útgáfuna
1979. Sú kom einungis út á írlandi
en tónleikaferðin sem þeir skipu-
lögðu sjálfir í kjölfarið tók af allan
vafa um hvert þeir ætluðu. Þeir
lögðu í víking til Lundúna þar sem
CBS höfðu ekki áhuga á að gera við
þá plötusamning en höfðu þó ekki
árangur sem erfíði. Þó er athyglis-
vert að í lok þessarar ferðar spil-
uðu þeir fyrir troðfullu húsi í
Dublin, 2000 sálir eða svo, og topp-
uðu ýmsa lista hjá þarlendu tónlist-
artímariti í janúar 1980. Enda fór
svo að Island Records tóku þá upp
á sína arma og mánuði síðar kom
fyrsta smáskifan, 11 O'Clock Tick
Tock, út.
Á vegum úti
Sveitinni óx jafnt og þétt ásmeg-
in næstu þrjú árin og orðsporið fór
ekki varhluta af þvi. Þetta má að
stórum hluta þakka linnulitilli
spilamennsku þar sem Bono lagði
sig allan fram, alltaf, í að ná og við-
halda athygli þeirra sem tónleik-
ana sóttu. Fyrstu 3 plöturnar
þeirra - Boy (1980), October (1981)
og War (1983) - hlóðu jafnt og þétt
undir þá og sú síðastnefnda náði á
topp breskra vinsældalista fyrir til-
stilli frábærra laga á borð við New
Year's Day og Two Hearts Beat
as One. Þama var komin fram
hljómsveit sem höföaði sterkt til
fólksins og náði góðu sambandi við
það á tónleikum og átti auk þess
lögin líka.
Stjómmálin rata líka inn í U2
jöfnuna og sveitin tók við af The
Clash sem pólitískasta bandið á
Bretlandseyjum. Öll þessi áhrif
sem koma saman í karakter sveit-
arinnar út á við náðust skemmti-
lega á band á tónleikaplötunni
Under a Blood Red Sky og vídeó-
spólunni sem fylgdi með. Sú var
tekin upp í Bandaríkjunum, nánar
tiltekið í Colarado, og átti örugg-
lega sinn þátt í því að sama ár út-
nefndu blaðamenn Rolling Stone
hljómsveitina hljómsveit ársins.
The Unforgettable Fire
og svo framvegis
Snemma árs réðu U2 liðar til sín
hljóðlækninn Brian Eno og
kollega hans Daniel Lanois og
vöktu með því nokkrar spurningar.
Eno hafði jú búið til frábærar plöt-
ur með David Bowie og Talking
Heads en eitthvað fannst mönnum
þessi samsuða þó undarleg. Hún
bar þó ríkulegan ávöxt á plötunni
The Unforgettable Fire og ríku-
legri á plötunni The Joshua Tree
en með henni merkti sveitin sér
endanlega stað á stjömukortum.
í kjölfar gríðarlegra vinsælda
trésins tók við hliðarspor þar sem
sveitin rakti blúsrætur sínar og
skoruðu með því aukastig um víða
veröld. Rattle and Hum varð nafn-
ið á pakka sem innihélt myndband
tekið á Joshua Tree tónleikaferðinni
og tvöfalda plötu með tónleikaefni
og nýjum hljóðverslögum, meðal
annars When Love Comes to Town
þar sem BB King var til aðstoðar.
Þegar tónleikaferðinni í kjölfarið
lauk tilkynnti Bono að nú væri kom-
ið að vendipunkti, orðið tímabært
að fara að hugsa dæmið upp á nýtt.
Bylting í tónlist og fram-
setningu hennar
Hansa stúdíóið í Berlín hafði
áður verið vettvangur umbyltinga
á dægiu-lagaforminu, þá á vegum
Bowie og Eno. Nú fóru hins vegar
Eno, Lanois og U2 þama inn og
komu út með Achtung Baby!
(1991), sem gerði allt vitlaust og
tónleikaferðalagið sem piltarnir
fóru í kjölfarið opnaði nýjar víddir.
Öfgar neysluþjóðfélagsins voru
fléttaðar inn í sviðsmyndina og allt
gert svo stórt að slíkt hafði ekki
sést síðan Pink Floyd riöu um hér-
uð með The Wall í farteskinu. Á
ferðalaginu fæddist næsta plata,
Zooropa, og enn var bætt í hvað
varðaði öfgar í lifandi framsetn-
ingu. Þær náðu nýjum hæðum í
kjölfar Pop-plötunnar, sem kom út “
1997, og með henni má í raun segja
að blaðra hafi sprungið.
Ný plata, All That You Can’t
Leave Behind, er síðan væntanleg
á mánudaginn. Sú er unnin í sam-
vinnu við Eno/Lanois teymið og er
talað um afturhvarf í stefnu og
nálgun. Rétt er að benda þeim sem
sannarlega eru tileinkaðir á að
Skífan verður með miðnæturopnun
í verslun sinni að Laugavegi 26.
Verði ykkur að góðu.
plötudómar
★★★★
Hljómsveitin: DaVÍd BðWÍe
piatan: Bowie at the Beeb
Útgefandi: EMI/Skífan
Lengd: 215:24
★★★★
Hljómsveitin: lan Pooley
piatan: Since Then
Útgefandi: V2/Japis
Lengd: 75:45 mín.
★★★
Hljómsveltin: Lenny Kravitz
Platan: Greatest Hits
Útgefandi: EMI/Sk[fan
Lengd: 62:20
hvaöf
Tveggja diska safn upptakna sem David
Bowie gerði fyrir hina ýmsu þætti breska
rikisútvarpsins BBC á árunum 1968 til
1972, áður og eftir að hann varð fræg-
ur. Þeir sem tryggja sér eintak í tíma fá
í kaupbæti þriðja diskinn sem inniheld-
ur skemmtilegan þverskurð af ferlinum
sem greifinn lék ásamt hljómsveit sinni
fyrir 250 manna hóp nú í sumar.
lan Pooley er þýskur danstónlistar-
maður sem vakti mikla athygli fyrir
plötuna Meridian sem kom út fyrir
tveimur árum. Á þessari plötu er hann
að dufla við Brasilíu-skotið house. Á
plötunni nýtur hann krafta nokkurra
söngvara, þ. á m. Kirsty Hawkshaw og
brasilísku söngkvennanna Rosanna
og Zélia.
Safnplata með úrvali þess besta sem
hinn snaggaralegi Lenny Kravitz hefur
sent frá sér. Hljóðversplöturnar eru
orðnar fimm taisins og Ijóst að um
ansi auöugan garð er orðið að gresja,
alla vega stígur kappinn öldur Ijós-
vakans reglulega, er ekki eitthvað að
marka þaö? Svo er mér sagt.
fyrir hvernf
BBC-upptökurnar eru skemmtileg viöbót
fýrir geðsjúklinga á borö við undirritaðan
en þær spanna eitthvert frjóasta tímabil
greifans, þó er spurning hvort þetta hent-
ar bytjendum. Allir ættu auðvitaö að eiga
plöturnar Space Oddity, Hunky Dory og
Ziggy Stardust og The Man Who Sold the
World sleppur alveg. Þetta eru hornstein-
ar þess orðspors sem hann lifir á í dag.
Þetta er eðal house með miklum Bras-
illuáhrifum en líka með afróbít-, diskó,
deep-house- og poppáhrifum. Þetta
ætti að höfða til þeirra sem kunna að
meta frekar léttleikandi house-tónlist.
Platan minnir stundum á sumt af því
sem snillingarnir I Basement Jaxx eru
að gera.
Mér hefur virst sem Lenny nái að
höfða til ansi breiðs hóps, jafnt ungra
sem aldinna af báöum kynjum. Hann
hefur verið gagnrýndur fyrir að draga
frjálslega til sín úr fortíðinni en flest
gerir hann svo vel að ekki stoöar aö
álasa honum. Sérstaklega er gaman
að sjá til hans og hljómsveitar á tórr-
leikum.
skemmtileqar
staöreyncfir
Upptökumar spanna eins og áður
sagði fjögur ár og eru teknar úr 10
heimsóknum kappans á stöðina.
Bandiö sem styður er í ýmsum mynd-
um en í einum þættinum er einmitt
kynntur til sögunnar ungur örlagavald-
ur, Mick Ronson aö nafni, sem þá er
nýkominn í bæinn frá Hull. The rest is
history...
lan Pooley vakti fyrst athygli fyrir að
spila teknó, bæði sem plötusnúður og
pródúser. Hann er enn mjög vinsæll
dj., spilar að jafnaði tvisvar í viku úti
um allan heim. Hann er frá Mainz,
borg í nágrenni Frankfurt, en kynntist
brasilískri tónlist á flækingi sínum um
heiminn.
Þegar Lenny var að skreiöast fram á
sjónarsviðið var hann aðallega þekktur
sem þessi kærasti hennar Lisu Bonet,
einnar dótturinnar í Cosby show. Þau
eru löngu hætt saman og hlutföllin hafa
algiöriega snúist við, allir þekkja Lenny
en Lisa er að falla í gleymsku. Ég sá þó
til hennar í Bullworth fyrir skemmstu og
get vottað að hún er ennþá flott.
Það má tína ýmislegt til sem betur
hefði mátt fara í BBC-upptökunum en
ég hef hins vegar svo gaman af þessu
að ég ætla að láta þaö vera. Þaö er
gaman aö hlusta á Ronson rembast
við bakröddina í Starman, þess háttar
atriði gefa þessu meiri sögulega dýpt
en ella. Tónleikadiskurinn er aö megn-
inu til snilld. kristján már ólafsson
Þetta er fyrsta flotta danstónlistar-
plata vetrarins. Hún er mjög heilsteypt
og sándiö er flott. Tónlistin er mishörð
og mishröð, en alltaf grúví og lifandi.
Þetta er plata til þess að spila á fullu
blasti og dilla sér með, hvort sem það
er heima í eldhúsi, í bílnum eða á
dansgólfinu.
trausti júlíusson
Eins og oft vill verða meö safnplötur,
alla vega hvað mér finnst, þá er laga-
valið hlutur sem auðvelt er að klúðra.
Hér er flestallt í lagi én þó setja þeir
inn eina lagið af 5 sem ég þoli ekki,
Black Velveteen. Auk þess hefði Amer-
ican Woman vel mátt hvíla í friöi í sinni
upprunalegu mynd. Þá er það versta
upptalið. kristján már ólafsson
★★★
Hljómsveitin: Em6St
Ranglin
piatan: Modern Answers
to Old
Útgefandi: Telarc Jazz/12 Tónar
Lengd: 61:06 mín.
Ernest Ranglin er gítarleikari frá Jama-
ica sem hefur verið að spila tónlist
síðan á fyrri hluta síðustu aldar. Á
þessari plötu er nýtt efni sem hann
gerir meö hljómsveit sem m.a. Tony
Allen, (trommari Fela Kuti), saxófón-
leikarinn Denys Baptiste og söngkon-
an Sylvia Tella eru í.
Tónlistin á plötunni er sambland af
djass-spilirii og heimstónlist. Sums
staðar læðist hún líka út í reggae og
fönk þannig að þetta ætti að geta
höfðað til margra. Þetta er samt
kannski fyrst og fremst plata fyrir þá
sem vilja heyra alvöruspilamennsku,
lifandi og án hjálpartækja.
Ernest Ranglin er löngu orðinn goð-
sögn á Jamaica. Hann var á svæðinu
þegar ska- og reggae- tóniistin varð til
og sagan segir aö hann hafl kennt Bob
Marley á gítar. Hann tók llka upp fyrsta
smell eyjunnar, My Boy Lollipop, með
Millie Smalls. Nýlega spilaði hann inn
á margrómaða piötu; Saint Germain,
Tourist.
Þetta er fin plata. Það er klárlega ekki
veriö að gera neitt sem hefur ekki ver-
ið gert áður en þetta er bara svo vel
útfært að maður getur ekki annað en
hrifist með. Spilamennskan er blátt
áfram og virkar áreynslulaus en um
leið fullkomin. Lögin eru samt misgóö,
Sound Invasion er t.d. snilld.
trausti júlíusson
ERPJEST %
BWGUN;\ .)
•v í
i
27. október 2000 f Ó k U
13
ir