Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2000, Blaðsíða 4
Sigurður Harðarson er hjúkrunarfræð ingur að mennt og á eitt barn. Aðal- björn Tryggvason er hlaðmaður og veit ekki til þess að hann eigi nein börn. Saman eru þeir í for- sæti fyrir hátíðarnefnd Andkristni- hátíðar, sem haldin verður heilög á Gauki á Stöng, þriðjudaginn komandi, klukkan 21. Þar mun flutt dauðarokk, tón- listarstefna sem tröllreið bílskúrum landsins í upphafi síðasta ára- tugar, en er ekki aldauð. „Við lítum á trúarbrögð sem samsæri,“ segja þeir Siggi og Addi. Þeir telja að allt frá því að kristni var lögleidd á íslandi, með ofbeldi, fyrir þúsund árum hafi hún reynt að troða sér inn í líf fólks og verið eitt af kúgunartækjiun ríkisvalds- ins. „Það er þessi grunnskólaheila- þvottur. Hið sama á við um aðra minni kristna söfnuði þar sem ræktun trúarbragðanna sniðgeng- ur persónulegar þarfir hvers ein- staklings. En kristnin er að tapa virðingunni og næstu þúsund ár eru okkar,“ segja þeir félagar. Tónlist djöfulsins Þeir höfðu lengi fundið til pirr- ings í garð þjóðkirkjunnar, en sú tilfinning náði hámarki sinu með kristnitökuhátíð sumarsins. „Þetta er gömul hugmynd hjá okkur. Að halda öfgakennda þungarokkstón- leika er góð leið til að berjast gegn kristni," segja þeir um hugdettu sína. „Kristnir menn hafa alltaf stimplað rokkið sem tónlist djöfuls- ins, og þungarokkið eitthvað þaðan af verra. Nema Gunni í Krossin- um, hann tók rokkið í sátt eftir að Páll Rósinkrans kom í söfnuð- inn,“ segja þeir með bros á vör. En Snorri í Betel er lika dyggur að- dáðandi þungarokkssveitanna sem upp troða á Andkristnihátíð. „Hann hefur brennt allt okkar efni, held ég,“ segir Addi, en hann er meölimur i sveitinni Sólstafir, sem verður á Gauknum ásamt hljómsveit Sigga, Forgarði Helvít- is, og tveimur öðrum sveitum, Múspell og Potentiam. Forgarður helvítis er að sigla inn í annan tug starfsævi sinnar og er þekktust hljómsveita í neðanjarðarþung- arokksgeiranum íslenska. í frétta- tilkynningu hátíðarnefndar segir: Nafn, tónlist og ímynd Forgarðs Helvítis hefur ætíð virkað sem hráki í auga þeirra sem hrópað og beðið hafa gegn rokktónlist. Sú for- dæming sem þeir krossmerktu hafa krafist er meðlimum upphafning og um leið sannfæring um að þeir séu að gera rétt. Samið yfir Nágrönnum Sú þungarokkstónlist sem bönd- in fjögur spila og kennd er við ýmsa málma, svo sem dauðamálm- ur og svartimálmur, hefur ekki verið í tísku undanfarin ár og hef- ur fallið í skuggann af vinsældum harðkjarnarokks svokallaðs. „Mín- us hefði til dæmis getað fyllt húsið einir og sér, með hardcore-krökk- um, og þeir eru ágætis vinir okkar, en okkur langaði bara að halda al- vöru metaltónleika og sjá hvernig það gengi,“ segja þeir, en harma það að neyðast til að setja aldurs- takmark á hátíðina. „Yngri krakk- arnir ffla okkur líka, fyrir að vera svona gamlir þungarokkarar,“ segja þeir. Fyrir þá sem hlusta lítið á þungarokk getur verið erfitt að greina muninn á hinum ýmsu stefnum, en Addi og Siggi segja muninn skýran. „Við gerum dekkri og ljótari tónlist, og miklu hraðari en hardcorið, en sumar af yngri hljómsveitunum eru að ná hraðan- um, eru að læra að hjóla,“ segja þeir. Þó þeir gefi frá sér þessa dimmu tóna og rymji andkristna texta við, lengst neðan úr barka, eru þeir fjarri því að vera þung- lyndir eða einhverjar verri mann- eskjur fyrir vikið. Addi segist hafa samið megnið af disk hljómsveitar sinnar, sem kom út *96, með kassagítar sér við hönd í glaðbeittri setu fyrir framan sápuóperuna Ná- granna. Þeir kumpánar bjóða þjóð- inni eins óg hún leggur sig á Gauk á Stöng og lofa trylltum tónleikum. Aðgangseyrir er 400 krónur. „Við ætlum ekki að koma út í 100 millj- ón króna tapi eins og kristnitöku- hátiðin," segja þeir loks. Nóg verður um að vera í Kringlunni næstu tvo föstudaga þegar Fókus reynir að hafa uppi á tvíförum aðal- leikaranna í stórmyndinni Charlie’s Angels. Það eina sem fólk þarf að gera er að mæta í verslun Skífunnar í Kringlunni og láta taka mynd af sér en vegleg verðlaun eru í boði. Charlie’s Angels verður frumsýnd þann 24. nóvember og af því tilefni verður þeim stúlkum sem líkjast að- alleikonunum boðið að taka þátt í skemmtilegum leik, þar sem vegleg verðlaun eru í boði. Aðalleikkonur myndarinnar eru skvísurnar Cameron Diaz, sem þekktust er fyrir leik sinn í ThereYs Something About Mary, Drew Barrymore, sem leikið hefur í fjölda stórmynda frá unga aldri og Lucy Liu, sem sló í gegn i hlutverki sínu sem ein af Bond-konum sögunnar. Þær stúlkur sem telja sig likjast leikkonunum þurfa bara að koma í verslun Skífunnar í Kringlunni næstu tvo fostudaga, 10. og 17. nóvember. Þar verður tekin mynd af þeim og síðan verða sigurvegar- amir valdir fyrir frumsýningar- helgina. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir sigurvegarana. Sigur- vegarnir þrír fá allir glæsilegasta símann frá Nokia, 8210, auk fata- úttekta í Vero Moda og klipping- ar hjá Toni & Guy. 4 f Ó k U S 3. nóvember 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.