Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Side 3
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000 19 Haukar 7 7 0 211-160 14 Fram 7 6 1 182-157 12 Valur 7 5 2 187-161 10 ÍBV 7 5 2 191-169 10 FH 7 4 3 179-163 8 Grótta/KR 7 4 3 165-175 8 UMFA 7 3 4 191-178 6 KA 7 3 4 171-170 6 ÍR 7 3 4 166-166 6 Stjarnan 7 2 5 174-185 4 HK 7 0 7 158-196 0 Breiðablik 7 0 7 140-235 0 Markahæstir: Halldór Ingólfsson, Haukum . . 58/23 Hilmar Þórlindsson, Gróttu/KR 50/23 Alexander Petersons, Gróttu/KR . 48 Guðjón Valur Sigurðsson, KA . 45/14 Björgvin Rúnarsson, Stjömunni 38/2 Jerri Garcia, HK.............37/10 Jón Andri Finnsson, ÍBV .... 37/24 Gintaras Savukynas, UMFA .... 35 Gunnar Berg Viktorsson, Fram 35/10 Bjarki Sigurðsson, UMFA .... 35/13 Halldór Ingólfsson, markahæsti leikmaöur Nissandeildarinnar, skor- ar eitt 5 marka sinna fyrir Hauka gegn Fram í Safamýri i gær. DV-mynd Hilmar Pór - tróna einir á toppi Nissandeildarinnar eftir sigur á Fram Það var mikil spenna eins og við mátti búast þegar tvö efstu lið deildarinnar, Fram og Haukar, áttust við í Safa- mýrinni. Þó að Haukarnir hefðu frumkvæðið allan leik- inn tryggðu þeir sér ekki endanlega sigurinn fyrr en á lokamínútunum þegar Fram- arar nýttu ekki tvö góð tæki- færi til að jafna leikinn. Haukarnir gengu á lagið og tryggðu sér sigurinn og sitja þar með einir á toppi deildar- innar. Leikurinn var jafn framan af en Haukamir voru þó ávallt með frumkvæðið. Bæði liðin tóku snemma þá ákvörðun að skipta mark- vörðum sinum út og reyndist það ágætlega hjá báðum lið- um þar sem þeir Þór Björns- son hjá Fram og Bjarni Frostason hjá Haukum áttu báðir prýðisleik, einkum þó Bjarni. Leikurinn var annars lengst af í járnum í fyrri hálf- leik en Haukar náðu mest þriggja marka forskoti og það var munurinn sem skildi liðin í leikhléi. Sami munur hélst framan af síðari hálf- leik og að sama skapi fór taugaspennan vaxandi. Spil- ið virtist þó búið þegar um tíu mínútur voru eftir og i stöðunni 19-22 misnotuðu liðin sitt vítið hvort þar sem Þór, markvörður Fram, varði fyrst frá Óskari og sið- an skaut Maxim Fedioukine himinhátt yfir hinum megin. Framaramir minnkuðu síð- an muninn í eitt mark, 22-23, og Þór gaf Fram svo tækifæri til að jafna leikinn þegar hann varði annað víti. En Hjálmar missti boltann í næstu sókn Fram þegar tæp- ar þrjár minútur vom eftir, Haukamir gerðu tvö síðustu mörk leiksins og tryggðu sér þar með toppsætið í deild- inni. Stóri munurinn á liðunum var á vörninni, en hún var betri hjá Haukum og Bjami var í feiknastuði fyrir aftan hana. í kjölfar góðrar varnar komu síðan hraðaupphlaup sem voru einnig fleiri Hauka- megin. „Ég datt i ágætt stuð á köfl- um þó að ég fengi líka á mig ódýr mörk. Ég er að koma aftur eftir langa fjarveru og það tekur tíma að komast inn í þetta. En við unnum þenn- an leik á vöminni," sagði Bjarni Frostason, markvörð- ur Hauka, sem átti stórleik í gærkvöld. „Við vomm mjög lélegir i fyrri hálfleik og töpuðum boltanum síðan á mikil-vægum augnablikum í lokin. Þeir vom alltaf skrefi á undan og nýttu sér vel mistökin í vörninni hjá okkur. Það er hins vegar mikið eftir af mótinu og það skiptir meira máli að vera á toppnum á réttum tíma í úrslitakeppninni," sagði Gunnar Berg Viktorsson, skytta Fram, sem náði sér vel á strik í síðari hálfleik eftir aö hafa verið slakur í þeim fyrri. Þór Björnsson sýndi svo gamla takta i markinu en aðrir vora nokkuð frá sínu besta -HI Botninum náð - sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari Mosfellinga Grótta/KR komst upp fyrir Aftur- eldingu með 24-23 í Mosfellsbænum í gærkvöld. Það var mikill skjálfti í mönnum í byrjun leiks og fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en eftir tæpar 3 minútur þegar Afturelding skoraði. Mosfellingar skoruðu svo sitt annað mark ekki fyrr en eftir rúmar 10 mínútur. Annars einkenndist fyrri hálfleik- urinn af sterkri vörn Gróttu/KR sem Afturelding átti í mestu erfiðleikum með að komast fram hjá nema með vítum og hraðaupphlaupum. Sókn Gróttu/KR var aftur á móti borin uppi af Hilmari Þórlindssyni og Al- exanders Pettersons sem skomðu 12 af 13 mörkum þeirra í fyrri hálfleik. Ráðleysið í sókn Aftureldingar hélt áfram og eini maðurinn sem eitthvað sýndi var Litháinn Gintaras, þeir urðu þó fyrir áfalli á 7. mínútu seinni hálfleiks þegar Páll Þórólfsson fékk rautt spjald fyrir að kasta knettinum í höfuð Hreiðars Guðmundssonar í víti. Mosfellingar vora mjög ósáttir við þetta og má segja að þeir hafi haft nokkuð til síns máls, það varð þeim þó að falli að góða stund á eftir náðu þeir ekki að einbeita sér að leiknum og Grótta/KR skoraði hvert markið á fætur öðm. Afturelding tók þá til þess bragðs að taka „byssumar" tvær, Hilmar og Alexander, úr umferð og við það riðlaðist leikur Gróttu/KR mikið og Mosfellingar minnkuðu muninn jafnt og þétt. Einnig átti ágæt mark- varsla Ólafs Gíslasonar sinn þátt í því að leikurinn var æsispennandi undir lokin, Gróttu/KR-menn virtust einnig vera stressaðir og tóku léleg skot og gerðu klaufaleg mistök. Sigurinn var þó þeirra og þeir fógnuðu af hjartans lyst að leik lokn- um. Bjarki Sigurðsson var að vonum daufúr i dálkinn að leik loknum og sagði að lið sitt smylli ekki ssunan eins og það hefði gert áður, liðið spilaði sem 7 einstaklingar. Eina ráðið við þessu væri að berja sig saman því nú væri botninum náð og liðið ætti meira inni. Eins og áður segir var Gintaras besti maður Aftureldingar en aðrir leikmenn liðsins voru langt ffá sínu besta og t.a.m. náði Bjarki sér aldrei á strik og lék lítið. Liðið lék án Magnúsar Más Þórðarsonar sem er meiddur og var það ekki til að hjálpa til. Grótta/KR lék ágætlega á köflum, liðið lék mjög góða vöm og var það hún sem tryggði þennan sigur öðm fremur. Bestu menn þeirra voru „byssumar tvær“, þeir Hilmar Þór- lindsson og Alexander Pettersons sem skoraðu mörk í öllum regnbog- ans litum, þó sérstaklega í fyrri hálf- leik. Aðrir leikmenn skiluðu sínu í vöminni og hjálpuðu „byssunum" í sókninni með því að opna fyrir þá. -RG Þrír í röö hjá FH FH-ingar unnu sinn þriðja leik í röð á íslandsmótinu í spennandi leik gegn Val og era á hraðferð upp töfl- una eftir erfiða byrjun á mótinu. Vals- menn, sem hafa verið að vinna góða sigra að undanfömu, stóðust ekki þá prófraun að vinna útileik en Valur hefur ekki unnið útileik ef undan er skilinn sigur á Breiðabliki. FH byrjaði leikinn af miklum krafti, spilaði fasta vöm sem gaf góða raun gegn hálfhikandi liði Vals. Þetta reyndist vel og þrátt fyrir að vera ein- um færri í 6 mínútur fyrstu 25 mínút- ur fyrri háffleiks náðu þeir fjögurra marka forystu, 10-6. Á þessum leikkafla fóra skyttur FH-liðsins á kostum og skoraðu þeir Sigurgeir, Valur og Láras hvert markið af öðra með skotum utan punktalínu. Vals- menn komust betur inn í leikinn eftir að Valdimar Grímsson var látinn spila úti hægra megin sem gerði það að verkum að sóknarleikur Vals varð mun hraðari en skyttur Valsliðsins náðu sér ekki á strik. FH-ingar skor- uðu siðasta markið í hálfleiknum og vora tveimur mörkum yfir í hálfleik. FH-ingar létu það ekki á sig fá að Héðinn Gilsson lék ekki með og náðu með mikilli baráttu að tryggja sér sig- urinn eftir aö hafa verið með naumt forskot nær allan tímann. Sigurgeir Ámi Ægisson sem var ásamt Berg- sveini Bergsveinssyni bestur í liði FH lét það ekki á sig fá þótt hann þyrfti að taka að sér stærra hlutverk vegna fjarveru Héðins: „Tímabilið byrjaði ilia hjá okkur en það hefur verið stíg- andi í leik okkar. Þetta hefur verið að smella saman, hópurinn verið að taka við sér og framhaldið lítur vel út.“ Valsmenn naga sig í handarbökin fyrir að hafa ekki nýtt sér það betur þegar þeir vora manni fleiri og að hafa misnotað hraðaupphlaup á loka- sprettinum. Roland Eradze varði vel að venju og Valgarð Thoroddsen stóð sig vel. -HRM Sport Fram-Haukar 22-25 0-1, 2-2, 2-4, 4-6, 7-7, 8-10, 9-12, 10-13, (11-14), 12-14, 12-16, 16-17, 17-20, 18-22, 21-22, 22-23, 22-25. Fram Mörk/viti (Skot/víti): Gunnar Berg Viktorsson, 7/1 (18/3), Róbert Gunnars- son, 3/1 (4/1), Hjálmar Vilhjálmsson 3 (10), Þorri B. Gunnarsson, 2 (4), Vilhelm Gauti Bergsveinsson, 2 (7), Björgvin Þór Björvinsson 2 (5), Guðjón Drengsson, 1 (2), Njörður Ámason, 1 (3), Maxim Fedi- oukine, 1/1 (3/2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 3 (Þorri, 2, Róbert). Vitanýting: Skorað úr 3 af 6. Varin skot/viti (Skot á sig): Magnús Er- lendsson, 1 (5, 20%), Þór Bjömsson, 14/2 (35/4 40%, víti í stöng). Brottvisanir: 4 mínútur Haukar Mörk/viti (Skot/viti): Halldór ingólfs- son, 5 (9/2), Einar Örn Jónsson, 5 (7), Þor- varður Tjjörvi Ólafsson, 4 (7), Rúnar Sig- trygsson, 4 (7), Óskar Ármansson 3/2 (7/3), Aliaksandr Shamkuts, 2 (3), Petr Baumruk, 1 (1), Vignir Svavarsson, 1 (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 6 (Tjörvi, 2, Einar Öm, 2, Halldór, Shamkuts). Vítanýting: Skorað úr 2 af 5. Varin skot/viti (Skot á sig): Magnús Sigmundsson, 0 (4/1, 0%), Bjarni Frosta- son, 19/1 (37/3, 51%, 1 yflr, 1 fram hjá) Brottvisanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og Valgeir Ómarsson (6). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 700. Maður leikins: Bjarni Frostason, Haukum. FH-Valur 22-20 1-0, 2-2, 3-4, 7—4, 10-6, 11-9, (12-10), 12-12, 14-12, 16-13, 17-16, 19-18, 20-20, 22-20. FH Mörk/viti (Skot/viti): Sigurgeir Árni Ægisson, 6 (15), Hálfdán Þórðarson, 4 (5), Valur Örn Arnarson, 4 (10), Victor Guð- mundsson, 3 (4), Lárus Long, 3 (7), Guð- mundur Pedersen, 2 (5/1). Mörk ár hraóaupphlaupum: 3 (Victor,2, Sigurgeir, 1). Vitanýting: Skorað úr 0 af 1. Varin skot/viti (Skot á sig): Berg- sveinn Bergsveinsson, 15/1 (34/3, 44%), Jónas Stefánsson, 0 (1/1, 0%). Brottvisanir: 10 mínútur Valur Mörk/víti (Skot/viti): Valgarð Thoroddsen, 5 (6), Valdimar Grímsson, 4/3 (8/3), Markús Michaelsson, 4 (10/1), Ingvar Sverrisson, 3 (6), Fannar Þor- björnsson, 1 (2), Júlíus Jónasson, 1 (4), Daníel Ragnarsson, 1 (4), Snorri Guð- jónsson 1 (5), Theódór Valsson (1). Mörk úr liraöaupphlaupum: 4 (Valgarð, 2, Ingvar, Valdimar) Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Varin skot/viti (Skot á sig): Roland Eradze, 17/1 (39/1, 44%). Brottvisanir: 0 mínútur. Dómarar (1-10): Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson (8). Gteði leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 400. Maöur leikins: Sigurgeir Árni Ægisson, FH. UMFA-Grótta/KR 23-24 I- 0, 1-4, 4-5, 5-8, 7-10, 10-11, (11-13), II- 14, 12-16, 14-20, 17-21, 18-22, 20-24, 23-24. Afturelding Mörk/viti (Skot/viti): Ginataras Savu- kynas, 6 (13), Gintas Galkauskas, 4 (6), Atli Steinþórsson, 3 (3), Páll Þórólfsson, 3/3 (6/4), Bjarki Sigurðsson, 3 (5/1), Þor- kell Guðbamdsson, 2(2), Hilmar Stefáns- son, 2/1 (2/1), Haukur Sigurvinsson (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Gintaras, 2, Atli, Þorkell). Vitanýting: Skorað úr 4 af 6. Varin skot/viti (Skot á sig): Reynir Þór Reynisson, 4 (16/2, 25%), Ólafur H. Gisla- son, 8/2 (30/5, 27%). Brottvisanir: 16 mínútur Rautt spjaid: Páll Þórólfsson á 37. mín. Grótta/KR Mörk/viti (Skot/viti): Hilmar Þórlinds- son, 11/5 (15/7), Alexander Petersons, 8 (12), Atli Þór Samúelsson, 1 (2), Gísli Kristjánsson, 1 (2), Sverrir Pálmason, 1 (3), Alfreð Finnsson, 1 (4), Davíð Ólafsson, 1(5). Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Peter- sons) Vitanýting: Skorað úr 5 af 7. Varin skot/víti (Skot á sig): Hlynur Morthens, 9/1 (31/4, 29%), Hreiðar Guð- mundsson, 1/1 (2/2, 50%) Brottvisanir: 14 mínútur. Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (6). Gœói leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 190. Maöur leikins: Hilmar Þórlindsson, Gróttu/KR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.