Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Qupperneq 12
28
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000
Sport
i>v
þarf hann ekki að vera til, spyr Magnús Jónasson
hverri á koma.
Hve margir laxar eiga þá að vera
að baki hverri stöng sem leyfð er í
laxveiðiá?
Er eðlilegt að t.d. 2-3 laxar
veiðist á dag á hverja stöng?
Hefur stangatjöldi ekki afgerandi
áhrif veiðina þegar til lengri tíma
er litið?
Hve margir veiðistaðir eru í
ánni? Hve löng er áin?
Hve margir veiðistaðir gefa lung-
ann úr veiðinni? Hvernig er álagið
á þá veiðistaði? Hvemig er dreifing
veiðinnar á veiðistaðina?
Eru hrygningarstaðir árinnar
einnig bestu veiðistaðirnir?
Eru hrygningarstaðir árinnar
friðaðir?
Eru stangir leyfðar á þeim stöð-
um árinnar þar sem litil sem engin
veiði er?
Hvað réttlætir að slikt sé heimil-
að?
Svæði þar sem nær enginn lax
veiðist heilu sumrin eru leigð út og
jafnvel heilu stangveiðifélögin gera
leigusamninga um slík svæði og
selja síðan veiðileyfi á þau.
Er það ekki ávísun á mögulega
misnotkun, þ.e. að veiðin sé langt
undir því sem væntingar standa til?
Skrípaleikur
„Fréttir og umræður um stanga-
veiði hérlendis, sérstaklega laxveið-
ina, einkennast yfirleitt af því að
getið er hve margir laxar hafi
veiðst í einstaka á, án þess að nokk-
uð sé minnst á hve margar stangir
séu að baki veiðinni,“ sagði Magn-
ús Jónasson í upphafi erindis síns á
ráðstefnu Landssambands stanga-
veiðifélaga um síðustu helgi og við
skulum aðeins grípa niður í það
sem hann sagði.
Það er að segja að
stangafjöldinn sé ekki
orsök minnkandi veiði
í ánum.
Hvemig skýra menn
það þá að laxveiðiárn-
ar á Kólaskaga í Rúss-
landi, sem ekki var
veitt i gegnum aldirn-
ar, eru fullar af laxi,
þ.e. þær voru algjör-
lega friðaðar.
Veiðistuðull?
Meöalþyngd að minnka
„Nú, þegar umræðan um slaka
veiði í mörgum ám landsins virðist
aukast ár frá ári, er rétt að staldra
örlítið viö og velta fyrir sér mögu-
legum ástæðum þess að veiðin virð-
ist fara minnkandi og það sem al-
varlegra er, meðalþyngd veiddra
laxa virðist einnig minnka.
Getur það verið að of margar
stangir séu að veiða of fáa laxa?
Þeirri fullyrðingu hefur verið hald-
ið á lofti nú um alUangt skeið af
fræðimönnum, veiðiréttareigend-
um og einstaka veiðimanni að ekki
liggi fyrir neinar sannanir um það
að laxveiðiár á Islandi séu ofveidd-
ar.
Stóraffoll
Nokkrir vísinda-
menn héldu því jafn-
vel á lofti fyrir 10-15
árum að aðalvandi is-
lenskra laxveiðiáa
væri það að of mikill
lax hrygndi í ánum og
seiði fengju ekki nægt
rými til fæðuöflunar
og því væri hætta á
stóraftöllum af stofni
ánna.
Því spyr ég aftur:
Hvað með veiðiámar í
Rússiandi þar sem nús Jónasson sést hér
engmn hafðí veút og all-veöaurb|íðunni, Rangárva„asýslu.
ur lax hafði hrygnt í ar-
á veiðum
Jótin 2000
n
Jólagjafahandbók D'K
20ám
Við fognum 20 ára útgáfuafmæli Jóiagjafahandbókarinnar.
Af því tilefni verður blaðið 80 síður og sérlega veglegt.
Við vekjum athygli á því að nú kemur Jólagjafahandbókin út
með okkar vinsæla helgarblaði laugardaginn 2. desember.
í Jólagjafahandbókinni verður lögð áhersla
á skemmtilega umíjöllun um jólin og jólaundirbúning.
9 9 9 9 9
þúsundir?
Því voru þær ekki laxlausar
vegna ofhrygningar í þær?
Þarf ekki aö vera þokkaleg
von um veiði?
Þarf ekki að vera til svokallaður
veiðistuðull fyrir einstaka ár,
þannig að það sjáist vel að leyfin
sem okkur era boðin séu raunvera-
lega þokkaleg von um veiði.
Því miður er allt of mikið um það
nú að verið sé að selja laxlitlar ár,
og jafnvel laxlaus svæði, í einstök-
um ám.
Myndi það ekki breyta miklu fyr-
ir okkur veiðimenn ef við vissum
með sæmilegri vissu við hverju við
mættum búast þegar við nálgumst
veiðileyfin í einstökum ám?
Væri ekki gott að vita það að áin
sem við erum að fara að kaupa leyfi
í hafl geflð að meðaltali 4 laxa á
hvem stangardag undanfarin 5 ár?
Eða að hún hafi aðeins geflð hálf-
an lax á hvem stangardag?
Er ekki rétt að þau yfirvöld sem
um þessi mál fjalla, þ.e. veiðinefnd
og veiðimálastjóri, tryggi eftir
fremsta megni að stangafjöldinn sé
í samræmi við veiðina.
Stangafjöldi ekki í rökrænu
sambandi
Við bjóðum þér að auglýsa í Jólagjafahandbókinni,
vinsælasta og stærsta sérblaði DV.
Athugið að tekið er við pöntunum til 17. nóvember
en með tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum
bent á að hafa samband sem íyrst við Selmu Rut Magnúsdóttur
í síma 550 5720 eða 699 2788,
netfang: srm@ff.is
Er það mögulegt að hérlendis séu
ár þar sem stangafjöldi er ekki í
neinu rökrænu sambandi við þá
veiði sem áin gefur.
Er veiðimálastjóra og veiðinefnd
gefið vald í núverandi lögum til
þess að stjórna því hve margar
stangir skulu vera í einstökum ám?
Ef svo er, hvaða viðmið hefur veiði-
málastjóri og nefndin þá þegar
ákveðið er hve margar stangir eru
leyfðar?
Er hugsað um það að tryggja, eft-
ir því sem hægt er, að stofn árinn-
ar standi undir eðlilegri endumýj-
un og þoli það veiðiálag sem á ánni
er?
Er hugsað fyrir þvi að þeir sem í
ánni veiða fái að meðaltali ein-
hverja ákveðna veiði?
Eru gerðar ráðstafanir til þess að
tryggja að þessi tvö atriði fari sam-
an, þ.e.a.s. að stofn árinnar sé var-
inn ofveiði og að þeir við ána dvelja
fái veiði eftir væntingum?
Það hlýtur að vera spennandi fyr-
ir okkur veiðimenn að velta því
upp hvort að það sé ekki einmitt
veiðimálastjóri og veiðimálanefnd
sem stjóma eigi því hve margar
stangir eigi að veiða þá laxa sem úr
Er forsvaranlegt að yfirvöld
heimili slíkan skrípaleik?
Hvað með verð á veiðileyfum?
Verð á veiðileyfum verður alfarið
að ráðast á hinum frjálsa markaði,
þ.e. framboðið og eftirspumin ráða
verðinu.
Veltum aðeins fyrir okkur þeim
væntingum sem við veiðimenn höf-
um þegar við veljum okkur veiðiá
og kaupum veiðileyflð.
Ég spyr ykkur öll sem hér eruð,
hvað kernur þá fyrst upp í hugann?
Vonin um mögulega veiði, ekki
satt? Veiðimálastjóri hefur lýst því
yfir að hann hafi hagsmuni laxins
fyrst og síðast í huga þegar hann
fjallar um það veiðiálag sem leyft er
i hverri á.
Við ættum öll að geta verið sam-
mála því. Það hlýtur því að vera
mikilvægur hluti af vemdun stofns-
ins að tryggja eftir megni að ekki sé
óvarlega farið í veiðiálagið," sagði
Magnús enn fremur og ræddi líka
um stangaíjölda í laxveiðiánum og
spurði hvort ekki væri kominn tími
tU að fara í stríð viö bændur.
-G.Bender