Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2000, Page 14
MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2000 V 30 Sport DV - unnu þrenn gullverðlaun hvor á haustmóti FSÍ Viktor Kristmannsson, nýkrýndur Norðurlandameistari drengja, sést hér í æfingum á bogahesti þar sem f.ann vann með einkunn upp á 8,600. DV-mynd Hilmar Pór Stórmót í Höllmni - um þarnæstu helgi Norður-Evrópumótið í fimleikum verður haldið í Laugardalshöll um þarnæstu helgi. Þetta mót núna um helgina var því síðasta skiptið sem keppendumir höfðu tækifæri til þess að sýna sig og sanna áður en valið verður í landsliðið en á miðvikudaginn verður tilkynnt um það hverjir skipa munu landslið íslands á Norður-Evrópumótinu. -AIÞ Sif Pálsdóttir úr Ármanni vann til þrennra verðlauna á haustmótinu um helgina og þar á meðal vann Sif á jafnvægisslánni þar sem hún sýnir hér glæsilega stökkæfingu. DV-mynd Hilmar Þór þessu móti að sjá gamla kappa mæta aftur til leiks en þeir Björn Björns- son úr Ármanni og Steinn Finnboga- son úr Gerplu kepptu aftur eftir þó nokkurt hlé og vonandi halda þeir áfram að keppa í vetur. Svava kom á óvart 1 kvennaflokki var keppendum skipt í þrjá flokka eftir aldri. Þeir voru 12 ára og yngri, 13-14 ára og 15 ára og eldri. Á heildina litið voru flestar stúlkurnar vel undirbúnar fyrir mótið og margar komnar með nýjar æfingar. Það var Svava B. Ör- lygsdóttir frá Ármanni sem kom mest á óvart á mótinu. Hún var að framkvæma margar nýjar æfingar í fyrsta skipti á móti og gerði þær vel að sögn þjálfara hennar, Ásdísar Pét- ursdóttur. Það er ekki auðvelt að keppa í fyrsta skipti með nýjar æfing- ar og því gaman að sjá þegar alit gengur upp eins og gerði hjá Svövu um helgina. Hún vann á öllum áhöld- um í sínum aldursflokki, 12 ára og yngri, stökk (8,350), tvíslá (7,450), slá (8,15), gólf (7,90), en þess má geta að hún er íslandsmeistari á slá frá því í vor og varð þá yngsta stúlka frá upp- hafi til þess að vinna íslandsmeist- aratitil. í flokki 13-14 ára voru það einnig stúlkur úr Ármanni sem stóðu upp úr. Sif vann þrjú gull Sif Pálsdóttir, íslandsmeistari í fjölþraut, vann sigur á þremur áhöld- um af fjórum, stökk (8,90) slá (8,25) og gólf (8,45) en á tvíslánni datt hún þrisvar sinnum og missti því af verð- launasæti. Einkunn Sifjar á stökki var hæsta einkunnin sem var gefin á mótinu. Það var hins vegar stalla hennar úr Ármanni, Ásdís Guð- mundsdóttir sem sigraði á tvíslánni með 6,95 í einkunn. f elsta aldurs- flokknum var það Lilja Erlendsdóttir úr Gerplu sem stóð sig best og vann á öll fjórum áhöldunum með þó nokkrum yfirburðum, stökk (8,7), tví- slá (7,35), slá (8,1) og gólf (7,4). -AIÞ — Dýri Kristjánsson og Viktor Kristmannsson úr Gerplu: Það var létt yfir fim- leikamönnum um helgina enda fögnuðu menn því aö vera byrj- aöir aftur aö keppa. Frá vinstri eru Bjöm Bjömsson, Ármanni, Dýri og Ertendur Krist- jánssynir úr Gerplu. Fyrsta fimleikamót vetrarins var haldið um helgina í Kaplakrika. Á þessu haustmóti voru veitt verðlaun fyrir æfingar á hverju áhaldi en ekki fyrir samanlagðan árangur. f karla- flokki voru nokkrir sem nýttu sér það tækifæri og tóku þátt á nokkrum áhöldum af þeim sex sem keppt er á. Alis voru 8 keppendur mættir til leiks og það voru Gerpludrengirnir þeir Dýri Kristjánsson fslandsmeist- ari og Viktor Kristmannsson, ný- krýndur Norðurlandameistari drengja, sem báru höfuð og herðar yf- ir aðra keppendur mótsins. Þeir skiptu verðlaununum bróðurlega á milli sín og unnu báðir þrenn gull- verðlaun. ars var gaman á Ungir Ármeninngar Viktor vann gólfæfingar (8,050), bogahest (8,600) og tvíslá (7,650) en Dýri vann hringi (7,350), stökk (8,450) og svifrá (7,600). Viktor vann svo tvenn slifurverðlaun til viðbótar á hringjum og stökki og Dýri fékk siifrið á bogahesti og tvíslá og brons- verðlaun á gólfi. Það voru ungir drengir úr Ármanni, Anton Heiðar Þórólfsson og Grétar Kristófer Sig- þórsson sem komust næst Gerplutvíeyk- inu. Anton Heiðar varð annar í æfing- um á svifrá og þriðji á hringjum og tvíslá og Grétar Kristófer fékk siffurverðiaun fyrir æfingar sínar á góifi og bronsverð- laun á stökki. Ann-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.