Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2000, Side 4
20
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 2000
Sport
DV
Þórarinn hjá
Dundee United
Keflvíkingurinn Þórarinn Krist-
jánsson hefur undanfama tólf daga
verið til
reynslu hjá
skoska úr-
valsdeildar-
liðinu
Dundee
United. Þór-
arinn verður
eitthvað
lengur hjá
félaginu en
hann hefur
þótt standa
sig vel á æfingunum. Allt hefur
gengið á afturfótunum hjá félaginu í
deildinni og hefur því ekki enn tek-
ist að vinna leik.
Vitað er um lið í neðri deildum á
Englandi sem vilja fá Þórarin til
reynslu.
Gunnleifur kominn heim
Gunnleifur Gunnleifsson, mark-
vörður Keflvíkinga, er kominn
heim eftir að hafa verið til reynslu
hjá enska liðinu Bury. Ekki er talið
útilokað að Gunnleifur fari út á
nýjan leik.
-JKS
ÍBV-Fram 25-30
1-0, 1-3, 5-5, 8-6, 11-9, (12-12), 12-13,
13-15, 15-20, 17-21, 20-22, 22-27, 25-30.
IBV
Mörk/viti (skot/viti): Mindaugas
Andriuska, 6 (15/1), Eymar Kriiger, 6/3
(11/4), Svavar Vignisson, 4 (10), Guðfinn-
ur Kristmannsson, 3 (8), Jón Andri
Finnsson, 3 (3/1), Erlingur Richardsson,
2 (2), Sigurður Ari Stefánsson, 1 (1),
Aurimas Frovolas, (3), Sindri Olafsson
(1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 ( Svavar
2, Mindaugas, Jón Andri).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 6.
Varin skot/viti (Skot á sig): Gísli
Guðmundsson, 13/1 (43/4, 30%, eitt
víti í stöng).
Brottvísanir: 8 mínútur (Erlingur
rautt fyrir 3x2 mín.).
Fram
Mörk/viti (Skot/víti): Gunnar Berg
Viktorsson, 8/2 (12/3), Róbert Gunnars-
son, 6/1 (10/1), Njörður Ámason, 4 (4),
Vilhelm Gauti Bergsveinsson, 4 (4), Guð-
jón Drengsson, 4 (4), Guðlaugur Arnars-
son 1 (1), Hjálmar Vilhjálmsson, 1 (3),
Björgvin Björgvinsson 1 (4), Maxim
Fedukine, 1 (4/1).
Mörk úr hraóaupphlaupunu 6 (Guðjón
2, Njörður 2, Maxim, Hjálmar)
Vitanýting: Skorað úr 2 af 5.
Varin skot/viti (Skot á sig): Magnús
Erlendsson 19/3 (44/6 43 %).
Brottvísanir: 12 mínútur.
Dómarar (1-10): Anton Gylfi Pálsson
og Hlynur Leifsson (4).
Gceöi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 233.
Maður leikins: Magnús
Erlendsson, Fram.
Grótta/KR-KA 24-22
0-1, 2-1, 3-4, 9-8, (12-11), 12-12, 13-16,
16-18, 18-18, (20-20), 20-21, (22-22),
OA-OO
Grótta/KR
Mörk/viti (Skot/viti): Alexander Peter-
sons 9 (20), Hilmar Þórlindsson 7/2
(13/4), Sverrir Pálmason 3 (6), Davíð
Ólafsson 2 (3), Magnús Magnússon 2 (6),
Atli Þór Samúelsson 1 (2).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 2 (Davíð,
Alexander).
Vítanýting: Skorað úr 2 af 4.
Varin skot/viti (Skot á sig): Hlynur
Morthens 23/1 (45/3, 51%).
Brottvísanir: 4 mínútur
KA
Mörk/viti (Skot/víti): Halldór Jóhann
Sigfússon 5/2 (12/2), Guðjþn Valur Sig-
urðsson 4 (18/1), Sævar Árnason 4 (4),
Heimir Öm Árnason 4 (14), Andreas
Stelmokas 3 (6), Giedrius Csemiauskas 2
(4), Hreinn Hauksson (1), Arnór Atlason
(1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 1 (Gidri-
us).
Vítanýting: Skorað úr 2 af 3.
Varin skot/víti (Skot á sig):
Hörður Flóki Ólafsson 19 (43, 44%),
Hans Hreinsson 2/2 (3/2, 67%).
Brottvisanir: 4 mínútur.
Dómarar (1-10): Þorlákur Kjartans-
son og Einar Sveinsson (4).
Gœði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 160.
Maöur leikins:
Hlynur Morthens, Gróttu/KR.
Gunnar Berg Viktorsson
vann í fyrsta skipti leik í
Eyjum meö ööru liöi en
ÍBV í gær og lét mikið aö
sér kveöa í leiknum.
DV-mynd Hilmar Þór
Ohappatalan 13
- Eyjamenn ósigraðir í tólf leikjum í röð á heimavelli
ÍBV tók á móti Fram í Eyjum í
gærkvöldi i toppslag í
Nissandeildinni. Fyrir leikinn
sátu Framarar í öðru sæti með 12
stig en Eyjamenn í þvi fjórða með
tiu stig og gátu því með sigri kom-
ist upp að hlið gestanna. En Fram-
arar hafa verið að spila vel að
undanfornu, að undanskildum
leiknum gegn Haukum, og héldu
uppteknum hætti á heimavelli
ÍBV og sigruðu í leiknum, 30-25.
Eyjamenn höfðu fyrir leikinn
ekki tapað síöustu tólf heimaleikj-
um sínum og var því búist við
hörkurimmu. Heimamenn skor-
uðu fyrsta mark leiksins en gest-
imir svöruðu með þremur mörk-
um og bættu svo um betur og
náðu þriggja marka forystu, 2-5.
En þá hrukku Eyjamenn í gang og
skoruðu næstu fimm mörk leiks-
ins og komust tveimur mörkum
yfir, 7-5. Liðin skiptust á að skora,
allt þar til fjórar mínútur voru eft-
ir af fyrri hálfleik að gestimir
náðu að jafna leikinn í 11-11.
Mestu munaði um að Magnús Er-
lendsson í marki Fram spilaði
fyrri hálfleik mjög vel og reyndar
í leiknum öllum. Staðan í hálfleik
var jöfn, 12-12.
Fámennt en góðmennt
Fram-liðið hóf seinni hálfleik af
miklum krafti og fjórir Framarar
skoruðu fyrsta markið á móti
fimm Eyjamönnum. Eftir að liðin
höfðu skoraö sitt hvort markið
tók við stórskotahríð Fram, með
Eyjamanninn Gunnar Berg Vikt-
orsson í fararbroddi, sem endaði
með því að Framarar voru komn-
ir með fimm marka forystu, 15-20.
Eyjamenn spiluðu á þessum
leikkafla afar illa og munaði mik-
ið um brottrekstur fyrirliðans, Er-
lings Richardssonar, í upphafi
seinni hálfleiks. Eyjamenn neit-
uðu að gefast upp og Mindaugas
Andriuska, sem hafði spilað illa í
sóknarleiknum, fann netmöskv-
ana aftur en þrjú mörk frá honum
komu Eyjamönnum aftur inn í
leikinn. Minnstur varð munurinn
tvö mörk, 20-22, en þá tóku Fram-
arar aftur við sér og tryggðu sér
öruggan flmm marka sigur, 25-30.
Fyrsti sigurinn í Eyjum
Gunnar Berg Viktorsson sagði
eftir leikinn að hann hefði verið
staðráðinn í því að sigra í leikn-
um í gærkvöldi. „Ég hef aldrei
unnið leik hérna með öðru liði en
ÍBV þannig aö þetta er í fyrsta
skipti. Ég var staðráðinn í því eft-
ir leikinn í fyrra, þegar þeim var
færður sigurinn á silfurfati, að ég
myndi koma hingað á næsta ári
og vinna. Það er náttúrlega frá-
bært að koma hingað og góð til-
flnning að sigra héma, kannski
svolítið blendnar tilfinningar, en
það er alltaf gaman að sigra. Ég
þekki mig náttúrulega vel hérna,
þekki fjalirnar, enda uppalinn í
húsinu þannig að ég fann mig
mjög vel í leiknum og náði að
stríða gömlu félögunum," sagði
einn besti maður vallarins, Gunn-
ar Berg Viktorsson.
-jgi
Spennuveisla á Nesinu
- Grótta/KR hafði sigur gegn KA, 24-22, í framlengdum leik
Það var boðið tii mikUlar
spennuveislu á Seltjamamesinu á
laugardaginn þegar Grótta/KR
tók á móti KA í NissandeUdinni.
Heimamenn höfðu sigur, 24-22,
eftir framlengdan leik.
Strax frá fyrstu mínútu var
greinUegt í hvert stefndi þar sem
jafnt var með liðunum aUan fyrri
hálfleik þó svo að Grótta/KR
leiddi með einu marki í hálfleik,
12-11.
Norðanmenn komu mun
ákveðnari til leiks í síðari hálfleik
og náðu fljótlega þriggja marka
mun en það dugði þeim þó ekki
því fyrir frábæra markvörslu
Hlyns Morthens komust heima-
menn aftur inn í leikinn og við
tók æsispennandi lokakafli þar
sem allt gat gerst. Bæði lið fengu
góð tækifæri tU að tryggja sér sig-
urinn en segja má að heimamenn
hafi misnotað nokkur guUin tæki-
færi þegar þeir vom einum fleiri
þegar tíu mínútur voru eftir og
staðan 18-18, en þá vom þeir of
bráðir á sér í sókninni og misnot-
uðu þrjár sóknir í röð. Það kom
þó ekki aö sök því að sama var
upp á teningnum hjá gestunum
þar sem sóknarleikurinn var ansi
mistækur á köflum.
Petersons sterkur
í framlengingunni hélt spennan
áfram og þar voru það KA-menn
sem náðu forustunni en í stöðunni
22-22 slitu heimamenn sig loks frá
gestunum og skoruðu siðustu tvö
mörkin og innbyrtu þar með tvö
dýrmæt stig.
Hjá Gróttu/KR átti Hlynur stór-
leik í markinu og varði hann 23
skot, en auk hans var þáttur Alex-
anders mikill því hann skoraöi
niu mörk og var ásamt Hilmari
burðarásinn í sókn þeirra. Hjá
KA bar mest á Guðjóni Val í sókn-
inni en auk hans stóð Hörður
Flóki fyrir sínu í markinu, en það
dugði þó ekki norðanmönnum.
Batamerki
„Það eru mikil batamerki á lið-
inu en því miður dugði það ekki
til sigurs í dag. Ég held að þetta
hafi líka verið spuming um
heppni þegar komið var út i fram-
lenginguna, þar eigum við til að
mynda skot i stöng og ef sá bolti
hefði farið inn tel ég að við hefð-
um haft sigurinn," sagði Atli
Hilmarsson, þjálfari KA.
„Ég er ánægður með að menn
hættu aldrei og gáfust ekki upp.
Okkur vantaði að taka upp þráð-
inn frá því sem var upp á Varmá,
það skorti herslumuninn í vamar-
leiknum og það var aðeins of mik-
ill flumbrugangur í sóknarleikn-
um i fyrri hálfleik, en menn
héldu áfram og uppskáru eftir
því,“ sagði Ólafur Lárusson, þjáif-
ari Gróttu/KR.
-ÞAÞ