Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Page 4
4 Fréttir MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 I>V DV-MYND PJETUR í hvern skóla Verkfallsverðir framhaldsskólakennara halda uppi öflugri verkfallsvakt. Þeir fara í alla skóla á hverjum degi til að athuga hvort einhvers staðar séu verkfallsbrot á ferðinni. Hér eru þeir í eftirlitsferð. Fyrsta greiðslan úr vinnudeilusjóði eftir að verkfall skall á: Kennarar fá um 40 milljónir - sjóðurinn gæti enst þeim í 6-7 mánuði - aðstoð frá Norðurlöndunum Framhaldsskólakennarar fá í vik- unni fyrstu greiðslu úr vinnudeilu- sjóði. Að sögn Áma Heimis Jónssonar, formanns stjómar sjóðsins, er miðað við að kennarar í fullu starfi fái greiddar 35.000 krónur en greiðslur til annarra miðist við starfshlutfall. Áætl- að er að greiddar verði út um 40 millj- ónir króna í þessari atrennu. Um 540 milljónir króna vom til í vinnudeilusjóðnum þegar verkfall framhaldsskólakennara hófst. Áætlað er að greiða kennurum út á hálfs mán- aðar fresti a.m.k. næstu sex vikumar, þannig að kennarar í fúllu starfi fái þá 70.000 á mánuði úr sjóðnum. Sé miðað við um 40 milljónir króna úr sjóðnum hálfsmánaðarlega myndi hann endast framhaldsskólakennurum í 6-7 mán- uði. Þeir vænta einnig aðstoðar úr vinnudeilusjóðum kennarasamtaka annars staðar á Norðurlöndum, eins og í verkfallinu 1995 þegar danskir kennarar reiddu fram upphæð sem svaraði einni útborgun til kollega sinna hér. Ámi Heimir bendir á að sjóðurinn sé ekki einungis fyrir framhaldsskóla- kennara heldur einnig kennara grunn- skóla, tónlistarskóla og nú síðast Verslunarskóla. Þá eigi stjómendur í framhaldsskólum, aðrir en skólameist- arar og rektorar, tilkall til greiðslna úr honum. Ámi Heimir segir að launadeild rík- isins hafii ekki viljað veita kennurum upplýsingar um bankareikninga og starfshlut framhaldsskólakennara. Launadeildin hafi borið fyrir sig per- sónuvemd. Þetta gerði það að verkum að útreikningar væm erfiðari viðfangs en þurft hefði aö vera. Greiðslur úr vinnudeilusjóðum em skattskyldar. Þær em undanþegnar staðgreiðslu en færðar með tekjum viðkomandi árs. „Það era margir ósáttir við þetta,“ segir Ámi Heimir. „Þeir sem hafa haft Verkfallsverðir á vettvangi Verkfallsveröir framhaidsskólakennara fóru í Verslunarskólann í gær, þar sem þeir töldu að verið væri að fremja verkfallsbrot Hér eru nokkrir þeirra á tali við nemend- ur og kennara. kennslu að ævistarfi og alltaf greitt í sjóðinn lenda í tvísköttun. Þeir greiða skatt af tekjum sínum og greiða síðan i vinnudeilusjóð. Síðan greiða þeir aft- ur skatt af greiðslunum sem þeir fá út úr sjóðnum. Hins vegar ber að hafa í huga að sumir em nýbyijaðir. Þá hafa þeir greitt sáralítið í sjóðinn. Ef sann- gimi ætti að ríkja, væm iðgjöldin í sjóðinn undanþegin skatti." -JSS Verkfallsveröir fóru í Verslunarskólann Tilfærslur á stundaskrá sem er verkfallsbrot, segja þeir Þeir kenna Listi með nöfnun þeirra kennara sem enn eru við kennslu í Verslunarskólanum hangir uppi þar. „Við komumst að því að þama er um að ræða tilfærslur á stundaskrá, sem við teljum hreinlega vera verkfallsbrot," sagði Gunnlaugur Ástgeirsson i verk- fallsstjóm fram- haldsskólakennara eftir að verkfalls- verðir höfðu farið í Verslunarskólann í gærmorgun. Skólastjóri Versl- imarskólans sagði í viðtali við DV í gær að skólinn reyndi að bregðast við nýhöfnu kennara- verkfalli eins og tök væm á og hvetja nemendur til að halda áfram námi. Verkfallsverðir ræddu í gærmorgun við skóla- stjóra og stundakennara sem eru utan Félags framhaldsskólakenn- ara og því enn við kennslu. í ljós kom að breytingar höfðu verið gerðar á skipulagi. Til dæmis hafði einn stundakennaranna aukið kennsluna um helming og stytt kennslutímann sem því svaraði. Verkfallsstjómin hefur beint þeim eindregnu tilmælum til skólastjóra og þeima stundakenn- ara sem eru við vinnu í verkfall- inu, að þeir fari að þeim reglum sem eru um framkvæmd verkfalls en breyti ekki vinnuskipulagi í einu eða neinu. „Við erum með rútínueftirlit á hverjum degi þar sem við fórum í alla skóla,“ sagði Gunnlaugur. „Við gerðum sérstaka úttekt á Verslunarskólanum þar sem verk- fall þar er nýhafið. Við munum að sjálfsögðu fylgjast með honum eins og öðrum skólum." -JSS Hafnarfjörður: Vó salt á lækjarbakk- anum Ökumaður fólksbíls missti stjórn á honum vegna hálku í Lækjargötu í Hafnarfirði í fýrrakvöld, með þeim af- leiðingum að bíllinn snerist og fram- endi hans fór fram af gangstéttinni og hálfa leið ofan í Lækinn. Ökumaður- inn, sem var einn í bílnum, sté á bremsuna og sat þannig þar til hjálp barst. Slökkviliðið mætti á staðinn og setti bönd á bílinn, þannig að hægt var að ná manninum út úr honum. Slökkviliðið hélt bilnum svo með böndunum þar til kranabíll kom og gat dregið bílinn upp. Að sögn lög- reglunnar í Hafnarfirði sakaði mann- inn ekki. -SMK Landhelgisgæslan: Þyrlan sótti sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan sjómann til Ólafsvíkur skömmu fyrir hádegi á mánudag. Maðurinn hafði slasast við störf sín um borð í skipinu sem lá við höfn- ina í Ólafsvík. Þyrlan flutti mann- inn á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Hann reyndist vera með tvo skurði á höfði og tvíbrotinn á upphandlegg en var ekki talinn vera í lífshættu. -SMK Selvogur: Erlendir ferða- menn veltu bíl Tvær erlendar konur veltu bíla- leigubíl sínum i Selvogi um hádegis- bilið i gær. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er ekki óalgengt að útlend- ingar lendi í óhöppum á þessum vegi sem er malarvegur. Konumar sluppu ómeiddar frá atvikinu en bíllinn var dreginn í burtu með kranabíl. Konumar fengu annan bíl og héldu ferð sinni áfram. -SMK Suðaustan og skúrir Suöaustan 5 til 10 m/s og skúrir veröa vestanlands en norðan 8 til 13 og slydduél með kvöldinu. Breytileg átt, 5 til 8 m/s og skýjað með köflum en úrkomulítið austan til Sólargangur og q'ávarfölt REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 16.27 15.54 Sólarupprás á morgun 10.00 10.01 Síðdegisflóö 20.49 01.22 Árdegisflóð á morgun 09.14 12.47 Skýrlngar fi veðurtðknum ^VINDÁTT 10°—HITI -10° ^VINDSTYRKUR í metrum á sekúndu ^FROST HEIÐSKÍRT íD O LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKVJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ w Ö Q RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA 'M '9 P = ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR POKA Færðin Upplýsingar um færö á vegum er meöal annars að finna á heimasíöu Vegagerðarinnar og einnig er hægt aö hringja í þjónustusíma hennar og fá nýjustu upplýsingar. hált HÞUNCFÆRT mm ÓFÆRT EEaaaspj Frost á morgun Norðvestan 8 til 13 m/s og víöa dálítil él á morgun en skýjað með köflum suðaustanlands. Hiti 1 til 6 stig í dag en kólnar síðan og frost víöast 0 til 5 stig á morgun. Fostud. Laugar mm Sunnud Vindur: ( 8-13 nví"'-" Hiti 2° til -«• Vindur: 5-8 ;:;i •&> Hiti 2° tii -6* m Vindur: 5-8 ':L Hiti 2° til -6° Noróvestan 8-13 m/s og dálttll él meö austur- ströndlnnl en annars 5-8 og bjartvlðrl. Frostlaust vlð suðurströndlna yflr daglnn en annars frost. Hægvlðri og viða bjart veður en noröan 5-8 og stöku él vlð austur- ströndlna. Frost viða 1 tll 6 stlg en sums staðar frostlaust yflr daglnn. Hægvlðrl og viða bjart veöur en norðan 5-8 og stöku él vlð austur- ströndlna. Frost víða 1 tll 6 stlg en sums staöar frostlaust yfir daginn. AKUREYRI léttskýjaö 3 BERGSSTAÐIR léttskýjað 2 BOLUNGARVÍK skýjaö 4 EGILSSTAÐIR 4 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 0 KEFLAVÍK skúrir 2 RAUFARHÖFN léttskýjaö 0 REYKJAVÍK skúrir 2 STÓRHÖFÐI skúrir 3 BERGEN skýjað 6 HELSINKI skýjaö 5 KAUPMANNAHÖFN rigning 5 ÓSLÓ alskýjað 5 STOKKHÓLMUR 4 PÓRSHÖFN alskýjaö 6 ÞRÁNDHEIMUR heiösklrt -4 ALGARVE léttskýjað 9 AMSTERDAM skúrir 5 BARCELONA skýjaö 7 BERLÍN þokumóöa 8 CHICAGO léttskýjaö -2 DUBLIN skýjaö 2 HALIFAX súld 9 FRANKFURT skýjaö 7 HAMBORG lágþokublettir 5 JAN MAYEN snjóél 0 L0ND0N þoka -1 LÚXEMBORG rigning 5 MALLORCA alskýjaö 10 MONTREAL léttskýjaö 2 NARSSARSSUAQ heiöskírt -7 NEW YORK léttskýjaö 6 ORLANDO skýjaö 14 PARÍS skýjað 5 VÍN alskýjaö 10 WASHINGTON alskýjaö 4 WINNIPEG alskýjaö -6 ■4ivrmv»Ái-iisaia

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.