Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Síða 8
Segjum sem svo að snögglega finnir þú þörf hjá þér fyrir að gerast trúaður. Læknirinn hefur kannski sagt þér þau hörmulegu tíðindi að þú eigir stutt eftir ólifað; þú telur þig kannski sjá í gegnum tilgangsleysi þess að vera trúlaus eða þú ert kannski kominn á botninn og vilt rífa þig upp. Þú hefur lítið pælt í trúmálum til þessa og aðallega trúað á „mátt þinn og megin“ eða fótbolta. í anda ríkjandi mórals í þjóðfé- laginu spyrð þú nú sjálfan þig áleitinna spurninga eins og: „hvar fæ ég sem neytandi mest út úr trúnni?“ og „hverjir bjóða best í eftirlífinu?" Trúarbrögðin eru flókin fræði - jafnvel flóknari en Star Trek - en Fókus reyndi samt að setja sig inn í nokkur þeirra. Hér færðu svör við áleitnum neytendaspurningum. Ferðaskrifstofur Guðs ■■■ Þjóðkirkjan Hvad er það? I Samkvæmt stjórnarskránni er þetta kirkja þjóðarinnar. Hún er evangelísk-lútersk og [ undir regnhlíf mótmælenda. Meðlimir eru 90% landsmanna en lúterstrúar eru þó aðeins um 75 millj- ónir á heimsvísu. Kirkjan starfar á kristnum grundvelli, telur sig frjálslynda og er alltaf að endurmeta sig. Inntökuskilyrði Ef mamma þín er í þjóðkirkjunni verður þú meðlimur um ieið og þú ert kominn inn í tölvuna hjá Hagstofunni. Þetta er staðfest táknrænt með skírninni en þannig séð þarftu ekki að staðfesta trúna með fermingunni. Þú gerir það samt fyr- ir gjafirnar. Hverjir eru hátíðisdagarnir? Stærstu hátíðirnar eru jólin, páskarnir og hvftasunnan (plús „annar-í“ I boði löggiafans). Þá eru pálmasunnudagur, upp- stigningardagur og föstudagurinn langi. Aðventan á svo aö vera samfelld hátíð og undirbúningur fyrir jólin. Hvernig iðkar þú trúna? Þú lifir með Kristi í oröum og anda og reynist náunganum | sem Kristur væri. Ekki er svo verra aö biðja bænir annað slagið og sækja messur - a.m.k. að hlusta á útvarps- messuna endrum og eíns I eða mæta á stórhátíðum. Hvernig er stuðið á samkomum? Uppbygging messu er í gróf- um dráttum sú sama um allt land. Stuðið fer eftir hæfi- leikum prestsins. Sé prestur léttur og sniðugur getur Hvítasunnukirkjan Hvað er það? Frjálslynd kirkja sem getur starfað með öll- um kristnum félögum nema þeim sem segj- ast vera hið eina rétta (eins og t.d. mormón- ar og vottar). Sérstaðan felst í skírnarvenjun- um. Hvitasunnumenn (Pentecostal) eru 420 milljón I öllum heiminum. Á íslandi eru þeir þriðju fjölmennastir, um 1500. Inntökuskilyrði Þú iðrast synda þinna og tekur Jesú Krist sem þinn persónu- lega frelsara. Svo ertu skírður með niðurdýfingu í skírnar- lauginni. Biblían talar um að andinn komi yfir eins og dúfa en það er aöeins líkingamál. Menn sjá sjaldnast dúfu held- ur drífa sig upp úr svo þeir drukkni ekki. Hverjir eru hátíðisdagarnir? Nákvæmlega þeir sömu og hjá þjóðkirkjunni. Hvernig iðkar þú trúna? Þú ræktar samband þitt við Guð með bænum og lestri Guðs orðs (Biblíunni). Þú þarft ekki að fara í einhverjar stellingar heldur getur þú talað við Guð hvar, hvernig og hvenær sem er, jafnvel á göngu eða í sundi. Hvernig er stuðið á samkomum? Á sunnudögum mæta um 400 manns á samkomu hjá Rladelfu. Þar er léttara yfir- bragð en hjá þjóðkirkjunni, mikið sungið og lyft upp höndum. Hljómsveit spilar létt gospellög á popphljóö- færi en pípuorgelið er lítið notað. Á miðvikudögum hitt- ast menn svo yfir súpu og brauði og spjalla. hann komist f tfsku. Kórarn- ir eru einnig misgóöir og misfjölmennir. Stuðið er þó yfirleitt frekar litlaust og mæting eftir því. Hvernig er „himnaríki"? Samfélag við Guð, augliti til auglitis frammi fýrir Guði. Þar ræður vilji Guðs I einu og öllu. Þeir sem komast til himnarfkis mega eiga von á eilífðardvöl. Eilíf gleði og Ijós og ylur og allir í hrikalegu góðum gír, enda lausir við jarð- neska bresti. era til að Hvað þarf maður að gi komast í „himnaríki'7 Ríkir eiga samkvæmt Biblíunni jafn mikinn séns að komast f himnarfki og úlfaldi að komast f gegnum nálarauga. Líklega er þvf best að vera skítblankur og hvorki kvótakóngur né að vera að vasast f verðbréfum. Ekki er svo verra að fara eftir boðorðunum tfu. Hvernig er „helvíti" og hvers vegna fer maour þangað? Það er eilífur aðskilnaður frá Guði: engin von, ekkert líf, bara eilíf kvöl og grátur og gnfstran tanna. Samt má búast slatta af athyglisverðu fólki þarna innan um skftmennin. Spurning hvort hægt verði að spjalla saman fyrir kvalastun- um? Þjóðkirkjan talar sjaldan um helvíti; það er of neikvætt í góðærinu. Kalt mat Eilffðarsumarbúðir með íþróttaálfunum Guði og Jesú eru kannski ekki svo eftirsóknarvert pleis en varla geta 90% þjóðarinnar haft rangt fyrir sér? Þó Biblían tali um hverfandi möguleika ríkra á þessari vist er þjóðkirkjan búin að endur- meta málið og býður alla velkomna, sérstaklega auglýsend- ur. Hvernig er „himna- ríki"? Himnarfki er óútskýr- aniegur sælustaður. Þar rfkir engin sorg, engir sjúkdómar heldur eilff gleði. Engin sól skín heldur er Jesús sú sól sem skfn á allt og alla. Þar dveljast menn til eilffðarnóns. Hvað þarf maður að gera til að komast til „himnaríkis"? Enginn kemst inn f Guðsriki nema sá sem hefur endur- fæöst; eignast lifandi trú á Guð. Þetta er svipaðurfarmiði og hjá þjóðkirkjunni, nema hér er ætlast til að menn leggi að- eins meira á sig og rækti trúna betur. Hvernig er „helvíti" og hvers vegna fer maour þangað? Eins og Biblían kennir fara þeir sem taka Jesú ekki sem sinn persónulega frelsara beint til helvítis - ganga veginn til glötunar. í helvfti er eilífur eldur og allir iðrast gffuriega. Á þessum kvalastað dvelja menn til eiiífðarnóns. Kalt mat Það þýddi lítið fyrir Plúsferöir að bjóða upp á „óútskýranleg- an sælustað” en þeir trúuðu hljóta að taka það sem gefiö að himnaríki sé málið, enda eins gott þvf dvölin þar er eilff. Þetta er þvf fin trú ef þú filar gospelpopp og ekki er verra að vita af súpu og brauði á miðvikudögum. Kaþólska kirkjan ymr Hvað er það? Kaþólikkar eru um milljarður en á Islandi eru ■■■ þeir næstfjölmennasti trúarhópurinn, um * ’ 4000. I Biblfunni er sannleikurinn, hinn þrf- eini Guð er kærleikur og það er hann í sjálfum sér: faðirinn, sonurinn og hinn heilagi andi, og páfinn í Róm er æösti fulltrúi hans hér á jöröinni. Inntökuskilyrði Þú gengur til kaþólsks prests og færð fræðilegan undirbún- ing í heilt ár. Næst tekur við verklegur æfingatfmi í annað ár. Ef þú heldur þetta út fermistu til kaþólskar trúar og trúir því að sannleikurinn sé einn, alger og óbreytanlegur (nema þeg- ar páfinn ákveður annað). Hverjir eru hátíðisdagarnir? Svipaðir og hjá þjóðkirkjunni, plús Uppnumning Mariu (3. sunnudagur í ágúst), dýridagur (sunnudagurinn eftir þrenn- ingarhátíð) og nokkrir aðrir. Dýrlingarnir eru fjölmargir og ser- fmónfurnar og kreddurnar grfðarlegar svo það má eflaust alltaf halda upp á eitthvað. Hvernig iðkar þú trúna? Biður bænir, ferð í messu og skriftar einu sinni á ári. Þegar i presturinn mælir aflausnarorðin er hann að fyrirgefa þér með þvf valdi sem Kristur gaf honum. Guð fýrirgefur, þ.e.a.s. hinum iðr- andi manni. „Iðrunargjald" guðs er mismikið og fer eftir stærð | syndarinnar. Hvernig er stuðið á samkomum? Þunglamalegt. Pípuorgelið á fullu. Hinn þungi niður aldanna iæsist um þig. Mikið blaðrað á Vottar Jehóva Hvað er það? Trúboð, stofnað í Bandarfkjunum um 1880 af C.T. Russell. Vottarnir telja Bibl- funa æðsta úrskurðarvald um öll mál og óskeikula, eða sína túlkun á henni, og eiga því ekki samleiö með öðrum kristnum félögum. Um 6 milljón Vottar eru f heiminum, fiestir I Sambiu, en um 600 hér. Inntökuskilyrði Þú kynnir þér rétt innihald Biblfunnar á námskeiðum Vott- anna og hlýtur að því loknu skfrn með niðurdýfingu. Notað- ar eru venjulegar sundlaugar til verksins sem Vottarnir leigja, enda er vatn vatn. Hverjir eru hátíðisdagarnir? Það er aðeins einn hátíðisdagur samkvæmt Biblíunni: minn- ingarhátfðin um dauða Krists. Hann reikna Vottarnir út frá fornu tímatali Gyðinga og lendir hann á fýrstu tunglfyllingu um jafndægur á vori. Þá er flutt ræða, etið ósýrt brauð og drukkið rauðvfn án aukaefna. Hvernig iðkar þú trúna? Með trúboði. Þú gengur hús úr húsi og vilt fræða og gefa Varðturninn og Vakniðl, tímarit Vottanna, sem geyma 100% i sannleika - eins konar „öþpdeit" af ! Biblfunni. Þú mætir líka á samkomur, tvisvar í viku f safnaðarheimilinu og einu sinni á einkaheimili. Hvernig er stuðið á samkomum? Það er enginn prestur en hæfir um- sjónarmenn sjá um að allt gangi vel. Stuðiö byrjar og endar með söng og bæn en svo eru flutt erindi, höfð sýni- kennsla og opnar umræöur. Þrisvar á ári hittast svo allir Vottar á landinu og dunda sér saman. latínu. Glaðlegar nunnur syngja af innlifun. Þér Ifður eins og þú sért f einhverri mafiu- mynd og bíður bara eftir að Robert De Niro gangi f hús og verði með eitthvert vesen. Hvernig er „himnaríki"? Að hreinsunareldinum loknum gengurðu til hins himneska fagnaðar. Þar ertu í tómarúmi þar til Jesús kemur aftur og Iffgar þá frelsuðu við á efsta degi. I framhaldi af þvf verður stanslaus haminga til eilffðarnóns. Hvað þarf maður að aera til að komast í „himnaríki"? Vera góður kaþólikki. Þegar þú deyrð kemur hið alsjáandi auga Guðs og sendir þig f hinn sársaukafulla hreinsunareld þar sem „óhreinindi lífsins" eru verkuð af þér. Hvað þessi hreinsun tekur langan tfma er ómögulegt að segja því hvorki um tfð né tfma verður að ræða. Hvernig er „helvíti" og hvers vegna fer maður þangað? Ef þú ert syndugur og hefur ekki meötekið Jesú f Iff þitt ferðu beint til helvítis og steikist í eilífum logum vítis og færð enga hvíld. Mesta pfnan er þó að vera f eilffum aðskiln- aði frá Guði sem er mátturinn og dýrðin að eilífu, amen. Kalt mat «4f Þótt sársaukafulli hreinsunareldurinn sé ekkert til að hlakka til er gott að vita af þeirri handhægu lausn að segjast iðrast og hókus pókus! Þér er allt fýrirgefið. Slæm trú fýrir homma og léttlynda því bibl- íuskýring kaþólikka er klárlega á móti getn- aðarvörnum og „kynvilltum". Hvernig er „himnaríki"? Biblían boðar Guðsríki: para- dfs á jörð, þar sem friður og eining ríkir, engin mannleg vandamál fyrirfinnast og flestir snudda í garðrækt, sé miðað við myndirnar í Varð- turninum. Jehóva velur Ifka 144.000 Súper-Votta sem verða konungar og prestar á himnum; eins konar himnesk rfkisstjórn. Hvað þarf maður að aera til að komast í „himnaríki"? Sálin er dauðleg. Þú deyrð og hefur enga meðvitund. í kjöl- far heimsenda (öll teikn sýna að hann verður bráðlega) verð- ur almenn upprisa dauðra (bæði réttlátir og ranglátir rakna úr rotinu) og lifa f vellystingum í paradfsinni sem rfkir að ei- lífu. Öll dýrin vakna líka aftur svo það verður „fjölmennt". Hvernig er „helvíti" og hvers vegna fer maður þangað? Helvíti er ekki til og hefur aldrei verið til. Helvíti er heiðin hugmynd, seg|a Vottarnir. Kalt mat Þetta er sko aldeilis fín ferðaskrifstofa sem býður upp á góö pakkatilboð! Bara verst hvaö biöin eftir ferðinni tekur langan tíma. Vottaforingjar hafa spáð heimsenda 1914 og 1975, en ekkert hefur gerst enn. Þá er bara að bíða, berja á hurðir, sötra rauðvín og vona að maður þurfi ekki á blóðgjöf að halda. f Ó k U S 24. nóvember 2000 ! i Í i I i! i i I i í} I líillll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.