Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2000, Page 3
g f n i
Míkael Torfason lýsti því yfir í viðtali hér í Fókus á dögunum að hann ætlaði að sitja
rólegur heima í Danmörku meðan jólaösín gengi yfir og ekki koma nálægt kynningu
á nýjustu bók sinni, Heimsins heímskasti pabbi. Hann er nú búinn að þverbrjóta
yfirlýsingarnar og verður úti um allan bæ um helgina að kynna sig.
„Ég er bara kominn hingað í stutt
stopp til að kynna bókina sem er
reyndar nokkuð sem ég ætlaði alls
ekki að gera. Þetta er bara nokkurra
daga stopp en útgefandinn minn sá
að ég var að fá ágætisdóma og sá ein-
hverja vonarglætu um að við gætum
selt bókina. Hann vildi ekki að ég
væri á bistand úti í Danmörku og
bauð mér þess vegna til landsins,"
segir Mikael þegar hann er beðinn að
svara fyrir sig. En hann tekur ekki
bara þátt í hefðbundinni kynningu í
bókaverslunum meðan hann stoppar:
„Ég verð að hita upp fyrir Tvi-
höfða á Gauknum á mánudaginn,
þar sem ég mun auðvitað lesa upp úr
bókinni, en kem einnig fram undir
formerkjum hljómsveitar sem ég hef
starfrækt síðan ég var átta ára. Þessi
hljómsveit heitir Mini Pönks og var
þriggja manna sveit en ég hef reynd-
ar aldrei hitt trommarann aftur og
gítarleikarinn er að læra arkitektúr
úti í Þýskalandi þannig að þetta er
ekki beint gæfuiegur hópur. Ég hélt
reyndar að þetta væri elsta hljóm-
sveit í heimi þangað til Dr. Gunni
kom fram með Pop Kings sem hann
segir vera 25 ára gamla og eyðilagði
hugmyndina."
En hvernig virkar hljómsveitin
fyrst þú ert einn eftir?
„Hún virkar þannig að ef það er
eitthvert hljóðfæri á sviðinu gríp ég i
það og syng og spila frumsamin lög
við texta eftir bróður minn sem er
bóndi í Biskupstungunum. Þetta er
afskaplega einfalt og gott.“
Bók Mikaels hefur fengið fina
dóma hvarvetna og hann er sáttur
með viðtökurnar.
„Allir dómarnir hafa verið lofsam-
legir og það skemmir auðvitað ekki
söluna.“
Jólabókin í ár?
„Ég veit það ekki, það er oft ekkert
samhengi á milli góðra dóma og sölu.
Það virðist vera buzz í gangi gagn-
vart bókum eftir unga höfunda og
það gæti ýtt fólki í burtu sem er búið
að hanga lengi á bestu dómunum,
mestu auglýsingunum og bestu söl-
unni.“
Og hvernig kemur svo helgin til
meó að líóa?
„Þessi helgi líður þannig að Mikki
megaplögg kemst í gírinn. Ég verð
að lesa upp í bókabúðum og árita í
Hagkaupsbúðum. Það er líka flnt að
fá að vera eitthvað í smástund áður
en maður fer aftur til Danmerkur til
að verða ekki neitt, það er bara að
vona að maður lendi ekki á Féló.“
Flestir kannast við Heiðrúnu Önnu Björnsdóttur frá því hún var söngkona í hljóm-
sveitinni Cigarette og eftir að hún iék annað aðalhlutverkið í kvikmyndinni Nei er
ekkert svar. Undanfarið hefur lítið heyrst frá henni enda er hún búsett í Liverpool
og hefur búið þar síðustu fjögur árin. Nú er Heiðrún Anna komin með plötusamning
víð breska fyrirtækið Nude, sem er með hljómsveitina Suede á sínum snærum.
heima
„Ég er að gefa út plötu sem var tek-
in upp i sumar, við erum núna að
klára að „mixa“ en allur nóvember
hefur þegar farið í það. Fyrst kemur
út smáskífa í mars og svo önnur í
júní, en gert er ráð fyrir að platan
komi út einhvern tímann í júnf eða
júlí á næsta ári,“ segir Heiðrún Anna
þegar hún er spurð hvað hún sé að
gera þarna úti og ekki er laust við að
megi greina hjá henni örlítinn bresk-
an hreim.
Internasjónal grúppa
Heiðrún Anna fór upphaflega út til
að fara í tónlistarháskóla en kláraði
bara eitt ár þar.
„Æ, ég hafði
hvorki tíma
fyrir þetta né
efni á þessu
þannig að ég
hætti bara
og ætlaði
fyrst að
reyna
fyrir
mér
sóló en stofnaði svo hljómsveit. Ég
kynntist enskum manni í gegnum vin
en hann er í dag bæði umboðsmaður-
inn minn og gítarleikarinn í hljóm-
sveitinni.“ Hljómsveitin heitir Gloss
og eru hljómsveitarmeðlimir fimm
talsins og koma úr öllum áttum. Ég
kynntist hljómborðsleikaranum í
skólanum en hina náðum við í með
„audisjóni". Við fórum á alls konar
tónleika og völdum úr gott fólk. Gít-
arleikarinn og ég semjum öll lög sam-
an en tónlistin sem við erum að fást
við er svona „melodic popp“. Hljóm-
borðsleikarinn er norskur og ég nátt-
úrlega íslensk, hinir eru breskir
þannig að við erum svona „interna-
sjónal band“. „Það var „managerinn"
minn og gítarleikarinn sem kom okk-
ur fyrir um það bil ári í kynni við
breska plötufyrirtækið Nude, sem
við erum nú á samningi hjá. Við tók-
um upp þrjú lög sem við spiluðum
fyrir hin og þessi fyrirtæki og Nude
leist bara svona vel á okkur.“
Er þetta stór samningur?
„Já, svona flmm eða sex plötur.
Nude er lítið en mjög virkt plötufyr-
irtæki sem er meðal annars með
hljómsveitina Suede. Það að fyrir-
tækið sé svona lítið gerir það verkum
að það er mjög persónulegt. Eigand-
inn er sá sem sér mest um okkur og
má segja að við séum eins og
börnin hans.“
Aðspurð hvort platan
hennar eigi eftir að
fást hér á landi seg-
ir hún það
vera nokkuð víst. „Ég held að það sé
alveg bókað. Hún kemur líklega um
leið eða fljótlega eftir að hún kemur
út í Englandi. Svo gerum við auðvit-
að tónlistarmyndband líka, það verð-
ur tekið upp í byrjun næsta árs.“
íslensk jól
Heiðrún Anna ætlar að koma
heim til íslands og halda jólin í
faðmi fjölskyldunnar. En svo fer hún
aftur út að vinna meira í ferli sínum
sem virðist vera á uppleið.
Ertu endanlega flutt til Englands?
„Nei, það held ég ekki. Ég er alltaf
með annan fótinn heima og fer heim
með reglulegu millibili að hitta fjöl-
skyldu mína og vini. Þegar ég flutti
fyrst út var ég ákveðin í að vera bara
eitt ár, svo leið það og maður hugs-
aði með sér: ókei, bara eitt ár í við-
bót og svo framvegis og svo allt í
einu fattar maður að maður er búin
að vera heil fjögur," segir söngkonan
unga.
Sólmaj Fjörðoy Niclasen:
Færeyingur í
verðbréfabransa
Dagbjört Ylfa
Geirsdóttir:
Vill bara lifa
lífinu
69 atriði sem
benda til:
Að þú
sérl að
breytast í
Kana
Kristbjörg og
Hugrún:
Þýddu
Píkutorfuna
Erykah Badu:
Hugsar eins
og rappari
BHljómsveitin
Blur:
Nógu gamlir
fyrir safn-
Uppboð hjá
tollstjóra:
Hverjir
bjóða í
draslið?
Hverjir voru hvar:
Myndir af djamminu
I# jm »
1 r 10
Klámkvöldin bvria aftur
Gun Shv komin í bíó
Óvænt í bólinu í síðasta sinn
Penelope Cruz er á toopnum
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíöumyndina tók Hilmar Þór af
Dagbjörtu Ylfu Geirsdóttur
1. desember 2000 f Ó k U S