Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2000, Blaðsíða 4
Ceres fjórir hefur
gefið út geisladisk
sem heitir Kalda-
stríðsbörn - þulur
úr köldu stríði.
Ceres fjórir skil-
greinir sig, sem
og alla íslendinga
sem fæðst hafa
eftir 30. mars
1949, sem
kaldastríðsbörn.
ii ‘iii
nann segir Kaiua
stríðið hafa verið
taugastríö stór-
veldanna sem
meðal annars hafi
leitt af sér önnur
stríð og kjarnorku-
vána. Líklega er
það þess vegna
sem Ceres fjórir á
ekki og notar ekki
gsm-síma, því frá
þeim stafar
óheilsusamlegum
geislum.
„Cer-
es íjórir var mikill skákmaöur sem
krakki og fyrstu minningar hans eru
frá því þegar afi hans var að fylgjast
með einvígi Bobbys Fischers og Borís
Spasskís. Þaðan sprettur nafnið, frá
reit á skákborðinu. Þetta álít ég reynd-
ar hafa verið meira en bara skákein-
vígi, það var hluti af köldu stríði ein-
veldanna og mjög táknrænt stríð.“
Heimta stríðsskaðabætur
Fjölmargar spurningar vakna í
tengslum við fyrirbrigðið Ceres
fjóra, eins og hvað hann sé að fara
með öllum þessum vangaveltum um
kalda stríðið.
„Það sem fyrir mér vakir er að
vekja fólk til umhugsunar um að
þetta hafi verið alvöru stríð. Og öll
stríð þarf að gera upp fyrr eða
seinna. Gyðingar eru enn þá aö fá
stríðsskaðabætur frá því í heims-
styrjöldinni seinni. Ceres fjórir vill
ekki sætta sig við það að stórveldin
geti hafnað því að þau hafi verið í
þessu stríði og neitað að bera skað-
ann.“
Ein af ástæðum þess að Ceres fjór-
ir kveður sér nú hljóðs er einmitt sú
að hann krefst stríðsskaðabóta fyrir
fómarlömb kalda stríðsins, og þau
eru ófá samkvæmt Ceres - hvert ein-
asta mannsbarn. „Búið er að reikna
út að kalda stríðið hafi kostað stór-
veldin 8 billjónir dollara, sem sam-
svari því að hver jarðarbúi fengi
greidda 1300 dollara hver. Ég vil
stefna stórveldunum fyrir að halda
úti þessu taugastríði sem skóp af sér
önnur stríð eins og stríðin í Ví-
etnam, Kóreu og Afganistan. Ég
krefst kaldastríðsskaðabóta en bið
aðeins um táknræna upphæð, 1 doll-
ara á hvert mannsbarn. Þetta finnst
mér fallegt. Ég held að Ceres fjórir
verði örugglega tilnefndur til friðar-
verðlauna Nóbels."
Scape-ljóð
Á Kaldastríðsbörnum fer Ceres
fjórir með frumsamda texta við
áhrifahljóð og tónlist dj Channel.
Hann segir marga möguleika vera á
því hvernig hægt er að njóta disks-
ins. „Ef fólk vill ekki hlusta á mína
túlkun á textunum getur það bara
lesið textana, ef það vill hlusta á mig
getur það hlustað á diskinn og svo ef
því finnst diskurinn lélegur og text-
arnir leiðinlegir getur það alla vega
rammað inn myndina hans Erró. Þú
færð ekki ódýrari eftirprentun á
Erró-málverki.“
Ceres segir Erró vera helsta
áhrifavald sinn í ljóðlistinni. Því er
ekki skrítið að finna framan á geisla-
diskinum myndina „Cold War“ eftir
Erró. Ceres fjórir segir að hann eigi
Erró mikið að þakka. „Ég er sérstak-
lega hrifmn af „scape“-myndunum
hans, myndunum sem fjalla um einn
hlut eða manneskju á margvíslegan
hátt,“ hann bætir við, „ég lít á kveð-
skapinn minn sem eins konar scape-
Ijóð, án þess þó að ætla að fara að
setja mig á sama stall og Erró.“
Kominn með alla tékkana
í textunum á diskinum eru margir
núlifandi (og dánir) menn nefndir á
nafn, jafnt íslenskir sem erlendir.
Eins er þar hægt að fmna myndir af
frægustu andlitum kalda stríðsins.
Ceres fjórir talar um að efni disksins
sé eldfimt og því hafi hann fyrst
komið fram í eins konar dulargervi,
bæði i útvarpi og sjónvarpi.
En má ekki segja allt í dag, saman-
ber þriöja hluta œviminninga Stein-
gríms Hermannssonar?
„Eflaust má segja allt í dag. Stein-
grímur Hermannsson segir allt í dag
sem hann átti í rauninni að segja fyr-
ir 10, 15 eða 20 árum. Fyrst að hann
segir allt í dag má eflaust segja allt í
dag. Mér finnst samt skrítið að mað-
ur sem hverfur úr sínum flokki fyrir
10 árum létti ekki á sér þá. Ég spyr:
Var hann svona hræddur við að
hann fengi ekki bankastjórastól, eða
sendiherrastöðu? Myndi það hafa
skert eftirlaunin hans að vera spark-
að út í hom? Nú hefur hann fengið
alla tékkana og hefur efni á að rífa
kjaft.“
Næsta verkefni Ceresar er að búa
til heimildarmynd um Reykjavík fyr-
ir útlendinga. Þar mun Ceres fjórir
verða í hlutverki leiðsögumanns.
Veróur eitthvaö minnst á kalda
stríðið í þeirri mynd?
„Já, auðvitað, það verður rætt í
íslensku samhengi," segir Ceres fjór-
ir að lokum.
tvífarar
Pétur J. Sigfússon útvarpsmaður. Eiton John tónlistarmaður.
Það hefur verið mál manna frá því Pétur Sigfússon var kjörinn fyndnasti
maður íslands í fyrra að hann ætti sér tvífara. Hið sama var upp á teningnum
þegar Elton John hélt tónleika hér á landi fyrr á árinu, fólki fannst sem það
kannaðist við andlitið á kvikindinu. Það er hins vegar ekki fyrr en nú að fólk
hefur kveikt á þessu, þessir tveir hljóta að vera einn og sami maðurinn. Það
meikar líka ágætis sens að fólk hafi ekki kveikt á þessu enda er Pétur alltaf að
bregða sér í ýmis gervi í sprellþættinum DingDong og Elton er þekktur um viða
veröld af stóra fataskápnum sínum og hinum ýmsu settum af gleraugum. En nú
er þetta sem sagt komið í ljós, Pétur á sér skuggalega fortíð og það ansi skraut-
lega. Fólk fer nú kannski að fatta DingDong auglýsinguna sem Mogginn vildi
ekki birta þegar Pétur slefaði all svakalega upp í Dodda félaga sinn.
heimasíöa vikunnar
Leiðist þér í vinnunni? Þá er
þessi heimasíða hönnuð fyrir
þig. Hér er komin síða fyrir þá
fjölmörgu letingja sem ættu
að vera að vinna en nenna því
ekki. Á síðunni er að finna
alls konar leiki, teiknimynd-
ir, brandara og fleira sem
láta tímann líða. Einnig er
þarna spjallrás þar sem þú
getur talað við aðra leti-
hauga. Linkar á skrýtnar
síður þar sem má til dæmis
skoða fjöldann allan af ólík-
um ælupokum úr flugvélum
og linkar á tilgangslausar
slður þar sem má til dæmis
finna út hversu margra
daga gamall þú ert og skoða
síðu sem er tileinkuð bók-
stafnum M. Höfundur síð-
unnar hefur fundið ótal-
margt sem hægt er að gera þegar
þú ættir að vera að vinna. Hann
hefur hugsað fyrir öllu, því ef svo
óheppilega skyldi vilja til að yflr-
maður þinn birtist á meðan þú ert
að slæpast þá er sérstakur takki
sem hægt er að klikka sem heitir
„panic button" en hann færir þig
strax inn á síðuna 4economics.com
en þar eru bara hundleiðinlegar
upplýsingar um hvað sé að gerast
i fjármálaheiminum.
4
f Ó k U S 1. desember 2000