Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2000, Qupperneq 7
ý Wm--y '&j '■iggm Fáir jafnaldrar Dagbjartar Ylfu Geirsdóttur hafa sömu lífsreynslu og hún og fá lík- lega aldrei tækifæri til að kynnast heiminum á sama hátt. Ylfa hefur verið að sitja fyrir síðan hún var 13 ára gömul, bæði á íslandi og úti í heimi. Nú er stefnan að fara til Tókíó í janúar ef það tekst að finna góða skrifstofu fyrir þessa ungu heimskonu. „Ásta hjá Eskimo hitti mig fyrir tilviljun í bakaríi þegar ég var 12 ára og spuröi mig hvort ég vildi ekki koma á módelnámskeið hjá Eskimo. Stuttu seinna sló ég til og fór á námskeið og í kjölfarið tók ég þátt í Ford-keppninni þegar ég var 14 ára og varð í öðru sæti. Eftir keppnina fór ég til London að vinna og var þar í sjö vikur,“ segir Ylfa þegar hún er spurð hvernig módel- ferillinn hafi haflst hjá henni. Til Japans í janúar Dagbjört Ylfa er 16 ára gömul og var nemandi í almennu námi í Iðn- skólanum þar til verkfallið skall á. Eins og er afgreiðir hún í Gallerí Sautján á Laugaveginum en hún stefnir á mjög langt ferðalag eftir áramót. „Eskimo er að reyna að finna góða skrifstofu fyrir mig í Tókíó. í janúar eru sýningar þar sem eru víst mjög vel borgaðar og ég myndi reyna aðeins fyrir mér þar í svona fjórar vikur. Eftir það færi ég líklega til London og verð þar fram á haust, en þá er ég ákveð- in í að fara til New York í þrjá mán- uði. Það verður örugglega mjög gaman, New York er frábær borg.“ Hefur þú oft fariö út i heim aö módelast? „Já, síöustu þrjú sumur fór ég út að vinna í London og New York,“ segir fyrirsætan unga. „Svo hef ég skroppið i styttri ferðir til Parísar, London, Þýskalands og Los Angeles, en þá fer ég til að taka að mér ein- hver smærri verkefni. Ég get fengið verkefni hvenær sem er, það getur þess vegna verið að það sé hringt í mig núna og mér sagt að fara að pakka því ég sé að fara til London á morgun. Það gengur þó ekki alltaf samhliða skólanum og vinnunni, sem ég læt ganga fyrir. Stundum verður maður bara að segja nei.“ Þar sem Ylfa var mjög ung þegar hún fór að sitja fyrir og ferðast út í heim voru foreldrar hennar að sjálf- sögðu svolitið smeykir um hana. „Ég held að mömmu hafi ekkert lit- ist á þetta, en hún treystir mér og veit að ég er skynsöm og geri ekkert rangt eða óskynsamlegt." Strákar spenntari fyrir módelum „Ég sá það þegar ég byrjaði að strákar eru oft spenntari fyrir stelp- um sem eru módel. Mér finnst það frekar fáránlegt en maður fær viss- an stimpil við það eitt aö vera að módelast. Áður en ég fór út í þetta var ekkert að gerast með stráka en svo eftir að ég var búin að vera í Ford-keppninni og búin að vinna einhver verðlaun vildu allt í einu allir kynnast manni og vera i kring- um mann. Stundum gerist það að einhverjir strákar eru að hringja í mann og vilja spjalla, þó maður þekki þá ekki neitt. Af og til heyri ég einhverjar kjaftasögur um mig- sem eiga sér enga stoð í raunveru- leikanum. Það að ég sé með anorex- iu er eitthvað sem ég hef ósjaldan heyrt, en sannleikurinn er sá að ég borða eins og svín og hef aldrei á æfmni stundað líkamsrækt, Kjafta- sögurnar koma allar frá fólki sem ég þekki ekki neitt, þannig að ég passa mig á að láta þær ekki hafa áhrif á mig. Aðalbreytingin er samt líklega á sjálfri mér. Ég hef fengið meira sjálfstraust, ekki svo að skilja að maður sé eitthvað sjálfselskur en maður þekkir sjálfan sig betur og á annan hátt. Maður kynnist miklu af nýju fólki og maður kynnist heim- inum á allt annan hátt heldur en venjulegur ferðamaður. Þetta er mjög mikil lífsreynsla." Ætlar þú aö halda fyrirsœtustarf- inu áfram? „Maður endist ekki í þessum bransa til fertugs, í mesta lagi til 25 ára aldurs, myndi ég segja, nema manni gangi sérstaklega vel, þá kannski til þrítugs. En til að byrja með langar mig aðeins að halda áfram að sitja fyrir. Framtiöin er óráðin og eitthvað sem ég þarf að hugsa áður en ég tek ákvörðun. Ég ætla allavega að klára menntó en svo veit ég ekki hvað ég geri. Mér finnst gaman að ferðast og kynnast nýju fólki og því hentar þessi bransi vel. Þegar Ylfa er spurð um áhuga- mál fyrir utan fyrirsætuheiminn, brosir hún og segir: „vera með vin- um mínum og bara lifa lífinu." Fokusmynd: Hilmar Þor Fatnaður: Galleri Sautjan v 1. desember 2000 f Ókus 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.