Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2000, Page 11
1
Ein er sú hljórnsveít er setti mark
sitt eftirmínnílega á tíunda áratug-
inn; sú hefur lengst af gegnt nafninu
Biur og iifaö þónokkrar stefnubreyt-
ingar sem slík. Á dögunum gáfu þeir
út safn sirma bestu laga og renndí
Kristján Már Ólafsson yfir söguna af
því tilefni.
ist heiftarlega og eftir The Great
Escape-plötuna munaði minnstu að
þeir slitu samstarfmu, ég minni þó á
að það er merki um góða vináttu að
geta rifist almennilega.
Graham var á tímabili alræmdur
róni og drykkjumaður en hefur í
seinni tíð virkjað þá orku á jákvæð-
ari hluti; sérstæðar sólóplötur og
hjólabrettaiðkun. Hann á líka barn,
sjálft bamið, og er áreiðanlega fyrir-
myndarfaðir.
Lífskúnstnerinn
Alex James: Bassaleikari og
lífskúnstner sveitarinnar. Ég man
að þegar ég sá hann fyrst á tónleik-
um þá fannst mér eins og honum
þætti mun skemmtilegra að reykja
svo furðulegur... Damon lét ein-
hverju sinni svo um mælt að þeir
gætu ekki verið lengi í tónleikaferð-
um því Dave fríkaði út. Mig grunar
að hann sé launsonur Charlie
Watts, atgervið og yfirvegunin er
slík. Dave hafði lengi vel flugið sem
aðaláhugamál, utan hljómsveitar-
innar, en í seinni tíð spilar tölvan æ
stærri þátt og hann þykir ansi
slunginn graíiker.
Skemmtileg nýjung
Heimasíður hljómsveita eru
skemmtileg fyrirbæri en oft á tíðum
ansi einsleitar, efnisflokkamir væg-
ast sagt staðlaðir. í tilefni safnplöt-
unnar hafa Blur-liðar hins vegar
bryddað upp á skemmtilegri nýjung.
Blur Komnir á safnplötualdur...
Það var árið 1991 að platan Leisure
markaði fyrstu skref Blur-liða í hljóm-
plötuútgáfu. Ekki urðu þau nú áber-
andi djúp í fyrstu, þó svo vissulega
gæfu menn sveitinni auga og smáskíf-
ur gægðust inn á lista. Líklega hefur
engan órað fyrir að þessi sveit ætti
bæði eftir að ala og enda britpopp-
stefnuna svokölluðu. Sú var eins og
flestir líklega muna í nokkur ár svo fá-
dæma vinsæl að um þverbak keyrði.
Enda vom átökin þegar það ævintýri
tók dauðateygjumar slík að minnstu
munaði að Blur legði upp laupana.
Hljómsveitir snúast ekki alfarið um
tónlistina, ótrúlegt en satt. Nærtæk-
asta dæmið því til stuðnings er að
sjálfsögðu framleiðslupoppið; stráka-
bönd og stelpu. Hljómsveitin Blur
finnst mér eitthvert skemmtilegasta
samsafn karaktera sem ég hef kynnst
í seinni tíð. Meðlimimir fjórir em af-
skaplega ólíkar manneskjur en vinna
ákaflega vel saman sem heild og em
gríðarlega hæfileikarikir hver á sínu
sviði.
p1ötudómar
Andlitið út á við
Damon Albarn: Söngvarinn,
hljómborðsleikarinn og aðallagahöf-
undur sveitarinnar. Reyndar er
skráningin oftast þannig að Damon
á lögin, Blur tónlistina. Auk þess
hefur pilturinn alla tíð verið andlit-
ið út á við, enda átt upp á pallborð-
ið hjá kvenþjóðinni. Þegar frægðin
og lífsstíllinn sem henni fylgdi fór
úr böndunum lenti Damon í tals-
verðum hrakningum og skolaði eins
og frægt er orðið upp á ísland. Eftir
að stormasömu sambandi við
Justine Frischmann lauk virðist
Damon hafa fundið jafnvægið sem
hann leitaði langt yfir skammt, á
orðið bam og dundar sér í tónlist í
heimastúdíóinu sínu.
Mótvægið við popparann
Graham Coxon: Gítarundur og
mótvægið við popparann Damon
innan Blur-hópsins. Graham og
Damon em andstæðir pólar í nær
öllum málum en tónlist sveitarinnar
nýtur nær undantekningalaust góðs
af því. í gegnum tíðina hafa þeir rif-
Þeir reka eigin útvarpsstöð inni á
síðunni sem leikur einungis efni
þeim tengt. Þar er að finna hinar
ýmsu tónleikaupptökur, sjaldgæfar
og óútgefnar upptökur og þætti og
viðtöl úr hirslum BBC. Eins hafa
bæði Alex James og Graham Coxon
gert þætti þar sem þeir varpa eigin
ljósi á lífshlaup sveitarinnar, í tali
og tónum. Slóðin er
www.blur.co.uk.
sígarettur en að spila á bassa. Hann
er þó með eindæmum lipur á það
tæki, það verður ekki af honum tek-
ið. Alex er og ansi lunkinn penni,
skrifar meinfyndna pistla fyrir Q
tímaritið þar sem hann veltir sér
upp úr því hve erfitt sé að drekka
ekki og hvað bassaleikarar geri þeg-
ar þeir eru ekki að spila með hljóm-
sveitinni. Þeir sitja náttúrulega ekki
heima og spila á bassann, þannig að
hann á oröið
flugvél með
trymblinum
Dave.
Viðundrið
Dave Rown-
t r e e :
Trommari og
óútreiknanlegt
viðundur. Ekki
misskilja mig,
Dave er einn af
mínum uppá-
haldstrommu-
leikurum en
hann er bara
Ovissa
um Durst
Mikil óvissa rikir nú um áfram-
hald tónleikaferðalags Limp Bizkit
um Bandaríkin eftir að aflýsa varð
fimmtu tónleik-
unum í þessum
mánuði vegna
hálseymsla
söngvarans Fred
Durst. í vikunni
áttu að vera aðr-
ir tónleikarnir
með nýju að-
stoðarmönnun-
um, DMX og
Godspeed, sem
komu í stað Eminem, Xhibit og
Papa Roach, en talsmaður Durst
sagði á miðvikudag að ástand hans
væri þess eðlis að óvist væri um
framhald tónleikaferðarinnar. Þetta
tónleikaferðalag er annað ferðalag
sveitarinnar á árinu og virðist það
hafa verið of mikið fyrir söngvarann
sem greindist fyrst með bólgin radd-
bönd í október. Samkvæmt upphaf-
legu áætluninni átti túrnum að ljúka
19. desember í heimabæ Durst,
Jacksonville í Flórída, en þetta á allt
eftir að koma í ljós.
U2 verð-
launaðir
Nú hefur verið ákveðið að hljóm-
sveitin U2 hljóti heiðursverðlaun fyr-
ir framlag sitt til tónlistarinnar við af-
hendingu Brit-verðlaunanna á næsta
ári. Hljómsveitin fetar þar með í fót-
spor ekki ómerkari nafna en David
Bowie, Eurythmics, Bee Gees, Spice
Girls (ha?), Rod Stewart, Queen,
Van Morrison og Who. Þá hyggst U2
einnig koma fram á verðlaunaafhend-
ingunni. Verðlaunaafhendingin fer
fram 26. febrúar og verður henni sjón-
varpað víða um heim. Af hljómsveit-
inni er það annars að frétta að söngv-
arinn Bono á von á sínu fjórða barni
með eiginkonu sinni, Ali Hewson, í
júní á næsta ári. Næsta smáskífa U2
verður Stuck in a Moment (that you
can’t get out of) og verður hún gefln út
í janúar.
hvaöf fyrir hvernf Á^Áa^ðVeVnÁPÁÁ niöurstaöa
★★★★ Fiytjandi: Timo Maas Platan: MuSÍC for the Maases Útgefandi: Kinetic/Þruman Lengd: 134,59 2 diskar mín. Timo Maas er pródúser og plötusnúó- ur frá Hanover T Þýskalandi. Hann er ein skaerasta nýja stjarnan I danstón- listlnni á árinu. Þessi plata inniheldur safn af hans framleiðslu, bæði eigin lög og remix. Tlmaritið Mixmag valdi plötuna sem eina af plötum ársins 2000. Auk laganna hans Timo sjálfs eru á henni remixin hans á lögum meö Azzido da Bass, Muse, Mad Dogs, Green Velvet, Paganini Trax ofl. Þetta er mistransskotiö, allt frá því að vera teknó/breakbeat úti hreint trans. Þetta er samt ekkert „trans lite" á borð við Sash eða ATB, þetta er alvöru tónlist. Remix Timo Maas af laginu „Dooms Night“ með Azzido Da Bass er upphaf- slag disksins. Timo gerði fyrst annað remix, en því var hafnað og þá gerði hann þetta T fússi eitt kvöldið. Mixiö, sem á litið skylt við orginalinn, er al- gjört dúndur og lag ársins að mati margra, þ. á m. Mixmag og Fatboy Slim. Þetta er fín plata. Það sem gengur T gegnum öll lögin er fiott sánd og kraft- ur. Platan er ekki mixuð, en lögunum er skeytt saman þannig að úr verður samfelld tónlist. Á meðal hápunkta eru „Dooms Night", „Der Schrieber" og „City Borealis" með Timo og remix- in hans af „Rash" með Green Velvet og „Mama Konda" með Orinoko. trausti júliusson
★ ★★★ Fiytjandi: Grandaddy piatan: The Sophtware Slump Útgefandi: V2/Japis Lengd: 46:50 mín. Amerískt band sem er með því skemmtilegra sem undirrltaöur hefur heyrt að vestan um skeið. Þessi fimm manna sveit rekur rætur sínar til Modesto í Kaliforntu og þar virðist sól- in skína eitthvaö ööruvísi en annar staöar í því ágæta fylki. Altént eru lagasmíðar Jason Lytle ansi sér á parti. Það er best ég hamri á því aö þeir eru gjarnan nefndir 1 sömu andrá og öðlingarnir í Flaming Lips, sem vermdu klakann fyrir skemmstu. Sveit- irnar myndu þá eiga andrúmsloftið sammerkt og nú þegar skammdegiö er brostið á mæli ég hiklaust með tón- list þeirra, því eins og allir vita má finna gleði í drunganum. Tækniöldin er áberandi T umbúðum og yrkisefnum plötunnar. Hraöinn er skáldinu sérstaklega hugleikinn og það hvernig það sem þykir helvíti gott í dag er úrelt á morgun, svo aðeins sé öfgað. Kannski er hér komin heimild sem komandi kynslóöir geta sótt T fróöleik um ITfið til forna. Kannski. Frábær plata, það er ekkert flóknara en það. Þaullæröum spekingum þætti eflaust nóg um óhóflega „effekta" notkun hér og þar en hún myndar að mínu mati ákjósanlega umgjörö um sérstakar lagasmíðar Lytle. Sem heild er platan óaðfinnanleg og mælist ég reyndar til þess að hún sé notuö sem slík. Amen. krlstján már ólafsson
★ ★★★ Flytjandi: Talib Kweli & HÍ Tek piatan: Reflection Eternal Útgefandl: Rawkus/Skífan Lengd: 70:50 mín. Ein af aðal hip-hop plötum síðasta árs var sólóplata Mos Def úr Black Star. Hér er komin plata frá hinum Black Star-meðlimnum, Talib Kweli, sem hann gerir í samvinnu við pródúserinn Hi-Tek frá Cincinnati í Ohio, en hann hefur m.a. unnið með Black Star, Common og Phife. Eins og margt af því sem Rawkus-út- gáfan hefur verið að senda frá sér er þetta hágæða hip-hop, sem allir þeir sem hafa gaman af hip-hoppi ættu að kynna sér. Mos Def, De La Soul, Rah Digga, Xzibit, Kool G Rap, Vinia Mojica og frönsku r&b skvísurnar Les Nubi- ans koma fram á plötunni. Talib er virkur baráttumaður fyrir rétt- indum svartra. Þeir Mos Def keyptu bókabúö í Brooklyn sem sérhæfir sig í svertingjabókmenntum. Þeir höfðu unnið í henni áður en þeir fóru út í tón- listina og þegar þaö fór að halla und- an fæti hjá búöinni þá keyptu þeir hana og reka í dag með góðum ár- angri. Þeir sem efuðust um að Talib gæti gert jafn magnaða plötu og Mos þurfa ekki aö efast lengur. Platan er ennþá betri en plata Mos Def T fyrra. Það hjálpast allt aö, frábært (og fjölbreytt) sánd, gott flæði (Talib hefur einstakt mjúkt flæði) og svo er hvergi dauður punktur. Umfram allt grúví og skemmtileg plata. traustl júliusson
★ ★★ Fiytjamdi: Trans Am piatan: Red Line Útgefandi: Thrill Jockey/Hljómalind Lengd: 73:28 mín. Hin mjög svo fjölbreytilega Trans Am er mörgum landsmanna að góðu kunn og spilaði fyrir skömmu á ansi hreint mögnuöum tónleikum á Gauki á Stöng. Þá var platan sem hér um ræö- ir einmitt nýdottin í búðir. Hún er sú fimmta t röðinni af eiginlegum stúdíó- plötum sveitarinnar. • Það er nú svo skemmtilegt með Trans Am aö þar ægir saman áhrifunum og þvi getur ólíkasta fólk, meö ólíkasta tónlistarsmekk, fundið hjá þeim hluti sem því geðjast. Þetta er allavega eina sveitin sem ég þekki sem menn telja undir áhrifum frá ZZ Top, Rush og Kraftwerk. Á vefsíöu sem ég skoðaði og hafði með sveitina að gera var talað um að bandið notaðist við trommumynstur og demólög úr gömlum, ódýrum hljóm- borðum í leit að innblæstri. Ætli það sé raunin, að nýir vinklar! dægurtón- list liggi læst í fermingarskemmtaran- um sem safnar ryki ofani kjallara? Red line inniheldur eins og 21 lag og fer svo víöa aö á köflum þótti mér nóg um. Fjölbreytnin er af hinu góöa en ég missti þó sjónar á þræöinum annað slagiö. Ég leyfi mér að fullyröa að vel hefði mátt sníða til hér og þar án þess að heildin hefði liðið fyrir. Rn plata samt sem áður, tek það fram. kristján már ólafsson
aBBaasitiB
■■■■■
X. desember 2000 f ÓkllS
11