Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2000, Blaðsíða 2
22 MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2000 Sport - hjá Hermanni Maier um helgina. Sænskur sigur í risasviginu Eftir að hafa lokið keppni í 15. sæti í brunkeppni um síðustu helgi tókst Hermanni Maier frá Austurríki að snúa dæminu við og sigra í bruninu í Beaver Creek á laugardaginn. Honum tókst þó ekki að fylgja eftir sigrinum í risasvigkeppninni á sama stað í gær þar sem þrír Norðurlandabúar voru á verðlaunapallinum. Fredrik Nyberg frá Sviþjóð vann fyrsta heimsbikarsigur sinn í 2 ár og þann 6. í heildina en Christof Gruber frá Austurríki varð í öðru sæti og Norðmaðurinn Kennet Siversten þriðji. Hermann Maier frá Austurriki kom sér aftur á beinu brautina um helgina eftir að hafa verið með 15. besta tímann í brunkeppni í Lake Louise í Kanada um síðustu helgi en hann sigraði i tveimur keppnum um helgina. Á laugardaginn vann hann Skíðaúrslit helgarinnar Karlar: Brun, Beaver Creek: 1. Hermann Maier, Austurr. . 1:40,66 2. Lasse Kjus, Noregi......1:41, Í5 3. S. Eberharter, Austurr. .. . 1:41,47 Heildarstaöa bruns: 1. S. Eberharter, Austurr. . . 160 stig 2. Lasse Kjus, Noregi.....140 stig 3. Hermann Maier, Austurr. 116 stig Risasvig, Beaver Creek: 1. Fredrik Nyberg, Svíþjóö 1:21,18 2. C. Gruber, Austurr. 1:21,21 3. K. Sivertsen, Noregi 1:21,65 4. K. A. Aamodt, Noregi 1:21,83 5. Lasse Kjus, Noregi 1:21,94 Konur brunkeppni í Beaver Creek í Color- adofylki í Bandaríkjunum og í gær sigraði hann í risasvigi á sama stað. Það þarf varla að taka fram að með þessu er hann aftur búinn að tryggja sér forystuna í samanlögðum heildar- árangri karla i alpagreinum. Góöur sigur Götschl Það voru 3 keppnir hjá konunum í helgina í Lake Louise og voru þar 2 konur í sviðsljósinu. í brunkeppnun- um tveimur, á fimmtudag og föstudag, var það Isolde Kostner frá Ítalíu sem var með þó nokkra yfirburði. Þótt svo að Petra Haltmayer hafi „stolið" sigrinum af Kostner á fimmtudag var sigur þeirra síðamefndu ömggur dag- inn eftir. Þetta var 10. heimsbikarsigur Kostner og annar sigur hennar í brunkeppninni en hún vann brunkeppni á sama stað fyrir ári. Haltmayer náði ekki að fylgja eftir góðum árangri fimmtudagsins og lauk keppni 23. sæti daginn eftir. Núverandi heimsbikarmeistari kvenna i risasvigi, Renate Götschl frá Austurríki, vann góðan sigur í risa- sviginu í Lake Louise á laugardag. Hún var ekki aðeins að tryggja sér 17. heimsbikarsigur sinn á ferlinum en með honum þurfti Isolde Kostner að taka orð sín til baka en daginn áður ásakaði hún Götschl um svindl. Tveir keppendur, frá Þýskalandi og Banda- ríkjunum, voru dæmdir úr keppni fyrir að bólstra bindingarnar í þeim tilgangi að hækka þær óeðlilega og vildi Kostner meina að Götschl væri í sama braski. Kostner varð níunda í risasviginu. „Mér er alveg sama um öll þessi læti. Mér finnst það bara skammar- legt að Isolde skyldi vera með þessar ásakanir í íjölmiölum í staðinn fyrir að afgreiða þetta við mig persónu- lega,“ sagði Götschl að keppni lok- inni. Stöðugur róöur hjá Cavagnoud Regine Cavagnoud frá Frakklandi hefur skíðað vel það sem af er tíma- bilinu og eftir að hafa lent tvisvar i 4. sæti í brunkeppnunum tryggði hún sér silfrið í risasviginu. Hún er nú í öðru sæti í samanlögðum heildarár- angri kvenna í alpagreinum, á eftir Martinu Ertl frá Þýskalandi sem er efst með 100 stigu. Hún var þriðja í risasviginu og virðist hvergi ætla að gefa eftir. Sjö í röö hjá Maier Hermann Maier vann á laugardag- inn sjöunda sigur sinn í röð í brekk- um Beaver Creek er hann varð hlut- skarpastur í brunkeppni. Hann vann með nokkurri forystu, 0,49 sekúndum á undan Lasse Kjus frá Noregi. Þriðji varð Stefan Eberharter sem hefur byrjað vel í bruninu og leiðir heildar- stöðuna í þeirri grein. „Þetta var langt frá því að vera full- komið hjá mér,“ sagði Maier eftir keppni, „en þetta er fremur hættuleg braut og því tók ég ekki of mikla áhættu." í risasvigkeppninni í gær var mik- ið um óvænta hluti. Það leit allt út Risasvig, Lake Louise: 1. R. Götschl, Austurr......1:11,28 2. R. Cavagnoud, Frakkl.....1:11,41 3. Martina Ertl, Þýskal......1:11,61 Heildarstaöa risasvigs: 1. R. Cavagnoud, Frakki. ... 160 stig 2. R. Götschl, Austurríki ... 132 stig 3. M. Dorfmeister, Austurr. . 112 stig Brun, Lake Louise (föstud.): 1. Isolde Kostner, Ítalíu...1:33,76 2. Carole Montillet, Frakkl. .. 1:34,24 3. C. Rey Beelt, Sviss......1:34,40 Heildarstaða bruns: 1. Isolde Kostner, ítallu .... 180 stig 2. P. Haltmayer, Þýskal. ... 109 stig 3. R. Cavagnoud, Frakkl. ... 100 stig Samanlögð heildarstaða: 1. Martina Ertl, Þýskal.... 420 stig 2. R. Cavagnoud, Frakkl. . . .324 stig 3. J. Kostelic, Króatíu.... 239 stig 4. Isolde Kostner, Ítalíu .... 235 stig 5. R. Götschl, Austurr..... 234 stig ítalska skíöakonan Isolde Kostner sést hér í bruninu í Lake Lousie um helgina. Kostner vann brunið. Reuters fyrir að hinum gríðarsterku skíða- mönnum frá Austurríki væri haldið frá verðlaunapallinum og þrír Norð- urlandabúar tækju alla verðlaunapen- ingana. Svíinn Fredrik Ljunberg fór þar fremstur í flokki en Kjetil Andre Aamodt og Lasse Kjus, landi hans, fylgdu fast á hæla honum. En þegar kom að rásnúmeri 30, sem Christof Gruber frá Austurríki bar, var for- ystu Nybergs ógnað verulega. Hann kom þó í mark 0,03 sekúndum á eftir Svíanum en tókst þó að viðhalda heiðri Austurríkis. Hermann Maier varð „aðeins" sjötti. Kennet Sivertsen frá Noregi, með rásnúmer 32, hirti þó bronsið af Kjus, öllum að óvörum og ekki síst honum sjálfum. Keppnin í gær var sú síðasta á þessu timabili í Norður-Ameríku en nú verður haldið til Val d'Isére í Frakklandi og Sestriere á Italíu og hefst keppni þar þegar á miðvikudag. -esá Þýski handboltinn um helgina: 9 mörk Ólafs dugðu ekki fyrir Minden í leiknum. Guðmundur Guðmundsson stjórnaði sínum mönnum í Bayer Dormagen til sigurs á Nordhom, 28-25. Guðmundur breytti vöminni úr 3:2:1 í 6:0 og það kom liðinu upp úr fallsæti. Róbert Sighvatsson skoraöi sex mörk í leiknum fyrir Dormagen. Staöa efstu liða: Magdeburg ..................24 Flensburg ..................24 Wallau/Massenheim ..........24 Essen ......................21 Lemgo.......................20 Bad Schwartau ..............19 THWKiel ....................18 Grosswallstadt..............17 Nordhom ....................14 Gummersbach.................14 -ÓÓJ Hermann Maier fagnar hér ásamt þjálfurum sínum sjöunda sigrinum á tímabilinu. Reuters Ólafur Stefánsson gerði níu mörk fyrir Magdeburg í þýska handboltanum en það dugði þó ekki toppliðinu sem tapaöi 25-27 fyrir Wetzlar sem komst fyrir bragðið upp úr fallsæti. Þetta var aðeins annað tap Magdeburg og þess vegna komust Flensburg og Wallau/Massenheim upp að hlið Ólafs og félaga á toppnum. Siguröur Bjarnason skoraði eitt af mörkum Wetzlar í leiknum. Patrekur markahæstur Ólafur Stefánsson, skoraði níu mörk fyrir Magdeburg í gær. Patrekur Jóhannesson heldur áfram að blómstra með Essen og í gær skoraði hann sex mörk í sigurleik á Gústafi Bjarnasyni og félögum hans í Minden. Þetta var sjöundi sigur Essen í síðustu átta leikjum. Gústaf skoraði þrjú mörk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.