Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2000, Blaðsíða 14
34
MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2000
Sport unglinga
DV
Efnilegustu körfuboltamennirnir:
að mati Friðriks Inga Rúnarssonar landsliðsþjálfara
Síöasta mánudag birti unglingasíðan lista yfir
efnilegustu handknattleiksstúlkur landsins, aö mati
Ágústs Jóhannssonar, landsliðsþjálfara kvenna. Núna
hefur unglingasíðan fengið Friðrik Rúnarsson,
landsliðsþjáifara í körfuknattleik, til að tilnefna 10
efnilegustu drengi landsins, fædda 1981 og síðar, í
körfuknattleik og var Friörik ekki öfundsverður af að
velja 10 drengi af öllum þeim fjölda efnilegra drengja
sem eru að koma upp í körfuboltanum.
Strákamir hafa á móti sýnt aö þeir eru traustsins
verðir og hafa undirstrikað hversu björt framtíð
körfuknattleiksins er.
Traustsins verðir
Sex af þeim 10 drengjum sem Friðrik setur á topp 10
listann hjá sér hafa þegar spilað með A-landsliði
íslands og sýnir það hversu mikið álit Friðrik hefur á
þeim og hversu mikið traust hann ber til þeirra.
Mikill metnaöur
Sú kynslóð sem er á næsta leiti hefur sýnt að hún
hefur rétta hugafarið og þann metnað sem þarf til að
ná langt. Ungu leikmennirnir búa yfir gríðarlegri
tækni sem er afrakstur betri yngri flokka þjálfunar.
Listinn er settur upp eftir stafrófsröð og fylgir listi
yfir þá sem voru nálægt því að komast á topp 10
listann. Fyrir utan þessa lista eru fjölmargir efnilegir
strákar sem eiga bjarta framtíð fyrir sér.
-BG
A topp tíu lista Friðriks
Hlynur Bæringsson, Skallagrímur/KR, 18 ára, 197 cm
Hefur leikið sem miðherji með sínum liðum - yfirleitt leikið upp fyrir sig og
hefur tekist vel til, en að mínu mati verður hann framvörður í framtíðinni. Til þess
að ná enn lengra þarf hann að bæta boltameðferðina og koma sér upp skoti að
utan. Hann er mikill frákastari og það er ekki sá bolti sem er laus sem hann reynir
ekki við.
Hreggviður Magnússon, IR, 18 ára, 198 cm
Þetta er stór og líkamlega sterkur bakvörður. Hann er
framtíðarlandsliðsmaður að minu mati. Hann er nokkuð
fjölhæfur og getur tekið menn inni i teig, sem og farið fram hjá
mönnum. Hann þarf aðeins að bæta skotið sitt að utan og þá
verður þetta alhliða leikmaður. Hann er þegar búinn að leika
einn landsleik.
Jakob Siguröarson, KR, 18 ára, 190 cm
Jakob er framtíðarleikstjómandi i landsliðinu. Hann hefur yfir að ráða mikilli
tækni og er mjög skynsamur. Hann les leikinn einkar vel og er mjög yfirvegaður
leikmaður sem sjaldan gerir mistök. Hann er hávaxinn leikstjómandi og afburða
varnarmaður. Jakob hefur leikið fjóra A-landsleiki.
Jón Nordal Hafsteinsson, Keflavík, 19 ára, 195 cm
Þetta er mjög fjölhæfur leikmaður sem getur leikið nokkrar stöður á vellinum.
Hann hefur nef fyrir þvi að taka fráköst og verja skot, þó ekki sé hann burðugasti
leikmaðurinn á vellinum hvað hæð eða styrk varðar. Hann er þó að bæta styrkinn
og getur í framtíðinni náð langt.
Jón Arnór Stefánsson, KR, 18 ára, 195 cm
Jón Amór er hávaxinn bakvörður sem býr yfir gríðarlegum hæfileikum. Hann
hefur mikla samhæfingu i hraða og knatttækni. Jón Amór er þeim hæfiieikum
gæddur að geta skapað sér sitt eigið skot hvenær sem er og er einkar laginn við
að keyra upp að körfu. Þetta er leikmaður sem getur náð mjög langt, hefur nú
þegar leikið sjö A-landsleiki.
Logi Gunnarsson, Njarövík, 19 ára, 190 cm
Logi Gunnarsson hefúr yfir að ráða griðarlegum sprengikrafti og mikilli snerpu.
Samhliða þessu hefur hann mikla knatttækni. Þetta er leikmaður sem getur
auðveldlega skapað sér sitt eigið skot hvenær sem er. Logi þarf að bæta líkamlegan
styrk sem hann er að vinna í. Hann hefur alla burði til að ná langt og er mjög
metnaðargiam, hefur nú þegar leikið sjö A-landsleiki.
Magni Hafsteinsson, KR, 19 ára, 199 cm
Þetta er leikmaður sem hefúr marga góða kosti sökum
fjölhæfni. Hann er góður vamarmaður og sóknarlega getur hann
leikið inni og úti. Hann er tæpir 2 metrar, nokkuð góður
bolta/skotmaður og er stöðugt að bæta þessa þætti. Er þegar
búinn að leika A-landsleik.
Magnús Gunnarsson, Keflavík, 19 ára, 185 cm
Magnús er svolítið sérstakur leikmaður að minu mati. Hann
hefur yfir að ráða gríðarlegum leikskilningi sem ekki margir
hafa. Magnús er góður skotmaður sem leikur gjaman með
risastórt hjarta og fer langt á því.
Ólafur Aron Ingvarsson, Njarövík, 16 ára, 186 cm
Ólafur er gríðariega tæknilegur leikmaður sem hefúr mikla
samhæfingu á hraða og knatttækni. Hann er mikið efni og hefur
alla burði til að ná langt.
Sævar Haraldsson, Haukum, 16 ára, 184 cm
Sævar er leikstjómandi og er fljótur að koma boltanum upp
völlinn. Einnig les hann leikinn vel sem er mjög mikilvægur
kostur fyrir leikstjórnanda. Þetta er leikmaður sem á framtíðina
fyrir sér.
Næstir inn á listann hjá Friöriki Inga
Sigurjón Lárusson, Stjömunni, 19 ára, 195 cm, framherji. Sveinn Blöndal, KR/KFÍ
19 ára, 195 cm, framvörður. Helgi Magnússon, KR, 18 ára, 196 cm, KR bak/framvörður,
Erlendur Ottesen, Akranesi, 17 ára, 200 cm, fram/miðherji. Axel Kárason, Tindastóli,
17 ára, 190 cm, bakvörður. Nfels Dungal, KR, 17 ára, 191 cm, bakvörður. Fannar
Helgason, Akranesi, 16 ára, 200 cm, fram/miðherji. Þorleifur Ólafsson, Grindavík,
16 ára, 187 cm, bakvörður. Magnús Pálsson, 15 ára, 193 cm, Fjölni, framheiji. Jóhann
Ólafsson, Njarðvik, 14 ára, 194 cm, bak/framheiji.
!