Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2000, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2000 27 íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik tapaði síðari leik sinum gegn Slóvenum í Víkinni í gær, 17-27, og samtals 22 mörkum í báð- um leikjunum. Það voru hins vegar augljós batamerki á íslenska liðinu í síðari leiknum og i raun allt annað lið sem þá hóf leik en á fóstudag. íslensku stelpurnar mættu ákveðn- ar til leiks og strax í fyrstu sókn Sló- venanna létu þær fmna fyrir sér i vörninni og héldu því áfram mestall- an leikinn. Sóknin var einnig tals- vert frábrugðin því sem þær voru að sýna í fyrri leiknum. Boltinn fékk að ganga hratt og sóknarleikurinn var allur mun agaðri. Þær lentu þó fljótt þremur mörk- um undir en í stað þess að gefa eftir sýndu íslensku stelpurnar mikinn skapstyrk og komust inn í leikinn aftur fyrir tilstilli góðrar varnar og ákveðni í sókninni. Þeim tókst að jafna í 9-9 en misstu síðan Slóvenana fram úr sér aftur og staðan í leikhléi var 9-12. Byrjun síðari hálfleiks einkenndist af ákveðinni vöm beggja vegna og það var ekki fyrr en eftir sex mínút- ur að fyrsta markið leit dagsins ljós og var það mark Slóvena. íslensku stelpunum tókst að svara fyrir sig þremur mínútum síðar en síðan var eins og allt færi í baklás i sókninni og Slóvenarnir skoruðu fjögur mörk í röð og staðan var orðin 10-17. Berg- lind Hansdóttir, sem byrjaði í mark- inu í síðari hálfleik náði ekki að verja eitt skot á þeim 15 mínútum sem hún var inná enda flest skotin sem hún fékk á sig úr dauðafærum og þvi kom Helga Torfadóttir inná aftur en hún hafði staðið í markinu allan fyrri hálfleikinn. íslensku stelpurnar reyndu að klóra í bakkann það sem eftir lifði leiks en tókst aldrei að ógna af sama krafti og í fyrri hálfleiknum og Sló- venarnir gripu gæsina og sigu lengra fram úr. Kristín Guðmundsdóttir kom inná um miðjan síðari hálfleik og ógnaði vöm Slóvenanna nokkuð en það var engan veginn nóg. Is- lensku stelpurnar virtust búnar með púðrið og sigur Slóvena staðreynd. Slóvenska liðið var ekki jafn sann- færandi og í fyrri leiknum, a.m.k. í byrjun, en stærð þeirra og hraði gera þær einfaldlega að mun sterkara liði. Þær lásu vel í leikinn og komu greinilega vel undirbúnar til leiks. Mest ógnandi hjá þeim voru Anja Freser og Silvana Ilic og Barbara Gorski átti góðan leik í markinu. Hjá íslenska liðinu var gaman að sjá hversu vel ungu stúlkurnar stóðu sig. Ásdis Sigurðardóttir skoraði skemmtileg mörk einn á móti einum í hægra horninu og barðist vel í vörninni. Dagný og Drífa Skúladætur áttu góða spretti og Kristín var ógnandi þann stutta tíma sem hún var inná. Helga varði nokkrum sinnum vel og Inga Fríða Tryggvadóttir var öfiug í vörn sem sókn. -ÓK Ísland-Slóvenía 17-27 (9-12) 0-1,1-1,1-4,2-4,3-5,3-6, 5-6,5-8, 6-9,9-9 (9-12), 9-13, 10-13, 10-17, 11-18, 13-18, 14-19, 14-22, 15-22, 16-24, 16-26, 17-26, 17-27. Skipting skota íslands eftir leikstöðum: Langskoí: 23/4, 17% (Ragnheiður 6/0, Nína 10/2, Brynja 2/1, Kristín 3/1, Þórdis 2/0. Gegnumbrot: 2/2,100% (Brynja 1/1, Ragnheið- ur 1/1). Horn: 8/5, 63% (Ásdís 3/2, Dagný 2/1, Ragnheiður 2/1, Drífa 1/1) Lina: 1/1, 100% (Inga Fríða 1/1). Hraðaupphlaup: 1/1, 100% (Dagný 1/1). Vítaskot: 5/3, 60% (Ragn- heiður 5/3). Önnur tölfræði: Stoðsendingar: 7 (Nína, 2, Ragnheiður, 2, Drífa, Kristín, Brynja), Slóvenía 18. Fiskuó víti: 5 (Inga Fríða 4, Drífa). Sendingar sem gáfu víti: 5 (Brynja, 4, Krist- ín). Stolnir boltar: 7 (Helga, 2, Asdís, Drífa, Ragn- mheiður, Inga Fríða, Nína), Slóvenia 9. Tapaðir boltar: 14 (Ragnheiður, 4, Nína, 4, Dag- ný, 2, Þórdís, Kristín, Brynja, Inga Fríða), Sló- venía 13. Fráköst af skotum: 7, 4 í sókn (Inga Fríða, 3, Nína, 2, Brynja, Drífa), Slóvenía 2, 0 í sókn. Varin skot i vörmi (Harpa, 2, Brynja, Inga Fríða), Slóvenía 5. Brottvisanir: 6 mínútur (Harpa, Inga Fríða, Nína). Fiskaðar brottvisanir: 6 mínútur (Ragnheiður, Dagný, Inga Friða)._______________________ Dómarar (1-10): Lars Berndtsson og Hans Hansson ffá Svíþjóð (8). Gœði leiks (1-10): 4. Áhorfendur: 60. Sóknamýting: í fyrri hálfleik: ísland 24/9 (38%), Slóvenía 24/12 (50%). seinni hálfleik: ísland 24/8 (33%), Slóvenía 24/15 (63%). Samtals: ísland 48/17 (35%), Slóvenía 48/27 (56%). íslenska liðið Mörk/viti (skot/viti): Ragnheiður Stephensen, 5/3 (14/5), Ásdís Sigurðardóttir, 3 (4), Brynja Steinsen, 2 (3), Dagný Skúladóttir, 2 (3), Nína K. Bjömsdóttir, 2 (10), Drífa Skúladóttir, 1 (1), Inga Fríða Tryggvadóttir, 1 (1), Kristín Guðmundsdóttir, 1 (3), Þórdís Brynjólfsdóttir, (2). Varin skot/víti (skot á sig): Helga Torfadóttir 8 (29/5, 28%) 3 af 7 langskotum, 2 af 6 úr homi, 2 af 7 hraðauuphlaupum, 1 af 1 á linu, 0 af 3 gegnumbrotum, 0 af 5 vítum Bergllnd fris Hansdóttir 0 (6/1, 0%) 0 af 1 langskotum, 0 af 3 gegnumbrotum, 0 af 1 á línu, o af 1 vítum. Slóvenia: Mörk/viti (skot/viti): Anja Freser, 10 (13, 6 stoðsendingar), Silvana Ilic, 7/3 (9/3), Mojca Dercar, 3 (4), Inna Dolgun, 3/2 (5/2), Tanja Dajcman, 2 (3), Mira Vincic, 1 (1), Vesna Vincic, 1/1 (1/1), Branka Mijatovic, (1). Varin skot/víti (skot á sig): Barbara Gorski, 16/1 (29/3, 55%, 1 víti í stöng), Sergeja Stefanisin, 1 (6/1,17%). Mörk úr hraðaupplilaupum: 5 (Dercar, 2, Fresser, 2, Dolgun). Vitanýting: Skorað úr 6 af 6. Maður leiksins: Anja Freser, Slóveníu Þórdís Brynjólfsdóttir sækir hér aö vörn Slóvena en Anja Freser og Deja Doler taka vel á móti henni. DV-mynd Hilmar Þór Sport Tone Tiselja, þjálfari Slóveníu: Ekkert óvænt „íslenska liðið virtist koma mjög afslappað til leiks enda hafði það engu að tapa eftir leikinn á föstudaginn og spilaði miklu betur núna. Við komum vel undirbúin til leiks og vissum við hverju var að búast og erum í augnablikinu einfaldlega með betra lið. Við áttum i smávandræðum í vörninni í fyrri hálfleik vegna breytinga í sókn íslands. Við þekkjum hins vegar vel leik ís- lenska liðsins þar sem ég sá báða leiki liðsins í Sviss. íslenska liðið spilaði hraðar og betur og var af- slappað. Stelpumar mínar spiluðu reyndar mjög vel líka, þær eru í góðu líkamlegu formi og allur und- irbúningur þeirra hinn besti.“ Brynja Steinsen leikstjórnandi: Einbeitingarleysi „Þetta var miklu betra en á föstudaginn, sérstaklega f fyrri hálfleik. Við bjuggumst kannski ekki við því að vinna seinni leik- inn en vildum auðvitað gera betur en förum síðan i sama farið í seinni hálfleik. Það var eiginlega engin pressa fyrir þessa leiki, þetta var helst spurning um það að taka skref fram á við, upp á fram- tíöina. Vömin fannst mér mjög góð en sðknin í seinni hálfleik var ekki góð. Við kláruðum allt of snemma og þær skoraðu fullt af mörkum úr hraðaupphlaupum. Þetta er ein- faldlega einbeitingarleysi." Ágúst Jóhannsson þjálfari: Allt anaö „Þetta var náttúrlega allt annað en f fyrri leiknum og þá sérstak- lega fyrri hálfleikurinn. Þá erum við að spila af eðlilegri getu. Við erum að spila vörn og fá mörk úr hraðaupphlaupum. I seinni hálf- leik er eins og það fari allt loft úr okkur, við lendum nokkuð undir, og stað þess reyna að gefa í undir lokin og reyna að laga stöðuna misstum við þær meira frá okkur. Ég er helst ósáttur við það. Mér fmnst við vera að fá ágætis skotfæri en kannski erum við óheppin með það hvernig við klár- um sóknimar. Engu að síður var þetta svolítið ráðaleysislegt hjá okkur. Þær hafa mikla hæð sem við höfum ekki og það er svolítið vandamál. Þeir leikmenn sem standast pressuna best eru ungu leikmenn- irnir svo að ég get ekki séð að það hafi verið reynsluleysi sem hafi háð okkur sérstaklega í seinni leiknum. íslensku stelpurnar eru mjög vel á sig komnar líkamlega en okkur vantar einna helst hæð. Það tekur tíma að byggja upp sterkt landslið og ég held að við getum eftir 2-3 ár farið að standa í svona liðum.“ -ÓK Liðabúningar Barcelona Liuerpool, Man. United o.fl. Jói útherji knattspyrnuuerslun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.