Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2000, Síða 3
MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2000
23
I>V
Sport
Fjölmiðlakönnun Gallups um lestur dagblaða og tímarita:
Lesendum DV-Sports
fjölgar um 87,5%
DV-Sport í mikilli sókn. 65,9% lesenda DV á mánudögum lesa DV-Sport
70
Lestur á DV-Sport
- á mánudögum og fimmtudögum
65,9
61,7
Fjölmiðlakörtnun
i_ .. _ 2000
Breyting
- í prósentustigum
24,9
lesa íþróttafréttir
blaðsins.
Á fimmtudögum
hefur DV-Sport
einnig vinninginn á
Morgunblaðið. 61,7%
þeirra sem lesa DV
lesa DV-Sport en
60,0% þeirra sem
lesa Morgunblaðið á
fimmtudögum lesa
íþróttafréttir blaðs-
ins.
Aukin fjölbreytni
Lögð hefur verið á
það áhersla undan-
farin misseri að
Lesendum DV-Sports hefur fjölg-
að um nærri helming frá því í vor.
Þetta er niðurstaða fjölmiðlakönn-
unar Gallups um lestur dagblaða og
tímarita sem gerð var opinber á
dögunum.
Lesendum DV-Sports á mánudög-
um hefur fjölgað um hvorki meira
né minna en 87,5% frá því í vor.
Hlutfall lesenda DV sem lesa DV-
Sport á mánudögum hefur einnig
snarhækkað, eða um 60,7%.
Mikil aukning hefur einnig orðið
á hlutfalli lesenda DV-Sports á
fimmtudögum. Hlutfallið hefur
hækkað frá því í vor um 55,4%.
65,9% lesa DV-Sport á
mánudögum
í könnun Gallups nú kemur fram
að 65,9% þeirra sem lesa DV á
mánudögum lesa DV-Sport. Þetta er
hækkun um tæp 25 prósentustig en
41% lesenda DV las DV-Sport í vor.
Á fimmtudögum er niöurstaðan
sú að 61,7% þeirra sem lesa DV lesa
DV-Sport.
81,3% lesenda DV-Sports á mánu-
dögum eru karlar en 51,2% konur.
Á fimmtudögum er hlutfall kynj-
anna þannig aö 86,4% lesenda eru
karlar og 47,2%
konur.
Af þeim les-
endum DV sem
lesa DV-Sport á
mánudögum búa 64,6% í Reykjavík
en 68,2% á lansbyggðinni. í könnun
Gallups sl. vor var skiptingin hníf-
jöfn.
Á fimmtudögum skiptast lesend-
ur þannig eftir búsetu að 60,8% íbúa
á höfuðborgarsvæðinu lesa DV-
Sport en 63,2% á landsbyggðinni.
Mestur lestur DV-Sports innan
einstakra starfsstétta er hjá þeim
sem starfa við faglærð iðnaðarstörf,
77,3%. Miimstur er lesturinn hjá
sérfræðingum, 52,3%.
Á fimmtudögum eru það faglærð-
ir iðnaðarmenn sem eru iðnastir
við að lesa DV-Sport, eða 80% les-
enda. Minnstur er lesturinn á með-
al sérfræðinga og skrifstofufólks,
50%.
Betra hlutfall DV-Sports en
íþróttafrétta Morgunblaðsins
Þegar kemur að hlutfalli þeirra
sem lesa DV á mánudögum og
Morgunblaðið á þriðjudögum og
lesa íþróttafréttir blaðanna hefur
DV-Sport vinninginn yfir íþrótta-
fréttir Morgunblaðsins. 65,9%
þeirra sem lesa DV á mánudögum
lesa DV-Sport. 62,6% þeirra sem
lesa Morgunblaðið á þriðjudögum
verið í stórsókn síðustu mánuöina
og þeirri sókn verður haldið áfram.
Hvergi verður gefið eftir og það haft
að leiðarljósi að auka stöðugt og
viðhalda mikilli fjölbreytni þegar
DV-Sport er annars vegar.
Konum gert hærra undir
höföi hjá DV-Sporti
Síðustu mánuði hefur kvenfólki
verið gert mun hærra undir höfði
en áður hjá DV-Sporti.
Það er skýr stefna DV-Sports að
auka enn umfjöllun um íþróttir
kvenna og konur sem stunda íþrótt-
ir.
Til að árétta þetta markmið má
nefna að nú í haust var DV-Sport í
Lestur á DV-Sport og íþróttasíðum Mbl.
ámánudögum á DV og þriðjudögum hjá Mbl. ogfimmtudögum, bæði blöðin
isaa.
mánudagur/þriðjudagur
Fimmtudagur
auka mjög fiölbreytni á síðum DV-
Sports. Auk þess aö gera boltaíþrótt-
um góö skil er lögð áhersla á akst-
ursíþróttir, hestamennsku, veiði-
skap, stangaveiði sem skotveiði, svo
eitthvað sé nefnt. í nánustu framtíð
verður enn aukið við fiölbreytnina
á DV-Sporti. Fljótlega hefur göngu
sína í mánudagsblaðinu síða sem
helguð verður almenningsíþróttum.
Þar verður fiallað um almennings-
íþróttir, útivist í víðasta skilningi
þess orðs, trimm og margt fleira.
Þar ættu margir lesendur DV-Sports
að fá eitthvað við sitt hæfi.
Þessari auknu fiölbreytni hjá DV-
Sporti hefur verið frábærlega tekið
af lesendum. Nýleg skoðanakönnun
Gallups staðfestir aö DV-Sport hefur
fyrsta skipti með veglega kynningu
á 1. deildarkeppni kvenna í hand-
knattleik og körfuknattleik. Birtar
voru myndir af öllum leikmönnum
allra kvennaliöa í báöum deildun-
um i fyrsta skipti hérlendis. Konur
hafa verið að sækja 1 sig veðrið í
heimi íþróttanna. Hópíþróttir hafa
verið í sókn og varla þarf að minna
á afrek Völu Flosadóttur og Guðrún-
ar Arnardóttur á síðustu Ólympíu-
leikum í Sydney.
Þá hefur DV-Sport lagt aukna
áherslu undanfarið á tölfræði í
boltaíþróttum hjá konum og körlum
sem gefur lesendum mun meiri
upplýsingar en áður hefur tíðkast
hér á landi. -SK
Íshokkí:
Noröanmenn
á toppinn
SA komst á topp Islands-
meistaramótsins í íshokkí með
sigri á aðalkeppninautum sínum
t SR.
Leikurinn var jafn og
spennandi og skiptust liðin á að
skora fyrri hluta leiksins.
Norðanmenn skoruðu fyrsta
markið á fimmtu mínútu en þeir
sunnlensku jöfnuðu aðeins tæpri
mínútu síðar. Stuttu síðar
komust SA-ingar aftur yfir en
sem fyrr jöfnuðu SR-ingar tæpri
mínútu síðar, staðráðnir í að
hleypa þeim norðlensku ekki
fram úr sér.
Akureyringar bættu svo við
einu marki fyrir lok lotunnar og
var staðan því orðin 3-2 þegar
liðin gengu til búningsklefa eftir
fyrstu lotu. í annarri lotu voru
Akureyringar aðeins sterkari og
skoruðu tvö mörk á móti einu
frá íslandsmeisturunum og
staðan þá orðin 5-3 þegar þriðja
lotan hófst.
Barist til síðasta
blóðdropa
Síðustu 20 mínútumar var
barist til síðasta blóðdropa og
þess má geta að SR-ingar fengu
14 af 16 mínútum slnum í boxinu
þama í síðustu lotunni og SA-
ingar 14 mínútur af sinum 22.
Jafnt var á með liðunum þessar
síðustu mínútur og lotunni lauk
með einu marki gegn einu;
lokastaðan I leiknum var því 6-
4.
Eins stigs forusta
Með þessum sigri komust
norðanmenn á topp deildarinnar
með 7 stig. Bjöminn er í öðru
sæti með 6 stig og
íslandsmeistaramir frá því í
fyrra, Skautafélag Reykjavíkur,
eru einungis með 1 stig og því
ljóst að ekkert minna en
kraftaverk getur komið þeim í
úrslit í ár. Á botninum er svo lið
Gulldrengjanna, stigalaust.
Mörk / stoðsendingar:
SA: Clark McCormick 3/0,
Eggert Hannesson 1/1, Björn
Jakobsson 0/2, Rúnar Rúnarsson
1/0, Sigurður Sigurðsson 1/0,
Ingvar Jónsson 0/1.
SR: James Devine 2/1, Snorri
Rafnsson 1/1, Vladimir Baranov
1/0, Elvar Jónsteinsson 0/1,
Hallur Ámason 0/1.
Brottvísanir: SA, 22 mínútur,
SR, 16 mínútur.
Aðaldómari: Símon Sigurðs-
son.
Línudómarar: Árni Arason
og Steinar Sigurðsson.
Frændinn á Mogganum
Ungur laganemi við Háskóla ís-
lands ritar grein i Morgunblaðið sl.
miðvikudag. Gerir hann að umtals-
efhi umfiöllun DV-Sports um mál-
efni íslendingaliðsins Stoke City og
skrifar undir greinina: „Höfundur
er nemi i HÍ.“
í grein laganemans, Borgars
Þórs Einarssonar, segir eftirfar-
andi: „Þótt sumt sé ekki svaravert
veröur stundum ekki komist hjá
því að benda á samhengi hlutanna.
Annars gætu tilhæfulausar dylgjur
orðið til þess að grandalausir gerðu
sér margvislegar ranghugmyndir.“
Rétt er að upplýsa, áður en
lengra er haldið, að Borgar Þór
Einarsson, umræddur laganemi, er
blaðamaður á Morgunblaðinu og
að auki frændi Guðjóns Þórðarson-
ar, nánar tiltekið systursonur.
Þessar staðreyndir gera Borgar Þór
auðvitað ómarktækan þegar fiailað
er um Stoke og Guðjón Þórðarson.
Greinina skrifar laganeminn undir
fólsku flaggi og skýtur fóstum skot-
um að kollegum sínum á öðrum
fiölmiðli imdir því yfirskini að
hann geri ekki annað en að nema
lög við Háskólann - og leynir auð-
vitað frændseminni við knatt-
spymustjórann hjá Stoke.
í grein Borgars Þórs segir
einnig: „Umræddum skrifum er
leynt eða ljóst ætlað að kasta rýrð
á störf Guðjóns Þórðarsonar hjá
Stoke City og um leið að vekja efa-
semdir hjá hluthöfum i félaginu og
öörum um stöðu og framtíð félags-
ins.“
Hér ásakar laganeminn DV um
að stuðla að því með ásetningi að
lækka gengi hlutabréfa í
Stoke. Ég hef ekki betur
séð síðustu vikur en að
leikmenn Stoke og
Guðjón Þórðarson
séu alveg færir um
þá hluti sjálfir. Eða
varð tapið gegn lið-
inu utan deilda og
0-8 ósigurinn gegn
Liverpool til þess að
hækka gengi hluta-
bréfanna?
Reiði frændans á Mogg-
anum í umræddi grein beinist
ekki hvað síst að Óskari Hrafni
Þorvaldssyni, íþróttafréttamanni
DV-Sports. Óskar Hrafn hefur það
umfram flesta aðra Iþróttafrétta-
menn i dag að hann þorir að skrifa
greinar í DV-Sport þótt vitað
sé að í kjölfarið fækki
vinunum sem þola
ekki að staðreyndir
liti dagsins ljós.
DV-Sport þorir að
birta slíkar grein-
ar og mun halda
slíku áfram í
framtíðinni. Aðrir
fiölmiölar munu
svo jafn örugglega
slá upp stórfréttum
þegar vel gengur hjá
Stoke en bjóða síðan lesend-
um sinum upp á að leita að smá-
fréttum þegar illa gengur hjá lið-
inu.
Öll umfiöllun DV-Sports um
Stoke City og Guðjón Þórðarson
hefur byggst á bláköldum stað-
reyndum. Auðvitað er það frétt
þegar einn besti leikmaður Stoke
lendir í útistöðum við þjálfarann.
Frétt fyrst og fremst vegna þess að
Islendingar eiga meirihluta í þessu
félagi og knattspyrnustjórinn er ís-
lenskur.
DV-Sport mun í framtíðinni
birta fréttir og umfiöllun um Stoke
og Guðjón Þórðarson, bæði þegar
vel gengur og illa. Þær fréttir verða
sem hingað til byggðar á stað-
reyndum. Hvort fleiri skyldmenni
þjálfarans hlaupa síðan á sig í
vamarræðum í Mogganum verður
að koma í ljós.
Stefán Kristjánsson.
íþróttaljós
Stefán Kristjánsson