Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2000, Page 4
2
haf
Umbrota
tímar
Þau tiðindi
hafa nú borist
Fókusi til eyma
að forsprakkar
12 tóna hugsi
sér gott til glóð-
arinnar þessa
dagana eftir að
upplýst var að
Hljómalind
muni leggja
upp laupana.
Mun stefnan vera sett á að ná tii
sín flestum þeim umboðum sem
Kiddi hafði á sínum snærum og
viðhalda þannig þeirri skemmti-
legu flóru sem þar hefur grasser-
að. Einnig mun ætlunin vera að
auka veg klassísku deildarinnar
og til að gera allt þetta telja þeir
sig þurfa stærra húsnæði undir
verslunina. Fókus getur upplýst aö
12 tónar hafa nú boðið í húsnæði
Herrafataverslunar Kormáks og
Skjaldar á Skólavörðustig og ef
kaupin ganga í gegn verður það í
byrjun febrúar. Hvað verður þá
um sjentilmennina Kormák og
Skjöld er óvíst en Kormákur stað-
festi í samtali við Fókus að það
gæti allt eins gerst að búðin hætti
alfarið. Hinn möguleikinn er þó að
annað húsnæði verði fundið fyrir
verslunina en engin ákvörðun hef-
ur enn verið tekin.
Robba
afftxir
Óánægja og
biturð er ráð-
andi hugará-
stand í rööum
hip-hopaðdá-
enda klakans
um þessar
mundir. Þannig
er mál með
vexti að hvergi hljómar tónlist sú
er þeir þrá að heyra. Hvíta mann-
inn með svörtu sálina, Robba
Rapp, er ekki nefnilega ekki leng-
ur að finna á öldum ljósvakans,
eftir að útvarpsstöðin Mono 87,7
var skotin í kaf uppi á Lynghálsi.
Þar liggur hundurinn (en þetta er
svo nýskeð að enn er ekki búið að
grafa hann). Heyrst hefur að fyrir-
huguð sé undirskriftasöfnun með
áskorun til starfandi útvarps-
stöðva um að sinna þessari tónlist.
Hip-hopmenningin hér hefur þó
fleiri líf en sjálfur jólakötturinn og
er langt í frá að lognast út af. Þeir
sem þyrstir í góða tóna til aö fylla
tómið sem Chronic skilur eftir sig
geta keypt eintak af íslandsmeist-
aramóti TFA (Time for action) i
plötusnúðun, á videoformi. Allar
nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu klikunnar tfa.is. Aaaii-
iiiiiiiiiiight?
Godzpeed er
ung hljómsveit sem
á víst lítið sameig-
inlegt með annarri
betur þekktri sem
ber svipað nafn.
Meðlimirnir eru
ekki beint á sömu
bylgjulengd og
margir rokkara
samtímans því þeir
kynntust í gegnum
starf sitt í Fíla-
delfíusöfnuðinum.
„Það var Bassi
trommari sem fann nafn-
ið á hljómsveitina í ein-
hverri orðabók. Okkur
leist vel á það og þar
með var komið nafn á
bandið,“ segir Edgar,
söngvari godzpeed sem
mættur er I spjall ásamt
Styrmi gítarleikara.
Pælingarokk
Strákamir í godzpeed hafa spilað
saman síðan í ágúst en þá gekk
Styrmir gítarleikari til liðs við hóp-
inn. Áður höfðu hinir spilað saman
sem hljómsveitin Flood, meðal ann-
ars á Kristnitökuhátíðinni á Þing-
völlum í sumar. í godzpeed eru 5
ungir strákar, allir í kringum tvi-
tugt, og segjast þeir spila poppað
melódískt rokk, allt saman frum-
samið og textarnir á ensku. „Þetta
er pælingarokk með einföldu yfir-
bragði," segir söngvarinn, Edgar.
Nú minnir nafnið óþyrmilega á
nafn annarrar hljómsveitar, aðeins
betur þekktri, Godspeed You
Black Emperor. Eru einhver
tengsl þama á milli?
„Já, pabbi hans Styrmis var i
henni,“ segir Edgar og hlær.
Styrmir segir það reyndar ekki
rétt, þeir hafi heyrt um þessa
hljómsveit eftir að þeir fundu nafn-
ið á sina og því sé um algjöra til-
viljun að ræða. „Það er líka þess
vegna sem við skrifum nafnið með
litlu géi og zetu til að koma í veg
fyrir allan misskilning," bætir Edg-
ar við.
Þrátt fyrir ungan aldur eru þeir
allir vanir tónlistarmenn. Edgar
söngvari hefur meira að segja
stundað „alvarlegt" söngnám í
Söngskóla Reykjavíkur og sótt
einkatíma hjá heimsþekktum söng-
kennara í New York.
Tæpur helmingur bandsins er frá
Selfossi, heimabæ sveitaballakóng-
anna í Skltamóral. Hinir eru úr
Reykjavík og þekkjast i gegnum
starfið í Flladelfíusöfhuðmum þar
sem þeir hafa spilað saman.
Enginn neyddur í kirkju
í haust kom Styrmir aftur til Is-
lands frá Hollywood þar sem hann
hafði dvalið í tvö ár. „Pabbi var í
námi þarna úti og fjölskyldan mín
flutti því utan. Ég ákvað að skella
mér með og freista gæfunnar. Ég
sá auglýst starf í auglýsinga- og
kvikmyndagerð, sótti um og var
svo heppinn að fá vinnu.“
Hittirðu þá ekki eða sást eitthvert
frœgtfólk?
„Sá frægasti sem ég vann með
er líklega gaurinn sem lék í Qu-
antum Leap-þáttunum. Svo sá
maður fullt af frægu liði, eins og
til dæmis Jerry Springer og Ros-
eanne, á einhverjum veitingastað
og Arnold Schwarzenegger á
ströndinni. Svo tefldi bróðir minn
við Will Smith á meðan tökur
stóðu yfir á Enemy of the State.“
Ein af ástæðunum fyrir því að
Styrmir kom heim var sú að hann
hafði frétt að félagar hans hefðu
stofnað hljómsveit og hann lang-
aði að vera með. í janúar mun
godzpeed spila á svokölluðu
stefnumótakvöldi á Gauknum.
Þangað til eru áætlaðir nokkrir
tónleikar í félagsmiðstöðvum í
borginni og svo ætla þeir að spila
á jólatónleikum í kirkjunni sinni
13. desember.
Hvernig stendur á því að þið eruð í
Fíladelfiusöfnuðinum, er þetta eitt-
hvað fjölskyldutengt?
„Já,“ segir Edgar og hlær. „Pabbi
hans Styrmis er fyrrverandi for-
stöðumaður safnaðarins og svo er
pabbi minn forstöðumaður Sam-
hjálpar þannig að þetta er vissulega
fjölskyldutengt." Þeir bæta þó við að
það sé hverjum og einum í sjálfsvald
sett hvort hann sé í söfnuðinum, það
sé ekki sjálfgefið þó að fjölskylda
manns sé í honum. „Það er enginn
sem neyðir mann til að fara í kirkj-
una, maður ræður hvort maður fer
eða ekki. Ég hef tekið þá ákvörðun
að fylgja Jesú og finnst ekkert asna-
legt við það,“ segir Edgar.
Aðspurðir segja þeir Fíladelfiu
ekki vera ólíka hinni venjulegu þjóð-
kirkju. Það eina sem sé í raun ólíkt
eru samkomurnar sem eru víst mun
hressilegri en hinar hefðbundnu
guðsþjónustur sem heyra má á
gömlu Gufunni á hverjum sunnu-
degi.
Ekkert bús
Þá er bara spurningin: Er plata á
leiðinni? „Við erum núna að vinna fjög-
urra laga „demó“,“ segir Styrmir. Þeir
segjast ekkert vera að flýta sér, ætla
bara að klára demóið og sjá svo til.
„Þetta endar líklega með plötu," bætir
Styrmir við.
En hvernig er með djamm og drykkju
hjá ykkur? „Við fórum út og hittum
fólk og skemmtum okkur," segir Styrm-
ir. „En án vímuefna," bætir Edgar við.
„Fyrst við æfum og spilum edrú þá er
alveg eins gott að sleppa þessu.“ Styrm-
ir bætir við að þetta sé bara ákvörðun
hvers og eins en í godzpeed séu allir
edrú, alltaf.
heimasíöa vikunnar
http://www.jesus.com
Hefur þig einhvern timann
dreymt um að fara í sturtu með
Jesú sjálfum? Ef svo er þá gæti
heppnin verið með þér. Það er eng-
inn annar en hjartaknúsarinn
Jesús Kristur sem á heimasíðu vik-
unnar í þetta sinn. Jesús er 26 ára
síðhærður og skeggjaður Kani sem
klæðist hvítum kyrtli og gefur
hvergi upp sitt rétta nafn. Á sið-
unni má meðal annars skoða
myndir af kappanum þar sem hann
fer í bæinn (Around town) í kyrtl-
inum sínum og einnig má sjá
myndir af honum í baði (Jesus
Bathes). Tilgangur síðunnar er að
auglýsa eftir konu því Jesús er
greinilega mjög einmana maður.
Hægt er að vinna tækifæri til að
fara í sturtu með Jesú sjálfum (Win
a chance to shower with Jesus). Það
eina sem þarf að gera er að senda
honum mynd af þér með tölvupósti
og skrifa nokkrar línur um sjálfa
þig og af hverju Jesús ætti aö velja
þig sem sturtupartner og reyna
þannig að heilla hann upp úr sand-
ölunum. Taka má fram aö hægt er
að skipta sturtunni út fyrir freyði-
bað með kappanum. Sú sem verður
fyrir valinu verður að gefa leyfi sitt
til að láta taka mynd af sér með
Jesú, annaðhvort í sturtunni eða í
freyðibaðinu. Jesús setur svo
myndina á síðuna svo aðrar konur
geti séð hvað kynsystir þeirra er
heppin og taki hana kannski til fyr-
irmyndar. Ein kona (Melissa) hef-
ur þegar baðað sig með Jesú og má
skoða myndir af þeim saman í
freyðibaði umkringd kertaljósum.
f Ó k U S 15. desember 2000