Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 Fréttir DV Danska skipið sem LÍÚ fékk til landsins dælir tæpum 3 þúsund tonnum í tugi skipa: Um 20 milljónir sparast á danska olíuskipinu - olíufélögin þrjú hyggjast öll lækka um áramótin til samræmis við lækkanir og gengi Hagfræðingur LÍÚ segist telja að olíuspamaður útvegsmanna af danska olíuskipinu sem hefur verið að dæla hátt í þrjú þúsund tonnum af olíu á tugi íslenskra skipa sé um tuttugu milljónir króna. Talsmenn íslensku olíufélaganna þriggja sögðu í samtali við DV að fé- lögin mundu lækka olíuverð til skipa um áramótin enda verði þá tekið tillit til lækkunar meðalverðs í desember og lækkunar gengis und- anfarið. Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- lagsins hf. Esso, segir að félag hans muni lækka olíuverð um áramótin af sömu ástæðum og danska olíufé- lagið gat lækkað verð á sínum farmi. „Ef LÍÚ finnur einhverjar ásættanlegar leiðir til að gera þetta ódýrara til frambúðar munum við örugglega skoða það líka,“ sagði Geir og átti við að „danska lausnin" sé sprottin af fallandi verði í mán- uðinum og því að íslensku olíufélög- in þurfi að halda úti birgðastöðvum á ótal stöðum á landsbyggðinni all- an ársins hring. „Það er alveg ljóst að talsverð lækkun er í farvatninu um áramót- in,“ sagði Samúel Guðmundsson, forstöðumaður áhættusviðs Olís, við DV. Talsmaður Skeljungs segist telja að olíuverð félagsins muni lækka niður í sama verð og selt var úr danska skipinu. „Við verðbreytum um áramótin og verðum örugglega meö svipuð verð og danska skipið þegar upp er staðið. Það hafa verið það miklar lækkanir undanfarið og dollarinn hefur gefið eftir þannig að þetta lá alveg fyrir,“ sagði Reynir Guðlaugs- son, innkaupastjóri Skeljungs. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag- fræðingur hjá LÍÚ, sagði í samtali við DV að sambandið hefði ekkert heyrt í olíufélögunum. „Menn eru alltaf að leita leiða til að gera út á sem hagkvæmastan hátt og reyna að spara alls staðar." Sveinn Hjörtur sagði aö olíufarm- ur danska skipsins Sofie Theresa hafi kostað upp undir 100 milljónir. Með hliðsjón af því að útgerðar- menn telja sig spara 22 prósent af kaupum á þeirri olíu hver segir hann aðspurður ekki fjarri lagi að ætla að heildarolíusparnaður þeirra útgerða sem kaupa oliuna á á þriðja tug skipa sé um 20 mUljónir króna. - Hyggist þið halda þessum við- skiptum áfram? „Við höfum ekki hugsað okkur að fara í langtímasölu á olíuvör- um. Þetta fyrirtæki er með útibú hérna og er nýr samkeppnisaðili á markaðnum sem við höfum kynnt sem valkost. Það er mikil stemn- ing meðal útvegsmanna vegna þessa,“ sagði Sveinn Hjörtur. -Ótt 23.500 búa í Kópavogi íbúum í Kópavogi fjölgaði á síðasta ári um 4,2 prósent samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofunnar. Þann 1. desember voru 282.845 einstaklingar búsettir á íslandi samkvæmt þjóð- skrá, karlar voru 141.593 en konur 340 færri eða 141.252. Fjölgun landsmanna milli ára er sú mesta í 9 ár og nemur hálfu öðru prósenti. Meginskýringin er sú að um 1.600 fleiri fluttust búferlum til landsins en frá því, um 4.300 böm hafa fæðst síð- ustu 12 mánuði en rúmlega 1800 manns hafa látist. Fjölgunin er að venju mest suðvestanlands. Á höfuð- borgarsvæðið bættust tæplega 3.500 manns sem er 2% fjölgun. í Kópavogi búa 23.500 manns, þar fjölgaði um 4,2%, í Hafnarfirði búa 19.600 manns, á Akureyri liðlega 15 þúsund og í Reykjanesbæ búa tæplega 11 þúsund manns. -DVÓ Fór á tveimur hjólum milli bíla Mikil mildi þykir að engin slys skuli hafa orðið á fólki er þrír bílar skullu saman í Vestfjarðagöngunum á ellefta tímanum í gærmorgun. Að sögn lög- reglunnar á ísafirði varð slysið með þeim hætti að jeppabifreið, sem kom úr Breiðadal á leið til ísafjarðar, bilaði á einbreiðum kafla 500 til 600 metra innan við gangamunnann. Bilstjóri annars bíls, sem kom aðvifandi, lagði sínum bíl í útskot við hlið jeppans. Ökumaður þriðja bílsins, sem kom úr sömu átt og hinir tveir, sá ljósin á bíln- um í útskotinu en ekki jeppann. Þriðji bíllinn keyrði aftan á jeppann, fór svo á tveim hjólum á milli bilanna tveggja og straukst þak hans við bílinn sem var í útskotinu. Að sögn lögreglunnar á Isafirði er skyggni slæmt fyrsta kílómetrann í göngunum þegar bílar koma inn í göngin bæði vegna hríms sem mynd- ast á rúðum bílanna í frosti og vegna birtumismunarins í göngunum og fyr- ir utan. -SMK Sæmi rokk fékk kveöju frá Bobby Fischer í DV: Yndislegt að heyra frá gömlum félaga - segir Sæmundur Pálsson og vonast til aö hitta hann á ný Sæmi rokk Lögreglumaöurínn góökunni á Seltjarnarnesi fékk kveöju frá félaga sínum, Bobby Fischer, eftir tæpa þrjá áratugi. heimfarar og var kominn á flugvöll- inn ætlaði hann á eftir mér og trúði því hreinlega ekki að ég ætlaði að yfir- gefa hann. Fischer er sérvitringur og að umgangast hann er eins og að spila á hljóðfæri eftir nót- um. Maður verður bara að kunna á sál- fræðina því stund- um er hann eins og eldfjall og ekkert má segja við hann,“ segir Sæmundur. I samtali sínu við Birgi Berndsen reif- aði Fischer hug- myndir sínar um nýlega yfirstaðið einvígi Anands og Shirovs. Hann vildi að sigurvegarinn tæki allt verðlaunaféð en sá sem tapaði fengi ekkert og myndi þetta gera skákíþróttina meira spennandi en ella. Sæmundur segist þekkja fé- laga sinn á þessu tali. „Þetta er nákvæmlega i takt við Fischer. Það var hann sem kom með verulegar fjárhæðir inn í skák- íþróttina og hann vildi hana sem mest spennandi og skemmtilega. Það kemur mér heldur ekki á óvart að hann skyldi spyrja um Keflavík- urflugvöll en þar spiluðum við oft saman keilu og annað sport að nóttu til meðan á einvíginu árið 1972 stóð,“ segir hann. Sæmundur er vongóður um að hitta Fischer á ný en hann hefur verið eftir- lýstur í aðildarríkjum Sameinuöu þjóð- anna síöan hann tefldi við Spasskí áriö 1992 í Belgrad í trássi við þær. „Það væri frábært að hitta hann aft- ur en ég lái honum ekki að forðast Bandaríkin og Vestur-Evrópu. Þegar hann varð heimsmeistari varð hann skyndilega hetja Bandarikjamanna sem vilja svo ekki sjá hann nú. Þessi riki hljóta að fara að hætta þessari vit- leysu og vonandi efhir hann þá gamalt loforð og kemur í heimsókn til min,“ segir Sæmundur Pálsson um félaga sinn, Bobby Fischer. -jtr „Það var yndislegt að fá kveðju frá Bobby Fischer eftir tæp 30 ár og þetta gefur mér von um að hann sé að opna sig meira,“ segir Sæmund- ur Pálsson, lögreglumaður á Sel- tjarnarnesi, sem gengur undir nafn- inu Sæmi rokk. Vinskapur tókst með Sæma og Fischer þegar „ein- vígi aldarinnar" stóð yfir í Reykja- vík 1972 en síðan hafa þeir ekki sést, á þriðja áratug. I DV í gær barst Sæma hins vegar kveðja frá Fischer í gegnum áhugaskákmanninn Birgi Berndsen sem tefldi 15 netskákir við snillinginn sérvitra. „Ég hef ekki séð hann síðan ég dvaldist hjá honum í Bandaríkjun- um í nokkra mánuði eftir einvígið í Reykjavík. Þegar ég bjó mig til Fischer og Sæmi. Ekki sett tímamörk „Nefndin fékk ekki nein ákveöin tima- mörk þegar hún var skipuð og þess vegna eru engin formleg tímamörk i gildi íyrir hennar störf," sagði Jón Steinar Gunn- laugsson sem er for- maður fjögurra manna nefndar sem skoða á nýlegan dóm Hæstaréttar. - Dagur greinir frá. Þriöji hver á hlutabréf Veröbréfamarkaðurinn og verð- bréfafyrirtæki eru í sérstakri við- bragðsstöðu vegna einstaklinga sem eru að kaupa hlutabréf til að nýta skattaafslátt samkvæmt lögum. 36,5% framteljenda eiga hlutabréf og hefur fjöldi þeirra einstaklinga sem íjárfesta í hlutabréfúm aukist um 100% á síðustu 10 árum. Hert lög um skotelda Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á vopnalögum sem felur í sér að bannað verði að selja eða aíhenda skotelda bami yngra en 18 ára en þó er gert ráö fyrir því að heimilt verði að selja böm- um eldri en 15 ára skotelda til notkun- ar innanhúss. íþróttamaður Hafnarfjaröar Öm Amarson sundkappi var kjör- inn íþróttamaður Hafnarfjarðar árið 2000. Sem kunnugt er var hann einnig kjör- inn íþróttamaður árs- ins af DV-Sporti. Breytingar á skipastóli Samheiji hf. hefur nýtt sér rétt, sam- kvæmt kaupsamningi sem gerður var við færeyska útgeröarfélagið E.M. Shipping, að láta kaup félagsins á nóta- veiðiskipinu Jóni Sigurðssyni ganga til baka. Fíkniefnaneysla í verkfallinu Aðgerðaleysi margra framhalds- skólanema vegna verkfalls kennara ýtir undir eiturlyfjaneyslu þeirra, sagði Jóhann Thoroddson, sálfræðingur hjá SÁÁ, i samtali við RÚV. Ekki allir á tekjutryggingu Talið er að einhver hluti öryrkja sem eiga samkvæmt dómi Hæstaréttar rétt á fullri tekjutryggingu hafl aldrei sótt um tekjutryggingu, m.a. vegna þess að þeir hafl gert sér grein fyrir að miðað við gildandi reglur ættu þeir ekki rétt á bótunum. úrskurð Umhverfisráð- herra, Siv Friöleifs- dóttir, feUdi í gær úr gildi úrskurð skipu- lagsstjóra ríkisins frá 28. júní 2000 vegna mats á umhverfisá- hrifúm Hallsvegar frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi samkvæmt lögum nr. 63/1993. Árás á vélstjóra Félagsfundur Vélstjórafélags Islands með vélstjórum af fiskiskipum í gær lýsti furðu sinni á þeirri ákvörðun samgönguráðherra að taka heils hugar undir sjónarmið talsmanna LÍÚ um stórfelida fækkun vélstjóra á fiskiskip- um. Um sé að ræða hreina árás á hags- muni vélstjóra. Dregur ekki úr öryggi Samgönguráðherra segir fúllyrðing- ar Vélstjórafélags Islands rangar um að ráðuneytið hafi eingöngu tekið tillit til tillagna útgerðarmanna við gerð frum- varps um áhaínir skipa. Hann segir að það sé faglegt mat ráðuneytisins og sér- fræðinga að tiilögur frumvarpsins dragi ekki úr öryggi sjómanna. -HKr Felldi ur gildi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.