Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaöiö
Marel kaupir þýska fyrir-
tækið TVM Maschinenbau
- kaupverðið er 200 milljónir króna
Marel hf. hefur undirritað viljayf-
irlýsingu um kaup á þýska fyrir-
tækinu TVM Maschinenbau sem er
í nágrenni Míinchen. TVM er ungt
fyrirtæki í örum vexti sem hefur að-
allega þróað, framleitt og selt skurð-
arvélar fyrir kjötiðnað. Kaupverðið
er 200 milljónir króna en velta TVM
í ár er áætluð um 300 milljónir.
Fyrirtækið hefur selt rúmlega eitt
hundrað kjötskurðarvélar á síðustu
tveimur árum, einkum í Þýskalandi
og þýskumælandi löndum. Skurðar-
vél TVM er sniðin að þörfum lítilla
og meðalstórra fyrirtækja í kjöt-
vinnslu og styður vel við þá vörulínu
sem Marel hefur upp á að bjóða, að
því er segir í frétt frá Marel.
Velta TVM á árinu 2000 er áætluð
um 300 milljónir króna sem er 50%
aukning frá árinu 1999. Gert er ráð
fyrir að hagnaður þess fyrir fjár-
magnskostnað og skatta (EBIT)
verði í ár um 10 milljónir króna en
hann var um 40 milljónir króna árið
1999. 20 manns starfa hjá TVM í
Þýskalandi. Fyrirtækið hefur þegar
sótt um nokkur einkaleyfi fyrir
framleiðsluvörur sínar.
í frétt Marels segir aö tilgangur
1 frétt Marels segir að tilgangur kaupanna sé að auka vöruúrval Marels fyr-
Ir kjötiðnað og styrkja þannig frekari sókn fyrirtækisins á erlenda markaði.
kaupanna sé að auka vöruúrval
Marels fyrir kjötiðnað og styrkja
þannig frekari sókn fyrirtækisins á
erlenda markaði. Gert er ráð fyrir
ýmsum samlegðaráhrifum i kjölfar
kaupanna, svo sem aukinni sölu í
gegnum núverandi sölukerfi Marels
hf., aukinni vinnsluþekkingu Mar-
el-samstæðunnar á kjötvinnslu,
hraðari aðgangi Marels að þýsku-
mælandi mörkuðum í Evrópu,
tækniyfirfærslu á milli fyrirtækj-
anna í tengslum við vöruþróun og
samvinnu við innkaup og fram-
leiðslu.
Alþjóðlegt markaðskerfi Marels
er mjög vel í stakk búið til að taka
við sölu á skurðarvélum TVM án
verulegs viðbótarkostnaðar og gert
er ráð fyrir að samlegðaráhrif af
þessum kaupum skili sér strax á ár-
inu 2001.
Kaupverð TVM er um 200 milljón-
ir króna. Thomas Völkl, fram-
kvæmdastjóri TVM, mun áfram
veita fyrirtækinu forstöðu. Nú er
unnið að frágangi samninga er
tengjast þessum kaupum og er ráð-
gert að þeim verði loíúð um áramót.
Gunnar Olsen framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar
Stjóm Flugþjónustunnar á Kefla-
víkurflugvelli hefur ráðiö Gunnar
Olsen framkvæmdastjóra félagsins
frá 1. janúar 2001. Flugþjónustan á
Keflavíkurflugvelli er nýtt dótturfé-
lag Flugleiða sem tekur til starfa nú
um áramótin.
Rekstur félagsins nær til farþega-
og flugvélaafgreiðslu á vellinum,
fraktafgreiðslu, veitingarekstrar í
flugstöð og framleiðslu á flugvéla-
mat. Um 460 heilsársstörf eru hjá fé-
laginu en á sjöunda hundrað starfs-
menn þegar mest er og velta félags-
ins verður væntanlega liðlega 2
milljarðar króna á fyrsta starfsár-
inu.
Gunnar Olsen hóf störf hjá Loft-
leiðum 1972 sem sumarafleysinga-
maður á Keflavíkurflugvelli á náms-
árum sínum. Gunnar hefur siðan
starfað sem flugafgreiðslumaður,
flokksstjóri í bókhaldsdeild, deildar-
stjóri i söludeild fraktdeildar og
Ókeypis smáauglýsingar!
►I Gefins
-alltaf á miðvikudögum
►I Tapað - fundið
-alltaf á þriðjudögum
Smáauglýsingar ^
550 5000
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍV.ÍS
deildarstjóri þjónustudeildar Flug-
leiða. Árið 1986 fór Gunnar til starfa
í Bandaríkjunum sem svæðisstöðv-
arstjóri Flugleiða í Bandaríkjunum,
með aðsetur í New York, en tók síð-
an við stöðu markaðs- og sölustjóra
Flugleiða fyrir miðríki Bandaríkj-
anna og Kanada með aðsetur í
Chicago. Gunnar flutti aftur til Is-
lands 1989 og tók þá við stöðu stöðv-
arstjóra Flugleiða á Keflavíkurflug-
velli og siðar stöðu forstöðumanns
stöðvareksturs Flugleiða með aðset-
ur á Keflavíkurflugvelli. Síðastliðin
tvö ár hefur Gunnar gegnt stöðu for-
stöðumanns afkomueiningar Flug-
leiða sem ber ábyrgð á allri farþega-
og flugþjónustu félagsins á Keflavík-
urflugvelli. Gunnar er giftur Sól-
veigu Þorsteinsdóttur og eiga þau
flögur böm.
Dímon gerir mikilvægan
dreifingarsamning
Dímon hugbúnaðarhús hefur gert
dreifingarsamning við Tantau
Software Inc„ alþjóðlegt hugbúnað-
arfyrirtæki með höfuðstöðvar í
Austin í Texas. Tantau, sem er leið-
andi í framleiðslu hugbúnaðar fyrir
þráðlaus viðskipti á fjármálamark-
aði, mun nota Waporizer 2.0-hug-
búnaðinn frá Dímon í þeim sam-
skiptalausnum sem fyrirtækið býð-
ur upp á.
Fram kemur í frétt frá Dímoni
hugbúnaðarhúsi að samningurinn
við Tantau er til tveggja ára og fel-
ur í sér tekjutryggingu auk leyfis-
gjalda fyrir hverja sölu.
Með Waporizer 2.0 eykst sveigjan-
leiki fyrir Tantau við framsetningu
gagna yfir á þráðlaust Internet.
„Waporizer-hugbúnaðurinn gerir
viðskiptavinum okkar mögulegt að
bæta þráðlausri rás við internet-
kerfi sín með mjög lítilli fyrirhöfn,"
segir Peter Klante, yfírmaður mark-
aðsdeildar Tantau. „Afleiðingin
verður sú að fyrirtækin ná fljótt að
fóta sig í heimi þráðlausra viðskipta
og geta byggt upp öflugt þráðlaust
sölukerfi."
Waporizer 2.0-hugbúnaðurinn
þýðir á skjótan, hagkvæman og ein-
faldan hátt á milli mismunandi
gagnalýsingarmála eins og WML,
XML og HTML og varpar vefsíðum,
gagnagrunnum og fleiri gögnum
yfir á þráðlaus tæki, WAP-síma, i-
mode-síma og lófatölvur.
IW*MiWI»MWWi
HEILDARVIÐSKIPTI 1520 m.kr.
Hlutabréf 610 m.kr.
: Spariskírteini 513 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
0 Össur 169 m.kr.
0 Islandsbanki-FBA 57 m.kr.
0 Pharmaco 51 m.kr.
MESTA HÆKKUN
0 Grandi 10,7%
0 íslenska járnblendifélagið 10,0% Q Frjálsi prfestingarbankinn 9,7%
MESTA LÆKKUN
0 Talenta-Hátækni 5,3%
0 Nýherji 3,4%
0 Opin kerfi 1,9% I
ÚRVALSVÍSITALAN 1281 stlg
- Breyting O 0,58 %
BMW bíður
eflir fjármagni
frá Rover
BMW, þýski bílaframleiðandinn
sem lét frá sér Rover fyrr á þessu
ári, býst við því að Rover endur-
greiði fyrirtækinu 500 milljónir
punda þegar fyrirtækið fer að skila
hagnaði.
Bílframleiðandinn, sem heitir
núna MG Rover, vonast til að geta
skilað hagnaði 2002. Ef og þegar
Rover fer að skila hagnaði er talið
að greiðslunum muni verða dreift á
nokkur ár og munu þær hefjast
2004. Fyrirtækið segir að það sé nú
þegar farið að skila aukinni veltu og
er búið að skera niður kostnað um
500 milljónir punda.
Smásala í
Bandaríkjunum
með minna móti
Helstu smásölukeðjur Bandaríkj-
anna segja að sala í desember sé
nokkuð undir áætlunum og að sölu-
kippur síðustu dagana fyrir jól nái
ekki að vinna upp rólega tíð framan
af desember.
Tvær af stærstu smásölukeðjum
Bandaríkjanna, Walmart og
Federated Department Stores, sem á
verslanakeðjurnar Macy’s og
Bloomingdale’s, hafa gefiö út til-
kynningar þess efnis að jólasalan
standi ekki undir áætlunum. Staðan
er svipuð hjá flestum öðrum helstu
smásölukeðjum í Bandaríkjunum.
! GENGH) ÍgSHS 28.12.2000 kl. 9.1
KAUP SALA
BÍDollar 84,440 84,880
£35 Pund 126,020 126,660
il*llKan. dollar 55,810 56,160
HiSDönsk kr. 10,5180 10,5760
HRNofSk kr 9,5070 9,5590
CSsænskkr. 8,8570 8,9050
Fl. mark 13,2046 13,2839
H Fra. franki 11,9689 12,0408
Ij_; Belg. franki 1,9462 1,9579
EJ Sviss. franki 51,3600 51,6400
EjS Holl. gyllini 35,6267 35,8408
^Þýskt maik 40,1420 40,3832
i;j tt. lira 0,04055 0,04079
[jfclAust. sch. 5,7056 5,7399
IC1 1 Port. escudo 0,3916 0,3940
1-».- ISoA. peseti 0,4719 0,4747
;1 • jjap. yen 0,73750 0,74190
j lírskt pund 99,688 100,287
SDR 110,0500 110,7100
^ECU 78,5109 78,9827