Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 Útlönd Al Gore Taliö aö Gore og demókratar hafi hagnast á ógiidingunni. Fleiri atkvæði svartra ógild Allt að því eitt af hverjum sex at- kvæðum sem greidd voru í hverfum svartra í Chicago í bandarísku for- setakosningunum 7. nóvember sl. voru dæmd ógild á meðan öll at- kvæði í sumum úthverfum í sömu borg voru látin gilda við talningu. Frá þessu greindi Washington Post á miðvikudag. The Post byggir niðurstöðuna á eigin athugun. Samkvæmt henni var hlutfall atkvæða úr hverfum svartra sem ekki voru talin með hæst í Illinois. Segir blaðið að skýr- inguna sé hugsanlega að finna í þvi að kosningaseðlarnir voru óvenju- lega langir og flóknir auk þess sem merkingum var ábótavant. Telur blaðið að Gore hafi hagnast á þessu. Nautakjötsát snarminnkar Eftirspurn eftir þýsku nautakjöti hefur minnkað um 80 prósent á skömmum tíma vegna frétta að und- anfornu um að kýr þar í landi hafi smitast af kúariðu. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem DPA- fréttastofan hefur látið gera. „Ástandið er mjög alvarlegt," seg- ir Bernard Meyer, yfirmaður í stór- um kjötmarkaði í Bremen. Að hans sögn hafa flestir þeir sem á annað borð kaupa kjöt skipt yfir í fugla- og svínakjöt og aðrar tegundir af kjöti, Karl-Heinz Funke, landbúnaðar- ráðherra Þýskalands, segir rétt að rannsaka hvort kúariða hafi borist í sauðfé ef sannanir liggi á annað borð fyrir. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun í málinu. I glugga Hvíta hússins Hillary og Bill eru enn í Hvíta húsinu en þaöan þurfa þau aö flytja í næsta mánuöi. Hillary og Bill í húsleit um jjólin Á meðan milljónir Bandarikja- manna eru önnum kafnir við að skipta jólagjöfum sem þeir vilja ekki eiga leita bandarísku forseta- hjónin að húsi í Washington. Hill- ary og Bill Clinton voru nær búin að undirrita samning um kaup á húsi um jólin. Samkomulag náðist hins vegar ekki um verð og því var hætt við. Hafa forsetahjónin sést undanfarna daga í finum hverfum í Washington, eins og Cleveland Park, Georgetown, Foxhall og Kalorama, við húsaskoðun. DV Fyrirhugaðar friðarviðræður ísraela og Palestínumanna: Barak fer ekki til Egyptalands í dag Enn var óljóst í morgun hvort leiðtogar Palestínumanna og ísraela myndu setjast að samningaborðinu í Egyptalandi til að reyna að binda enda á rúmlega hálfrar aldar átök þjóðanna. Þá var ekki víst hvort for- sætisráðherra ísraels, Ehud Barak, og Yasser Arafat, forseti Palestínu, myndu hittast augliti til auglits ef til fundarins kæmi. Israelar hafa að meginefninu til samþykkt tillögur Bills Clintons, Bandaríkjaforseta, sem miða að því að leiða friðarferlið til lykta. Tillög- urnar um skiptingu Jerúsalem og herteknu svæðanna eru í öllum dráttum þær sömu og þegar leiðtog- arnir hittust í Camp David að und- irlagi Clintons. Þrátt fyrir samn- ingsvilja ísraela hafa Palestínu- menn tekið fálega í tillögur Clint- ons. Um sjöleytið í morgun staðfesti talsmaður Ehuds Barak að forsætis- ráðherrann myndi ekki halda til Ehud Barak Hefur aö hluta til gengist viö tillögum Clintons. viðræðnanna í Egytalandi í dag. Hugsanlegt er þó að Arafat og Barak ræðist við í síma en Hoshni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur boðist til að leiða sáttargjörðir leið- toganna. Ráðherrar í ríkisstjóm Baraks áttu fund saman í gær þar sem tillögur Clintons voru ræddar. Tíu ráðherranna voru samþykkir þeim en tveir voru á móti og tveir kusu að sitja hjá. Samkvæmt heim- ildum var hermálaráðherra, Shaul Mofax, annar af þeim sem mót- mæltu tillögunum. Nefndi ráðherr- ann sérstaklega að að öryggismál í Jórdandal á Vesturbakkanum væra ekki nægilega tryggð og að ísraelska hernum væri gert að hörfa of fljótt. Palestínumenn hafa einnig mót- mælt ýmsum liðum í tillögunum. Segja þeir m.a. áhyggjuefni að ísra- elar munu eftir sem áður halda allt að 10 prósentum landsvæðis á Vest- urbakkanum og hluta A-Jerúsalem. I djörfum dansi Dans er ríkur þáttur á hinni árlegu kjötkveöjuhátíö í San Jose á Kosta Ríku. Þúsundir karla og kvenna dönsuðu comparsa á götum borgarinnar í gær. Bjargað eftir 16 daga dvöl í bíl í snjóskafli Bandaríkjamaöurinn Thomas Truett var í 16 sólarhringa í bíl sín- um í snjóskafli á skógarvegi í Or- egon í Bandaríkjunum áður en hjálp barst á Þorláksmessu. Hann komst lífs af með því að borða sæl- gæti og snjó, að sögn lögreglu. Þeg- ar Truett fannst var hann kalinn á höndum og fótum og hafði orðið fyr- ir miklu vökvatapi. Truett, sem var tæknimaður við flugstöð hersins í Ellsworth í Suður- Dakota, hafði gerst liðhlaupi 3. des- ember síðastliðinn og lagt af stað í bíl sínum í suðurátt og síðan í vest- ur. „Hann átti við persónuleg vandamál að glíma sem urðu hon- um ofviða. Hann er frá Flórída og langaöi til að sjá vesturströndina," sagði lög- reglan. Þann 7. desember festi Truett 18 ára gamla Mazdabifreið sína á timb- urflutningavegi í þjóðgarði i Or- egon. Truett hafðist við í skóginum í fjóra daga og hélt á sér hita með því að kveikja elda með sígarettu- kveikjaranum sínum. Þegar kveikj- arinn virkaði ekki lengur hélt Tru- ett kyrru fyrir í bílnum og nærðist á á vatni, apelsínusafa og svolitlu kexi. Þegar bylur kom og bíll Tru- etts fór á kaf í snjó skrifaði hann foreldrum sínum kveðjubréf. Snjó- dýptin var þá 1,4 metrar í skógin- um. Á fimmtudaginn í síðustu viku heyrði Truett skyndilega í vélsleð- um. Hann fleygði bakpokanum sín- um út í örvæntingu og öðrum hlut- um í þeirri von að hann fyndist. Enginn varð þó var við neitt. Daginn eftir kom annar hópur framhjá og einhver sá bakpokann í snjónum. Þegar farið var að grafa fundu menn bílinn í snjóskafli og örvæntingarfullan eiganda bílsins. Samkvæmt lögreglunni eru mannaferðir á þessum slóðum mjög sjaldgæfar. „Hefðu þeir ekki fundið hann hefði billinn ekki komið í dagsljósið fyrr en í vor,“ sagði lög- reglan. Þó svo að Truett hafi veriö bjarg- að er vandræðum hans ekki lokið. Hann verður nú fluttur aftur til Suður-Dakota þar sem hann á yfir höfði sér kæru vegna liðhlaups. Grunur um brögð Fyrrverandi for- seti Perú, Alverto Fujimori, segir í grein í japönsku blaði i gær að fregnir af flótta njósnaforingjans Montessinos til Kosta Ríku kunni að vera bragð til villa um fyrir lögreglu svo að leit að honum verði ekki jafn víðtæk. Hellir Jóhannesar skírara Fornleifafræðingar í Jórdaníu hafa fundið helli sem þeir telja að hafi verið vetrardvalarstaður Jó- hannesar skírara. Hauskúpa fannst í hellinum. Rafmagnsskortur í Serbíu Rafmagn er nú skammtað í Serbíu vegna orkukreppunnar í landinu. VIII handtaka Milosevic Þó svo að Kostunica Júgóslavíu- forseti segi ýmis mál meira að- kallandi en handtöku Slobodans Milosevics, fyrrverandi forseta, seg- ir aðstoðarforsætisráðherra Serbíu, Nebojsa Covic, vonast til að harð- stjórinn og eiginkona hans verði gripin sem fyrst. Gripnir vegna ráns Sex menn hafa verið handteknir vegna ráns á peningaflutningabíla í París á annan í jólum. Lögreglan fann bæði fé og vopn við handtöku mannanna. Beið í 2 ár eftir brúðinni Helmut Kohl, fyrrverandi Þýska- landskanslari, hélt nýlega til Tyrk- lands til að biðja um hönd tilvonandi tengdadóttur sinn- ar. Sonur Kohls, Peter, hafði beðið eftir þessari ferð í tvö ár. Hann hefur í 10 ár búið með tyrkneskri stúlku. Þau hittust í Bandaríkjunum þar sem þau voru við nám en búa nú I London. Þau gátu hins vegar ekki trúlofað sig fyrr en faðir brúðgumans heföi heimsótt föður brúðarinnar tilvon- andi til að skipuleggja hjónabands- málin. Havel styður fréttamenn Vaclav Havel, forseti Tékk- lands, lýsti í gær yfir stuðningi við fréttamenn tékkneska sjón- varpsins sem mótmæla ráðn- ingu nýs fram- kvæmdastjóra sem þeir segja pólitíska. Áfram í fangelsi Dómari í París hafnaði í gær beiðni um að láta son Mitterrands, fyrrverandi Frakklandsforseta, lausan úr gæsluvarðhaldi. Sonur- inn, Jean-Christophe, situr inni vegna meintrar ólöglegrar vopna- sölu til Angóla. Víða vetrarhörkur Hundruð þúsunda íbúa suðurríkja Bandarikjanna urðu rafmagnslausir um jólin vegna snjókomu. I Bretlandi eru einnig miklar vetrarhörkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.