Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 Fréttir DV Á annað þúsund jólapakka komst ekki til skila fyrir jól: Islandspóstur er ekki mat- vælaflutningafyrirtæki - segir forstjóri íslandspósts Mikið álag um jólin Nokkrir af þeim rúmlega 1000 bögglum sem ekki komust til skila fyrir jól inni- héldu matvæli og lyktuöu illa þegar starfsmenn póstflokkunarstöðvarinnar komu til starfa í morgun. Forstjóri íslandspósts taldi aö aö miklu leyti til heföi veriö hægt aö komast hjá seinkuninni meö því að hafa opiö á Þorláksmessu. Sérstakan búnað og leyfi þarf til þess að dreifa mat sem geymast skal í kæli eða frysti og hefúr íslandspóstur hvorugt. „íslandspóstur er ekki í því að dreifa kældum matvælum, við bjóðum ekki upp á þá þjónustu. Þaö er hins vegar ára- tugahefö fyrir því að fólk sendi jóla- góðgæti sín á milli með póstinum," sagði Einar Þor- steinsson, forstjóri íslandspósts. DV skýrði frá því í gær að fyrirtækið náði ekki að koma á ann- að þúsund böggla til viðskiptavina sinna fyrir jólin og innihéldu sumir matvæli á borð við rjúpur og hangi- kjöt. „Ég á ekki von á því að það verði einhver eftirmál því eins og íslands- póstur lýsir yfir var hann ekki meðvit- aður um þessi matvæli," sagði Rögn- valdur Ingólfsson, sviðsstjóri matvæla- eftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavík- urborgar. Þeir pakkar sem lyktuðu eins og matur eða voru merktir sem matvæli voru teknir til hliðar á Þorláksmessu og komust um 3000 pakkar til sinna eigenda þann daginn. Nokkrir mat- vælapakkar sem ekki voru merktir sérstaklega sluppu fram hjá starfs- mönnum íslandspósts og sátu því í hlýjunni á pósthúsum og póstflokkun- arstöðinni yfir jólin. Þegar haft var samband við eigendur þeirra í gær- morgun báðu nokkrir um að pökkun- um yrði fargað því þeir voru sumir famir að lykta illa. „Við höfum hnykkt á því við ís- landspóst að hann hafi ekki leyfi til matvælaflutninga," sagði Rögnvaldur. íslandspóstur skoðar hins vegar al- mennt ekki í pakka fólks svo það er sendandinn sem ber ábyrgð á matvæl- unum. Rögnvaldur bætti þvi við að auðvelt er að finna fyrirtæki sem sérhæfa sig í flutningi matvæla innanlands, bæði landleiðina og með flugi. Þar er fylgst með hitastigi varanna og eru til dæm- is lyf flutt á þann hátt. Bréfadreifing gekk vel í samtali við DV í gær sagði Einar helstu blórabögglana í seinni dreifingu jólapakkanna vera fjölda böggla yfir jólin, seina póstlagningu landsmanna og lokun pósthúsanna á Þorláksmessu. „í ljósi reynslu fyrri ára, þar sem hafði verið mjög litið að gera á Þor- láksmessu, og þeirrar starfsmanna- vænu stefnu að reyna að gefa starfs- fólkinu örlítið meiri jól, ákváðum við að hafa lokað á Þorláksmessu. En eftir á að hyggja er nokkuð ljóst að það voru mistök, kannski stærstu mistök- in,“ sagði Einar. Auk 50.000 til 70.000 böggla var á fjórðu milljón jólakorta dreift fyrir jólin. Bréfadreifingin gekk mjög vel í ár og þakkaði Einar það góðu skipulagi og undirbúningi. Á annað þúsund bögglar komst ekki til skila fyrir jólin og er það svipaður fjöldi og önnur jól. „Væntingar til okkar í bögglunum voru meiri en við náðum að standa undir, sem er leitt. í heildina tekið gekk dreifmgin samt mjög vel, þótt það sé engin huggun fyrir þá sem ekki fengu jólapakkann sinn,“ sagði Einar. „Fólk áttaði sig ekki á því að síðasti skiladagur fyrir böggla fyrir jól var 16. desember,“ sagði Óskar Öm Jónsson, framleiðslustjóri tslandspósts. íslandspóstur byrjaði að aka með böggla hebn til fólks í janúar síðast- liðnum og sagði Einar viðskiptavini al- mennt séð vera mjög ánægða með það fyrirkomulag. Islandspóstur ætlar að bæta fólki að einhverju leyti skemmdar matvömr, þótt hann beri strangt til tekið ekki ábyrgð á skemmdunum. -SMK Einar Þorsteins- son, forstjóri íslandspósts. Frádráttur vegna hlutabréfakaupa: Allt að 160 þúsund hjá hjónum - skilyrði að eiga bréfin yfir fimm áramót Skattalegt hagræði vegna hlutafjár- kaupa getur verið umtalsvert, eða allt aö 160 þúsund krónur hjá hjónum. Um þetta vom samþykkt lög á Alþingi í desember 1998 þar sem gerð var vem- leg breyting á frádrætti vegna fjárfest- ingar í atvinnurekstri. Frádráttur, þ.e. lækkun á tekju- skattsstofni, er veittur vegna kaupa á hlutabréfum í innlendum félögum sem ríkisskattstjóri hefur staðfest eða skráð em á Verðbréfaþingi íslands. Sama gOdir um kaup á samvinnu- hlutabréfum og stofnfjárbréfum í Örtröö í bönkum Fjöldi fólks kaupir nú hlutabréf til aö nýta sér skattaafslátt. sparisjóðum sem hlotið hafa staðfest- ingu ríkisskattstjóra. Frá kaupverði bréfa sem keypt vom á árinu dregst söluverð allra seldra hlutabréfa á ár- inu. Frádrátturinn getur numið 60% af verði keyptra hlutabréfa umfram verð seldra hlutabréfa á árinu en þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 80.000 hjá einstak- lingi og kr. 160.000 hjá hjónum. Ekki er heimilt að millifæra ónýttan frádrátt til næsta árs sé fjárfest um- fram hámark á árinu. Til lækkunar á kaupverði kemur ekki neikvæður mis- munur frá fyrri árum og neikvæður mismunur vegna seldra hlutabréfa á árinu flyst ekki á milli ára. Þá er skilyrði til frádráttar að eignar- haldstimi hlutabréfanna sé yfir fimm áramót og að árlega sé gerð grein fyrir þeim á skattframtali. Séu bréfm seld innan framangreindra tímamarka fær- ist nýttur frádráttur til tekna á söluári viðkomandi hlutabréfa. Hægt er að komast hjá slikri tekjuskráningu með því að kaupa aftur hlutabréf á sama ári og eigi siðar en 30 dögum eftir söluna, þá a.m.k. fyrir sömu fjárhæð og sölu- verð hinna seldu hlutabréfa. -HKr. DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON Fín veiöi Hér kemur Stekkjarvíkin aö með góöan afla eftir bræluna. Þaö er Guömundur Elíasson sem vinnur viö aö skipa upp afla þeirra félaganna. Góður afli loks þá gaf PV, SUÐUREYRI: Guðmundur Elíasson, sem hefur gert út héðan bátinn Stekkjarvík í nokkur ár, festi nýlega kaup á nýjum bát sem hefúr fengið sama nafn. Er hér um að ræða bát af Signus-gerð, smíð- aðan i Englandi, 6 rúmlestir að stærð. Er hann búinn 350 hestafla Cummins- vél. Báturinn hefúr reynst í alla staði vel. Auk Guðmundar formanns er Bessi Kristinsson háseti á bátnum. Báta- og kvótasalan er með umboð á Is- landi fyrir Signus-báta. Verð bátsins var 15 milljónir króna. Islandssaga hf. á Suðureyri á hlut í bátnum. Ekki hef- ur gefið vel á sjó undanfamar vikur en aðeins er að rætast úr nú nýverið. Guðmundur var á sjó á mánudag og veiddi vel, milli 5 og 6 tonn af góðum þorski. Lætur hann mjög vel af bátn- um og leggst framtíðin vel í hann ef að- stæður í samfélaginu breytast ekki því meir. Hér á Suðureyri hefúr útgerð smábáta löngum verið með miklum blóma. Stutt er á gjöful mið og hafnar- aðstaða með ágætum. Þar að auki hef- ur stöðugt verið unnið að því aö bæta aðra aðstöðu í landi. -JBP/Valdimar DV býður í bíó DV býður áskrifendum sínum tvo miða á verði eins á jólamyndina Ikíngut ef þeir kaupa miðana á Netinu. Kvik- myndin Ikingut, sem hefur fengið góða dóma hjá kvikmyndagagnrýnendum DV, er eftir Gísla Snæ Erlingsson og er gefin út á vegum Kvikmyndasam- steypunnar. DV mun selja 1000 miða á háífvirði. -SMK Veöríö í kvold -9V 6/ ' % > |r Léttskýjaft á landinu Hægviöri og víöast léttskýjað en vaxandi noröanátt meö éljum á annesjum noröan til í kvöld. Áfram veröur frost um allt land. Sólargani'ur ng sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag i kvöld 15.37 14.54 Sólarupprás á morgun Síödegisflóö 11.21 20.13 11.36 00.46 Árdegisflóö á morgun 08.31 01.04 Skýdngar á veðurtábmun. >*--.VINDÁTT 10°<—HITI ^ -10° XVINDSTYRKUR VcDncr í mtrtrum á wkúndu 1 HEIDSKÍRT LÉTTSKÝJAD íD HÁLF- SKYJAÐ SKÝJAÐ i'O ALSKÝJAÐ RIGNING Q' SKÚRIR SLYDDA i ; SNJÓKOMA ÉUAGANGUR V ÞRUMU- VEÐUR _u I T SKAF- RENNINGUR W>KA F»rt um alla helstu þjóðvegi Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar eru allir helstu þjóövegir landsins færir, en víöa er hálka, einkum á heiöum á norðanveröu landinu. Talsvert frost um land allt Norölæg átt, B-13 m/s og snjókoma eöa él noröan til á morgun en hægari og úrkomulítið sunnan til. Áfram veröur talsvert frost um land allt. Lau^ar 'thigur Surinud m ManurJi Vindur: ( 8-13 m/,\ Hiti-l' «1-8° Vindur: 8—13 nv» Hi«-1° «1-8° Vindun ( 8—13 nv's \ Hiti -1° til -8° Nor&an og nor&austan, ví&a 8-13 m/s. Snjókoma e&a él norðan- og austan- lands en annars skýjaft me& köflum. Talsvert frost, elnkum nor&anlands. Norðan og nor&austan, vífta 8-13 m/s. Snjókoma e&a él nor&an- og austan- lands en annars skýjaö me& köflum. Talsvert frost, elnkum nor&anlands. Nor&an og nor&austan, vi&a 8-13 m/s. Snjókoma e&a él norftan- og austanlands en annars skýjaft meö köflum. Talsvert frost. | Veöríð W. 6 AKUREYRI Léttskýjaö -ii BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK léttskýjað -4 EGILSSTAÐIR -10 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -3 KEFLAVÍK léttskýjaö -7 RAUFARHÖFN alskýjaö -4 REYKJAVÍK heiöskírt -8 STÓRHÖFÐI heiöskírt -1 BERGEN heiöskírt -5 HELSINKI snjókoma -4 KAUPMANNAHÖFN rigning 2 ÓSLÓ hálfskýjað -4 STOKKHÓLMUR þokumóöa -1 ÞÓRSHÖFN haglél 3 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö -13 ALGARVE skýjaö 14 AMSTERDAM þokumóöa -1 BARCELONA heiöskírt 8 BERLÍN þokumóöa 0 CHICAGO snjókoma -13 DUBLIN alskýjaö -1 HAUFAX skafrenningur -5 FRANKFURT rigning 3 HAMBORG súld 1 JAN MAYEN -6 LONDON snjókoma 0 LÚXEMBORG alskýjaö 0 MALLORCA hálfskýjaö 12 MONTREAL alskýjað -15 NARSSARSSUAQ heiöskírt -9 NEWYORK skýjað -2 ORLANDO alskýjaö 16 PARÍS skýjaö 2 VÍN rigning 2 WASHINGTON alskýjaö -2 WINNIPEG alskýjaö -17 HÚYtfo Étl»1W > Í'fÁ! 1.' IH11I rr.v-Ti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.