Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001 I>V Fréttir Fann hundinn Lóbó eftir margra vikna útilegu: Leyndist innan um ruslapoka og spýtur „Ég var ákveðinn í að gera eitthvert gagn og fór að leita ásamt Kolbrúnu Rósu, dóttur minni, á laugardaginn, þótt ég sé á hækjunni. Við höföum lesiö allt um leitina í DV. Við fórum niður svokallaða Norðlinga- braut sem liggur frá Suðurlands- vegi niður að Elliðavatni að austan. Þarna voru víst þrjátíu manns búnir að leita og voru flestir farnir í mat. Við löbbuð- um um skóginn við sumarbú- staðina. Við vorum víst búin að vera þarna í hálfan annan tíma þegar ég heyrði Kolbrúnu hvísla, hann er þarna, hann er þama. Og þarna var hann. Við ákváðum að hringja i aðmírál- inn, ég var með símanúmerið hans upp úr DV á laugardag og gat komið til skila hvar ég væri, þótt ég tali nú ekki góða ensku. Hann kom svo og gekk beint aö hundinum," sagði Gunnar Vagn Aðalsteinsson í samtali við DV í gær. Á staðnum þar sem hundur- inn leyndist var fullt af rusla- pokum, spýtum og drasli og greinilegt að af hvutta var nokk- uð dregið eftir meira en mánað- ar útiveru í óvenjumiklum kulda. Aðmírállinn kom ásamt konu sinni og var með harðfisk með sér. Réðst Lóbó litli að fisk- inum og gerði honum góð skil, svo svangur var hann. „Hann pabbi leiðbeindi mér að horfa undir trén og ég var að líta undir tré þegar ég sá Eillt í einu fjóra fætur, ég var ekki viss, það voru þarna einhverjir með hunda. Við þurftum að bíða svolítið eftir að maðurinn og konan kæmu. Maðurinn náði svo hundin- um. Þau voru óskaplega glöð og konan alveg faðmaði mig að sér og grét,“ sagði Kolbrún Rósa, 11 ára nemandi í Smáraskóla, greinilega með góða sjón, sem hún staðfestir líka, augnlæknir- inn var að skoða hana á dögun- um, segir hún, og hún segist vera með hundrað prósent sjón. -JBP David Architzel aðmíráll: Besta afmælisgjöf sem konan gat fengið ÐV-MYND PJETUR Fundu hund aðmírálsins Gunnar Vagn Aöalsteinsson og dóttir hans, Kolbrún Rósa „Þetta er besta afmæiisgjöf allt frá Mosfellsbæ að Elliða- sem konan mín hefði getað vatni og austur yfir Hellis- fengið, hún átti afmæii á heiöi að talið er. gamlársdag," sagði David Aðmírállinn segir að hringt Architzel, aðmíráll á Kefla- hafi verið í sig eftir símanúm- víkurflugvelli, eftir að þau eri úr DV upp úr hádeginu á hjón endurheimtu Lóbó, laugardag, feðginin Gunnar hundinn sinn sem er búinn David og Kolla hafi fundið Lóbó og að vera á ferli á stóru svæði, Architzel. hringt í sig eftir símanúmer- inu í DV og þau héldu þegar af stað úr Reykjavík þar sem þau hjón voru að matast á matsölustað. „Lóbó hefst vel við. Magnús dýra- læknir ráðlagði sérstakt mataræði, en hann var undrandi á hversu vel hún var haldin, hún verður alveg eðlileg og nær bestu heilsu. Það er út af fyrir sig furðulegt, Lóbó hefur farið víða um á þessum vikum og hún fannst 5 mílur frá slysstaðn- um,“ sagði aðmíráll Architzel. „Við vorum fegin að ná henni áður en flugeldarnir fóru af stað, það hefði hrætt hana óendanlega,“ sagði aðmírállinn og sendi þakkir öllum þeim fjölmörgu sem aðstoð- uðu við leitina. -JBP Maður varð fyr- ir lögreglubíl Lögreglubíllinn eftir áreksturinn. Maður varð fyrir lögreglu- bíl á Miklu- braut um það leyti sem ára- mótafagnaður- inn náði há- marki. Að sögn sjónarvotts var lög- reglubílnum ekið mjög hratt í aust- urátt án allra viðvörunarljósa og sírena. Maðurinn var ásamt öðrum manni að ganga yfir götuna þar sem ekki er gangbraut. Lenti hann á vélarhlíf og framrúðu lögreglubílsins og þeyttist af henni á götuna. Lög- reglumaðurinn var einn í bílnum en að sögn sjónarvotts aðstoðuðu tveir læknar hann úr nærliggjandi húsum og hlúðu að manninum þar til sjúkra- liðar fluttu hann á brott. Hann marg- brotnaði, bæði á höndum og fótum, en er ekki talinn í lífshættu. -ES Ritstjóraskipti: DVJYIYND KK Arlegt sjósund lögreglumanna Þeir voru vaskir, lögregluþjónarnir sem stungu sér til sunds í gömlu Reykjavíkurhöfninni við Ægisgarö / gærdag. Sjó- sundféiag lögreglunnar stendur fyrir sundinu á hverju ári og syntu laganna veröir 100 metra í ísköldum sjónum. Á myndinni eru, frá vinstri taliö: Arnþór Davíösson, Jón Otti Gíslason, Ingibjörg Siguröardóttir, Skúli Þorvaldsson og Kristinn Einarsson. Þrír fyrir einn Leigubílalausir í frosti nýársdagsmorguns: Tugir grimuklæddra vega- lausir í miðborginni Þrír menn hafa verið ráðnir í stað Matthíasar Jo- hannessens sem lét af störfum sem ritstjóri Morgun- blaðsins um ára- mótin. Björn Vign- ir Sigurpálsson verður fréttarit- stjóri en þeir Ólaf- ur Stephensen og Karl Blöndal aðstoðarritstjórar. Að- alritstjóri veröur Styrmir Gunnars- son. Björn Vignir og Karl Blöndal eru þegar teknir til starfa enda á staðn- um þegar eftir kröftum þeirra var kallaö en Ólafur Stephensen er for- stöðumaður stefnumótunar- og sam- skiptasviðs Samtaka atvinnulífsins. Áður var hann upplýsinga- og kynn- ingarstjóri Landsímans. Ólafur mun hefja störf sem aöstoöarrritstjóri Morgunblaösins innan tíðar. -EIR Um fjögur hundruð manns, ungt og áberandi fólk á ýmsum sviðum íslensks þjóðlífs, fagnaði nýju ári, sumir nýrri öld, í hinu gamla hús- næði Borgarbókasafnsins, Esju- bergi við Þingholtsstræti, á nýársnótt. Það var að frumkvæði Guðjóns Guðjónssonar í Oz, frum- kvöðuls frumkvöðlaseturs í þessu fallega húsi, að fimm hundruð manns var boðið á grímuball. Vegg- ir voru málaöir í fjörlegum litum og húsið nýtt í þetta eina skipti til skemmtanahalds en fram undan er innrétting þess. Gestir urðu að mæta grímu- klæddir og leggja til 3 þúsund krón- ur á mann til styrktar Frumkvöðla- setrinu, auk þess sem hver og einn átti að mæta með flösku af sterku sem innlegg á barinn. Margir borg- uðu betur til að styrkja setrið. Dansinn stóð fram undir morgun og var sagt að aldrei hefði annað eins fjör verið í Esjubergi. Dansinn var um síðir stöðvaður. Þá tók viö leigubílahark, sem stóð langt fram á nýársmorguninn hjá mörgum. Um 70 leigubílar áttu að vera til reiöu í Þingholtsstræti og á Grundarstíg fyrir dansfólkið sem dansaöi eftir tónlist skífuþeytara. Sú ráðstöfun klikkaði illilega enda almennur skortur um alla borg á leigubílum. „Þarna var fólk sem hefur lagt Frumkvöðlasetrinu lið, það fæddist sú hugmynd að þessi hópur mættist um áramótin, hann er orðinn stór sá hópur," sagði Guðjón í gær. Framkvæmdir við að koma hús- inu í sama horf og við byggingu þess 1916 hefjast í næstu viku og eiga að klárast á næstu mánuðum. Ekki var vitað í gær hver bar sig- ur úr býtum og fékk verðlaun fyrir frumlegasta búninginn en sagan sagði að tveir Oz-menn hefðu farið til New York til að krækja í góða búninga. Sú saga mun að hluta til vera röng, þeir voru í jólainnkaup- um. -JBP Matthías Johannessen. Garðar maður ársins Hlustendur Rás- ar 2 völdu Garðar Sverrisson, fram- kvæmdastjóra Ör- yrkjabandalagsins, mann ársins 2000 í árlegri símakosn- ingu. í öðru sæti var sunddrottning- in Kristín Rós Hákonardóttir og í þriðja sæti var Vala Flosadóttir stangarstökkvari. Ný rannsókn á sjálfsvígum Samkvæmt nýrri íslenskri rann- sókn koma ávana- og fíkniefni og/eða etanól við sögu í um helm- ingi þeirra 134 sjálfsvíga sem komu til réttarfræðilegra og réttarefna- fræðilegra rannsókna hér á landi á árunum 1995 til 1999. Langflestir höfðu svipt sig líf með hengingu. Dagur greindi frá. Annað lengsta verkfallið Verkfall fram- haldsskólakennara er annað lengsta verkfall íslandssög- unnar eftir því sem næst verður komist en það hefur nú staðið yfir í 57 daga. Það lengsta var 1913 þegar verkamenn, sem unnu við hafnargerð í Reykjavík, fóru í verkfall sem stóð í 61 dag. Stöð 2 greindi frá. Sendiherra í Mósambík Utanríkisráðuneytið hefur skipað Björn Dagbjartsson, framkvæmda- stjóra Þróunarsamvinnustofnunar Is- lands, sendiherra íslands í Mósam- bik. Hann mun verða fyrsti sendi- herra íslands í Afríku sem hefur að- setur í Afríkuríki. Mbl. greindi frá. Upplifðu tvenn aldamót 26 Islendingar voru 100 ára eða eldri í byrjun desember, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu íslands. Þetta fólk lifði önnur aldamót sín í fyrrakvöld og hefur því komið við sögu á þremur öldum. RÚV greindi frá. Með fraktflug til Evrópu Flugfélagið Bláflug hefur í hyggju að hefja fraktflug til Evrópu þann 12. mars næstkomandi og hafa um 100 umsóknir borist um átta stöður flug- manna sem fyrirtækið auglýst ný- lega, Nota á þotu af gerðinni Boeing 737-300 í flugið. Mbl. greindi frá. Selja hlut sinn í Landsafli Islenskir aðalverktakar hf. seldu í fyrradag hluta af eignarhlut sínum í dótturfélagi sínu, fasteignafélaginu Landsafli hf. Viðskipti þessi fela í sér að meðeigandi ÍAV hf. í félag- inu, Landsbankinn-Fjárfesting hf„ eykur hlut sinn í Landsafli hf. úr 20% í 25,5%. Davíð vill breytingar Davið Oddsson forsætisráðherra lýsti því yfír í út- varpsfréttum um helgina að hann vildi breyta lögum um Hæstarétt i kjöl- far dómsins i máli Öryrkjabandalags- ins gegn Tryggingastofnun. Hann telur að styrkja þurfi Hæstarétt til að koma megi í veg fyrir „slys“ á borð við dóminn í fyrrgreindu máli. Slysið liggur í því, að hans mati, að þrír dómarar af fimm skuli geta kveðið upp dóm sem hefur jafn af- drifaríkar afleiðingar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.