Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Qupperneq 11
11 Áramótafagnaður í Hollandi endaði með skelfingu: Níu ungmenni fórust í eldsvoða á kaffihúsi ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001 I>V Að minnsta kosti níu manns týndu lífi og um 130 slösuðust þegar eldur kom upp í sneisafullu kaffi- húsi í hollenska bænum Volendam þar sem ungmenni voru að fagna nýju ári. Lögreglan sagði undir kvöid í gær að tala látinna ætti líklega eftir að hækka. Frank Ijsselmjuiden, bæjar- stjóri í Volendam, sagði að fréttir hermdu að allar útgönguleiðir á katfihúsinu, að einni undanskilinni, hefðu verið lokaðar. Verið er að kanna sannleiksgildi þeirra. Ungmennin sem létust í eldhafinu á þriðju hæð byggingarinnar voru á aldrinum 17 til 22 ára. Fimmtán hinna slösuðu voru mjög þungt haldnir síðdegis í gær. Sumir þeirra voru sendir á sérhæfðar sjúkra- deildir fyrir branasár í Belgiu og Þýskalandi. Lögreglan áætlaði að sjötíu hinna slösuðu hefðu aðeins fengið minni- háttar áverka en sextíu voru mikið slasaðir, sumir lifshættulega. Ættingjar syrgja Ættingar ungmenna sem létust eöa slösuðust í eldsvoða í kaffihúsi í hollenska bænum Volendam á nýársnótt reyna að hugga hver ann- an. Að minnsta kosti átta létust. Páfi hvetur til gagnkvæmrar virðingar þjóða Jóhannes Páll páfi sagði í nýársávarpi sínu i gær að þjóðir heims yrðu að sýna hver annarri gagnkvæma virðingu á tímum fólks- flutninga og hnattvæðingar. Tugir þúsunda manna voru á Pét- urstorginu á friðardegi kaþólsku kirkjunnar til að hlýða á boðskap páfa. Jóhannes Páll greindi frá því að sendimaður hans í Mið-Austurlönd- um hefði afhent leiðtogum ísraela og Palestínumanna friðarboð þar sem þeir eru hvattir til að taka aft- ur upp friðarviðræður. Áheyrendur á Péturstorgi báðu einnig fyrir friði í landinu helga. ísraelar slógu til á síðustu stundu ísraelar urðu 139. og síðasta þjóð- in til að undirrita sáttmála um fast- an stríðsglæpadómdstól Sameinuðu þjóðanna skömmu áður en frestur- inn til þess rann út á miðnætti á gamlárskvöld. ísraelar fylgdu þar með í fótspor Bandaríkjanna. Klofin ríkisstjórn ísraels hafði fyrr á gamlársdag hafnað því að leggja blessun sína yfir sáttmálann en skipti um skoðun fljótlega eftir að Bill Clinton Bandaríkjaforseti til- kynnti að sendiherra hans hjá SÞ myndi skrifa undir. Dómstólnum er ætlað að rétta yf- ir einstaklingum sem eru ákærðir fyrir glæpi eins og þjóðarmorð. Bæjarstjórinn sagði að frumrann- sókn benti til þess að kviknað hefði í jólaskreytingum sem festar voru við loft kafflhússins og að þær hafi síðan fallið ofan á ungmennin. Upp- tök eldsins eru ókunn. Ijsselmuiden sagði á fundi með fréttamönnum í Volendam, sem er um flmmtán kílómetra norður af Amsterdam, að margir hinna slös- uðu hefðu verið í fötum úr mjög eld- fimum gerviefnum. Allt að sjö hundruð manns voru i byggingunni þegar eldurinn braust út. Margir slösuðust þegar þeir brutu rúður og stukku út í myrkrið niður af efstu hæð hússins til að flýja eldtungurnar. „Þetta var mjög mikill eldur sem brann i stutta stund. Mikil hræðsla greip um sig, reykurinn var mjög þykkur," sagði Cor Kwakman, talsmaður borgar- innar, í samtali við fréttamann Reuters í gær. Útlönd Rembrandt-þjófar vilja tugi milljóna fyrir myndirnar Bíræfnir listaverkaþjófar sem stálu einu málverki eftir Rembrandt og tveimur eftir Renoir úr sænska þjóðarlistasafninu i Stokkhólmi 22. desember krefjast lausnargjalds upp á tugi mUljóna íslenskra króna, að því er sænska blaðið Expressen upplýsti í gær. Sænska lögreglan fékk á laugar- dag bréf með ljósmyndum af lista- verkunum þremur sem metin eru á rúma tvo milljarða íslenskra króna. Lögregluforinginn Leif Jannekvist sagði í samtali við Expressen að ekki stæði til að greiða eina einustu krónu í lausnargjald fyrir málverk- in þrjú. H ~ m i I » so°mkrc, li!í II fl 1 I fr * Forðqplástur, 16 klst./aagplástur Nefúðalyf © >*■« NICO^, % Tungurótartöflur Tyggigúmmí Mint - Citrus - Classic l! Innsogslyf ií£' WLM Taktu prófið Hér er skema, sem gemr verið gagnlegt til að meta hvaða lyfjaform hentar þér best. Skemað er þróað af einum helsta rannsóknarmanni á sviði reykinga, dr. phiL Karl OlovFagerström, og gefur mynd af reykingamynstri þmu. Svaraðu spuming- unum, skrifaðu stigin í gulu fletina og leggðu þau síðan saman. Stigafjöldinn gefur til kynna hvaða Nicorette lyfjaform hentar best. Val á Nicorctte lyfjafomti jtegar hætti skal revádngum Nefúðalyf Tiaigurótartöflw 2 stk. Tyggigúmmí 4 mg Forðaplástur 16 klst 15 mg Imtsogslyf Tyggigúnmtí 2 mg Twigurótartöflur 1 stk. Hentarvel 0123450789 10 Hentugtgetwveriðaðnotaannað eða sterkara lyfjaform 1 "-^tUpró^ ° * **r'*M wn o & 6 rn,n(’> 2- Ætþúerfi 'tlr60'tiin Ofl. Nei(O) 3’ stgaret, ° Fyrst» (D n R þus,stv^4n B- Emhverttr O C. 21.30° [°SríC'(0) Ofl ********. e,r,G)C UB- Ne>m 0. * Reykirt-«f>egarb. L—1 /—7 s f’" ert Vei,, J^Ají«) Qb . r°Sr*’»“&t,ntti> • Afa (0) Hjálpartæki sem inniheldur nikótfn sem kemur i staö nikótíns viö reykingar og dregur þannig úr fráhvarfseinkennum og auöveldar fólki að hætta að reykja eða draga úr reykingum. Gæta veröur varúðar viö notkun lyfjanna hjá sjúklingum meö alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma. Reykingar geta aukiö hættu á blóötappamyndun og það sama á viö ef nikótínlyf eru notuð samtímis lyljum sem innihalda gestagen-östrógen (t.d. getnaöarvarnatöflur). Þungaðar kon- ur og konur meö barn á brjósti ættu ekki aö nota nikótínlyf án samráðs viö lækni. Þeir sem eru meö sykursýki, ofstarfsemi skjaldkirtils eöa krómflklaæxli eiga aö fara varlega í að nota Nicorette tungurótartöflur. Lyfiö er ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema f samráöi viö lækni. Nicorette er til sem tyggigúmmf, foröaplástur sem er límdur á húö, nefúðalyf, töflur sem settar eru undir tungu og sem sogrör. Skömmtun lyfjanna er einstaklingsbundin. Leiö- beiningar um rétta notkun eru í fylgiseöli með lyfjunum. Brýnt er að lyfið sé notaö rétt og í til- ætlaðan tíma til að sem bestur árangur náist. Meö hverri pakkningu lyfsins er fylgiseðill með nákvæmum upplýsingum um hvernig nota á lyfin, hvaöa aukaverkanir þau geta haft og fleira. Lestu fylgiseðilinn vandlega áður en þú byrjar aö nota lyfiö. Markaösleyfishafi: Pharmacia & Upjohn AS, Danmörk - Innflytjandi: Pharmaco hf. Hörgatúni 2, 210 Garöabær. NICORETTE ...veldu rétt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.