Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001 DV 45 Tilvera Áramótahlaup í miðbænum Þrátt fyrir hörkufrost tók fjöldi fólks á öllum aldri þátt í hinu árlega gamlársdagshlaupi ÍR sem fór fram á gamlársdag. Hlaupið hófst við Ráðhús Reykjavíkur og var hlaupið um nærliggjandi götur. Sumir skildu hlaupabúningana eftir heim og mættu í staðinn í jakkafótum með hin fínustu höfuðufót í tilefni dagsins. Hlaupaklúbburinn Félagarnir í hlaupa- klúbbnum Fjölni í Graf- arvogi voru aö sjálf- sögöu mættir til aö taka þátt í hlaupinu. Einnig mátti sjá spræka jólasveina á hlaupum og þeir gáfú líka öilum glaðn- ing áður en lagt var af stað. -MA Sprækir jólasveinar Jólasveinar úr Esjunni skelltu sér í bæinn til að taka þátt í hlaupinu og voru greinilega komnir í form eftir allar bæjarferöinar fyrir jólin. Lagt af staó Menn biöu óþreyjufullir viö byrjunarlín- una og óskuöu hver öörum góös geng- is áöur en lagt var af staö. Allir fengu sælgæti Jólasveinninn kom auövitaö meö pokann sinn og gaf öllum sæl- gætismola fyr- ir hlaupiö. DV-MYNDIK LJ Teygt á Menn teygöu vel á fyrir hlaupiö og notuöu þaö sem hendi var næst viö æfingarnar. DV-MYND DANÍEL V. ÖLAFSSON Götur þeirra Bresasona Skúli Lýösson, bygginga- og skipulagsfulltrúi Akraness, ásamt Rannveigu Benediktsdóttur, verðlaunahöfundi gatna- nafna í Flatahverfi, sem hún nefnir í höfuöiö á landnámsmönnum. Flatahverfi á Akranesi: Göturnar fá nöfn landnámsmanna DV, AKRANESI:_____________________ Landnámsmenn Akraness frá ár- inu 880, þeir Þormóður og Ketill Bresasynir, fá nöfn sín á nýjar göt- ur í svokölluðu Flatahverfi. Fyrir nokkru gekkst byggingarnefnd Akraneskaupstaðar fyrir sam- keppni um nafn á götur í hinu nýja hverfi sem byrjað er að skipuleggja. Alls bárust 32 tillögur með alls 759 nöfnum. Rannveig Benediktsdóttir varð sigursæl og fékk 25 þúsund krónur í verðlaun fyrir vikið. Með- al nafna Rannveigar á hringaksturs- götur eru Bresaflöt, Ketilsflöt og Þormóðsflöt. Þeir Þormóður og Ket- ill Bresasynir voru fæddir á írlandi en af norskum ættum. Þeir námu allt Akranes og nágrenni litlu eftir 880. Mikið hefur verið byggt af íbúð- um á Akranesi á þessu ári, að sögn Skúla Lýðssonar bygginga- og skipulagsfulltrúa. Það lætur nærri að það hafi verið byrjað að byggja 50 íbúðir á 35 lóðum þar af 22 íbúð- ir í fjölbýlishúsi. Hverfið sem skipu- lagt var síðast, Ásahverfi með 21 lóð, verður fullbyggt næsta sumar og nú er verið að skipuleggja nýtt hverfi, Flatahverfi, með 500-550 íbúðum í 18 klösum. Til að byrja með verður klasi 3-4 skipulagður en í þeim klösum verða 53 íbúðir. Þó nokkur aukning er í byggingu húsa á Akranesi miðað við siðasta ár og árin á undan. Nú eins og í fyrra er byggt á lóðunum en áður fyrr var lóðunum úthlutað og ekki byggt á þeim og leyfunum skilað. -DVÓ -entjA "I H-VF' I \ BÓNUSVIDE0 Tveir fyrir einn Kr. 449

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.