Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Blaðsíða 10
Þau voru á skíöum á Sauðárkróki síðastiiðinn laugardag, Páll Pálsson, Margrét Yngvadóttir, María Lóa Friðjónsdóttir og Ingibjörg Jósafatsdóttir. Viggó Jónsson á Sauðárkróki: Viljum kom- ast í lyftu upp á topp Skíðaíþróttin blómstrar á Sauð- árkróki með tilkomu skíðasvæðis- ins í Tindastóli sem opnað var 5. febrúar á liðnu ári og verður brátt haldið upp á ársafmæli svæðisins. Frá 20. nóvember eru opnunardag- amir orðnir 29 talsins og Viggó Jónsson, umsjónarmaður skíða- svæðins, segir aðsóknina hafa ver- ið góða, en á svæðinu er 1200 metra löng lyfta og þykir Tinda- stólssvæðið mjög fjölskylduvænt. Mjög gott rennslissvæði fyrir börn er neðst í brekkunni og þar er hægt að kenna þeim yngstu fyrstu sporin í íþróttinni. Það sem af er hausti hafa þó brettakrakkarnir sett mestan svip á svæðið, en eins og annars staðar eru það brettin sem eru í tísku hjá unga fólkinu í dag. Og nú er búið að koma fyrir flóðljósum á möstmm lyftunnar, þannig að brekkan er upplýst og einnig tveggja kílómetra göngu- braut á svæðinu. Þannig að nú getur fólk farið að koma eftir vinnu á daginn og renna sér og ganga. „Við vonumst til að þetta komi til með að auka aðsóknina enn frekar. Við ætlum að byrja með síðdegisopnun á miðvikudög- um og fóstudögum, frá 14-18, og sjá svo til með framhaldið. Viö erum smám saman að byggja upp svæðið. Tókum í haust í notkun skemmu fyrir tæki og búnað og draumurinn er síðan að koma upp gistiaðstöðu og rýmri húsakynn- um til veitinga og að sjálfsögðu að bæta við 700 metra lyftu svo við komumst alveg upp á fjallstopp- inn. Það er okkar æðsta takmark, en þetta svæði býður upp á geysi- lega möguleika og er hrein para- dís. Hér er líka mjög veðursælt, enda eru þeir ekki margir dagarn- ir sem við höfum þurft að hafa lokað vegna veðurs bæði síðasta vetur og nú,“ segir Viggó Jónsson. Þá má geta þess að komin er upp myndavél og veðurstöð á skiðasvæðinu í Tindastóli, þannig að skíðafólkið þarf nú bara að fara inn á heimasíðu Tindastóls, www: krokur.is/umft, og velja þar skíða- deild og þá sést hvernig aðstæður eru á svæðinu hverju sinni. -ÞÁ Vantar |)ig lilla og moðfærilega talstöð <• skíðin, í VGÍðlferðina, vinnuna eða á vélsleðann? Þá eru Euro-Wave talstöðvarnar lausnini SOOrnW soncfistyrkur, drægi ’>-8 km. Ejöldi aukahluta, svo som hljóðnemi og hofuðtól rfkkert loyfisgjald, tveii litir og þyngd aðoins 124 gr. Kr. 11.900 stgr. í sambandi við veturinn... O R.SIGMUNDSSON Umboðsmenn um nllt land - Fæst i helslu útivistnrverslunum Vetrardagskráin í Mývatnssveit: Iskross, dorg, píslar- ganga og golfmót á ís - er meðal fjölmarga viðburða vetrarins Hrikaleg náttúrufegurð Um páskana verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Það er mikið um að vera í Mý- vatnssveit í vetur og fólk getur val- ið á milli skemmtilegra gönguferða, vélsleðamóts og dorgveiði, svo eitt- hvað sé nefnt. Hér að neðan er getið nokkurra viðburða sem eru fram undan í sveitinni en frekari upplýs- ingar er að finna á www.myvatn.is Vélsleðamót Mótið er haldið árlega aðra helg- ina í mars. Keppni hefst á föstudegi með Garmin GPS-fjallaralli sem er byggt upp sem ratleikur þar sem menn fara á milli GPS-punkta eða lengdar- og stefnu-leggja. Keppnin er liðakeppni og eru fjórir sleða- menn í hverju liði. Um miðjan dag er síðan keppt í samhliða brautar- keppni þar sem tveir og tveir aka samhliða braut í kappi hvor við annan og um tíma. Keppnin endar með útsláttarformi þegar tímatöku lýkur. Um kvöldið er síðan opnun- arhátíð með kynningu á mótinu, keppendum og ákveðinni vöru fyrir vélsleðamenn. Laugardagur hefst með morgunmat og síðan ísspyrnu á vélsleöum. Þar verða öflugustu sleðar landsins og heyja mikla keppni. Eftir hádegishlé hefst snjó- kross-mót á sleðunum. Þar koma saman allir alvilltustu ökumenn landsins og eigast við í sömu braut allt upp í 18 kappar í einu. Keppt er í þremur riðlum: vanir, óvanir og old boys. Iskross á mótorhjólum Þrjár keppnir eru ár hvert og eru þær sérstæð mótaröð. Sú fyrsta er í byrjun desember, önnur með vélsleðamóti og sú þriðja er fyrstu helgina í apríl. Fyrstu tvö mótin eru undanmót fyrir það þriöja og liðir í öðrum uppákomum. í hverju móti eru eknar 5 umferðir og 5 hringir í hverri umferð. Allir eru ræstir á sömu ráslínu og aka sama hringinn sem er byggður upp á kröppum og aflíðandi beygjum ásamt stuttum og löngum beinum köflum. Þriðja mót- ið er hins vegar byggt upp sem há- tið vélhjólamanna. Gleðin hefst með setningu mótsins á föstudagskvöldi með kynningu keppenda og vid- eosýningu frá mótorhjólakeppnum. Laugardagurinn hefst síðan með spyrnu um morguninn - sá sneggsti vinnur. Að loknu hádegishléi verða hjólin svo ræst og hringirnir eknir en núna verða eknir 10 hringir í fimmtu umferðinni. Að keppni lok- inni verður stökksýning og síðan lokahóf þar sem verðlaun eru veitt, skemmtiatriði, hlaðið borð af veislumat og síðan dansleikur fram eftir nóttu. Dorgveiðimót Mótið er haldið annan í páskum og er liður i páskadvöl í Mývatns- sveit Keppni hefst kl. 10 að morgni annars í páskum og fara menn þá á þau svæði sem í vali eru og bora sér vök og dorga fram eftir degi með von um góða veiði. Tekið verður há- degishlé og bomar saman bækur veiðimanna og að þvi loknu verður haldið áfram að veiða tii kl. 17. Um kvöldið verður síðan verðlaunaaf- hending yfir mývetnskum mat og skemmtiatriði á eftir. Píslagangan Gangan verður haldin föstudag- inn langa og er einnig liður í páska- dvöl í Mývatnssveit. Gangan hefst kl. 10 við Hótel Reynihlíð og er gengið rangsælis kringum Mývatn með viðkomu í messu á Skútustöð- um og kakói í Seli - Hótel Mývatni. Göngunni fylgir rúta til að menn geti hvílt sig og geymt fót. Golfmót á ís Mótið er haldið laugardaginn fyr- ir páska og er einnig liður í páska- dvöl í Mývatnssveit. Þetta einkenni- lega mót er nýjung og fyrst um sinn verður einungis 6 holu völlur og eru brautirnar afmarkaðar á ísnum og síðan boraðar holur í ísinn. Leiknir verða 3 hringir og eftir forgjafar- formi. Um kvöldið verður síðan verðlaunaafhending og möguleiki á léttum snúningi á dansgólfinu. Gönguferð í fögru umhverfi Mývatnssveitarinnar Hver viöburðurinn rekur annan í vetrardagskrá Mývetninga; svo sem vélsleðamót, þrjá keppnir í ískrossi, dorgveiöimót oggolfmót á ís, svo eitthvað sé nefnt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.