Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001
I>V
Fréttir
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra safnar kröftum heima á Akranesi:
Ég hlýði læknunum
- og mæti til vinnu þegar þeir leyfa. íslandsmet á stóli heilbrigðisráðherra
„Ég hef það ágætt þó heilsan hafi oft
verið betri. Nú hlýði ég læknunum og
þegar þeir gefa grænt ljós kem ég til
vinnu," sagði Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra þegar DV ræddi
við hana á heimili hennar á Vestur-
götu á Akranesi. Heilbrigðisráðherr-
ann er undir læknishendi eftir að of
hár blóðþrýstingur varð til þess að
hún fékk brjóstverk í beinni útsend-
ingu Sjónvarpsins á miðvikudagskvöld
fyrir rúmri viku þegar umræður um
öryrkjafrumvarpið stóðu sem hæst.
Ráðherrann hafði verið undir miklu
álagi enda var málið á hennar könnu.
„Ég hef ekki við neinn að sakast
nema sjálfa mig. I nokkuð langan tíma
hef ég gengið með of háan blóðþrýsting
og ég vissi af því. Að vísu hef ég reynt
að trimma og synda en það hefur ver-
ið gloppótt og komið hafa dagar og vik-
ur sem ég hef ekkert gert og ekki hlust-
að á aðvaranir líkamans," segir ráð-
herrann sem jafnframt er hjúkrunar-
fræðingur aö mennt og hefur starfað
við þá grein um árabii.
„Nú er ég í góðum höndum og hlýði
þeim ráðum sem mér eru gefin," segir
Ingibjörg og hlær.
Fáir atburðir hafa vakið meiri at-
hygli en viðtal Sjónvarpsins við Ingi-
björgu þar sem hún hné i fang Jó-
hönnu Vigdísar Hjaltadóttur frétta-
manns. Stefna átti saman heilbrigðis-
Ráöherra fær aðsvif
Brot úr myndskeiöinu þegar Ingi-
björg hné niöur.
Frá Hafnarftröi
Lögreglumenn sýndu snarræöi viö
aö upplýsa umfangsmikinn tölvu-
þjófnaö.
Hafnfirskir þjófar:
Gómaðir á
mettíma
Árvökulir lögreglumenn í Hafnar-
firði stöðvuðu bifreið aðfaranótt mið-
vikudagsins sem í voru tveir karlmenn
og kona. Að auki var i bílnum mikill
og ílókinn tölvubúnaður sem þremenn-
ingarnir áttu í vandræðum með að
gera grein fyrir. Vakti það grunsemdir
lögreglumannanna enda sáu þeir í
hendi sér að hér var um rándýran
tölvukost að ræða.. Þar sem ökumaður
bifreiðarinnar, félagi hans og konan
eru í hópi góðkunningja lögreglunnar í
Hafnarflrði var gripið til þess ráðs að
halda fólkinu fram undir morgun eða
þar til bæjarbúar almennt vöknuðu.
Var ekki langt liöið á morguninn þeg-
ar í ljós kom hvaðan tölvubúnaðurinn
var kominn. Þegar starfsmenn Kia-um-
boðsins í Flatahrauni mættu til vinnu
þennan sama dag blasti við þeim ófóg-
ur sjón. Brostist haíði verið inn í fyrir-
tækið og öllum tölvubúnaði stolið. Við
rannsókn málsins kom í ljós að þama
var um sama tölvubúnaðinn að ræða
og fannst í bifreiö mannanna tveggja
og konunnar um nóttina. Þau vom
ákærð, tölvubúnaðinum skOað í Flata-
hraunið og málið frágengið á mettíma.
Þykja lögreglumennirnir í Hafnarfirði
hafa sýnt snarræði við að upplýsa mál-
ið. -EIR
íslenskur harðviöur á Húsavík:
Starfsemi sennilega áfram
ráðherra og Össuri Skarphéðinssyni,
formanni Samfylkingar, í beinni út-
sendingu vegna öryrkjamálsins þegar
þjóðin skyndilega horföi á Ingibjörgu
hiníga niður.
„Ég fékk allt í einu sting sem var
svona eins og ör færi í gegnum brjóst-
ið,“ segir hún.
Örskömmu síðar náði hún tökum á
ástandinu og fyrsta hugsunin var að
koma réttum skilaboðum út í þjóðfé-
lagið.
„Það var mjög lagt að mér að sleppa
viðtalinu en þetta var jú bein útsend-
ing. Ég hugsaði til fólksins mins sem
kannski hélt að ég væri búin að geispa
golunni. Um leið og ég rankaöi við mér
hvarflaði ekki annað að mér en halda
áfram viðtalinu," segir Ingibjörg.
Ósanngjarnt
Ingibjörg segist ekki vera sátt við að
því sé haldið fram að össur hafi brugð-
ist og hann hefði átt að stökkva til og
hjálpa henni.
„Það er mjög ósanngjamt að Össur
skuli verða fyrir aðkasti vegna þessa
máls. Þetta var bein útsending og hann
vissi ekkert hvað var að gerast frekar
en ég. Þar að auki heimtaöi ég að fara
aftur í viðtalið sem var ekki þægilegt
fyrir hann. Össur stóð sig prýðilega og
ekki rétt aö væna hann um annað,“
segir hún.
Heilbrigðisráðherra fór á sjúkrahús
strax eftir viðtalið þar sem í ljós kom
að blóðþrýstingur hennar var við
hættumörk. Hún segir veikindin vissu-
lega hafa komið vel á vondan. Hún hafi
ekki sinnt nægilega aðvörunum og því
hafi farið sem fór.
„Allir geta orðið veikir; jafnt ráð-
herra sem aðrir. Ekki er hægt að bólu-
setja fólk gegn veikindum eða áfóllum
og sama er hvaða störf fólk stundar.
Nú mun ég gefa mér tíma til að stunda
likamsrækt. Ég var heppin að sleppa
vel frá þessu. Nú stefni ég að því að
leggja hálftíma á dag í að rækta lík-
amann. Á morgun getur verið of seint
að byrja og ég tek mark á þessari að-
vörun. Heilbrigður maður á þúsund
óskir en sjúkur maður aðeins þá einu
að ná bata. Hafi þetta orðið öðrum til
aðvörunar þá má segja að þetta hafi
verið ágætis forvarnaprógramm," seg-
ir Ingibjörg heilbrigðisráðherra sem
leyfir sér þá einu spennu að horfa á ís-
lenska liðið keppa í handbolta á HM.
Veik mæðgin
„Ég og Haraldur sonur minn, sem er
lasinn þessa stundina, erum bara
heima að klappa hvort öðru. Ég hef
ákveðið að hlýða og þegar læknar telja
það ráðlegt sný ég aftur í ráðuneytið,"
segir hún.
Ingibjörg á íslandsmet þegar litið er
til áraíjöldans sem hún hefur setið á
stóli heilbrigðisráðherra. Hún hefur
verið í heilbrigðisráðuneytinu í sex ár
og segist ekkert vera á fórum úr póli-
tík.
„Á íslandi er meðaltími ráðherra
heilbrigðismála tvö og hálft ár og enn
lægri í Evrópu. Á þessum sex árum
sem ég hef setið sem heilbrigðisráð-
herra hef ég til dæmis kynnst að
DV-MYND GVA
í rólegheitunum
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigöisráöherra á heimili sínu á Vesturgötu á Akra-
nesi ásamtyngsta barninu Haraldi, 11 ára. Mæöginin eru bæöi heima aö
læknisráöi. Ráöherrann er ákveöinn í aö ná heilsu.
minnsta kosti sex dönskum heilbrigð-
isráðherrum. Þetta er mjög erfitt ráðu-
neyti en jafnframt er starf ráðherra
mjög gefandi. Við erum að fjalla um
fólk og líf þess. Oft eru þaö viðkvæm
mál sem reyna á en ég kvarta ekki,“
segir Ingibjörg Pálmadóttir.
-GVA/-rt
DV, AKUREYRI: --------- -----------------
„Við erum að vona að hægt verði
að hefja starfsemi í fyrirtækinu að
nýju sem allra fyrst. Við skiptastjór-
ar höfum haldið fundi með tveimur
aðilum sem hafa sýnt því áhuga að
byrja upp á nýtt og höfum boðist til
að leigja þeim húsnæði og vélar tU að
koma þessu í gang. Það er þó ómögu-
legt að segja fyrir um það hvenær
þetta getur farið í gang aftur en ég er
nokkuð bjartsýnn," segir Ólafur
Birgir Ámason, annar skiptastjór-
anna í þrotabúi íslensks harðviðar
ehf. á Húsavík sem tekið var til gjald-
þrotaskipta nú í vikunni.
Starfsemí áfram?
Vonir standa til aö starfsemi í verk-
smiöju íslensks haröviöar á Húsavík
hefjist mjög fljötlega.
Frestur til að lýsa kröfum í þrota-
bú íslensks harðviðar er tveir mán-
uðir. Fram hefur komið að sam-
kvæmt milliuppgjöri fyrirtækisins
eru skuldir þess tæpar 170 mUljónir
króna og þá eru tveir stærstu kröfu-
hafar Byggðastofnun, með um 54
mUljónir króna, og Húsavikurbær
með rúmlega 30 milljónir. Ljóst
virðist að í hópi annarra sem eiga
kröfur muni vera einhverjir aðUar
með háar kröfur því þegar kröfur
Byggðastofnunar og Húsavíkurbæj-
ar eru dregnar frá heildarskuldun-
um standa eftir mUli 80 og 90 mUlj-
ónir. -gk
Dregur dilk á eftir sér
Guðmundur Árni
Stefánsson, 1. vara-
forseti Alþingis, var
erlendis þegar
ákvörðunin um að
senda forseta Hæsta-
réttar bréf forsætis-
nefndar Alþingis var
tekin. Guðmundur
Árni segir það óhjákvæmilegt að þetta
mál verði tekið fyrir af ftUlri alvöru
þegar þing kemur saman í byrjun
febrúar. Dagur greinir frá.
Tvöföldun akbrauta
Innan skamms hefjast framkvæmd-
ir við tvöfóldun nokkurra akbrauta í
Kópavogi og er aðalástæða þessara
framkvæmda tilkoma verslunarmið-
stöðvarinnar Smáralindar en hún
mun sem kunnugt er opna með
haustinu.
Ekki spurning
Félagar í Arkitektafélagi íslands
hittust á hádegisfundi í gær til að
ræða framtíð Reykjavíkurílugvallar.
Niðurstaða fundarins var að ekki er
spurning um hvort Reykjavíkurflug-
völlur fer úr miðborginni heldur
hvenær. Stöð tvö greindi frá.
Grunnskólinn einkarekinn
Meirihluti bæjarstjórnar Hafnar-
íjarðar hyggst bjóða kennslu við nýj-
an grunnskóla i Áslandi út sem einka-
framkvæmd. Hart var tekist á um
drög að útboðslýsingu á bæjarráðs-
fundi í gær.
Er að hygla öðrum
Dómsmálaráðu-
neytið kom í veg fyr-
ir að Friður 2000
drægi úr svokölluð-
um miftjónapotti í
dag. Ráðuneytið seg-
ir að samtökin hafi
ekki heimild fyrir
happdrættinu. Ást-
þór Magnússon segir hins vegar að
samtökin hafi leyfi og að ráðuneytið
sé að hygla öðrum happdrættum. Vís-
ir greinir frá.
Kennslusamningur
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra, Runólfur Ágústsson, rektor
Viðskiptaháskólans á Bifröst, og Guð-
jón Auðunsson, formaður háskóla-
stjómar, undirrituðu í gær í fyrsta
skipti sérstakan samning um kennslu
tU fyrsta háskólaprófs á sviði við-
skiptafræða við Viðskiptaháskólann á
Bifröst. Vísir greinir frá.
Gagnrýnir ráðherra
Sigurður G. Guð-
jónsson, lögmaður
fslenska útvarpsfé-
lagsins, hefur skrif-
að nýja grein í Dag
þar sem hann gagn-
rýnir harðlega bæði
Kjartan Gunnarsson
og Björn Bjarnason.
Sigurður vann nýlega í Hæstarétti
meiðyrðamál gegn Kjartani Gunnars-
syni, framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, vegna greinaskrifa.
Lögfræðingar dæmdir
Hæstiréttur sneri í gær dómi Hér-
aðsdóms og dæmdi tvo lögmenn tU
greiða skjólstæðingi sínum 1,5 millj-
ónir króna i skaðabætur þar sem þeir
gættu ekki hagsmuna hans í tengslum
við skaðabótamál. Vísir greinir frá.
Haldið til haga
í frétt í DV í gær um samanburð
á lögum Norðurlandanna yfir klám,
vændi og fleira láðist að geta þess
að dómsmálaráðherra lét vinna
skýrsluna aö beiðni Guðrúnar Ög-
mundsdóttur þingmanns og fleiri
þingmanna. Svava Ólafsdóttir lög-
fræðingur vann skýrsluna.
-HKr./SMK