Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Qupperneq 24
28
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001
Tilvera 1>V
lí f iö
Litla sviðinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir í
kvöld klukkan 20.30 á Litla sviði
leiksýninguna Já, hamingjan eft-
ir Kristján Þórð Hrafnsson.
Verkið fjallar á hnyttinn hátt
um tvo mjög ólíka bræður. Leik-
stjóri: Melkorka Tekla Ólafsdótt-
ir. Leikendur: Pálmi Gestsson og
Baldur Trausti Hreinsson.
Leikhús
■ ANTIGONA I kvöld'kl. 2Ó verður
Antigóna eftir Sófókies sýnd á
Stóra sviói Þjóöleikhússins. Leik-
stjóri er Kjartan Ragnarsson en að-
alhlutverk eru meðal annars í hönd-
um Halldóru Björnsdóttur og Arnars
Jónssonar.
■ HÁALOFT Geðveiki svarti gaman-
einleikurinn Háaloft heldur nu áfram
eftir áramótin. Sýning í kvöld kl. 21 í
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum. Ein-
leikari og höfundur verksins er Vala
Þórsdóttir leikkona. Uppselt.
■ SJEIKSPÍR EINS OG HANN
LEGGUR SIG Sjeikspír eins og
hann leggur sig er sýndur í kvöld kl.
20 í Loftkastalanum.
■ SÝNP VEH)I Leikritiö Sýnd veiöi
sýnt í kvöld kl. 20 í Iðnó.
■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI
Leikritið IVIeö fulla vasa af grjóti eft-
ir Marie Jones verður sýnt i kvöld kl.
20 á Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss-
ins. Það er uppselt á þessa sýn-
ingu.
Opnanir
■ OLAFUR HELGASON í GERÐU-
BERGI Myndlistarmaðurinn Olafur
Jakob Helgason opnar í dag mynd-
listarsýningu í Félagsstarfi Gerðu-
bergs klukkan 16. Félagar úr Tón-
horninu og Gerðubergskórinn munu
syngja og leika við opnunina. Ólafur
er fæddur árið 1920 á Patreksfirði
og stundaði hann húsasmíðar þar til
hann hætti störfum árið 1990 fyrir
aldurs sakir. Síðustu ár hefur hann
smíðað líkön af gömlum fiskibátum
og málað íslenskar landslagsmyndir.
Málverkin á sýningunni eru frá ýms-
um stöðum á landinu og eru þau öll
máluð með akríllitum.
■ VILLT OG LANDIÐ í HAFNAR-
BORG Nú standa yfir sýningarnar
Villt, sýning á skúlþtúrum og Ijós-
myndum eftir Kaisu Koivisto, og
Landið, sýning á lágmyndum úr gifsi
eftir Sari Maarit Cedergren í Hafnar-
borgí Hafnarfirði. Kaisu Koivisto er
frá Finnlandi og list hennar fjallar
gjarnan um samband manna og
húsdýra. Hún hefur sýnt víöa síð-
ustu sex árin og eru verk hennar í
öllum helstu listasöfnun í heima-
landi hennar. Sari Maarit Cedergren
er fædd í Finnlandi en hefur búið og
starfaö hér síðan 1986. Verk henn-
ar fjalla um landslagið og fjarvídd-
ina, hvernig birta og skuggar kalla
fram ýmis áhrif og stemningu.
Ftmdir
■ LÍÐAN KVENNA FYRIR BLÆÐ-
INGAR Herdís Sveinsdóttir, formað-
ur Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga og dósent við hjúkrunarfræði-
deild Háskóla íslands, heldur opinn
fyrirlestur í hátíðasal Háskóla ís-
lands í dag klukkan 15. Heiti fyrir-
lestursins er Sannar frásagnir: Um
mótsagnakenndar niöurstööurrann-
sókna á líðan kvenna fyrir blæðing-
ar. Fyrirlesturinn byggist á doktorsrit-
gerð Herdísar. í fyrirlestrinum veröur
leitast við að skýra mismunandi niö-
urstöður úr þremur rannsóknum.
Hægt verður aö fá frekari upplýsing-
ar í síma 525 4299.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Bíógagnrýni
Btóhöllin/Háskólabíó - The Road To El Dorado: ★ ★ "i.
Hallur Guðmundsson á Leið til betra lífs:
Lætur hverju
kílói nægja
sína þjáningu
Bragðarefir í gullborginni
1. J J um kvikmyndir.
Hallur Guðmundsson vinnur við
auglýsingahönnun og er því einn
hinna fjölmörgu kyrrsetumanna
samtímans. Hallur er þrítugur fjöl-
skyldumaður, er kvæntur og á tvær
ungar dætur.
Hallur er einstaklega glaðlegur og
skemmtilegur í viðmóti og að
mörgu leyti afskaplega venjulegur,
nema hvað að það er kannski óþarf-
lega mikið af honum. Hann vegur
nú 136 kg en hefur mest komist upp
í 142 kg. Hann tók því þess vegna
fagnandi þegar honum bauðst að
taka þátt í átaki DV Leið til betra
lífs.
„Það hefur verið í deiglunni hjá
mér lengi að fara í átak og endan-
lega ákvörðun tók ég í byrjun árs
þegar mér bauðst þetta tækifæri,"
segir Hallur. „Ég hef reynt ýmislegt
áður á þessu sviði, meðal annars
farið á duftkúr og í stórátak í lík-
amsræktarstöð."
Hefur nánast tvöfaldað
þyngd sína
Hallur var fremur grannur lítili
drengur og unglingur. Þegar hann
var 18 ára dvaldi hann sem
skiptinemi í Hollandi og hjólaði þar
daglega, hljóp og stundaði aðra lík-
amsrækt. „Ég var nánast horaður
þegar ég kom frá Hollandi," segir
Hallur en síga tók á ógæfuhliðina
þegar hann var um tvitugt. Hallur
telur þrennt valda því að holdarfar
hans sé eins og það er. t fyrsta lagi
telur hann tilhneigingu til að fitna
ættgenga í báðum ættum hans, í
öðru lagi segist hann vera sælkeri
og hafa mikinn áhuga á að búa til
og borða góðan mat og í þriðja lagi
telur hann leti um að kenna. Þessu
til viðbótar hefur Hallur þjáðst af
kæfisvefni sem olli stöðugri þreytu.
„Þetta þýðir að líkaminn er stöðugt
að öskra á orku,“ segir Hallur sem
til allrar lukku hefur nú fengið bót
á kæfisvefninum.
Það vekur athygli að Hallur hefur
léttar og skemmtilegar hreyfingar.
„Þetta er bara spurning um ávana.
Margir sem fitna koðna niður um
leið í þyngslalegum hreyfingum en
ég var ákveðinn í að láta ekki fara
þannig fyrir mér,“ segir Hallur.
Hann segist þó eiga í erfiðleikum
með ákveðnar hreyfingar, svo sem
að standa upp úr djúpum stólum.
Einkaþjálfari í mánuð
„Ég hef gert tilraunir til að byrja
að hreyfa mig reglulega og þá sótt
stuðning til félaga minna. Svo hefur
það gerst, sem oft vill verða, að
menn missa áhugann og detta úr
skaftinu og þá vantar styrkinn til að
halda einn áfram.“
í átaki DV verður Hallur með
einkaþjálfara í einn mánuð en mun
svo halda áfram að æfa sjálfur og
við munum að sjálfsögðu fylgjast
með honum á síðum DV fram eftir
vori.
Hallur segist hafa undirbúið átak-
ið með því að draga verulega úr
sykurneyslu og skyndibitaáti. „Fyr-
ir um það bil ári vann ég við aðal-
Kominn
Útilíf í Glæsibæ lagöi Halli
í gailann
til gallann sem hann æfir í.
DV-MYNDIR ÞOK
skyndibitagötu borgarinnar og var
kominn upp í allt að 2-3 skyndibita-
máltíðir á dag. Nú er ég farinn að
Tii i slaginn
Hér er Hallur meö þjálfara sínum, Elíasi Níelssyni í Hreyfingu.
borða hollari mat og miklu minni
sætindi."
Hallur segist verða að grennast til
að passa inn í fjölskyldumyndina.
„Konan mín og dæturnar báðar eru
bæði grannar og matgrannar
þannig að vinirnir hafa stundum
haldið því fram að ég hljóti að éta
allt frá þeim. Maður kærir sig nú
ekki um að láta bera svoleiðis upp á
sig!“
Að sögn Halls leggst átakið vel í
hann. „Ég er spenntur fyrir að prófa
að vera með einkaþjálfara en reyni
að varast að gera mér óraunhæfar
hugmyndir um árangur. Við vorum
sammála um það, einkaþjálfarinn
og ég, að láta hverju kílói nægja
sína þjáningu."
Hallur var að lokum spurður
hvort hann hefði sett sér markmið
fyrir átakið. „Markmiðið er að létt-
ast,“ segir hann og hlær. „Ég ætla
að komast í form og leggja linur
með hjálp einkaþjálfarans þannig
að ég missi ekki niður
allt fari í vitleysu.“
Um þessar mundir virðist vera
ákveðin tilvistarkreppa i gerð
teiknimynda í Hollywoood. Disney
eru nánast hættir í klassískum æv-
intýrum sem einkum börn hafa
gaman af. Toppnum var náð með
The Lion King. Þær teiknimyndir
sem gerðar eru í dag og snúa beint
að börnum eru ekki byggðar á
klassíkinni heldur einhverjum
tískufyrirbrigðum á borð við Poké-
mon og Rúgrottum. Sætu, fallegu
ævintýrin eru ekki lengur í tísku.
Með aukinni samkeppni í gerð
teiknimynda er í mun meira mæli
höfðað til allrar íjölskyldunnar og
má segja að stóru teiknimyndir árs-
ins í fyrra, meðal annars Tarzan,
Dinosaur, Titan A.E. og Toy Story,
hafi þannig uppbyggingu og fylgi
eftir vissum lögmálum markaðarins
að um er að ræða fjölskyldumyndir
frekar en barnamyndir. Slík mynd
er The Road To E1 Dorado og hún
er, auk þess að vera fjölskyldu-
mynd, töffaramynd í gamansömum
tón.
Túlíó og Migúel, aðalpersónur
myndarinnar, eru nefnilega engir
prinsar í álögum heldur tveir bragð-
arefir sem hafa komið sér upp fjöl-
skrúðugri iðju við að hafa fé af
fólki. Ekki gengur þetta nú alltaf
upp hjá þeim og þegar illa gengur
eru þeir með góða flóttaleið sem
aldrei klikkar nema þegar þeir fela
sig i tunnum sem híft er um borð í
skip landvinningsmannsins Cortes.
Leið þeirra félaga liggur í Suðurhöf-
in og ber þá að landi þar sem Migú-
el þykist vita að gullborgina E1
Dorado sé að fínna. Það vill svo til
að hann er með kort sem sýnir leið-
ina að borginni. Þegar forlögin bera
þá til borgarinnar er litið á þá sem
guði, sem komnir eru í heimsókn.
Þeir félagar eru svosem ekkert á
móti þvi að vera í guðatölu en hafa
meiri áhuga á að koma öllu gullinu,
sem hlaðið er á þá til Spánar.
Undirritaður kaus að sjá ensku
útgáfuna þar sem miklir raddsnill-
ingar, Kevin Kline og Kenneth
Brannagh eru á bak við raddir
Túlíós og Miguels og þeir valda ekki
vonbrigðum, fara á kostum með
miklum raddtilbrigðum. Má greini-
lega sjá að teiknararnir hafa haft út-
lit þeirra til hliðsjónar þegar þeir
sköpuðu þá félaga. Þetta er ennþá
meira áberandi við Chel, sem Rosie
Perez talar fyrir. Chel er nánast
teiknimyndaútgáfa af Perez. Þá er
ekki verra að heyra Elton John
syngja eigin lög, þó ég sé viss um að
Björgvin Halldórsson fari létt með
að syngja þessi lög, sem eru með
suðrænum blæ og aðlagast ágætlega
myndinni. Lögin eru samt ekki í
sama gæðaflokki lög Elton Johns
sem hann samdi fyrir The Lion
King.
The Road To E1 Dorado er litrík
og skemmtileg, persónur vel af-
markaöar og ólíkar. Það vantar
samt neistann sem einkennir það
besta í teiknimyndum, þá barnslegu
gleði sem stundum er að finna í
slíkum myndum.
Leikstjórar: Eric Bergeron og Don Paul.
Lög: Elton John. Textar: Tim Rice. Kvik-
myndatónlist: Hanz Zimmer og John
Powell. Raddir (enska): Kevin Kline,
Kenneth Brannagh, Rosie Perez, Armand
Assante og Edward James Olmos. Raddir
(ísienska): Hjálmar Hjálmarsson, Valur
Freyr Einarsson, Inga María Valdimars-
dóttir, Harald G. Haralds og Ólafur Darri
Ólafsson.