Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Side 5
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 DV 5 Fréttir Umsjón; | ______ Reynlr Traustason netfang: sandkorn@ff.is Borgarstjóramelding Ýmsar ! vangaveltur eru um það ; hverjir bjóða sig fram til Alþingis eftir tvö ár. Víst er talið að miklar breyt- ingar muni eiga sér stað á þing- mannaliði Samfylkingar og er þar nefnt að öruggt teljist að stórskytt- an Ágúst Einarsson, varaþing- maður á Reykjanesi, muni fara inn. Nú gengur sú saga fjöllum hærra að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri stefni á þing. Ástæðan er sú að borgarstjóri mun hafa látið þau orð falla í ræðu að nauðsynlegt væri fyrir borgar- stjórn að eiga mann á Alþingi. Talið er hugsanlegt að með þessu sé hún að melda að hún leiði lista Samfylkingar í öðru Reykjavikur- kjördæminu en Össur Skarphéð- insson formaður í hinu. Þar með fengi formaðurinn mikinn liðstyrk á þingi... Stella slegin af Úthlutanir Kvikmynda- sjóðs Þorfinns Ómarssonar eru gjaman umdeildar. Þannig þykir mönnum vest- ur á fjörðum súrt að Lýð- ur Árnason og félagar, sem standa að stórmyndinni í faðmi hafsins, fá ekki krónu í styrk. Þá mun aðstandendum Umba ehf. vera lítt skemmt þessa dagana enda fær fyrirhuguð framhaldsmynd Stellu í orlofi engan styrk. Nú bendir allt til þess að ekkert verði af gerð Stellu í framboði og Halldór Þor- geirsson og Guðný Halldórsdótt- ir slái hugmyndina af í bili... Draumasveitarfélag Seltjarnar- nes er draumasveit- arfélagið sam- kvæmt könn- un ritsins Vishending- ar. Stöðugur mannfjöldi, ; lágar skuldir og útsvar í lágmarki er talið bænum til tekna. Alls var gerð úttekt á 32 sveitarfélögum og fékk Seltjarnarnes einkunnina 7,5. Þetta er sama niðurstaða og árið 1997 en þá var Reykjavík í öðru sæti. Nú hefur Reykjavík hrapað niður í 13. sæti. Sigurgeir Sig- urðsson, bæjarstjóri Seltirninga, má vel við una en Ingibjörg Sól- rún Gísladóttur borgarstjóri hlýt- ur að vera hugsi vegna niðurstöð- unnar... Pungar í LA Islensk þorrablót tröll- ríða heims- byggðinni þessar vikurn- ar. Meðal þeirra íslend- ingafélaga sem standa fyrir punga- áti og brenni- vínsdrykkju er félagið í Los Angeles. Formaður fé- lagsins er sá þjóðþekkti söngvari, Richard Scobie, sem á níunda ára- tugnum heillaði æsku íslands ásamt hljómsveit sinni Rickshaw. Meðal þeirra sem fram koma í LA er söngkonan Anna Mjöll Ólafs- dóttir sem að baki á glæstan söng- feril ma. með söngvaranum og hjartaknúsaranum Julio Iglesi- as... Menntamálaráðherra um ófullnægjandi aðstöðu Þjóðskjalasafns: Hugað verði að gjald- töku fyrir þjónustu „Ég hef oftar en einu sinni vakið máls á að eðlilegt sé að huga að því, vegna fjármála Þjóðskjalasafnsins, að það verði sem mest sjálfbært, að það hafi heimild til að taka gjald fyrir þjónustu sína af þeim sem það þjónar." Þetta sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra um þá ófull- nægjandi aðstöðu sem Bjarni Þórð- arson, fjármálastjóri safnsins, lýsti í DV i gær. Þar kom fram að aðeins um þriðjungur skjala kemst fyrir í hillum þess, afgangurinn er geymd- ur á brettum í ófcágengnu húsnæði safnsins. Björn sagði að ljóst hefði verið að aðstaðan í safninu myndi breytast við flutninginn. Almennt hefði hún breyst til hins betra, þótt ekki hafi verið unnt að sinna öllum umbótum samtímis. Hraðinn við framkvæmd- ir réðist af ýmsum ólíkum þáttum og ákveðið hefði verið í upphafi að ráðast 1 endurbætur á þeim húsum, sem fyrir voru á umræddri lóð, en ekki í nýbyggingar fyrr en á síðari stigum. Forgangsröðun fjármuna hefði verið í þágu Safnahússins síðan Þjóðmenningarhúss og Þjóðminja- safns auk þess sem sett hefði verið þak á opinberar framkvæmdir til að sporna við þenslu í atvinnu- og efnahagslífi. Tillögur lægju fjTÍr um nýbyggingu við safnið en ákvarðan- Lagfæringar Mikil vinna er lögð í viðhald sjóvarn- argarða á Seltjarnarnesi og hleðslu nýrra á hverju ári. Nú er verið að lag- færa garðinn milli Látrastrandar og Barðastrandar. Berjast gegn ágangi sjávar: Milljónir til landvarna Talsverðar skemmdir verða á ári hverju á sjóvarnargörðum þeim sem hlaðnir hafa verið á Seltjarnarnesi. Árlega er miUjónum króna varið til að endurnýja garðana og byggja nýja. Á síðasta ári voru fimmtán miUjónir settar í þetta verkefni og lagt upp með tíu miUjðnir í ár. Að sögn Hauks Kristjánssonar, bæj- arverkfræðings á Seltjarnarnesi, hafa skemmdirnar ekki orðið í einu ákveðnu veðri heldur láta garðarnir smátt og smátt undan ágangi sjávar. Stöðugt er unnið að því að setja nýjar grjótvarnir tU að hefta landbrot. Þá hafa göngustígar skemmst og hafa þeir verið lagfærðir nokkuð jafnóð- um. „Nú eru víða rof á Suðurnesinu," sagði Haukur. „Fyrir áramót vorum við að vinna á sunnanverðu nesinu, miUi Lindarbrautar og hafnarinnar. Þar erum við búnir að hlaða upp grjótvörn. Nú er meðal annars verið að lagfæra milli Látrastrandar og Barðastrandar. Framtíðarverkefnið er að verja stærstan hluta hringsins bet- ur.“ Haukur sagði að meira væri lagt í sjóvamargarðana nú heldur en á árum áður. Þeir ættu því að verða varanlegri en verið hefði. -JSS ir hefðu ekki verið teknar um það, hvort og hvenær í hana yrði ráðist. Fjárveitingar til framkvæmda vegna Þjóðskjalasafns myndu áfram ráðast af því fé sem væri til umráða úr Endurbótasjóði menningarbygg- inga og í samræmi við þá forgangs- röðun sem fylgt yrði við ráðstöfun þess fjár, nema unnt yrði að taka upp nýskipan á fjármálum safnsins og auka sértekjur þess. „Ef stofnanir leigja húsnæði vegna þess að hUlurými er ekki í ónýttu húsnæði Þjóðskjalasafns, hvers vegna velja þær ekki þann kost að greiða fyrir geymslurými i safni sem sér síðan um að flokka skjölin og gera þau aðgengUeg fyrir notendur," sagði Björn um þá leið utanríkisráðuneytisins að leigja geymslurými undir skjöl annars staðar í borginni. „Mér er ekki kunnugt um það hvort viðræður hafi farið fram miUi utanríkisráðu- neytis og safnsins um þessa leið í stað þess að ráðuneytið sé að greiða þriðja aðUa húscdeigu. Þjóðskjala- safnið veitir almennt mjög góða þjónustu." Björn sagði að Þjóðskjalasafni hefði borist mikið af skjölum vegna breytinga í ríkisrekstri. Væri ljóst, að þess þyrfti að gæta við einkavæð- ingu að teknir væru fjármunir af andvirði þess sem selt er, til þess að standa undir kostnaði við að vista skjöl lögum samkvæmt. Til að unnt væri að tryggja að vöxtur Þjóð- skjalasafns væri jafnan í takt við þörfina fyrir geymslurými þyrfti að skapa eðlileg fjárhagsleg tengsl mUli framboðs og eftirspurnar á þessu sviði eins og öðrum. -JSS KALDIR DAGAR TILBOÐ á kæliskápum, frystiskápum og frystikistum Til 15. febrúar ríkir kuldatímabil hjá Ormsson. Hörkutæki frá heimsþekktum framleiðendum bjóðast á 15-20% afslætti auk þeirra tveggja tilboða sem sérstaklega er getið í þessari auglýsingu. Risakistur á rosalega lágu verði 0inDesu Þetta eru tvær tegundir af Indesit frystikistum þ.e. 7 stk. INDESIT 4370 370 Itr. stærð HxBxD 88x132x65 Sá svalasti í bænum . V \ . fr* ' ven ðitr. 27.900 stgr. AEG Öko Santo 3636-KG 2 Pressur Hæð: 180cm Breidd: 60cm Dýpt: 60cm Kælir: 239L Frystir: 82L og 4 stk.lNDESIT 4435 443 Itr. stærð 88*164x65 verð kr. 29.900 stgr. Verð áður kr: 90.000,- Nú kr: 65.900.- Einnig tilboð á AEG kistum . AEG Q) inDesu B R Æ Ð LJRNIR Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.