Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Qupperneq 10
10
Hagsýni
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001
DV
i
i■
V
\
t
Jólareikningar kreditkortanna komnir:
Hvað kostar að
greiðsludreifa?
- ódýrara en að greiða dráttarvexti
Að eiga til hnífs og skeiðar
Margir sjá fram á blankheit út mánuöinn þurfi þeir aö greiöa jóiaóráösíuna í
einu lagi. Því er griþiö til þess ráös aö dreifa greiöslunum.
Nú um mánaðamótin er komið að
því að greiða jólaúttektirnar á
kreditkortin sem, án efa, eru himin-
háar hjá sumum. Margir gleymdu
sér i jólaösinni og notuðu kredit-
kortin sín í óðaönn án þess að
hugsa nokkru sinni um að einhvern
tímann kæmi að skuldadögunum.
En nú eru þeir dagar komnir og
töluverður fjöldi fólks uppgötvar að
það á erfitt með að greiða reikning-
ana sína i einu lagi. Því er gripið til
þess ráðs að dreifa greiðslunum yfir
lengra tímabil til að eiga fyrir öðr-
um útgjöldum mánaðarins. En það
kostar sitt, ekki síst núna þegar
vextir eru háir í þjóðfélaginu.
Hjá Visa fengust þær upplýsingar
að vaxtaprósentan á greiðsludreif-
ingunni, eða fjölgreiðslum, væri
ákveðin í hverjum banka um sig en
ekki af fyrirtækinu sjálfu. Þegar
hringt var í bankana kom í ljós að
prósentan er misjöfn auk þess sem
hver banki getur verið meö fleiri en
eina vaxtaprósentu í gangi, t.d. eru
vextir á eðalkortum frá Spron 18,5%
á meðan þeir sem eru með almenn
kort greiða 22,5% vexti. Auk þess
getur lagst ofan á þetta fastur kostn-
aður sem er mismunandi eftir bönk-
um, en yfirleitt er um að ræða 150
kr. fyrir hvern mánuð sem dreifing-
in stendur yfir. Þeir sem þurfa að
dreifa greiðslum af Visa- korti þurfa
að hringja í þann banka sem gefur
kortið út og sækja um greiðsludreif-
ingu.
Europay, sem gefur út Eurokort-
in, er með 21,5% vexti á fjölgreiðsl-
um. Auk þess er tekið 190 kr. gjald
fyrir hvern mánuð sem greiðslu-
dreifingin varir. Hjá Europay feng-
ust þær upplýsingar að febrúar
væri sá mánuður sem hvað flestir
nýttu sér þennan kost og nú þegar
hefur fólk sem á í erfiðleikum með
reikningana sína töluvert hringt.
En þeir sem eru með Eurokort
hringja beint í fyrirtækið til að fá
greiðsludreifingu.
Skárra en vanskil
Þrátt fyrir þessa háu vexti borgar
sig frekar að greiðsludreifa heldur
en að láta kortaúttektina fara í van-
skil því ef það gerist falla á hana
dráttarvextir sem eru enn hærri en
fjölgreiðsluvextirnir, eða um 24%.
Tekið skal fram að vextir á
greiðsludreifingu eru breytilegir og
taka mið af vöxtum Seðlabanka ís-
lands hverju sinni. í töflunni hér á
síðunni má sjá nokkur dæmi um
hvað það kostar að setja eftirstöðv-
ar kreditkortareiknings á fjöl-
greiðslur, í þrjá og sex mánuði. Hér
er miðað við að búið sé að greiða
þann hluta sem krafist er því ekki
er hægt að dreifa allri upphæðinni.
Meginreglan er sú að sé greiðslum
dreift í 6 mánuði þarf að greiða einn
sjötta af upphæðinni strax og einn
tólfta hluta sé greiðsludreift í 12
mánuði. Þetta eru eingöngu dæmi
því eins og áður sagði er vaxtapró-
sentan og kostnaðurinn mismun-
andi eftir því hvaða banki gefur
kortin út og hvort þau séu frá Visa
eða Euro.
í Landsbankanum eru 20,85%
vextir nema á gullkortum Vörðufé-
laga þar sem þeir eru 19,35% og
kostnaður við hvem mánuð í
greiðsludreifingu er 150 kr. Hjá
SPRON eru vextir af almennum
kortum 22,05%, af gullkortum 20,5%
og af eðalkortum 18,5% og fastur
kostnaður nemur 150 kr. á mánuði.
í íslandsbanka er enginn fastur
kostnaður og sama vaxtaprósenta af
öllum kortum, eða 21,5%. Búnaðar-
bankinn er meðl50 kr. færslugjald í
hverjum mánuði sem greiðsludreif-
ingin stendur yfir og 20,85% vexti
og skiptir þá ekki máli um hvernig
kort er að ræða. Eins og áður sagði
eru öll Eurokort með 21,5% vexti og
mánaðargjaldið er 190 kr. -ÓSB
* •l’i 1 skipti Kort, fjöldi skipta/kr 1 skipti meö korti Opnunartími, vetur Opnunartími, sumar Aldur’>
Reykjavík 150 25/2500 100 10-12 og 13-15:30 9-12 og 13-16:30 2-6 ára
Hafnarfjöröur ÍOO 25/2000 80 13-16 9-12 og 13:30-16:30 2-6 ára
Kópavogur ÍOO 20/1500 75 13-16 10-12 og 13:30-16.30 2-6 ára
Garöabær 50 10/450 45 9-12 og 13-17 9-12 og 13-17 2-6 ára
Mosfellsbær 100 ÍO/IOOO ÍOO 13-16 9-12 og 13-16 2-6ára4>
Akureyri 200 25/200011 160 13-16 13-16 2-7 ára
Selfoss 160 30/3900 130 13-16 13-16 2-6 ára
Keflavík ÍOO 3) 13-16 13-17 2-6 ára
1) Sé keypt afsláttarkort þarf tvo m/ða í hvert skipti
2) Börn aö tveggja og hálfs árs aldri geta eingöngu dvallst í einn og hálfan tíma á dag oggreiöa fyrir þaö hálft gjald eöa 80 kr.
3) Veittur er systklnaafsláttur, annaö barn grelölr 75 kr og þriöja barn 60 kr.
4) Mlöaö vlö 6 ára afmælisdag
5) Flestlr gæsluvellir taka börn yngrl en tveggja ára í aölögun.
Tilboð verslana
Tilboöin gilda á meöan blrgöir endast. j
Q Fotalda-innralæri 792 kr. kg
Q Folaldasnitsel 389 kr. kg
Q Folaldagúllas 359 kr. kg
Q Folaldahakk ^ 119 kr. kg
Q Ýsubitar 598 kr. kg
Q Kotasæla, 500 g 194 kr.
0 Frigg Þvol m/bursta, 500 ml 103 kr. j
Q Frigg handsápa m/dælu 127 kr.
Q Frigg Maraþon, 1,5 kg, 431 kr.
0 Frigg Glltra, 1 kg 199 kr.
Þín verslun
Tilboöin gilda tll 7. febrúar. \
0 Lambanaggar, 370 g 349 kr.
Q Steiktar kjötbollur, 350 g 229 kr.
Q Cheerios, 425 g 259 kr.
Q Cocoa Puffs, 553 g 339 kr.
Q Mexíkó grýta 159 kr.
Q McCain Superfries, 1 kg 249 kr.
Q McCain Garlic fíngers 369 kr.
Q
Q
©
10-11
Tilboöin gilda til 5. febrúar.
Q SS pylsur, 1 kg+teiknimynd 999 kr.
Q SS helgarst., grísahnakki 999 kr. kg
Q Nestle Fitness morgunkorn 219 kr.
£ Burtons Homeblest 119 kr.
Q Burtons Toffíe pops 129 kr.
0 Tuma brauö, 1/1 129 kr.
Q Kjörís vanillustangir, 8 stk. 279 kr.
Q Kjörís gulir klakar, 8 stk. 279 kr.
Q Kjörís grænlr klakar, 8 stk. 279 kr.
©
Helgartilboö.
Q Buitoni spaghetti stutt, 500 g 59 kr.
Q Lambalæri, sneitt, frosiö 899 kr. kg
Q MS ab mjólk, 1/11 129 kr.
Q Cadbury Bunny Rabbits 79 kr.
Q Appelsínur 99 kr. kg
Q Cul epli 99 kr.
Q Knorr Ökonimisúpur, 7 teg. 149 kr.
Q Knorr pastaréttir, 6 teg. 189 kr.
Q Knorr boiiasúpur, 8 teg. 79 kr.
0 Chicken Tonight, 500 g, 259 kr.
Tilboöin gllda til 4. febrúar.
Q Lambalæri, frosiö 998 kr. Kg
Q Lambahryggur, frosinn 998 kr. Kg
Q Kjörís, vanilluheimaís, 11 319 kr.
0 Kjörís, súkkulaöihelmaís, 1 / 319 kr.
Q Kjörís, lakkrísheimaís, 11 319 kr.
Q Kjörís, jaröarb.heimaís, 11 319 kr.
Q Kjörís, súkkulaöiheimats, 2 / 535 kr.
Q Kjörís, vanillu heimaís, 21 535 kr.
Q Epll, Jonagold 128 kr.
©
Fjaröarkau
Tllboöin gilda til 3. febrúar.
1 kg SS pylsur+pc leikur 1198 kr.
Ferskur kjúkiingur 449 kr. kg
Fersk. kjúkl. læri+leggur 499 kr. kg
Lamba-lærissneiö II fí. 698 kr. kg
Rauövíns-lambalæri 898 kr. kg
Nautafílle 1198 kr. kg
Gulrætur 288 kr. kg
Orville örbylgjupopp *6 259 kr.
Hraðbúðir ESSO
Tilboöin gilda til 28. febrúar.
0 Toppur, biár, 1/2 I 99 kr.
Q Toppur, Lemon, 1/2 I 99 kr.
Q Húsavíkurjógúrt, 1/21, 109 kr.
Q Vlctory V brenni 79 kr.
Q Nóa Tromp, 20 g 25 kr.
Q Góu Risahraun, 54g 49 kr.
Q Hraunbitar, stórir, 220 g 185 kr.
Q Stáihitabrúsi 1895 kr.
Q Snertiljós, fjöinota fyrir rafhl. 495 kr.
0 Kassalímrhald. m/límb.rúlla 985 kr.
Nettó
Tilboöin gilda á meöan birgöir endast.
Q Ralston Coco kúlur, 390 g 99 kr.
Q KEA nautahakk, 8-10% 699 kr. kg
Q KEA nautagúllas 1129 kr. kg
Q KEA piparsteik, meyrnuöl329 kr. kg
Q KEA hvítlauks piparsteikl329 kr. kg
Q Rana ferskt totell. m/svepp. 278 kr.
Q Heinz bak. baunir, 4*415 g 199 kr.
Q Dr. Oetker pizzur, 350 g 299 kr.
Q
©
Oft koma upp ágreiningsefni
- þegar margir búa saman.
Nýtt vandamál í blokk:
Á húsfélag
að borga
fyrir túlk?
- er nýbúar koma á húsfund
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
í vetur flutti nýbúafjölskylda í
blokk á höfuðborgarsvæðinu og er
ekki nema gott eitt um það að segja.
íbúarnir, sem fyrir voru, segja þetta
ágætisfólk en þó sé hængur á. Fólk-
ið talar enga íslensku og mjög litla
ensku. Af þessum sökum er nær
ómögulegt að kynna fólkinu hús-
reglur og annað slíkt. Því er ljóst að
á húsfundum verður að vera túlkur
en spurningin er: Hver á að borga?
íbúum blokkarinnar hefur verið
sagt að húsfélagið eigi að greiða fyr-
ir túlkaþjónustuna en hún er dýr og
eru þeir ósáttir með það.
Sigurður Helgi
Guöjónsson
Sigurður Helgi Guðjónsson hjá
Húseigendafélaginu segir að þar
sem húsið er á
íslandi og íbúar
þess íslenskir
þurfi sá sem
ekki skilji is-
lensku sjálfur að
afla sér stað-
göngumanns eða
túlks. „Þetta er
svipað og ef fatl-
aður maður flyt-
ur í blokkina og
þarf á hjólastóla-
lyftu að halda.
Hann á ekki
kröfu á því að húsfélagið kosti slíka
lyftu. Ef menn eru einhvern veginn
öðruvisi, hvort sem þeir eru fatlað-
ir, útlendir eða eitthvað annað, er
það þeirra mál en ekki hinna sem í
húsinu búa. Það er ekki hægt að
velta þessu yfir á nágrannana," seg-
ir Sigurður Helgi. Hann segir svona
mál skyld svokölluðum grenndar-
sjónarmiðum og grenndarreglum
sem setja fasteignaeigendum skorð-
ur með tilliti til þeirra sem búa í
næsta nágrenni. í þeim felst að
menn mega gera það sem þeim
hentar á sinni eign fari það ekki út
fyrir eðlileg mörk. „Á t.d. sá sem er
með einhverja sérstaka viðkvæmni,
eða sérþarfir, kröfu á því að aðrir
taki tillit til þess? Hér verður að
leggja einhvers konar „normal" at-
riði til grundvallar. Sem dæmi má
nefna að í mörgum fjölbýlishúsum
býr fólk sem vinnur næturvinnu og
vill sofa á daginn. Það á ekki kröfu
ááð allir aðrir í húsinu lagi sitt dag-
lega líf að þeirra þörfum." segir Sig-
urður Helgi. -ÓSB