Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2001, Qupperneq 25
29 Fyrrum og núverandi snillingar, Wonder Boys, sem frumsýnd verður á morgun í Sambíóunum og Nýja bíói Akureyri, er nýjasta kvikmynd Curtis Hansons og fyrsta kvikmynd hans frá því hann leikstýrði hinni rómuðu L.A. Confidental. Wonder Boys fékk mjög góðar viðtökur hjá gagn- rýnendum en einhverra hluta vegna var aðsókn lítil í Bandaríkj- unum og furðuðu margir sig á því þar sem myndin hefur alla burði til þess að fá góða aðsókn. Þetta kom aðstandendum myndarinnar svo mikið á óvart að þeir gerðu til- raun til að endurdreifa henni í lok síðasta árs, en allt kom fyrir ekki. Aðalpersóna myndarinnar er Grady Tripp (Michael Douglas), prófessor á sextugsaldri, sem fyrir sjö árum skrifaði skáldsögu sem sló í gegn og er talin ein besta bandaríska skáldsagan. Síðan hef- ur hann varla komið staf á blað. Þegar myndin hefst er hann ekki aðeins með áhyggjur af ókláraðri skáldsögu, ‘heldur einnig eigin- konu sem búin er að fá meira en nóg af honum, ófrískri ástkonu, myrtu gæludýri, óútreiknan- legum nemanda og stolnum bíl. Svo segja má að Tripp hafi nóg á sinni könnu. Ekki minnkar það áhyggjurnar að í deiglunni er bók- menntahátíð þar sem þessi fyrrum snillingur á að vera eitt aðalnúmerið. Það fer svo að þessi hátið verður að einni martröð fyrir hann, aðallega vegna þess að hann er í sam- fylgd James Leer (Tobey Maguire) sem er hæfileika- mesti nemandi Tripps og verð- andi snillingur á sviði skáld- skapar. Það sem Tripp gerir sér ekki grein fyrir i fyrstu er að Leer er ótrúlega slyngur lygari og þvæl- ir með lygum sínum prófessorinn í alls konar vandræði sem svo leiða til þess að Tripp fer í sjálfskönn- un. Auk þeirra Michaels Douglas og Tobey Maguire leika stór hlutverk í Wonder Boys Frances McDorm- and, Robert Downey jr., Katie Holmes, Rip Torn og Richard Thomas. Handritið skrifaði Steve Cloves eftir skáldsögu Michaels Chabon, en þetta er önnur skáld- saga hans sem kom út árið 1995 og hefur fengið ýmsar viðurkenning- ar. Curtis Hanson var ljósmyndari hjá kvikmyndatímariti áður en hann hóf eigin skriftir og leik- stjórn. Árið 1978 skrifaði hann handritið fyrir kanadísku verð- launamyndina The Silent Partner. 1982 skrifaði hann handrit ásamt Samuel Fuller, White Dog, sem Fuller leikstýrði og einu ári síðar skrifaði hann Never Cry Wolf ásamt fleirum. 1987 leikstýrði hann sinni fyrstu kvikmynd, The Bedroom Window, saka- málamynd með Steve Gutten- berg og Isabelle Hupert. kjölfar- ið komu tveir Professor- inn Michael Dou- glas í hlut- I verki Grady Tripp sem hef- ur ekki fengið bók útgefna í mörg ár. spennutryllar sem fengu mjög góð- ar viðtökur, Bad Influence með Rob Lowe og James Spader og The Hand That Rocks the Cradle með Rebecca DeMornay. Sú mynd naut mikilla vinsælda. 1994 sendi hann svo frá sér enn einn tryllinn, The River Wild, með Meryl Streep og Kevin Bacon og var sú mynd með meiri ævin- týrablæ en fyrri myndir hans. L.A. Confidental* kom næst og setti Han- son í hóp þeirra leik- stjóra sem hvað mest mega sín í Hollywood. Var myndin verðlaunuð í bak og fyrir. Wonder Boys er fyrsta mynd Hansons sem er á gamansömum nótum. -HK Nemandinn Tobey Maguire teikur nemanda Tripp, James Leer, sem er ekki bara efnilegastur nemendanna heldur óforbetraniegur lygari. Bítlar skemmta sér George, John, Ringo og Paui hvíla sig í tveimur barnavögnum. FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2001 DV LJnl.liiiJill Crouching Tiger, Hidden Oragon r Frábær kvikmynd. Það er eins og listin hafl loksins ratað aftur heim í hölleikahúsið. Maður situr í sætinu sinu og er borinn gegnum æv- intýrið, undrandi og þakklátur eins og bam. En myndin er líka svolítið skrýt- iti. Leikaramir em allir með sama íbyggna svipinn og bera fram textann eins og þeir séu að lesa hann af blaði. Og ömgglega á einhverri mállýsku sem þeim er ekki eiginleg. En við héma uppi á íslandi segjum bravó og tökum það sem hluta af ævintýrinu. -GSE Saving Grace jckrk Saving Grace er fyndin og skemmtileg mynd allt fram í lokin þeg- ar endirinn verður að rútinu sem ailt of oft er notuð. Leikur er frábær. Brenda Blethyn er slík yfirburðaleik- kona að það þarf mikið til að skyggja á hana en í heild er gott jafnvægi í leiknum og mesti hláturinn kemur frá kostulegum persónum í litlum hlut- verkum. -HK ikingut ickk Góð kvikmynd sem byggist á þjóð- sagna- og ævintýrahefð. Myndin fjallar um grænlenskan dreng sem rekur á ís- landsstrendur í vetrarhörkum. Aðall myndarinnar er, líkt og í góðum ævin- týrum, bamsleg einlægni sem skilar sér til áhorfenda. Mest áhersla er lögð á samband Bóasar og Ikínguts og þar mæðir mikið á hinum ungu leikurum, Hjalta Rúnari Jónssyni og Hans Tittus Nakinen. Drengimir ná upp sérlega góðum og einlægum samleik. Góð fjöl- skylduskemmtun. -HK Snatch r Snatch er hröð og góð skemmt- un með sterkum höfundareinkennum Guy Ritchie. Hún er samt þegar að er gáð frekar innantóm. Stíll Ritchies ger- ir út á hraða, stutt samtöl, ofbeldi og margar persónur sem fá að mestu leyti jafn mikið pláss í myndinni. Þetta tekst honum af snilld og skipuleggur hann kaos sitt af stakri snilld og má greinilega ekki vera að því að kafa ofan í þunnan söguþráðinn. -HK Unbreakabie kk Unbreakable er næstum eins og The Sixth Sense. Hún er myrk og hæg en ekki eins ógnvekjandi og fyrirrenn- arinn. Andblærinn gefur til kynna hnignun fremur en ógn. Henni tekst hins vegar að halla um ævintýralegt efni á raunsæjan hátt; áhorfandinn trúir henni. Stóri gallinn er hins vegar endirinn. Tilraun sem er nánast móðg- un við áhorfendur. -GSE The 6th Day kk Þegar Schwarzenegger á í hlut er oftast mikill hasar og læti og það vant- ar ekki hasarinn í The 6th Day. Mynd- in hefur það samt framyfir hefðbund- inn hasar að vera með áhugaverðan söguþráð og kemur á óvart stefnu- breyting sem verður þegar líða fer að lokum. Því miður hefiir verið of mikið gert út á hæfileika Schwarzeneggers sem ekki liggja í töluðu máli á kostnað sögunnar svo myndin nær aldrei þeirri reisn sem hæfir sögunni. -HK myndinni og einnig fengu bræðumir Óskarinn fyrir besta frumsamda hand- rit. Coen-bræðumir leita til heimahag- anna í Minnesota að efniviði í þetta skiptið og leika sér með séreinkenni íbúanna og má þar nefna sænskættað- an hreiminn. Tlie Big Lebowski The Big Lebowski var meðal annars tilnefnd til verðlauna á alþjóðlegu kvik- myndahátiðinni í Berlín og Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Það er Jeff Bridges sem leikur titilhlutverkið. 0 Brother, Where Art Thou Þrír samhlekkjaðir fangar strjúka úr fangavist með það fyrir augum að nálgast þýfi sem einn þeirra hefur falið heima hjá sér. Handritið er lauslega byggt á Ódysseifskviðu Hómers og Ódysseifurinn Everett og félagar hans þurfa líkt og fyrirmyndin að kljást við ýmsar hindranir til þess að ná mark- miði sinu. Þess má geta að George Clooney fékk nýlega Golden Globe verðlaun fyrir leik sinni i myndinni. Tilverat Wonder Boys: Fargo Steve Buscemi í hiutverki at- vinnumorðingjans. A Hard Day’s Night: Dagur í lífi Bítlanna Regnboginn frumsýnir á morgun klassíska meistaraverkið A Hard Day’s Night með hinum einu og sönnu Bítlum. Þetta er 35 ára af- mælisútgáfa myndarinnar og af því tilefni hefur hún verið endurhljóð- blönduð og filman hreinsuð til að tryggja sem best hljóð og myndgæði. John , Ringo, Paul og George hafa aldrei verið betri og fara á kostum í myndinni. Þessi frábæra mynd hef- ur ekki verið í kvikmyndahúsum síðan í Tónabíói fyrir mörgum árum og því tilvalið fyrir alla Bitla- aðdáendur að sjá loksins myndina við bestu hugsanleg skilyrði í bestu gæðum á hvíta tjaldinu. Myndin er uppfull af uppákomum Bítlanna, húmorinn er aldrei langt undan og hin frægu lög kappanna sem allir þekkja eru sígild gullkorn sem eru ómissandi fyrir alla Bítlaaðdáend- ur, unga sem gamla. Myndin var mikill plús fyrir Bítlana, sem þóttu sanna í myndinni að það var meira spunnið í þá heldur en almenn- ingur hafði gert sér grein fyrir. Einnig var myndin mikill sigur fyrir leikstjór- ann Richard Lester sem þðtti takast að gera „öðruvísi" kvikmynd um popp- stjömur. Myndin, sem byggð er upp eins og heimildamynd, segir frá degi í lífi Bítlanna. Mikil leikgleði einkennir Bítlana sem enn voru varla búnir að gera sér grein fyrir því hvað frægir þeir voru. Þess má geta að Richard Lester leikstýrði einnig næstu kvikmynd Bítl- anna, Help, sem þótti einnig góð þó ekki væri hún í sama gæðaflokki og A Hard Day’s Night. Mesti munurinn á mynd- unum er sjálfsagt sá að A Hard Day’s Night er í svarthvítu en Help í lit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.