Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Síða 2
2 ____________________________________________MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001 Fréttir x>V Arne Aarhus á meðal 53 áhættustökkvara í sjónvarpsturninum í Kuala Lumpur: Íslands-Norðmaður fram af 421 metra háum turni DV-MYNÐIR ADRENALÍN Arne í fallhlífarstökki í París Hann er nú í heimsferö þar sem áhersla er lögö á áhættustökk. Íslands-Norðmaðurinn Ame Aar- hus var einn af 53 áhættustökkvur- um sem fóru fram af sjónvarpsturn- inum í Kuala Lumpur í Malasíu fyr- ir helgina. Turninn er 421 metra hár og er hann fjórða hæsta mannvirki jarðar. Stjómvöld í Malasíu heimiluðu stökkvurunum að fara fram af turninum. Þeir þurftu því ekki að líta um öxl til að varast lögregluna, eins og komist var að orði í sjón- varpsfrétt CNN um atburðinn. CNN tók viðtal við Arne en einnig dagblöð og tímarit. I tölvupósti sem hann sendi til íslands kvaðst hann undrandi á þeim móttökum og athygli sem hann fékk í Malasiu, m.a. hefði hann haft mik- ið að gera við að gefa eiginhandar- 421 metrar niöur Frásögn netútgáfu CNN af stökkinu þar sem Arne Aarhus fór fram af sjónvarpsturninum í Kuala Lumpur fyrir helgina. áritanir. Hann sagði einn stökkvaranna hafa rekist utan í bygginguna en það hefði þó ekki endað með skelfingu. „Hann er í rauninni alveg sér- stakt fyrirbæri hann Arne. Hann er á gráum svæðum og er til dæmis að stökkva fram af lágum byggingum sem fáum dettur í hug,“ sagði Stein- grímur Dúi Másson, umsjónarmað- ur þáttarins Adrenalín á Skjá 1. Stökkið í Kuala Lumpur verður að likindum sýnt í þætti hans. 27 Bandarikjamenn, 7 Ástralir, 5 Malasíumenn, 3 Kanadamenn, 2 Bretar, og einn frá íslandi, Noregi, Nýja-Sjálandi og Sviss stukku fram af turninum. Ame Aarhus komst í alþjóðlegar fréttir á síðasta ári þegar hann varð fyrsti maðurinn til að stökkva fram af Millenium-parísarhjólinu 1 London. Hann stökk einnig fram af Skakka tuminum í Pisa á Ítalíu. Arne er nú í heimsferð sem hófst í Rússlandi í nóvember en síöan fór hann til Rómar og varð þá fyrstur manna til að stökkva fram af Colosseum byggingunni. Hann hélt síðan til Brasilíu, þaðan til Chile Arne í Pisa Hann fór fram af Skakka turninum. og er nú í Malasíu en mun svo m.a. fara til Nýja-Sjálands og förin end- ar í Bandaríkjunum í vor. Ame Aarhus, sem á islenska móður, er búsettur í Noregi og byggir afkomu sína m.a. á því að selja myndir og kvikmyndir af stökkum sínum til fjölmiðla. -Ótt Séra Hjálmar Jónsson í hempuna á ný: Þingmenn geta þjónað Guði - segir stjórnmálamadurinn sem saknaði kirkjunnar „Ég gat ekki hugsað mér að brenna inni í pólitíkinni," sagði séra Hjálmar Jónsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norð- urlandskjördæmi vestra, skömmu eftir innsetningu sína í embætti dómkirkjuprests í gær. Séra Hjálmar er hættur afskipt- um af stjórnmálum og ætlar að helga sig prestsstarfinu. „Ég er að snúa aftur í mitt köllun- arstarf eftir 10 ágæt ár í pólitíkinni. Aðdragandinn hefur verið langur og ég hef hugsað málið siðastliðið ár. Ég var farinn að finna fyrir því að ég fjarlægðist kirkjuna og það vildi ég ekki að gerðist. Stjórnmálin eru að breytast með nýrri kjördæma- skipan og það opnaði mér kjörið tækifæri til að skipta yfir í prests- starfið aftur. Ég hverf sáttur frá þingmennsku," segir Hjálmar, sem var prestur á Sauðárkróki áður en hann sneri sé að stjómmálum. Stjórnmálin innantóm Hjálmar segir stjórnmálin innan- tóm á köflum en síst erfiðari en prestsstarfið. „Þetta eru að því leytinu lík störf að þau snúast bæði um að þjónusta fólkið í landinu. Andlegur og ver- aldlegur hagur fer oft saman og þar mætast þessi tvö störf. Ég tel prests- starfíð hins vegar vera meira gef- andi. Mér finnst satt að segja að þar sé meiri tilgangur. Pólitíkin er stundum svolítið innantóm. Ég er ekki að flýja af hólmi og er ekki að fara í auðveldara starf. Það fylgir því síst minni erill og umfang að vera prestur en stjórnmálamaöur," segir hann. Séra Hjálmar og fjölskylda hans hafa saknað prestsstarfsins síðustu ár. „Fjölskyldan hefur veitt mér full- an stuðning i þessu máli og börnin DV-MYND EINAR J. Hverfur frá þingmennsku Fjölmenni var í Dómkirkjunni í Reykjavík í gærdag þegar séra Hjálmar Jónsson, fyrrverandi alþingismaöur, var settur í embætti dómkirkjuþrests. Vel fór á meö herra Karli Sigurþjörnssyni biskupi og Hjálmari eftir athöfnina. mín höfðu það á orði að við værum prestsfjölskylda og ættum að vera það. Á Kristnitökuhátíðinni í sumar saknaði ég þess að vera ekki að messa og gerði mér grein fyrir því að ég vildi ekki hverfa frá kirkj- unni. Það er ekki síður verk að vinna á því sviðinu en i stjórnmál- unum og ég tel mig gefa mest af mér sem prestur,“ segir hann. Hjálmar segist ekki hafa lagt Biblíuna á hilluna þó hann hafi far- ið í pólitík. „Menn geta þjónað Guði sínum þótt þeir séu ekki að messa. Það skiptir ekki máli við hvað menn starfa, þeir eru með Guði ef þeir standa sig vel. Þingmenn líka,“ seg- ir séra Hjálmar Jónsson, fyrrver- andi stjórnmálamaður. -jtr Björk veröiaunuð Björk fékk verð- laun fyrir bestan leik konu í aðal- hlutverki fyrir kvikmyndina Dancer in the Dark þegar dönsku kvikmyndaverð- launin voru afhent í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Þá fékk hún verðlaun fyrir bestu kvikmyndatónlistina, en hún deil- ir verðlaununum með Mark Gell. Fiskvinnsla í bobba Forsvarsmenn Starfsgreinasam- bandsins ætla á fund ríkisstjórn- arinnar í næstu viku og gera henni grein fyrir slæmu atvinnu- ástandi í fiskvinnslu. Undanfarið hefur fiskvinnslufólki víða á land- inu verið sagt upp störfum. Starfs- greinasambandið mun funda vegna þessa og í kjölfar þess verð- ur gengið á fund ráðherra. Ríkis- sjónvarpið greindi frá. Mýflugur vaknaðar Bílstjóra sem ók vestur Mýrar 1 gær brá nokkuð þegar hann ók í gegnum mýflugnager og fannst honum helst sem komið væri há- sumar. Auk þess sem mýflugurn- ar eru vaknaðar til lífsins hefur skarfurinn sést skríða upp á sker- in á Breiðafirði, en þaö gerist sjaldnast fyrr en í apríl. RÚV greindi frá. Samdráttur í bílasölu Sala á nýjum bílum dróst sam- an um tæplega 42 prósent í nýliön- um janúarmánuði miðað við sama mánuð á síðasta ári. Um 645 nýjar bifreiðar seldust nú en voru 1105 í janúar í fyrra. Mbl. sagði frá. Versta fyrirkomulagið Norskur laga- prófessor í alþjóða- rétti sagði í sam- tali við RÚV að EES samningur- inn sé stjórnskip- unarlegur óskapn- aður og það sé út frá lýðræðislegu og stjórnarskrárlegu sjónarmiði versta hugsanlega fyrirkomulagið að þjóðir taki upp löggjöf sem þær hafa ekkert haft með að semja. Kostnaður 870 þúsund Kostnaður ríkisins vegna starfs- hóps sem settur var á fót til að fara yfir svokallaðan örykjadóm Hæstaréttar, nemur 870 þúsund krónum. Þetta eru 10% allra viðbótar- greiðslna sem inntar voru af hendi til öryrkja um mánaðarmót- in, en þær námu 8,1 miljón til 676 manns. Sjónvarpið greindi frá. Á laugardag voru niðurstöður kunngerðar í póst- atkvæðagreiðslu um nýgerða kjara- samninga Rafiðn- arðarsambands ís- lands við Lands- virkjun og Xand- símann h/f. Samningarnir voru samþykktir með afgerandi hætti. Eldur í bíl Slökkviliðið á höfuðborgar- svæðinu var kallað að logandi bif- reið við Nóatún í Rofabæ i Reykja- vik á laugardagskvöldið. Þegar slökkviliðið bar að garði var bíll- inn alelda. Enginn slasaðist við at- vikið en bíllinn er ónýtur eftir log- ana. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða og rannsakar lögreglan i Reykjavík nú upptök eldsins. -jtr/SMK Samþykkt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.