Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001 Fréttir Lambakjöt með úreltum flokkunarmiða í verslun á Suðurlandi: Hræðilegt að sjá þetta borið fyrir neytendur - sagði Fjóla Runólfsdóttir, bóndi í Skarði, á fundi með landbúnaðarráðherra DV, SELFOSSI:_________ „Eg var svo hissa þegar ég sá þetta í kjötborði í búðinni hjá okkur í Rangár- vallasýslu í dag að ég ákvað að kaupa pokarm og sýna hann héma. Þetta er kjöt sem við bændur viljum alls ekki að sjáist í verslunum. Þetta er mjög lé- legt kjöt, það em allir bitar skrokksins í þessu, skankamir og aðrir bitar sem varla teljast vera hundamatur. Mér fmnst hræðilegt að sjá þetta því að þetta eiga neytendur, fólkið í landinu okkar, að kaupa en þetta er það sem við bændur viljum ekki selja þeim, og það er hræðilegt að sjá þetta borið á borð fyrir fólk,“ sagði Fjóla Runólfs- dóttir, bóndi í Skarði í Landsveit. Hún mætti á fund landbúnaðarráðherra á Þingborg með hálfan lambsskrokk frá Sláturfélagi Suðurlands sem hún keypti fyrr um daginn í verslun í Rangárþingi. Hálfi skrokkurinn vó 4,4 kiló, svo að heildarfallþungi lambsins hefur verið innan við 9 kíló. „Að svona vara skuli vera á boðstólum hefur afskaplega nei- kvæð áhrif á okkar framleiðslu, okkar góða lambakjöt. Neytendur hljóta oft og tíðum að koma fokreiðir til baka í verslanir og skila svona löguðu, þá er náttúrlega misjafnt hvemig verslunin bregst við. Fær viðskiptavinurinn nýtt kjöt eða slæm svör frá versluninni sem verður til þess að sá neytandi kaupir ekki okkar vöm aftur,“ sagði Fjóla. Hún sagðist helst ekki vilja nefiia nein- ar tölur um það verð sem bóndinn fái fyrir svona vöm. „Ég get þó sagt það án ábyrgöar að í mesta lagi fengi ég um 190 krónur fyrir kílóið," sagði Ejóla en kílóverðið á pokanum er 559 krónur. Kjötskrokkurinn sem Fjóla var með á fundinum var merktur haustslátrun 2000 DLA, hvað þýðir sú merking og er hún réttmæt miðað við vömna í pok- anum? „Nei, þessi flokkur DIA er flokkur sem er ekki til í dag. 1998 var byrjaö að flokka eftir allt öðm kerfi. Besti flokkurinn er E, næst kemur U og R og síðan fleiri. Þetta er flokkunin í dag, þess vegna skil ég ekki að í okk- ar hámenntaða þjóðfélagi skuli DIA vera seldur í dag því sá flokkur er alls ekki til og hefur ekki verið til frá 1997. Þessi skrokkur er heldur ekki DIA skrokkur, heldur eitthvað miklu lé- legra, það skil ég heldur ekki,“ sagði Fjóla Runólfsdóttir. -NH Dlfl BESTU Sf'flup fiF HttOSTSLttTRifin 2000 é§:fi'aso2.c5o/ W Vörusvlk? Miöinn á pokanum segir allt annaö til um Innihaldiö en þaö kerfi sem kjöt er flokkaö eftir í dag. DV-MYNDIR NJÖRÐUR HELGASON Sýnir afurðirnar Fjóla Runólfsdöttir sýnir landbúnaöarráöherra lambsskrokkinn sem hún var með á fundinum. Fjölmennur bændafundur á Þingborg og skiptar skoðanir um innflutning norskra fósturvísa: Ráðherra fari aftur undir feldinn - og hafi með sér Ara Teitsson, Þórólf Sveinsson og yfirdýralækni DV-MYND NjÖRÐUR HELGASON Fjölmennt og góðmennt Sunnlenskir bændur mættu vel til fundar meö Guöna Ágústssyni. Hér er sunnlenski ráöherrann á fundinum og bergir á vatnsglasi sínu. DV, SELFOSSI:________________________ Sunnlenskir bændur fjölmenntu á fúnd landbúnaðarráðherra um fram- tíðarhorfur i íslenskum landbúnaði á Þingborg fyrir helgi. Miklar umræður urðu á fundinum um landbúnaðarmál. Fyrirferðarmest var umræðan um inn- flutning norskra fósturvísa ásamt írsku nautalundunum. Fundarmenn vora ekki á sama máli um hvert ætti að stefna í máli innflutnings norskra fósturvísa til kyn- og endurbóta á ís- lenska kúastofninum. Menn bera saman ólíka hluti Guðmundur Lámsson sagði að menn fæm út í einfóldun á hlutunum og væm að bera saman ólíka hluti þeg- ar farið væri að tala um írskar nauta- lundir og norska fósturvísa í sömu andránni. „Þetta em alls óskyldir hlut- ir og það má ekki blanda þeim saman i umræðunni," sagði Guðmundur. Bergur Pálsson sagði það sögufólsun að halda því fram að íslenska kúakyn- ið væri hreint kúakyn - landnámskyn. Margbúið væri að flytja inn erlendis frá dýr til kynbóta í gegnum tíðina. Á síðustu öld hefði það þó verið bannað en vitað væri að kálfar hafi verið flutt- ir inn fram undir síðustu aldamót (1900). Bergur sagði að það hefði verið athyglisvert að þegar mál írsku nauta- lundanna kom fram á sjónarsviðið hafi jafnvel kratar farið að standa vörð um íslenskan landbúnað, það væri vel. Bergur sagði það sína skoðun að yfir- dýralæknir hefði klúðrað lundamálinu og hefði átt að segja af sér i kjölfarið. Sem dæmi um viðbrögð annarra þjóða við kúariðufaraldrinum, þá hefðu Frakkar strax lokað á innflutning á bresku nautakjöti þegar ljóst var að hjá Bretum væri komin upp kúariða. Bergur sagði að lokum að það eina sem hægt væri að finna sameiginlegt með írskum lundum og norskum fóst- urvísum væri að hvort tveggja væri út- lent og kæmi til landsins með flugvél- um. Menn væra að efast um innflutn- ing á fósturvísum á kolröngum for- sendum Banvænn bfti að gleypa helminn Valdemar Bjamason sagði að þrýsti- hópar hefðu farið fram á innflutning á fósturvísum þrátt fyrir andstöðu ís- lenskra bænda. Hann sagði að nær væri að huga að því sem við höfum í stað þess að ætla að gleypa heiminn, það gæti verið banvænn biti. Sigurjón Hjartarson sagði að það væri siðferðileg skylda landbúnaðar- ráðherra gagnvart bændum og neyt- endum að draga til baka ákvörðun sína í innflutningsmálinu. Hann sagð- ist vona að ekki þyrfti að koma til hall- arbyltingar í Landssambandi kúa- bænda til að menn opni augun fyrir al- vöm málsins. Siguijón sagði að breið andstaða væri meðal kúabænda við innflutningi norskra fósturvisa. Um 80% þeirra sem afstöðu hefðu tekið á þeim svæðum sem búið væri að gera skoðanakönnun væm andsnúin inn- flutningi. Geir Ágústsson hvatti landbúnaðar- ráðherra til að leggjast að nýju undir feldinn, þangað skyldi hann hafa með sér Ara Teitsson, Þórólf Sveinsson og yfirdýralækni. Þar ættu þeir félagar að hugsa málið að nýju í sameiningu. Guðni Ágústsson sagði í fundarlok að þessi svo mjög fjölmenni fundur hefði verið málefnalegur, menn hafi sagt sína meiningu og ljóst sé af hon- um að við eigum sterka íslenska bænd- ur sem vilji sækja fram fyrir sína stétt. Guðni sagði að á næstunni kæmu full- trúar bændasamtakanna saman. Hjá kúabændum og bændasamtökunum myndu menn taka til umræðu málefni sín og ræða varðandi þeirra mál inn- flutning fósturvísa og fleira. „Það verð- ur að sjá til hvað kemur út úr þvi,“ sagði Guöni Ágústsson. -NH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.