Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001 ^ Sigmaöur aö starfi. Landghelgisgæslan: Sigmenn og spil- menn sögðu upp Fjórir af fimm þjálfuðum stýri- mönnum á björgunarþyrlum Land- helgisgæslunnar hafa sagt upp störf- um. Uppsagnirnar taka gildi í lok apr- íl. Hér er um að ræða stýrimenn sem oftast gegna hlutverki spilmanna og sigmanna um borð í þyrlunum. Menn- imir eru í hópi þeirra 13 af 15 stýri- mönnum hjá Landhelgisgæslunni sem hafa sagt upp störfum sínum. Þrír til fjórir stýrimenn starfa að jafnaði hjá ^ flugrekstrardeild gæslunnar. Samninganefnd ríkisins sleit samn- ingaviðræðum við stýrimenn í síð- ustu viku. Þeir hafa ekki verkfallsrétt en nú er svo komið að langflestir þeirra hafa sagt upp. Helsti ásteyt- ingarsteinninn í samningaviðræðun- um voru langar vaktir, ekki sist stýri- manna á þyrlunum, grunnlaun og endurgjald vegna fjarvista á sjó, að sögn Guðjóns Petersen, framkvæmda- stjóra Félags íslenskra skipstjórnar- manna. Stýrimenn í þyrlusveitinni hafa stundum lent á tveggja til þriggja ' • vikna löngum bakvaktatimabilum sem þýðir að þeir þurfa þá alltaf að vera reiðubúnir að fara í útköll. „Þetta er gjaman mikið álag og vinna. Sumar vaktir eru óheyrilega langar,“ sagði einn stýrimanna í samtali við DV. Stýrimenn hafa farið fram á að bakvaktatímabil verði ekki lengri en ein vika i senn. Ríkissáttasemjari hefur boðað til samningafundar á miðvikudag þar sem rætt verður um laun skipherra sem eru fjórir hjá Landhelgisgæsl- unni. -Ótt Gæði og glæsileiki smoft Ctólbaðstofa') Grensásvegi 7, sími 533 3350. i.V Utsala Rafkaup Ármúla 24 • sími 585 2800 DV-MYND HARI Enginn skorinn Torfi Geirmundsson og Haraldur Davíösson hársnyrtar rökuöu 149 karlmenn á stofu sinni á Laugavegi á laugardag- inn. Torfi og Haraldur ætluöu sér aö raka 200 karlmenn, en aöeins 149 menn notuöu sér tilboöiö um ókeypis rakst- ur. Þetta hefur aldrei veriö gert áöur, svo þrátt fyrir skort á mönnum veröa Torfi og Haraldur aö teljast Islandsmeistar- ar í fjöldarakstri. Þeim fipaöist heldur ekki viö raksturinn og skáru engan mannanna. Evrópskt nautakjöt: Nóatún fór í kálfana Verslunin Nóatún í JL-húsinu í Reykjavík selur þessa dagana hol- lenskt mjólkurkálfakjöt. Þegar DV hafði samband við versl- unina i gærkvöldi höfðu starfsmenn ekki tölur yfir sölu á kjötinu á reiðum höndum, en heimildir DV herma að kjötið seljist eins og heitar lummur. Eins og kunnugt er fjarlægði Nóa- tún að eigin frumkvæði írskar nauta- lundir úr kjötborði sínu fyrr í vetur eftir að mikil umræða um Creutzfeldt- Jakob-sjúkdóminn gaus upp hérlendis sem og annars staðar í Evrópu.-SMK .. Reykjavík: Olvuð skytta Lögreglan í Reykjavík handtók karlmann vopnaðan haglabyssu í Bakkahverfl Breiðholtsins um hálf- fjögurleytið aðfaranótt sunnudags- ins. Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði skotið tveimur til þremur skotum upp í loftið. Þegar lögregluna bar að garði var maður- inn enn með byssuna í höndum og var hann, að sögn lögreglunnar, mjög ölvaður. Maðurinn var fluttur í fangageymslur lögreglunnar þar sem hann var látinn sofa úr sér. -SMK Howard Krúger er hættur við Valhöll - Jón Ragnarsson segir tilboðiö útrunnið en vinni áfram við að leysa vafaatriði inu þegar fresturinn var að renna út, þrátt fyrir að lausu endarnir væru ekki frágengnir. Það kom því Krúger talsvert á óvart, samkvæmt upplýs- ingum DV, að Jón skyldi undirrita til- boðið enda lá það skýrt fyrir að hann yrði að ganga frá umræddum skilyrð- um. Kruger er nú orðinn afhuga kaup- um á Hótel Valhöll og farinn að snúa sér að öðru enda hefur honum fimdist mikil óvissa ríkja um ýmis atriði varðandi eignina. Tilboð hans í Hótel ValhöU var fyrst lagt fram í vor i nafni fjárfestingarfyrirtækis í Mónakó. Það var endumýjað í lok síð- asta árs og þá í nafni Krugers sjálfs. „TUboðið er rannið út en ég reyni áfram að vinna í þessum málum ef einhver hefði áhuga á að kaupa eign- ina þegar þar að kemur,“ sagði Jón Ragnarsson i gærkvöld. -Ótt Bretinn Howard Kruger hefur hætt við áform um að kaupa Hótel ValhöU, a.m.k. á meðan forsendur fyrir kaupunum eru ðbreyttar. Ástæðan er sú að ekki reyndist unnt að uppfyUa þau skilyrði sem hann setti seljandan- um, Jóni Ragnarssyni, um að leysa ákveðin vafaatriði um eignina. Jón sagði í samtali við DV að tilboðið sé runnið út en hann muni áfram reyna að vinna að því að greiða úr málum sem snerta lóðarréttindi og þinglýstan hluta ríkisins í eigninni, þ.e. ef vera skyldi að annar hefði áhuga á að kaupa VaUiöU. Kruger hafði einnig óskað eftir því að fyrir lægi að unnt yrði að gera breytingar á eigninni. Hann lagði til- boð fram sem síðan fékkst framlengt á meðan Jón var að leita leiða við að leysa þau skUyrði sem sett voru í tU- boðinu sem hljóðaði upp á um 460 miUjónir króna. Jón tók siðan tiiboð- DV-MYND INGÓ Tiiboðið er útrunnið „En ég reyni áfram aö vinna í þessum málum," segirJón Ragnarsson. Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi R-listans: Flugvöllurinn á að vera kyrr - vestur-austurbrautina út í Skerjafjörð „Það er mín skoðun að halda eigi flugvellinum í Reykjavík en vinna jafn- framt verulegt landsvæði undir byggingarlóðir," segir Alfreð Þorsteins- son, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og fulltrúi Framsóknar- ílokksins í borgarstjórn. Miklar deilur eru nú um það hvar innanlandsflug Alfreð Þorsteinsson. eigi að vera i framtíðinni en Reykvíkingar kjósa um mál- ið um miðjan mánuðinn. Um helgina var haldinn fundur um flugvöllinn þar sem stofnuð voru borgarasamtök gegn flugvelli í Vatnsmýr- inni. Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar, hefur lýst þeirri skoðun sinni að færa eigi flugvöllinn og skiptar skoðanir eru innan borgar- Gegn flugvelli Um helgina voru stofnuö borgara- samtök gegn flugvelli í Vatnsmýrinni. stjómar um málið. Alfreð segir það sitt mat að sætta eigi ólík sjónarmið með því að hnika flugvellinum til og færa austur-vesturbrautina út í Skerja- fjörðinn. „Þannig fengist dýrmætt bygg- ingarland fyrir þúsundir íbúa. Nið- urstaðan yrði sú að landsbyggðar- fólkið yrði sátt og landvinningar fengjust að auki,“ segir Alfreð. -rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.