Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001 DV 7 Fréttir Útgerðarmaður við komu nýs Mumma til Suðureyrar: Höfðar til sam- visku stjórn- málamanna DV, SUDUREYRI:_____________________ „Það eru blikur á lofti og byggðin í hættu ef núverandi kerfi verður lagt af. Það þýddi helmings- skerð- ingu á afla byggðarlaganna hér. Menn hljóta að gefast upp þegar svo er komið. Hins vegar vil ég og fjöl- skylda mín hvergi annars staðar búa og það er stjórnarskrárbundinn réttur manna að afla sér lífsfram- Táknrænt Guömundur Skarphéðinsson, formaö- ur Invest, afhendir Valgeiri Þorvalds- syni hvatningarverölaunin, verðlauna- grip sem geröur er af Grétu Jóseps- dóttur, iistakonu á Hvammstanga, kertastjaka í stuölabergslíkani meö ígreyptu landakorti, og skírskotar eink- ar vel til viöfangsefnis Valgeirs og stuölabergsins sem svo áberandi er við ströndina á Hofsósi. Hvatningarverðlaun: færis og velja sér búsetu," sagði Guðmundur Karvel Pálsson á Suð- ureyri í viðtali við fréttamann DV um helgina en hann hefur fengið nýjan bát afhentan, Mumma ÍS 535 sem er á þorskaflahámarki. Guð- mundur Karvel höfðar til samvisku stjórnmálamanna hvað varðar hag smábátaútgerðar. Báturinn er af gerðinni Perla 900 og er smíðaður í Bátasmiðju Guð- geirs á Akranesi. Nafn bátsins er Mummi ÍS 535. Báturinn er 5,9 brúttólestir, mesta lengd er 9 metr- ar, breidd 3,2 metrar. Báturinn er búinn 400 hestafla Iveco-vél og eru öfl tæki í brúnni af Simrad-gerð. Mesti ganghraði er 22 sjómílur. Á siglingu frá Akranesi og heim lenti báturinn í brælu og reyndist hið besta sjóskip. Mummi er nýsmíði nr. 2 og leggst framtíðin vel í báta- smiðinn Guðgeir Svavarsson, sem þegar hefur lagt kjölinn að nýrri Perlu 900. Hönnun bátsins er að ýmsu leyti nýstárleg, fyrst og fremst hvað varðar mikið lestarrými, en hægt er að koma fyrir sex 660 lítra fiskikörum i lest, en það er liður í bættri meðferð á flski. Einnig er afar gott rými í stýrishúsi og lúkar. Þessi bátur kemur í stað Glettings ÍS 525 sem var settur í úreldingu og seldur til Færeyja. -VH 2490 SUÐURÉY.RI IVECO aifu DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON Nýr bátur en blikur á lofti Súgfirðingar gera út smábáta en blikur eru á lofti og óttast menn að núverandi kerfi veriö lagt af. Hér eru þeir Guð- geir Svavarsson, bátasmiöur frá Akranesi, og útgeröarmaöurinn Guömundur Karvel Pálsson á innfelldu myndinni en á stærri myndinni myndarlegur Mummi ÍS. 12 milljónir í Flugu ehf. DV, SKAGAFIRÐI:_______________________ Sveitarstjórn sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt að gerast hluthafi í Flugu ehf. en það félag er að byggja reiöhöll á Sauðá- króki. Hlutur sveitarfélagsins verð- ur 12 milljónir króna. Einnig mun sveitarfélagið taka þátt í gerð vegar og bílastæðis að reiðhöllinni og er áætlaður kostnaður við það 2,5 millj. Þá mun sveitarfélagið taka þátt í rekstri reiðhallarinnar næstu fjögur ár með greiðslu sem nemur 1,5 millj. króna á ári en fær í stað- inn 400 klukkustundir til afnota í húsinu á ári. Að sögn sveitarstjór- ans, Snorra Björns Sigurðssonar, er áætlað að verja þeim tímum til margvíslegrar íþrótta- og æskulýðs- starfsemi. -ÖÞ Kjarkur og áræði sem vekur athygii DV, SAUÐÁRKRÓKI: Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra afhenti á dögunum hvatningarverð- launin i annað sinn. Að þessu sinni hlaut þau Valgeir Þorvaldsson fyrir uppbyggingu Vesturfarasetursins á Hofsósi. Þykir hann hafa sýnt mikinn kjark og áræði sem vakið hefúr athygli landsmanna sem og afkomenda íslend- inga í Norður-Ameríku, eins og Guð- mundur Skarphéðinsson, formaður stjórnar INVEST, komst að orði þegar hann afhenti Valgeiri viðurkenning- una. Guðmimdur Skarphéðinsson sagði í ávarpi sínu að Valgeir hefði lagt upp með viðskiptahugmynd sem ætti sér enga hliðstæðu i íslensku samfélagi og hefði mikla menningarlega sérstöðu. „Uppbygging Vesturfarasetursins hef- ur tekist mjög vel, aðsókn að setrinu eykst ár frá ári. íslendingadagurinn, sem haldinn er um verslunarmanna- helgar, hefúr unnið sér sess sem hátið bæði íslendinga og fólks af íslensku bergi í Norður-Ameríku. Á síðasta sumri var opnuð sýning um fór íslend- inga til Utah í húsi sem opnað var í júlí sl. og hlaut nafhið Frændgarður. Auk þess að reka Vesturfarasetrið er fjölskylda Valgeirs með veitinga- og gistirekstur á Hofsósi og að Vatni, og til viðbótar eiga þau og reka íslensku fánasaumastofuna. Með starfi sínu hafa Valgeir og fjölskylda hans komið Hofsósi á landakortið ef svo má segja,“ sagði Guðmundur. Valgeir flutti stutt þakkarávarp þar sem hann þakkaði þá vegsemd sem þessi viðurkenning væri. Valgeir þakkaði þann hlýhug sem hann skynj- aði frá Invest og óskaði starfsemi þess góðs á ókomnum árum. Valgeir sagði að vissulega væri fullur vilji hjá sér og sinu samstarfsfólki að halda áfram uppbyggingu Vesturfarasetursins og rækta það hlutverk sem setrið og starf- semi þess gegndi. Það eru fimm ár síðan uppbygging Vesturfarasetursins hófst og með ólík- indum það frumheijastarf sem þar hef- ur verið unnið. Valgeir og hans fólk hefur fullan hug á þvi að halda upp- byggingunni áfram á þessu ári. -ÞÁ ••af hverju að láta jeppling duga þegar þú færð alvöru JEPPA á sama eða enn betra verði? GRANU l/ITARA Berðu saman getu, aksturseiginleika, búnað, þægindi og rekstrartiagkvæmni jepplinga við það sem þú færð í Suzuki Grand Vitara: grindarbyggðum jeppa með tengjanlegt framhjóladrif og hátt og lágt drif um millikassa. 3 dyrafrá 1.840.000 kr. 5 dyrafrá 2.190.000 kr. fuíi m frameIMI 4MlSS Byggður á grind SUZUKl GRAIMD VITARA Á meöal nýs búnaðar eru ABS-hemlar með rafeindastýrðri hemlajöfnun (EBD), rafhitaðir útispeglar, ðnir og tvístillt samlæsing. Hægt er að stilla hæð ökumannssætis og stuðning við mjóbak auk þess sem fótarými aftursæta hefur verið aukið. $ SUZUKI —~t//A---- - SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is Hátt og lágt drif SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Borgarnes: Bílasala Vesturlands, slmi 437 15 77. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, slmi 456 30 95. Hvammstangi: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 22 30. Sauðárkrókur: Bila- og búvélasalan, Borgarröst 5, simi 453 66 70. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bilasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, sími 471 30 05.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.