Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001 !DV Fréttir Línur skýrast varðandi varaformannsframboð í Framsóknarflokki: Guðni í framboð - helmingur þingflokksins gælir við varaformennskuna Guðni Ágústsson landbúnöarráð- herra mun samkvæmt óyggjandi heimildum DV gefa kost á sér til varaformennsku í Framsóknar- flokknum. Aðeins Ólafur Öm Har- aldsson, alþingismaður Framsókn- arflokks i Reykjavík, hefur gefið út að hann bjóði sig fram til varafor- mennsku í flokknum á landsþingi í mars en þess er beðið að Guðni gefi yfirlýsingu. Aðrir þingmenn flokksins bíða átekta. Þeir sem helst eru nefndir í varaformannsslag auk Ólafs og Guðna landbúnaðarráðherra eru Kristinn H. Gunnarsson þingflokks- formaður, Jónína Bjartmars, for- maður heilbrigðisnefndar, Hjálmar Ámason og Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra. Innan Framsókn- arflokks hefur verið nokkur vilji til að stilla upp konu við hliö for- mannsins. Lengi vel var talið að Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- ráðherra myndi gefa kost á sér en hún gaf það frá sér á frægum þing- flokksfundi í fyrrasumar eins og DV greindi frá á sínum tíma. Hjálmar Árnason alþingismaður hefur einnig verið orðaður við framboö. „Ég met stöðuna í ljósi hvatningar og flokkslegra hagsmuna," sagði Hjálmar í gærkvöld. Hann sagði ákvörðun Guðna ekki skipta neinu í því sambandi en þeir munu verða í sama kjördæmi í næstu kosningum. Reynir Traustason Merkir svsði Það er skoðun margra að ákvörð- un Ólafs Amar snúist ekki síst um það aö Jónína Bjartmars hefur ekki gefið frá sér möguieikann á fram- boði. Jónína var varaþingmaður Alfreö . Guðni Þorsteinsson Ágústsson Enginn áhugi. Tekur slaginn. Jónína Olafur Orn Bjartmars Haraldsson íhugar framboö. Merkir sér ............. svæöi. ÓMs áður en Finnur fór í Seðla- bankann og með framboði er talið að Ólafur vilji hafa línur skýrar á því að hann sé oddviti flokksins. Hann sé með framboði sínu að merkja sér svæði. Ólíklegt er talið að Ólafur Örn nái kjöri og jafnframt er ólíklegt að Jónína nái kjöri fari hún í framboð. Hún þótti að vísu standa sig einstaklega vel í öryrkja- málinu en hefur ekki það bakland sem nauðsynlegt er. Kenningar eru uppi innan flokksins um aö Halldór Ásgrímsson formaður sé hlynntur því að Jónína verði varaformaður en Halldór hefur opinberlega ekkert gefið upp um afstöðu sína í þeim efnum. Sjálf segist Jónína enn ekki hafa ákveðiö sig og framboð Ólafs Amar hafi ekki áhrif á ákvörðun hennar. Kristinn hugsi Sömuleiðis eru líkur á því að Kristinn H. Gunnarsson, alþingis- maður og formaður stjómar Hjálmar Árnason Framboö hugs- anlegt. Gunnarsson íhugar framboö. Siv Friölelfsdóttir Fall yröi þung- bært. Valgeröur Sverr- isdóttir Ekki í framboð. Byggðastofnunar, taki slaginn. „Ég er að velta þessu máli fyrir mér í al- vöru,“ sagði Kristinn í samtali við DV í gær. Hann þvertók fyrir að hafa þegar tekið ákvörðun um fram- boð. „Þetta skýrist á næstunni," sagði Kristinn sem kominn er í miklar álnir innan Framsóknar- flokksins og hefur sterka stöðu sem þingflokksformaður og stjómarfor- maður Byggðastofnunar. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Kristinn róa á svipuð mið hvað fylgi varðar enda báðir landsbyggðar- menn. Siv þögui Siv Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra féll í varaformannsslag við Finn Ingólfsson á síðasta landsfundi. Það varð henni nokk- urt pólltískt áfaU. Nú mun Siv enn vera að hugsa um framboö. I stuðningsmannahópi hennar eru skiptar skoðanir á því hvort hún eigi að stíga það skref. Hluti stuðningsmanna hennar leggst gegn því á þeim forsendum að það yrði henni gífurlegt póHtískt áfall að falla öðru sinni í varafor- mannsslag. Hún fengi á sig stimp- H sem endast myndi það sem eftir lifði af stjórnamálaferlinum. Aðr- ir telja henni vera sigurinn vísan og því ekkert að óttast. Siv gaf sjálf ekkert út á þessar vangavelt- ur þegar DV ræddi við hana í gær. „Ég gef engar yfirlýsingar að svo stöddu," sagði Siv sem var að und- irbúa sig fyrir kjördæmisþing. Ljóst er að helmingur þing- flokks Framsóknarflokksins gælir við varaformennskuna. Aðeins ísólfur Gylfi Pálmason alþingis- maður, Ingibjörg Pálmadóttir heH- brigðisráðherra, Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra og Jón Krist- jánsson alþingismaður hafa ekki verið orðuð við varaformennsku. Alfreð áhugalaus Á meðal þeirra sem nefndir hafa verið tH sögu er Alfreð Þor- steinsson borgarfulltrúi sem á sín- um tima gaf í DV ádrátt um að hugsanlega tæki hann slaginn. Al- freð er I dag fráhverfur framboði. „Ég hef engan áhuga á varafor- mennsku," segir Alfreð og bætti við: „Ég hef engar væntingar eða óskir í þá veru.“ Eins og staðan er í dag verður að telja Guðna langlíklegastan til að hreppa hnossið; taki hann slag- inn. DV náði ekki sambandi við Guðna Ágússson landbúnðarráð- herra í gær vegna málsins. Víst er að hann mun mæta harðri sam- keppni Sivjar Friðleifsdóttur, Kristins H. Gunnarssonar og Jón- ínu Bjartmars leggi þau í landbún- aðarráðherrann á annað borö. Það styrkir stöðu Guðna að hann þyk- ir komast vel frá erfiðum málum í ráðuneyti sínu svo sem norsku fósturvísunum og innflutningi á írsku nautakjöti. Þaö er mat margra viðmælenda DV að leið hans á varaformannnstólinn sé því nokkuð greið. Krakkakot, nýr leikskóli í Hornafirði: 72 pláss útrýma biðlistanum DV, HORNAFIRÐI: Snæfríöur leik- skólastjóri Ánægö meö aöstööuna í Krakkakoti. Nýr leikskóli, Krakkakot, var tek- inn i notkun á Höfn nýlega. Nýi skólinn er ætlaður fjögurra og fimm ára börn- um og er þar pláss fyrir 72 börn sem skipt er í tvær deHdir. Langir biðlistar hafa verið eftir leikskólaplássi en með tilkomu þessa nýja leikskóla eru þeir úr sögunni, a.m.k. í bili. Fyrir voru leikskólamir Löngu- hólar og Óli Prik sem nú verða fyrir yngri bömin niður í eins og hálfs árs. Snæfríður Svavarsdóttir er leik- skólastjóri i Krakkakoti og er hún Krakkakot Myndarleg bygging þar sem ungir Hornfiröingar munu fá sína fyrstu menntun. DV-MYNDIR JÚLÍA IMSIAND Leiraö í Krakkakoti Börnin hafa gaman af aö leira en í sumar, þegar sól hækkar á lofti, munu þau fást viö ræktun á lífrænum garöávöxtum. mjög ánægð með aUa aðstöðu í nýja skólanum. „Við fáum stórt útivistar- svæði hér við skólann og það æflum við að nýta okkur vel og vera með matjurtagaröa þar sem bömin taka þátt í lífrænni ræktun," segir Snæ- fríður. „Við fáum tunnu fyrir lífræn- an úrgang og ætlum að fá bömin til að taka þátt í að flokka það sem henda þarf og koma því í tunnuna. Áhersla verður lögð á útivist og hreyfingu og, sem sagt, viö ætlum að tfleinka okkur sem aUra heUsusam- legast lífemi hér í Krakkakoti.“ Krakkakot er að Víkurbraut 28, við hliðina á húsum þar sem ein- göngu eldri borgarar búa. -Júlía Imsland Sandkorn ___________Ö rnsjón: Gyifi Kristjánsson netfang: sandkorn@ff.ls Feimið stórskáld Stórskáldið Gyrðir EUasson, sem hlaut íslensku bókmenntaverð- launin í flokki fag- urbókmennta, vakti nokkra at- hygli við verð- launaafhending- una á Bessastöð- um. Skáldið er afar feimið og dag- skrárgerðarmaður Rásar 2, sem hugðist ræða við Gyrði að afhending- unni lokinni, sagði að skáldið hefði fólnað þegar það var beðið um viðtal og treysti sér ekki í slík stórræði. Guðmundur PáU Ólafsson, sem hlaut verðlaunin í flokki fræðirita, er hins vegar greinUega ekki jafn mikið tfl baka og lét sig hafa það að raula og blístra fyrir fina fólkið á Bessa- stöðum í sínu þakkarávarpi. Ég elska... Viðtöl við íþróttamenn fyrir og eftir kappleiki era yfirleitt á einn veg: Fyrir leikina segjast þeir vera bjartsýnir og ætla að berjast til sig- urs og að þeim jg; loknum koma svo afsakanirnar í löngum bunum hafi væntingamar ekki gengið eftir. Þetta var oftast hlutskipti handboltamanna okkar á heimsmeistaramótinu í handbolta og sagði t.d. Ólafur Stef- ánsson fyrir leikinn við Júgóslavíu að ekkert kæmi tU greina annað en sigur. En hann sagði fleira og kom á óvart. Hann horfði í linsu upptöku- vélar Sjónvarpsins og sagðist elska fjölskyldu sína. Hingað til hafa bandarískir íþróttamenn verið einir um slikar yfirlýsingar í sjónvarpsvið- tölum en hver veit nema þama hafi Ólafur gefið tóninn fyrir það sem koma skal. Og þá bæta menn vænt- anlega við, eins og þeir bandarísku gera jafnan, að þeir elski land sitt, forseta og fána. Kristján heitur? Vangaveltur eru hafhar um það hverjir muni leiða lista Sjálfstæðis- flokksins í hinu nýja norðaustur- kjördæmi í kosn- [ ingunum 2003. Halldór Blöndal, oddviti flokksins á Norðurlandi eystra, segir engan bU- bug á sér að finna en það hefur vak- ið athygli að nafn Kristjáns Þórs JúUussonar, hins ástsæla bæjar- stjóra á Akureyri, heyrist mjög oft nefnt varðandi leiðtoga norðaustur- lista Sjálfstæðisflokksins. Reyndar hefur nafn hans verið nefnt vegna fomstukreppu flokksins í höfuðborg- inni en Kristján hefur yfirleitt glott vegna þeirra vangaveltna og neitað. Nú setur hann hins vegar upp „pókerandlit" þegar hann er spurð- ur hvort hann æfli í pólitík á lands- vísu og leiða norðausturlistann og svarar ákveðinn að hætti stórpóli- tíkusa - sem sagt engu. Hvað gerir hann? Handboltaáhuga- menn bíöa nú spenntir eftir því hvort handboltafor- ustan muni endur- ráða Þorbjörn Jensson landsliðs- þjálfara þegar I samningur hans | rennur út í sum- ar. Margir vilja breytingar eftir slakt gengi landsliðsins síðan 1997 en þá náði Þorbjöm síðast árangri með landsliðið. í hópi þeirra sem hafa talað hátt um að skipta þurfi Þorbirni út af er stórþjálfarinn Viggó Sigurðsson sem segir lands- liðið vera lélegt og skipulagslaust undir stjórn Þorbjörns og að breyt- ingar séu nauðsynlegar. Undir þetta hafa tekið menn eins og Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrum landsliðs- þjálfari, og Sigurður Sveinsson, fyrrverandi landsliðsmaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.