Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Side 13
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
I>V
Fréttir
13
DV-MYND JÚLÍA IMSLAND.
Undirritun
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráöherra og Albert Eymundsson bæjarstjóri undirrita aðalskipulag fyrir
Sveitarfélagið Hornafjörð
Aðalskipulag Hornafjarðar til 20 ára samþykkt:
Ýmis ágreiningur
til lykta leiddur
DV, HORNAFIRÐI:_____________________
Bæjarstjórn Hornafjaröar hefur
samþykkt og gengið frá aðalskipu-
lagi til næstu 20 ára í Sveitarfélag-
inu Hornafirði. Nokkur ágrein-
ingsatriði voru um þetta framtíð-
arskipulag og þá einkum breyting-
ar á vegarstæöum, en að sögn
Helga M. Pálssonar verkfræðings
náðist með málamiðlun samkomu-
lag um þessi atriði.
Meðal þeirra atriða sem mest
voru til umræðu í aðalskipulaginu
var Hverfisvernd, þar sem eru
ákvæði um verndun sérkenna
eldri byggðar eða annara menn-
ingarsögulegra minja, náttúru-
minja eða trjágróðurs án þess að
um lögformlega friðun sé að ræða,
einnig breytingu á núverandi
vegarstæði þjóðvegar eitt í sveitar-
félaginu. Mestur var ágreiningur
um nýtt brúar- og vegarstæöi yfir
Hornafjarðarfljót en stefnt er að
því að nýr vegur komi frá Tjörn á
Mýrum og beina línu í Hafnames
og er það 10 km stytting á núver-
andi akstursleið.
Ibúðabyggð verður stækkuð á
Leirusvæðinu og ný byggð verður
norðan vatnstanka og að Ægis-
síðu, áætlað fyrir 450 íbúðir.
„Þetta er fyrsta aðalskipulagið
sem unnið er í samræmi við ný lög
og eina skipulagið, eftir því sem ég
best veit, sem nær yfir heila sýslu
og jafn stórt svæði og þetta,“ sagði
Albert Eymundsson bæjarstjóri
við undirritun aðalskipulagsins.
Albert sagði að gerð aðalskipulags-
ins hefði verið mikið verk og tíma-
frekt þar sem allt hefði verið unn-
ið frá grunni og öll áhersla lögð á
að vanda verkið sem best, og þó aö
þetta sé gert til 20 ára þarf slíkt
skipulag að vera í stöðugri endur-
skoðun.
-Júlía Imsland
útSQlan er hafin
i.OsO.OOO-
750.000-
í febrúar og mars
Lotus TexStyle pappírsdúkar
50 metrar, 8 litir.
Lotus veisluservéttur 40x40 cm
150 stk. í pakka, 13 litir.
Lowboy kerti í qleri,
70 klst. brennsíutími, 6 litir.
Tilboð
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík • Sími 520 6666 • Bréfasími 520 6665 • sala@rv.is