Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 26
42
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
DV
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
:ima
90 ára______________________________
Valdimar Jónsson,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
85 ára______________________________
Helga Jónsdóttir,
Skúlagötu 40, Reykjavík.
Sveinbjörg Sveínsdóttir,
Bleiksárhlíö 56, Eskifirði.
Þorbjörg Jónsdóttir,
Jökulgrunni 20, Reykjavík.
75 ára______________________________
Guðbjörg Jónsdóttir,
Langholtsvegi 134, Reykjavík.
Kristján Ásgeirsson,
Fjaröarvegi 3, Þórshöfn.
60 ára______________________________
Anna María Einarsdóttir,
Borgarholtsbraut 70, Kópavogi.
50 ára______________________________
Agnes Björk Magnúsdóttir,
Hlíöarvegi 11, Hvammstanga.
Albina Balani Ligan,
Rauöarárstíg 11, Reykjavík.
Cathy Ann Josephson,
Ytri-Hlíö 2, Vopnafirði.
Elín Einarsdóttir,
Brekkubraut 17, Akranesi.
Hanna Lilja Guöleifsdóttir,
Sörlaskjóli 44, Reykjavík.
Hreggviöur Norödahl,
Álfhólsvegi 93, Kópavogi.
Jón Helgason,
Kambahrauni 12, Hveragerði.
Lilja Guömundsdóttir,
Reykjavíkurvegi 48, Reykjavík.
María Evangeline Bjarnason,
Brúarlandi, Akureyri.
Óla Björg Magnúsdóttir,
Botnahlíö 13, Seyöisfiröi.
Sigurður U. Kristjánsson,
Birkihvammi 3, Kópavogi.
40 ára______________________________
Einar Eyiand,
Kotárgerði 12, Akureyri.
Ema Noröfjörö Ólafsdóttir,
Hólabraut 5, Hafnarfirði.
Ingimar Jónsson,
Marargrund 13, Garðabæ.
ísleifur Helgi Waage,
Fjallalínd 13, Kópavogi.
Magnús Baldursson,
Engjavegi 18, Selfossi.
Sævar Kristmundsson,
Langholtsvegi 51, Reykjavík.
Þorbergur Arnar Einarsson,
Gilsbakka, Kópaskeri.
---------T--------------------------
jjrval
góður ferðafélagi
- til fróðleiks og
skemmtunar á ferðalagi
eða bara heima í sófa
Persónuleg,
alhliöa útfararþjónusta.
Sverrir Olsen Sverrir Elnarsson
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Su&jrhlfö35 • Slmi 581 3300
allan sólarhringinn. v/v/w.utfararstofa.ehf.is/
Alexander H. Jóhannsson, fyrrv.
lóöaskrárritari, Steinagerði 17, lést á
hjartadeild Landspítalans í Fossvogi
fimmtud. 1.2.
Ámi B. Jónasson tæknifræöingur,
Þorragötu 9, Reykjavík, lést aöfaranótt
föstud. 26.1. á Vífilsstaðaspítala.
Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk
hins látna.
Leila S. Stefánsson lést á
hjúkrunarheimilinu Skjóli aö kvöldi
fimmtud. 1.2.
John Wheeler verkfræðingur varö
bráökvaddur á heimili sínu, Meza,
Arizona, fimmtud. 1.2.
Níræður
Ragnar Jóhannsson
fyrrv. skipstjóri og kaupmaður
Ragnar Jóhannsson, fyrrv. skip-
stjóri og kaupmaður, Lönguhlíð 15,
Reykjavík, er níræður í dag.
Starfsferill
Ragnar fæddist í Bolungarvík en
ólst upp á ísafirði. Hann fór ungur
til sjós, stundaði sjómennsku á bát-
um frá ísafirði og lauk prófum frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1932.
Ragnar var skipstjóri á bátunum
Huganum og Gróttu frá ísafirði á
stríðsárunum og til 1947. Þá tók
hann við og varð skipstjóri á einum
nýsköpunartogaranum, ísborginni
frá ísafirði.
Ragnar var skipstjóri á ísborg-
inni til 1953 er hann lét af sjó-
mennsku og kom í land af heilsu-
farsástæðum.
Ragnar og fjölskylda hans fluttu
þá til Reykjavíkur. Þar varð hann
eigandi raftækjaverslunarinnar
Lampans við Laugaveg sem hann og
kona hans starfræktu til ársins
1982. Þá lét hann af störfum og sett-
ist i helgan stein.
Fjölskylda
Ragnar kvæntist 6.12. 1941 Ástu
Finnsdóttur, f. 10.9. 1919, húsmóður
og verlunarmanni við raftækja-
verslunina Lampann. Foreldrar
hennar voru Finnur Jónsson, f. 28.9.
1894, d. 30.12. 1951, framkvæmda-
stjóri, forseti Alþýðusambands Vest-
fjarða, alþm. og ráðherra, og k.h.,
Auður Sigurgeirsdóttir, f. 2.4. 1888,
d. 20.6. 1935, húsmóðir.
Sonur Ragnars og Ástu er Bragi
Ragnarsson, f. 5.3.1942, starfsmaður
Eimskipafélags Islands, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Jónínu Gissur-
ardóttur og eru böm Braga Valgerð-
ur, f. 7.8. 1965, Ragnar, f. 1.4. 1966,
Haukur Þór, f. 5.5. 1969, Hörður
Örn, f. 5.5. 1969, Finnur Tjörfi, f.
28.9. 1977, og Bryndís Ásta, f. 18.8.
1978.
Systkini Ragnars: Unnur Jó-
hannsdóttir, f. 16.6. 1912, d. 5.5. 1979,
búsett í Reykjavík; Aðalsteinn Jó-
hannsson, f. 6.8. 1913, d. 12.6. 1998,
tæknifræðingur og kaupmaður í
Reykjavík; Guðrún Þórdís Jóhanns-
dóttir, f. 27.8. 1914, d. 11.1. 1990, hús-
móðir í Reykjavík; Sigurlaug Krist-
ín Jóhannsdóttir, f. 17.1. 1917, hús-
móðir í Reykjavík; Jóhann Jóhanns-
son, f. 8.8. 1919, kennari á Seyðis-
firði.
Foreldrar Ragnars voru Jóhann
Jónsson Eyfirðingur, f. 26.4. 1877, d.
20.10. 1959, útgerðarmaður og kaup-
maður í Bolungarvík og á ísafirði,
og k.h., Salome Gísladóttir, f. 27.11.
1886, d. 17.4. 1920, húsmóöir.
Ætt
Meðal bræðra Jóhanns voru Þor-
steinn og Jón Eyfirðingar. Jóhann
var sonur Jóns, b. á Hofi í Svarfað-
ardal, bróður Snjólaugar Guðrúnar,
móður Jóhanns Sigurjónssonar
skálds og Jóhannesar Baldvins, óð-
alsb. á Laxamýri, afa Benedikts
Ámasonar leikstjóra, föður Einars
tónlistarmanns. Snjólaug Guðrún
var einnig móðir Snjólaugar, móður
Sigurjóns Sigurðssonar, fyrrv. lög-
reglustjóra, föður Jóhanns, forstjóra
Hafrannsóknastofnunar. Systir Sig-
urjóns lögreglustjóra var Ingibjörg,
móðir Magnúsar Magnússonar, rit-
höfundar og fyrrv. dagskrárgerða-
manns hjá BBC og fyrrv. rektors
Edinborgarháskóla, foður rithöf-
undanna og dagskrárgerðarmann-
anna, Sallýjar og Þorbjargar. Jón á
Hofi var sonur Þorvalds, b. á Kross-
um, Gunnlaugssonar, ættfoður
Krossaættar, Þorvaldssonar. Móðir
Jóns á Hofi var Snjólaug Baldvins-
dóttir, pr. á Upsum, Þorsteinssonar
og Filippíu Erlendsdóttur. Móðir Jó-
hanns Eyflrðings var Anna Jóns-
dóttir, læknis í Klaufabrekknakoti í
Svarfarðardal, Halldórssonar, b. á
Syðra-Hvarfi, Ingjaldssonar. Móðir
Jóns var Arnfríður Jónsdóttir úr
Bárðardal. Móðir Önnu var Þórdís
Bjamadóttir.
Móðir Ragnars, Salóme, var dótt-
ir Gísla Sveins, b. í Ármúla í Naut-
eyrarhreppi við ísafjaröardjúp,
Gíslasonar og Sigurveigar Hjalta-
dóttur.
Sextugur
Ástvaldur Valtýsson
vélstjóri í Vestmannaeyjum
Fertug
Guðbjörg Halldóra Ólafsdóttir
leiðbeincmdi við leikskóla
Ástvaldur Valtýsson,
vélstjóri og framkvæmda-
stjóri, Hrauntúni 37, Vest-
mannaeyjum, er sextugur
i dag.
Starfsferill
Ástvaldur fæddist í
Vestmannaeyjum og ólst
þar upp. Hann var þar í
bama- og gagnfræðaskóla
i Eyjum og lauk vélskólaprófi þar.
Ástvaldur stundaði lengi sjó-
mennsku sem vélstjóri bæði á bát-
um annarra og sínum eigin, s.s.
Árntý VE 115. Eftir að hann kvænt-
ist var hann búsettur í Keflavík um
árabil. Þau hjónin fluttu síðan til
Vestmannaeyja 1972 og hafa verið
þar búsett síðan.
Ástvaldur stundaði sjómennsku í
Keflavík og starfaði þar m.a. á véla-
verkstæði. Hann stofnaði fiskverk-
unina Kinn í Vestmannaeyjum,
ásamt fjölskyldu sinni, 1987, og hafa
þau starfrækt hana síðan.
Fjölskylda
Ástvaldur kvæntist 6.6.1964 Hall-
dóru Sigurðardóttur f. 21.7. 1945,
húsmóður. Foreldrar hennar voru
Sigurður Sumarliðason f. 28.7. 1913,
d. 1996, og María Magnúsdóttir f.
20.5. 1909, d. 1993.
Dætur Ástvalds og Hall-
dóm eru Stefanía, f. 28.2.
1964, skrifstofumaður í
Vestmannaeyjum, gift
Guðbirni Ármannssyni
og eiga þau þrjú böm;
Ásta María, f. 28.10. 1966,
starfrækir veisluþjónustu
í Vestmannaeyjum, ásamt
manni sínum, gift Grími
Þór Gíslasyni og eiga þau
þrjú börn; Una Sigrún, f. 6.3. 1972,
starfsmaður við veisluþjónustu og
hjá Kinn í Vestmannaeyjum, gift
Magnúsi Frey Valssyni og eiga þau
tvö börn.
Systkini Ástvalds: Helga, f. 1928,
Jóhanna, f. 1930, búsett í Garðabæ;
óskírð, f. 1931, dó í frumbernsku;
Ása, f. 1939, dó ung; Vilborg, f. 1936,
dó ung; Sveinn, f. 1937, búsettur í
Hafnarfiröi; Guðbrandur, f. 1939, bú-
settur í Njarðvík; Auðberg Óli, f.
1944, nú látinn; Kristín f. 1946, bú-
sett í Vestmannaeyjum; Jón, f. 1948,
búsettur í Vestmannaeyjum; Sigríð-
ur f. 1949, nú látin; Óskar f. 1951, í
Vestmannaeyjum.
Uppeldissystir Ástvalds er Ásta
María, f. 1947, búsett í Eyjum.
Foreldrar Ástvalds voru Valtýr
Brandsson f. 3.6. 1901, d. 1976, og
Ásta Sigrún Guðjónsdóttir f. 5.9.
1905, d. 1999.
Guðbjörg Halldóra
Ólafsdóttir, leiðbeinandi
á leikskólanum Efsta-
hjalla Kópavogi og nemi í
Háskólanum á Ákureyri,
Efstahjalla 25, Kópavogi,
er fertug í dag.
Starfsferill
Guðbjörg fæddist í
Stykkishólmi og ólst þar
upp. Hún lauk grunnskólanámi í
Stykkishólmi 1977, var dagmóðir í
Kópavogi 1982-94 og hefur unnið á
leikskólanum Efstahjalla frá 1994.
Þá er hún í fjarnámi í leikskóla-
fræðum við HA. Guðbjörg hefur set-
ið í stjórn Starfsmannafélags Kópa-
vogs undanfarið ár.
Fjölskylda
Guðbjörg giftist 20.11. 1982 Þor-
varði Einarssyni, f. 21.11. 1957,
veggf.- og dúklagningameistara.
Hann er sonur Einars Þorvarðar-
sonar, veggf.- og dúklagningameist-
ara í Reykjavík, og Ingibjargar Sig-
valdadóttur verslunarmanns sem
lést 1990. Seinni kona Einars er
Guöbjörg Benjamínsdóttir.
Böm Guðbjargar og Þorvarðs eru
Elin María Þorvarðardóttir, f. 27.7.
1978, verslunarmaður; Einar Þor-
varðarson, f. 12.5. 1982, nemi í Iðn-
skólanum í Reykjavík, en
unnusta hans er Rebekka
Ingadóttir, nemi í MH;
Emilía Ólöf Þorvarðar-
dóttir, f. 8.11. 1988, nemi.
Dóttir Þorvarðar frá því
áður er Margrét Unnur.
Systkini Guðbjargar
eru Sævar Berg Ólafsson,
f. 22.2. 1959, bátsmaður á
Skagaströnd, kvæntur
Hjálmfríði Guðjónsdóttur kennara
og eiga þau tvo syni; Ægir Þór
Ólafsson, f. 7.10. 1965, vélstjóri í
Stykkishólmi, kvæntur Eydísi B.
Eyþórsdóttir hárgreiðslumeistara
og eiga þau þrjú börn; María Bryn-
dís Ólafsdóttir, f. 12.4. 1967, starfs-
maður hjá Þórsnesi í Stykkishólmi,
gift Ásgeiri Guðmundssyni háseta
og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Guðbjargar: Ólafur
Þórir Sighvatsson, f. 30.5. 1929,
fyrrv. skipstjóri og nú starfsmaður
hjá Sæferðum í Stykkishólmi, og
k.h., Ýr Viggósdóttir, f. 7.4. 1934,
húsmóðir.
Foreldrar Ólafs voru Sighvatur
Einarsson, b. á Tóftum við Stokks-
eyri, og Guðbjörg Halldóra Brynj-
ólfsdóttir.
Foreldrar Ýrar voru Viggó
Bjamason, sjómaður í Stykkis-
hólmi, og Maria Þórðardóttir.
Morkir íslendingar
Jón Auðuns dómprófastur fæddist á ísa-
firði 5. febrúar 1905. Foreldrar hans
voru Jón Auðunn Jónsson, framkvæmda-
stjóri og alþm. á ísafirði, og k.h., Mar-
grét Guðrún Jónsdóttir, pr. á Stað á
Reykjanesi, Jónssonar. Bróðir Margrét-
ar var Magnús, pr. á Stað. Systir Jóns
dómprófasts var Auður Auðuns alþm.
en hún var fyrsta konan í embætti
borgarstjóra í Reykjavík og jafnframt
fyrsta íslenska konan sem varð ráð-
herra.
Jón lauk stúdentsprófi í Reykjavík
1924, guðfræðiprófi viö Háskóla íslands
1929 og stundaði framhaldsnám í saman-
burðarguðfræði og helgisiðafræði í Marburg
og í París.
Jón var kosinn forstöðumaður Fríkirkju-
safnaðarins í Hafnarfirði 1930, var jafn-
framt forstöðumaður Frjálslynda safnað-
arins í Reykjavik frá 1941, var skipaður
prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík
1945, var skipaður dómprófastur í
Reykjavíkurprófastsdæmi 1951 og
gegndi þeim embættum til 1973 er
hann lét af störfum af heilsufarsástæð-
um. Þá var hann forstöðumaður Lista-
safns Einars Jónssonar frá 1970.
Jón var frjálslyndur í guðfræðilegum
efnum. Hann var einlægur spiritisti og
forseti Sálarrannsóknarfélags íslands
1939-1963. Þá gegndi hann ýmsum öðrum
trúnaðarstörfum, sat m.a. i Barnaverndar-
ráði og Safnarðarráði Reykjavíkur.
Jón Auöuns
Allt til alls
►I 550 5000