Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 I>V Fréttir Varaformannsslagur í Framsókn: m Guðni staðfestir framboð sitt - sem DV greindi frá á mánudag DV-MYND EÓL Framboö staöfest Guöni Ágústsson staöfesti í gær frétt DV og titkynnti framboö sitt til varafor- mannskjörs Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra staðfesti formlega framboð sitt í stól varaformanns Framsókn- arflokksins á blaðamannafundi í gær. Er hann annar í röðinni á eft- ir Ólafi Erni Haraldssyni til að gefa kost á sér í það sæti sem Finnur Ingólfsson, seðlabankastjóri og fyrr- verandi iðnaðarráðherra, hefur gegnt. Sagt var frá fyrirhuguðu framboði ráðherrans í DV sl. mánu- dag sem nú er orðið að veruleika. Guðni sagðist hafa velt fyrir sér merkjum stjómmálaflokka. Annar stóri flokkurinn í Bandaríkjunum hefði asna í sínu merki og Sjálfstæð- isflokkurinn hefði hinn fallega fugl, fálkann, sem reynst hafi vel við hans veiðiskap á fylgi. „Ég hef oft verið að velta þvf fyrir mér hvort Framsókn- arflokkurinn þurfi ekki að fá sér annað merki. Mér hefur dottið í hug hvítur hestur. Þá gæti maður sungið fyrir þá sem ganga í flokkinn: Þú komst í hlaöið á hvítum hesti, þú komst meó vor í augum þér. Ég söng og fagnaöi góóum gesti og gaf þér hjartaö í brjósti mér. “ Guðni sagði að þá mætti segja við þá sem veldu Framsóknarflokkinn og hvíta hestinn: „Þú er klár!“ Guðni sagðist tiltölulega sáttur við flokkinn sinn en framboð sitt til- kynnti hann formanni flokksins, Halldóri Ásgrtmssyni, á hádegi í gær. Sagðist hann hafa fengið áskor- un um að gefa kost á sér víða að. Hann sagðist hafa sannfærst um að hann væri að bregðast flokksmönn- um sínum ef hann gæfi þeim ekki kost á að eiga val um sig í varafor- mannsstarf. Lagði ráðherrann fram plagg um helstu stefnumál sín á fundinum. Þar gaf m.a. að líta slagorð flokks- ins, Fólk í fyrirrúmi. Hann segir þar líka að sátt þurfi að ríkja um þá perlu sem miðhálendi íslands er. Um menntun, menningu og ríkisút- varpið segir hann m.a.: „Ég vil fella niður afnotagjöld og vil að hluti tekna ríkisútvarpsins komi af" fjár- lögum. Ég vil minnka áhrif stjórn- málaflokka og pólitíkin á ekki að Frétt DV á mánudag Um helmingur þingfiokksins gælir viö framboö. skipa útvarpsráð. Ég vil að félög fólksins í landinu, almannahreyf- ingar og atvinnulífið, eigi að skipa útvarpsráð framtíöarinnar." Guðni segist hins vegar ekki vera að horfa til þess að breyta RÚV í hlutafélag. Tveir menn hafa nú formlega gef- ið kost á sér í varaformannssætið, Ólafur Öm Haraldsson og Guðni Ágústsson. Vangaveltur hafa verið um framboð fjölmargra annarra framsóknarmanna eins og útlistað hefur verið í DV. Þar á meðal eru Siv Friðleifsdóttir, Kristinn H. Gunnars- son og Jónína Bjartmarz. -HKr. aðhalda UPPI /J/M 3S5 DV-MYND HARI Forsætisráöherra á viöskiptaþingi Davíð Oddsson var meöal ræöumanna á viöskiptaþingi Versiunarráös íslands sem haldiö var á Grand Hótel Reykjavík í gær. Davíð Oddsson á viðskiptaþingi Verslunarráðs íslands: Myndarlegar skatta- lækkanir á fyrirtæki - hljóta að koma til skoðunar Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að myndarlegar skattalækkan- ir á fyrirtæki hljóti að koma til skoðunar ef menn hafa trú á aö þær séu varanlegar. Lækkanir myndu sennilega verða fyrirtækjunum, og þó einkum ríkissjóði, til varanlegs ávinnings. Þetta kom fram í ræðu hans á viðskiptaþingi Verslunar- ráös íslands sem haldið var í gær. Yfirskrift þingsins var Að halda uppi hagvexti. Forsætisráðherra hefur trú á að hægt sé að auka enn frekar lands- framleiðslu og lífsgæði hér á landi, meðal annars með aukinni einka- væðingu ríkisfyrirtækja, og hann telur óþarft að líkja spá Þjóðhags- stofnunar um 1,6% hagvöxt á þessu ári við ógæfutíðindi. Hann segir að merki séu um að aðhaldssemi í hag- stjórninni sé að bera árangur og meðal þeirra sé að velta í smásölu hafi dregist saman, dregið hafi úr vexti útlána og eftirspurn eftir hús- bréfum minnkað verulega. Verð- bólgan ætti því að verða innan við- unandi marka áður en langt um líði. Forsætisráðherra telur margt benda til góðrar framtíðar og nefndi sem dæmi vænlegar seiðamælingar á þorski, hagfellt hitafar, vilja Norð- urálsmanna til stækkunar og góða stöðu ríkssjóðs. „Um leið og stjóm- völd sannfærast um að verulega hafi dregið úr þenslu og verðbólgu verða vextir lækkaöir og á því verða engar ástæðulausar tafir,“ segir forsætisráðherra. -MA Flugslysið í Skerjafirði: Rannsókn dreg- in á langinn Mikil fjarvera Þorsteins Þorsteins- sonar, stjórnanda rannsóknarinnar á flugslysinu í Skerjafirði, hefur vak- ið athygli. Slysiö varð fimm manns að bana og sá sjötti liggur enn þungt haldinn á Grensásdeild. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir pilts sem lést í janúar vegna áverka sem hann hlaut í slysinu, segir Skúla Jón Sigurðarson, formann Rann- sóknarnefndar flugslysa, hafa i byrj- un nóvember sagt sér og fóður hins piltsins sem lifði flugslysið af Þor- stein vera í þriggja vikna fríi í Þýskalandi. Um miðjan janúar sagði Þorsteinn Friðrik Þór í vitna viður- vist að hann væri að fara í leyfi og kæmi aftur í byrjun febrúar. í viðtali við Morgunblaðið á fimmtudaginn var sagði Skúli Jón Þorstein vera í sex mánaða leyfi frá störfum og að hann kæmi aftur til starfa í lok mars, þegar gengið yrði frá endanlegri skýrslu nefndarinnar. Á miðvikudag var hálft ár síðan slysið varð. Þegar DV ræddi við samgöngu- ráöherra, Sturlu Böðvarsson, í gær sagði hann ráöuneytið ekki hafa vit- að um það að leyfi Þorsteins ylli seinkun á rannsókninni. Friðrik Þór sendi samgönguráð- herra bréf síðastliðinn miðvikudag þar sem hann fór fram á það við ráðherra að brugðist yrði við þessu, til dæmis með því að kalla Þorstein aftur til vinnu. Athygli vekur að Skúli Jón til- kynnti enn eina seinkun á niður- stöðu rannsóknarinnar, sem upp- haflega átti að taka nokkrar vikur, í kjölfar þess að Friðrik Þór sendi fjölmiðlum minnispunkta sína, en í þeim er að finna harðar ásakanir á hendur þeim sem að rannsókninni -standa. Itarlegt fréttaljós um slysið birtist í DV á morgun. -SMK Björgunarmenn aö störfum Rannsókn flugslyssins í Skerjafiröi í ágúst síöastliönum, sem varö fimm manns aö þana, hefur dregist á langinn. Jónína Bjartmarz í 1. sæti? Jónína Bjartmarz hefur ákveðið að bjóða sig fram við næstu alþingiskosn- ingar í 1. sæti fyrir Framsóknarflokk- inn i Reykjavíkur- kjördæmi-Suður. Ástæðuna segir hún aöallega vera þær breytingar sem flokkurinn á eftir eftir að takast á við fyrir næstu kosningar. Óbreytt mat Bandaríska matsfyrirtækið Moody’s í New York hefur sent frá sér tilkynningu um að fyrirtækið staðfesti lánshæfismat sitt fyrir ís- land. Moody’s segir horfur um láns- hæfismat séu taldar stöðugar. Að mati Seðlabanka íslands, endur- speglar þetta verulega bætta skulda- stöðu opinbera geirans. Fjölgun á biðlista Tæplega 3000 börn eru á biðlista eftir leikskólaplássi í Reykjavík og hefur ástandið sjaldan verið jafnslæmt. Biðlistinn hefur hægt og bítandi lengst undanfarin ár en á milli áranna 1999 og 2000 fjölgaði börnum á listanum um 23%. Forsetaslagur á Alþingi Tveir varaforset- ar, þeir Guðmund- ur Árni Stefánsson og Ámi Steinar Jó- hannsson. gerðu bréfaskipti forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar að um- talsefni, og lásu bókanir sem þeir gerðu á fundi for- sætisnefndar Alþingis um málið á miðvikudag. Um 60% á Netinu Alls skiluðu um 7000 veiðimenn inn veiðiskýrslum fyrir 1. febrúar síðastliðinn en þá rann út frestur til að skila skýrslunum. Af þessum hópi voru um 4000 manns, eða um 60%, sem skiluðu skýrslunum inn á Netinu og sagði Bjarni Pálsson, verkefnisstjóri veiðikorta, að það væri mjög gott. Hávaxið fólk launahærra Karlar innan Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur sem eru 179 sentí- metrar á hæð eða hærri eru með hátt í 40 þúsund kr. hærri laun að meðaltali á mánuði en karlar sem eru 166 til 170 sentímetrar á hæð. Hópsýkingin Fyrsta hópsýking af völdum svo- kallaðrar caliciveiru hefur verið stað- fest hér á landi en slíkar hópsýkingar eru vel þekktar erlendis. Vitað er til þess að 27 einstaklingar hafi smitast um miðjan desember sl. en sýking veldur uppköstum, niðurgangi, hita, beinverkjum og vökvatapi. Engar skrár Dómsmálaráð- herra sagði utan dagskrár á Alþingi í gær að eftir sinni bestu vitund séu hvergi í landskerfi lögreglunnar haldn- ar skipulegar eða kerfisbundnar skrár yfir þá sem tengdir hafa verið við fikniefnaheiminn án þess að þeir hafi hlotið dóma. Haldið til haga í grein DV i gær um flugslysiö í Skeijafirði í ágúst síðastliðnum var ranghermt að flugvélin hefði verið skráð sem kennsluflugvél. Hún var skráð sem einshreyfils farþegavél og hafði ekki leyfi til að fljúga blind- flug með farþega gegn gjaldi. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.