Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Side 24
28 _____________________________________________________FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 Tilvera I>V 1í f í ö F T I R V I N N U 2000 góðar minningar í dag kl. 14.00 verður opnuð á 1. hæð Kringlunnar sýning á úr- vali Ijósmynda, sem bárust í ljós- myndasamkeppnina 2000 góðar minningar. Jafnframt verður til- kynnt um vinningshafa sam- keppninnar og afhent verðlaun fyrir tiu bestu myndirnar. Sam- liða myndunum úr samkeppninni verður einnig til sýnis úrval mynda frá menningarborgarárinu úr ljósmyndasafni Morgunblaðs- ins. Þátttaka í samkeppninni var góð og myndefnið á sýningunni mjög fjölbreytt; allt frá ljósmynd- um af formlegum viðburðum til persónulegra mynda, sem tengjast yfirskrift ársins með einhverjum hætti. Leikhús ___________________ ■ LOMA Leikritiö Lóma - mér er al- veg sama þótt elnhver sé aö hlæja aö mér eftir Guörúnu Ásmundsdótt- ur verður sýnt í Möguleikhúsinu viö Hlemm kl. 10.00 í dag. Uppselt. ■ JÁ. HAMINGJAN Já, hamingjan eftir Kristján Þórö Hrafnsson er -sýnd í kvöld klukkan 20.30 á Litla sviöi í Þjóöleikhúsinu. ■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI Leikritiö Meö fulla vasa af grjóti eft- ir Marie Jones veröur sýnt í kvöld kl. 20 á Smíðaverkstæöi Þjóölelkhúss- ins. Nokkur sæti laus. ■ RAUÐA KLEMMAN Leikfélag Fé- lags eldri borgara í Reykjavík, Snúöur og Snælda, frumsýnir í Ás- garöi í Glæsibæ í dag kiukkan 17 gamanleikritiö Rauöa klemman eftir Hafsteinn Hansson. Kabarett ■ HANDMALAÐUR BILL HJA BENNA A milli kl. 12 og 13 veröur nýstárleg uppákoma hjá Bílabúö Benna í Kringlunni. Þar mæta 22 leikskólabörn á aldrinum 4-5 frá Leikskólanum Gullborg ásamt leik- skólakennurum og handmála nýjan Daewoo-bíl á sérstökum palli fýrir utan verslun Bílabúðar Benna. Börn- in ætla aö skreyta bílinn meö hönd- unum einum saman. Opnanir I I STURf jjji I GÁLLÉRÍ NÉMÁ HVAÐ Edda Yr Garöarsdóttir, út- skriftarnemi í Listaháskólanum, opn- ar sýningu í Gallerí nema hvaö viö Skólavöröustíg í dag, klukkan 17. , Verkið sem sýnt veröur ber nafniö í sturtu og er innsetning meö hljóöi. Gestum er boöið til sætis fyrir fram- an sturtuklefa þar sem þeir geta í hlutverki áhorfanda og áheyranda notið verksins. ■ MYNPASÝNING í RÁÐHÚSINU í gær var opnuð í Tjarnarsal Ráöhúss Reykjavíkur óvenjuleg sýning sem ber yfirskriftina Myndabanki.is. Um er að ræöa bæöi Ijósmyndir og teikningar. Þeir sem aö sýningunni standa eru Brooks Walker, Hreinn Hreinsson, Jóhann ísberg, Jóhann Óli Hilmarsson, Jón Baldur Hlíð- berg, Lárus Karl Ingason, Ragnar Axelsson og Siguröur H. Stefnis- son. Fundir ■ HAPEGISFUNDUR VOKU UM AL- NÆMI Alnæmi hefur ekki verið nógu mikiö í umræöunni á síðustu árum en síðustu rannsóknir hafa leitt í Ijós að gagnkynhneigt fólk á aldrin- um 18-30 ára er í mesta áhættu- hópnum. Á síðasta ári greindust tólf manns með alnæmi og af þeim voru ellefu gagnkynhneigöir. Þessi staö- reynd hefur ekki skilaö sér sem skyldi til ungs fólks. Á fundinum ræöa þau Magnús Gottfreösson smitsjúkdómalæknir og Sigurlaug Hauksdóttir félagsráðgjafi um stóöu alnæmis í dag. SJá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.ls Jóhanna Vigdís Arnardóttir heldur tónleika í Borgarleikhúsinu í kvöld: Öll lögin fjalla um ástina Leik- og söngkonan Jóhann Vig- dis Arnardóttir, eða Hansa, held- ur tónleika í Borgarleikhúsinu i kvöld, kl. 20. „Þetta eru min uppá- haldslög og mikill hluti er jass. Hvert og eitt einasta lag fjallar reyndar um ástina. Það er alger tilviljun, ég er bara svona væm- in,“ segir Jóhanna Vigdís og hlær við. Skemmtilegt samstarf Meö Jóhönnu Vigdísi koma fram á tónleikunum Óskar Ein- arsson, sem leikur á píanó og út- setti öll lögin, Halldór Gunnlaug- ur Haukson sem leikur á tromm- ur, Birgir Bragason á bassa og Sigurður Flosason sem leikur á öll sín hljóðfæri: saxófón, klarínett, flautu og fleira. „Þetta er í raun 10 manna hljómsveit vegna þess hvað Sigurður spilar á mörg hljóð- færi, það er verst að hann spilar ekki á mörg í einu.“ Regína Ósk Óskarsdóttir syngur með Jóhönnu Vigdísi í tveim lögum og tvær stúlkur í íslenska dansflokknum dansa með henni í tveim lögum, þær Hlín Diego Hjálmarsdóttir og Katrín Johnson. „Það er gaman að því að þetta er allt fólk sem hefur verið aö vinna mikið saman hér í húsinu, það er gaman að gera svona hluti saman.“ Jóhanna Vigdís var beðin að nefna dæmi um lög sem hún ætl- aði að syngja á tónleikunum: „Ég er mikið með Cole Porter-lög, til dæmis Night an day, Just one og those things og Let’s do it. Svo er ég með fullt af Fats Waller-lögum, eins og I’ve got a feeling I’m fall- Bíógagnrýni Gaman í vinnunni Jóhanna Vigdís Arnardóttir, eöa Hansa, læröi bæöi píanóleik og óperu- söng auk leiklistarinnar. ing og Meen to me. Ég er líka meö franskt lag eftir Jaques Brel sem er i miklu uppáhaldi hjá mér og reyndar annað franskt lag. Þetta er sem sagt mjög mikið sambland en ég hugsa að jassáhugamenn hefðu áhuga á að kíkja.“ Röddin nálægt hjartanu Jóhanna Vigdís lærði óperu- söng og píanóleik, auk leiklistar- innar, og þar að auki segist hún hafa byrjaö í frönskunámi í Há- skólanum. „Ég komst ftjótlega að því að óperusöngurinn var ekki alveg min rödd. Lögin sem ég valdi á þessa tónleika eiga það öll sameiginlegt að þetta eru fallegir ástartextar og textinn í þeim skiptir miklu máli. Min rödd er fyrir svoleiðis lög. Ég var sópran í óperusöngnum en mín rödd er dýpri, hún liggur nær hjartanu." Jóhanna Vigdís venti svo sinu kvæði i kross og sneri sér að leik- listinni. „Leiklistin sameinar þetta allt,“ segir hún. „Mér finnst ekki svo mikill munur á því aö syngja og leika. Maður þarf að gera þetta hvort tveggja af mikilli einlægni og leggja sig alveg jafn- mikið í það.“ Jóhanna Vigdís er um þessar mundir aö leika í barnasýningu Borgarleikhússins, Móglí, og einnig að æfa í farsanum Blúndur og blásýra. „Ásdís Þórhallsdóttir leikstýrir þessu verki sem er al- veg frábært. Það er sem sagt mjög skemmtilegt í vinnunni þessa dag- ana.“ -ss ssiffimm&mó -; Regnboginn - A Hard Day’s Night 'á' ★ ★ "Á Fjórir fræknir Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. The Beatles eru fjórir strákar sem fyrst og fremst eru þekktir fyrir að hafa breytt popptónlistinni þegar þeir komu fram snemma á sjöunda áratugnum. Það voru þeir sem komu poppinu úr sykurhúðuðu um- búðunum sem hafði verið einkenn- andi fyrir létta tónlist allt frá því El- vis Presley var upp á sitt besta á sínum sokkabandsárum. Það að endurnýja kynni sín við A Hard Day’s Night er því eins og að setja eina af uppáhcddsplötunum sínum á fóninn. Sumt eldist ekki, verður bara klassískt. Þegar ég miða A Hard Day’s Night frekar við uppá- haldsplötu en uppáhaldskvikmynd þá er það bæði vegna þess að mynd- in varð til vegna tónlistar Bítlanna og svo eru eftirminnilegustu atriði myndarinnar órjúfanlega tengd þeim frábæru lögum sem þeir flytja í myndinni. Bónusinn sem aðdáendur Bítl- anna fengu var svo kvikmynd sem var ólík öllum öðrum kvikmyndum með poppstjörnum i aðalhlutverki. Svo er fyrir að þakka að ungur og hugmyndaríkur leikstjóri, Richard Lester, var valinn til að leikstýra þessum nýfrægu strákum sem höfðu enn þá mjög gaman af frægð- inni. Með samþykki Bítlanna ákvað Lester að hafa myndina í heimilda- myndaformi og gerist hún á 36 klukkutímum í lífi þeirra. Það var samt aldrei ætlunin að A Hard Day’s Night yrði heimildamynd. Alun Owen fékk tilnefningu til ósk- arsverðlauna fyrir handitið og fáir litu á myndina sem slíka í upphafi. Örugglega er þó mikið til í því sem haldið hefur veriö fram á síðustu árum að myndin sé sannari heim- ildamynd en margur ætlaði. Bítlarnir voru aldrei reiðir ungir menn. Þeir voru í upphafi nákvæm- lega eins og þeir koma fram í mynd- inni: saklausir, spennandi og sjarm- erandi. Myndin er gerð 1964 þegar heimurinn var búinn að uppgötva þá og þeir nýkomnir úr mikilli sig- urfor til Bandaríkjanna. Þeir gátu enn leikið lausum hala um stórborg- ina London og sum atriði myndar- innar sýna raunverulega atburði, eins og þegar hópur ungra stúlkna eltir þá. Vinskapur þeirrá var mik- ill á þessum tíma og það sést best þegar verið er að vinna að upptöku laga. John og Paul vinna saman eins og vel smurð vél og hinir eru á sömu breiddargráðu og eru nauð- synlegir hlekkir í heildarmyndinni. Þeir hafa leikhæfileika, sem er sjaldgæft hjá poppstjörnum, og kannski er það Ringo sem kemur hvað sterkastur út úr myndinni að því leytinu til, Hann hefur húmor, er aldrei stressaður fyrir framan myndavélina og kann að vera trúð- ur á meðan hinir eru meira að leika sér. A Hard Day’s Night var tíma- mótaverk, þó ekki kvikmyndalega séð, eins og haldið var fram af mörgum. Hún náði þvílíkum vin- sældum að meirihluti áhorfenda hélt að um byltingu væri að ræða í kvikmyndatökum og klippingu. Ric- hard Lester var ekki svo frumlegur og var ekkert að leyna því. Hann gengur í smiðju frönsku snilling- anna Goddard og Truffaut hvað það varðar og kannski var það af virð- ingu við þá að myndin er i svart/hvítu, sem að vísu heppnast fullkomlega. Það sem aftur á móti gerir A Hard Days’ Night að tíma- mótaverki er að í góðri kvikmynd eru aðalleikaramir fjórir allt öðru- vísi poppstjörnur en áður höfðu sést í kvikmynd - virka saklausir og glaðir og tala frjálslega eins og text- inn komi beint frá hjartanu. Það er því ótrúlegt að hugsa til þess að að- eins sex árum síðar gerðu Bítlarnir Let It Be, þar sem varla sést bros á vörum piltanna og þar sem greini- lega sést að samstarfiö er í molum. í tónlistinni eru þeir sömu snilling- arnir en sakleysið er horfið og gleð- in ekki til. Lelkstjóri: Richard Lester. Handrlt: Alun Owen. Kvikmyndataka: Gilbert Taylor. Tónlist: Lennon/McCartney og George Martin. Leikarar: John Lennon, Paul McCartney, George Harrison, Ringo Starr og Wilfrid Brambell.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.