Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001
x>v
5
Fréttir
Skemmdarvargar skemma hús í Vogunum:
Lögreglan á vettvangi
Húseigandinn ræðir við rannsóknar-
lögreglumenn úr Keflavík sem komu
til að líta á verksummerki.
DV-MYND HARI
í Vogunum. Hafi m.a. áður verið
skemmdir hjá honum bílar. Segist
hann m.a. hafa rætt við skólayfir-
völd og foreldra um málið við litlar
undirtektir. Honum þykir furðulegt
að nágrannar skuli ekki hafa orðið
varir við hávaða meðan skemmdar-
verkin stóðu yfir, en húsið stendur
skammt frá skólanum í Vogum.
Skildu meintir pörupiltar eftir sig
fótspor um allt hús, en þeir sporuðu
þar út málningu sem skvett var að
mestu utandyra.
Lögreglan i Keflavík segir að
þarna sé um hreint skemmdarverk
að ræða. Flest bendi til að þarna
hafi verið krakkar á ferð sem
framið hafi verknaðinn af einhverj-
um óvitahætti. Rannsóknarlög-
reglumaður sem blaðið ræddi við
sagðist ekki kannast við að meira
væri um óknytti eða skemmdarverk
unglinga í Vogunum en i öðrum
sveitarfélögum. Það hafi t.d. ekki
komið á þeirra borð kærur eða at-
hugasemdir vegna skipulagðra óald-
arflokka í plássinu. -HKr.
Hafa hreinlega geng-
iö berserksgang
- segir eigandinn og er þreyttur á endurteknum árásum
íbúðarhúsið Garðhús í Vogum á
Vatnsleysuströnd er stórskemmt
eftir heimsókn skemmdarvarga um
eða eftir helgina. Eigandinn, Páll
Kristjánsson sem búsettur er á
Blönduósi, kom akandi suður og
fékk lögregluna í Keflavík í lið með
sér í gær til að skoða verksum-
merki, en aðkoman var ljót.
„Menn hafa hreinlega gengið ber-
serksgang i húsinu og þar er allt
brotið og bramlað auk þess sem
reynt var að kveikja í því,“ sagði
Páll í samtali við DV. „Ég var ný-
lega búinn að standsetja húsið sem
er tvílyft timburhús og hafði aug-
lýst það til sölu. Það er illa tryggt og
tjónið er þvi verulegt. Þá hef ég ver-
ið þarna með fombila sem ég hef
verið að gera upp og þeir hafa verið
meira og minna eyðilagðir.“
Tómstundafulltrúi í Vogunum
hringdi í Pál og lét hann vita um
skemmdarverkin. Fór Páll ásamt
lögreglumönnum í Keflavík að hús-
inu í gærmorgun og sagði hann að-
komuna ófagra. Búið var að brjóta
rúður i húsinu, eyðileggja innan-
stokksmuni, og brenna ljósmyndir,
teikningar og skyssur að myndverk-
um auk annarra persónulegra
muna Páls. Hafa skemmdarvargar
lagt eld að þessum munum á gólfi í
kjallara hússins en slökkt í áður en
eldurinn náði að læsa sig i trégólf
þar yfir. Þá voru timbursvalir utan
á húsinu hreinlega rifnar af að sögn
Páls og því Ijóst að mikið hefur
gengið á.
Omurleg aökoma
Páll Kristjánsson skoðar eyðilegginguna á húsi sínu í gærmorgun.
Páll er eins og áður sagði búsett-
ur á Blönduósi og hefur hús hans í
Vogunum að mestu staðið autt að
undanförnu. Hann grunar helst þrjá
pilta í Vogunum um verknaðinn, en
hann segir þetta ekki vera i fyrsta
skiptið sem unglingahópur hafi lagt
til atlögu að eigum hans og annarra
„Þessir helvítis draugar semja
aldrei þótt þeir fengju til þess 100
ár,“ segir Aðalsteinn Helgason, út-
gerðarmaður og skipstjóri á neta-
bátnum Hring GK frá Hafnarfirði,
um yfirvofandi sjómannannaverk-
fall í næsta mánuði.
Aðalsteinn vísar þarna til forystu
sjómanna og útgerðarmanna sem
staðið hafa í illindum um árabil.
„Það er ábyrgðarhluti hvernig
þessir menn haga sér. Þetta snýst
allt meira og minna um öfund og
vanþekkingu. Ég hef boðið Sævari
Gunnarssyni, forseta Sjómannasam-
bandsins, að koma um borð til mín
til að spjalla við karlana og kynna
sér kjör þeirra. Hann hefur ekki
verið maður til að mæta,“ segir Að-
alsteinn.
Hann segist vera því algjörlega
andvígur að samið verði um að skilj
aá milli útgerðar og vinnslu í landi.
„Veiðar og vinnsla verð að fá að
vera eitt þar sem slíkt er fyrir hendi
og menn borga skikkanlegt fiskverð
til sjómanna,“ segir hann.
Hann segir sjómenn á bátunum
almennt hafa það mjög gott og þvi
ástæðulaust að stefna þeim í verk-
fall. Þá sé jafnframt viðbúið að verk-
fall um hábjargræðistímann yrði
aðeins til þess að útgerðir einyrkj-
anna færu á hausinn. Verkfallstím-
inn sé valinn með
það fyrir augum að
útgerðir loðnuskipa
skaðist ekki.
„Að fara í verk-
fall 15. mars er að-
eins til þess fallið að
gera út af við
smærri útgerðimar.
Þá verður ánægju-
legt fyrir sjómanna-
forystuna að þurfa
ekki að semja við
aðra en stórútgerð-
ina. Þetta er sá tími
ársins sem við get-
um helst bjargað
okkur,“ segir Aðal-
steinn sem vill að
sáttasemjari ríkis-
ins grípi þegar til
aðgerða til að fyrir-
byggja átök.
„Það eina sem þessir forystu-
menn sjómanna og útgerðar gera er
að stunda skítkast í fjölmiðlum.
Sáttasemjari gerði best í því að loka
þá inni og svelta svo þeir hunskist
til að semja. Þetta ástand er óþol-
andi og sýnir okkur hjá smærri út-
gerðunum að við eigum enga sam-
leið með LÍÚ,“ segir Aðalsteinn,
skipstjóri á Hring GK. -rt
Verkfallsvofan
Flestir búast viö því að verkfall verði á
fiskiskipaflotanum um miðjan mars.
Vélsleðahelgi á Ólafsfirði
Um helgina verður allt á fullu fyr-
ir vélsleðamenn á Ólafsfirði. Gerð
verður Snocrossbraut við Ytriár-dal
og þar ætla að mæta allir helstu
vélsleðaökumenn landsins sem
keppa munu i vetur. Þarna verða
því frumreyndir margir af nýju
keppnissleðunum og einnig munu
margir nýir ökumenn koma til að
reyna sig. Allar upplýsingar verða á
staðnum um Snocrosskeppni vetrar-
ins og nýjustu fréttir af erlendum
keppnum og keppendum. Einnig
verður farin vélsleðaferð með leið-
sögumanni fyrir þá sem vilja aðeins
njóta útsýnisins og ferðast um
svæðið í kringum Ólafsfjörð.
-NG
Útgeröarmaöur um yfirvofandi sjómannaverkfall:
Þessir draugar
semja aldrei
- þótt þeir fengju hundrað ár
Grafarholt:
Fyrstu húsin eru fokheld
Fyrstu húsin í Grafarholti,
nýjasta hverfi borgarinnar, eru nú
fokheld og hafa sum þeirra þegar
verið afhent væntanlegum íbúum.
Að sögn Þórðar Bogasonar, yfir-
verkfræðings á Borgarskipulagi,
munu fyrstu íbúarnir væntanlega
flytja inn í vor eða sumar. Hann
segir að það sé hins vegar ómögu-
legt á þessari stundu að segja til um
hvenær hverfið verði fullklárað.
Þegar er farið að huga að skólamál-
um í hverfmu þvi gert er ráð fyrir
að fjöldi barna muni sækja skóla
þar í haust. -MA
Grafarholtlft
Fyrstu húsin í Grafarholti er orðin fokheld og íbúarnir því væntanlegir meö vorinu
DV-MYND E.ÖL.