Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Side 8
8 Viðskipti__________ Umsjón: Vidskiptabiaðið Hagnaður Sláturfélags- ins 91 milljón króna Hagnaður hefur verið á rekstri félagsins samfellt í sjö ár. Rekstrarhagnaður Sláturfélags Suðurlands svf. á árinu 2000 var 91 m.kr. en var á árinu áður 123 m.kr. Lakari afkoma milli ára skýrist fyrst og fremst af hækkun íjár- magnsgjalda vegna gengisbreytinga erlendra lána. Hagnaður hefur ver- ið á rekstri félagsins samfellt í sjö ár. Rekstrartekjur Sláturfélags Suð- urlands og dótturfélags voru 3.098 m.kr. á árinu 2000 en 2.879 m.kr. á árinu 1999. Velta samstæðunnar jókst um 7,6% frá fyrra ári. Rekstrargjöld án afskrifta námu 2.794 m.kr. samanborið við 2.609 m.kr. árið áður, sem er 7,1% aukn- ing milli ára. Afskriftir rekstraríjár- muna voru 136 m.kr. en 124 m.kr. árið 1999. Rekstrarhagnaður án fjár- munatekna og fjármagnsgjalda var 167 m.kr.,en var 145 m.kr. árið áður. Fjármagnsgjöld umfram íjármuna- tekjur voru 68 m.kr. en á árinu á undan 15 m.kr. og hækkuðu um 53 m.kr., aðallega vegna gengisbreyt- inga erlendra lána og hærri vaxta. KJötvinnsla í Danmörku Á árinu festi Sláturfélagið kaup á húsnæði undir nýja kjötvinnslu í Videbæk í Danmörku ásamt stórri lóð sem nýtt verður til frekari upp- byggingar. Framleiðsla verður haf- in á íslensku lambakjöti í neytenda- pakkningum i apríl nk. en undir- búningur stendur nú yflr að opnun verksmiðjunnar. Mikil áhersla hefur verið lögð á vöruþróun undanfarin ár og árið 2000 var engin undantekning. Stefna félagsins er að 10% af sölu hvers árs í kjötiðnaði komi frá nýjum fram- leiðsluvörum. Góður árangur kjöt- iðnaðarmeistara Sláturfélagsins á alþjóðlegri fagkeppni kjötiðnaðar- manna í Herning í Danmörku, sem haldin var á árinu, skOaði fjölda verðlauna fyrir vörunýjungar. Á þessum grunni góðra fagmanna byggist vöruþróun félagsins. Á ár- inu komu m.a. fram nýir réttir und- ir 1944-vörulínunni, nýjar áleggsteg- undir, ásamt því að áframhaldandi þróun var í hálftilbúnum réttum. Birkireykta SS-hangikjötið fékk frá- bæra dóma í bragðkönnun og sala þess var aldrei meiri en á árinu sem leið. Stefna félagsins er að vera leið- andi matvælafyrirtæki á heildsölu- stigi. Vel útbúin kjötvinnsla félags- ins á Hvolsvelli skapar því mögu- leika á að auka sölu unninna kjöt- vara innanlands og ný kjötvinnsla í Danmörku skapar sóknarfæri í sölu á íslensku lambakjöti í neytenda- pakkningum erlendis. Fækkun slát- urhúsa félagsins, ásamt endurbót- um sem gerðar hafa verið, hafa skapað grundvöll fyrir góða nýtingu þeirra og hagkvæman rekstur sem nýttur verður enn betur á komandi árum. Innflutningsdeild með leið- andi vörumerki styrkir jafnframt samkeppnishæfni félagsins. Á næstu árum verður unnið að frek- ari uppbyggingu Sláturfélagsins þannig að það geti áfram sinnt hlut- verki sínu sem leiðandi matvælafyr- irtæki. Haldist stöðugleiki áfram í efna- hagslífinu eru rekstrarhorfur Slát- urfélags Suðurlands á árinu nokkuð góðar. Gert er ráð fyrir svipaðri af- komu á árinu 2001 og var áriö áður. Hagnaður Jarð* borana 95,3 milljónir Hagnaður samstæðu Jarðborana árið 2000 var um 95,3 milljónir króna, en var 91,2 milljónir árið á undan. Niðurstaðan er í góðu samræmi við spár fjármálafyrirtækja sem birtust í Viðskiptablaðinu en þar var að jafn- aði spáð 94 milljóna króna hagnaði. Heildarvelta samstæðu Jarðbor- ana nam 892 miiljónum króna en var 945,8 milljónir árið á undan. Veltan lækkar því lítillega á miUi ára. Rekstrargjöld voru 727 milljónir króna og lækkuðu um 11,5%. Rekstr- arhagnaður án fjármunatekna var 164,4 milljónir króna en var 123,9 milljónir árið áður. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi elgnum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Álftamýri 2, 0301, íbúð á 3ju hæð t.v. og bílskúr, Reykjavík, þingl. eig. Bjöm Helgi Snorrason og Sjöfn Elísa Alberts- dóttir, gerðarbeiðendur Sparisjóður Hafn- arfjarðar, Tollstjóraembættið og Vátrygg- ingafélag Islands hf., þriðjudaginn 13. febrúar2001 kl. 14.00. Berjarimi 11, 0101, íbúð á I. hæð t.v. , Reykjavík, þingl. eig. Eggert Magnús Ingólfsson, gerðarbeiðandi Ibúðalána- sjóður, þriðjudaginn 13. febrúar 2001 kl. 10.00. Níu lífeyrissjóðir kaupa Streng Níu íslenskir lifeyrissjóðir hafa fest kaup á þjónustu- og hugbúnað- arfyrirtækinu Streng hf. fyrir 7,1 tnilljón evra, eða sem samsvarar um 560 milljónum íslenskra króna. Strengur var áður hluti frönsku samsteypunnar Integra sem eignað- ist Streng með sameiningu Integra og norsks móðurfélags Strengs, Info- stream AS á síðasta ári. Lífeyrissjóðimir sem um ræðir eru: Lífeyrissjóður starfsmanna rík- isins og Lífeyrissjóður hjúkrunar- fræðinga, Lífeyrissjóðurinn Fram- sýn, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður Norðurlands, Lifið, Lifeyrissjóður Vestfjarða, Lífeyris- sjóður Suðurnesja og Lifeyrissjóður Vestmannaeyja. í tilkynningu sem Integra hefur sent frá sér vegna viðskiptanna er haft eftir Kristjáni Erni Sigurðssyni og Garðari Jóni Bjarnasyni, tals- mönnum lífeyrissjóðanna, að sjóð- imir telji Streng vera framúrskar- andi fyrirtæki með mikla framtíðar- möguleika. „Strengur veitir fjöl- mörgum öflugum viðskiptavinum mjög góða þjónustu. Fyrirtækið hef- ur þróað nokkrar framúrskarandi hugbúnaðarlausnir og hefur yfir að ráða stórum hópi hæfileikaríkra starfsmanna. Allir þessir þættir veita okkur þá trú að um sé að ræða góða fjárfestingu af okkar hálfu. Við viljum byggja á þeim góða árangri sem Strengur hefur náð nú þegar, auk þess sem við höfum fáeinar hugmyndir um hvernig gera megi fyrirtækið enn öflugra.“ í tilkynningu Integra kemur fram að Strengur sé fyrst og fremst sölu- og þróunaraðili Navision-hugbúnað- arlausna og falli því ekki að kjarna- starfsemi Integra. Salan á Streng er að sögn In- tegra liður í þeirri stefnu Integra að leggja megin- áherslu á kjarnastarf- semi sína. Hjá Streng starfa 63 manns og var velta félags- ins 8,5% af heildarveltu Integra á liðnu ári en samkvæmt tdkynningu Integra fyrr í þessum mánuði velti samstæðan 51 milljón evra í fyrra, eða sem sam- svarar um fjórum milljörðum króna. Af því má ráða að Strengur hafi skilað um 340 milljóna króna veltu til samstæðunnar á síðasta ári en Strengur varð hluti af Integra á öðrum ársfjórðungi 2000. Árið 1999 nam velta Strengs 571 og ætla má að velta félagsins á nýliðnu ári hafi verið svipuð. 50% aukning ferðamanna til landsins á 4 árum Brautarholt 4a, 0101, 1. hæð (jarðhæð) í A-enda, Reykjavík, þingl. eig. Hamra ehf., gerðarbeiðendur Landsbanki Islands hf., höfuðst., og Verðbréfamarkaður ís- landsbanka hf., þriðjudaginn 13. febrúar 2001 kl, 13.30.________________________ Ofanleiti 9, 0102, 3ja herb. íbúð á 1. hæð m.m. og stæði merkt 0016 í bflageymslu- húsi, Reykjavík, þingl. eig. Egill Bene- dikt Hreinsson, gerðarbeiðendur Samein- aði lífeyrissjóðurinn og Tollstjóraembætt- ið, þriðjudaginn 13. febrúar 2001 kl. 14.30._________________________________ Suðurhólar 24, 0304, 3ja herb. íbúð á 3. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Guðfmna H. Steindórsdóttir, gerðarbeiðendur Búnað- arbanki íslands hf. og íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 13. febrúar 2001 kl. 11.00. ^^ÝSLUMAÐURINNnREYKJAVÍK Á ferðamálakaupstefnunni Mid- Atlantic Seminar, sem hófst í gær í Ráðhúsi Reykjavíkur, mun vöxtur ferðaútvegsins verða í brennidepli. í fréttatilkynningu frá Flugleiðum kemur fram að aukning ferða- manna til íslands nemi um 50% á fjórum árum, en þeim hefur fjölgað úr 201 þúsund árið 1997 í 303 þúsund árið 2000. Á þeim markaðssvæðum þar sem Flugleiðir hafa lagt mest í markaðs- og sölustarf á undanfómum árum er fjölgunin enn meiri. Árið 1997 komu 23.210 Bretar til landsins en árið 2000 voru þeir 45.106. Aukning sem nemur 94% á fjórum árum. Fyrir sama tímabil fjölgaði ferða- mönnum um 22.404 eða 64%. Mikilvægur hluti af markaðs- starfi íslensku ferðaþjónustunnar er ferðamálakaupstefnan Mid-Atlantic Seminar sem var formlega opnuð með móttöku á vegum Reykjavikur- borgar í Ráðhúsinu í Reykjavík í gærkvöld. Þetta er níunda árið sem Flugleiðir standa fyrir þessari ferða- kaupstefnu og eru þátttakendur um 300 fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga og annarra ferðaþjónustu- fyrirtækja. Að auki taka þátt ferða- málaráð Norðurlandanna, ferðamála- ráð þeirra svæða og borga sem Flug- leiðir fljúga til í Norður-Ameríku og jafnframt koma sendiráð þessara landa á íslandi að kaupstefnunni. Auk þess taka um 50 aðilar úr ís- lenskri ferðaþjónustu þátt í kaup- stefnunni og kynna þjónustu sína. FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 I>V rgrgf: 2180 m.kr. 102 m.kr. 974 m.kr. 35 m.kr. 14 m.kr. 12 m.kr. 17,6% 4,2% 3,4% HEILDARVIÐSKIPTI - Hlutabréf ] - Spariskírteini MEST VIÐSKIPTI Hlutabréfamarkaðurinn Haraldur Böðvarsson Opin kerfi MESTA HÆKKUN j O Sláturfélag Suðurlands : Q Frjálsi fjárfestingarbankinn : © Marel MESTA LÆKKUN I O Eimskip i Q Olíufélagiö j Q Húsasmiðjan ÚRVALSVÍSITALAN - Breyting Obreytt lánshæfi íslands hjá Moody’s Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s telur ekki ástæðu til að breyta lánshæf- ismati sinu fyrir ísland. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Moody’s um is- lenska hagkerfið. Á vefsvæði Islandsbanka-FBA er fjall- að um skýrslu Moody’s. Þar segir að lánshæfismatið, sem er Aa3/Aaa í er- lendri og innlendri mynt, endurspegli m.a. bætta skuldastöðu hins opinbera og að stjómvöld hafi haldið sig við þá stefnu sem fætt hefur af sér ríkulegan hagvöxt á undanfómum árum. Miklar umbætur hafa átt sér stað á fjármála- og vörumarkaði á sama tima og fjölbreytni hagkerfisins og í útflutn- ingsgreinum hefur aukist. Staða ríkis- sjóðs er góð og aðgangur hans að er- lendu lánsfiármagni mikill. Moody’s varar hins vegar við því aö hinn mikli vöxtur hafi alið af sér alvarlegt ójafn- vægi í þjóðarbúskapnum sem stefni í hættu stöðugleika hagkerfisins. Erfið staða hagstjómar endurspeglast af mikl- um viðskiptahalla samhliða mjög að- haldssamri peningastefhu og í meðal- lagi aðhaldssamri stefnu í Qármálum hins opinbera. Þrátt fyrir þetta, segir Moody’s, er ekki ástæða til að breyta lánshæfismatinu. Barclays í útrás Barclays, fiórði stærsti banki Bret- lands, hefur gefið til kynna að hann sé að leita eftir samruna eða samstarfi á meginlandi Evrópu. Hann tilkynnti einnig um metnað sinn til að auka hagnað fyrirtækja sinna utan Bretlands. Matthew Barret forstjóri sagöi; „Við höfúm mikinn metnað í það að verða stórir á evrópskan mælikvarða. Við get- um ekki horft fram hjá því umfangs- mikla efnahagslífi sem er á meginlandi Evrópu og við viljum taka meiri þátt í því.“ Barclays hefur tilkynnt að hann hyggist auka hlutdeild hagnaðar frá fyr- irtækjum sínum í Evrópu af heildar- hagnaði bankans. Núna er hagnaður fyrirtækja bankans utan Bretlands 20% en menn vilja að helmingur hagnaðar bankans komi frá löndum utan Bret- lands. Bankinn tilkynnti um 3,5 millj- arða punda hagnað á síðasta ári sem er 42% aukning frá fyrra ári og mun meiri hagnaður en væntingar sögðu til um. mm 09.02.2001 U. 9.15 KAUP SALA BilÍDollar 86,270 86,710 pSpund 124,220 124,850 ■ 1*1 Kan. dollar 57,140 57,500 Dönsk kr. 10,5880 10,6460 S§Norskkr 9,6860 9,7400 Sænsk kr. 8,8750 8,9240 íHHfí. mark 13,2847 13,3645 | B Fra. frankl 12,0415 12,1138 1 1 | Belg. franki 1,9580 1,9698 1 Sviss. ffanki 51,5100 51,7900 ÍDhoII. gyllini 35,8427 36,0581 j Þýskt mark 40,3854 40,6281 Oítlira 0,04079 0,04104 1 3 Aust. sch. 5,7402 5,7747 Port. escudo 0,3940 0,3964 ■ Spá. peseti 0,4747 0,4776 j [ f> jjap. yen 0,73930 0,74370 | [ irskt pund 100,292 100,895 SDR 111,1400 111,8000 PECU 78,9870 79,4616

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.