Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2001, Blaðsíða 22
26
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001
x>v
Fólk í fréttum
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
sveitastjóri í Reykhólahreppi og
fyrrv. alþm., til heimilis að Mýra-
tungu 2, Reykhólahreppi, hefur ver-
ið í fréttum DV vegna uppgangs í
Reykhólahreppi.
Starfsferill
Jóna Valgerður fæddist í Reykja-
firði í Grunnavíkurhreppi og ólst
þar upp og á ísafirði. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum
á ísafirði, stundaði nám við hús-
mæðraskólann Ósk, við Tónlistar-
skóla ísafjarðar og stundaði starfs-
leikninám kennara.
Jóna Valgerður var stundakenn-
ari við Barnaskólann í Hnifsdal
1958-63, við Barnaskóla Isafjarðar
1989-91, var útibússtjóri Kaupfélags
ísfirðinga i Hnífsdal 1978-81, starfaði
á Endurskoðunar- og bókhaldsskrif-
stofu Guðmundar E. Kjartanssonar
1982- 91, var alþm. Vestfirðinga
1991-95, hefur verið búsett í Reyk-
hólahreppi frá 1996, er sveitarstjórn-
armaður þar, var oddviti 1998-99 og
er þar sveitarstjóri frá 1999.
Jóna Valgerður var formaður
Kvenfélagsins Hvatar í Hnífsdal
1974-82 og 1986-88, var formaður
Sambands vestfirskra kvenna
1983- 89, sat í stjóm Kvenfélagasam-
bands íslands 1987-91, er formaður
Sambands breiðfirskra kvenna frá
2000 og hefur setið í fjölda nefnda á
vegum samtaka kvenfélaganna á
Vestfjörðum, var í ritstjóm frétta-
blaðs Sambands vestfirskra kvenna
og fleiri blaða, í stjóm Heilsugæsl-
unnar í Búðardal, er varamaður í
Flugráði frá 1994, sat í byggðanefnd
forsætisráðuneytisins 1999-2000, sit-
ur í stjóm Fjórðungssambands
Vestfirðinga frá 2000 og gegnir
nefndarstörfum á vegum Reykhóla-
hrepps.
Fjölskylda
Jóna Valgeröur giftist 29.12. 1957
Guðmundi H. Ingólfssyni, f. 6.10.
Sjötíu ára
1933, d. 19.3. 2000, framkvæmda-
stjóra og sveitarstjóra í Reykhóla-
hreppi 1996-2000. Hann var sonur
Ingólfs Jónssonar, verkamanns í
Hnífsdal, og k.h., Guðbjargar
Torfadóttur húsmóður.
Böm Jónu Valgerðar og Guð-
mundar eru Gylfi Reynir, f. 16.3.
1956, deildarstjóri í Grundartanga,
kvæntur Fjólu Ásgeirsdóttur og
eiga þau þrjú börn auk þess sem
hann á barn frá því áður; Halldór
Sigurður, f. 14.2. 1959, félagsráð-
gjafi á Dalvík, kvæntur Ingileif
Ástvaldsdóttur og eiga þau þrjú
börn; Kristján Jóhann, f. 1.6. 1962,
rafmagnsverkfræöingur í Mosfells-
bæ, kvæntur Rannveigu Halldórs-
dóttur og eiga þau þrjú böm á lifi;
Ingibjörg María, f. 16.1. 1967, sál-
fræðingur og forstöðumaður Skóla-
og fjölskylduskrifstofu ísafjarðar-
bæjar, gift Erni Torfasyni og eiga
þau tvær dætur auk þess sem hún
á dóttur frá því áður; Jóhannes
Bjami, f. 13.5. 1974, flugmaður hjá
Flugleiðum, búsettur í Kópavogi,
en unnusta hans er Berglind Grét-
arsdóttir og eiga þau eina dóttur.
Systkini Jónú Valgerðar: Þrúð-
ur, f. 21.7. 1938, skólastjóri í Búðar-
dal; Fjóla Guðrún, f. 25.8. 1939,
skrifstofumaður í Reykjavík; Lauf-
ey Erla, f. 17.9. 1940, starfsstúlka í
Reykjavík; Freyja Nygaard, f. 3.5.
1942, kaupmaöur í Danmörku;
Guðjón Arnar, f. 5.7. 1944, skip-
stjóri og alþm. i Mosfellsbæ; Matt-
hildur Herborg, f. 12.3. 1946, skrif-
stofumaöur í Reykjavík; Jakob
Kristján, f. 2.2. 1952, prófessor í líf-
efnafræði og framkvæmdastjóri
Prokaria í Reykjavík; Anna Karen,
f. 28.7. 1957, skrifstofumaður á ísa-
flrði.
Foreldrar Jónu Valgerðar: Krist-
ján Guðjónsson, f. 17.11. 1911, d.
22.12. 1989, trésmiður á ísafirði, og
k.h., Jóhanna Jakobsdóttir, f. 16.10.
1913, d. 9.12. 1999, húsmóðir.
Merkir Islendingar
Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra fædd-
ist í Reykjavík 9. febrúar 1889, sonur Þór-
halls Bjarnarsonar biskups og k.h., Val-
gerðar Jónsdóttur. Systir hans var Dóra,
síðar forsetafrú, en meðal barna Tryggva
má nefna Klemens hagstofustjóra og
bankastjórana Þórhall og Bjöm.
Tryggvi lauk embættisprófi í guð-
fræði og var prestur í Borgarfirði en
varð ritstjóri Tímans 1917, alþm.
Strandasýslu 1923 og formaður
Framsóknarflokksins 1927. Hann og
Jónas frá Hriflu héldu uppi harðri
stjórnarandstöðu við íhaldsstjómina frá
1924, skipulögðu kosningafundi um allt
land og riðu til þeirra um fjallvegi og veg-
leysur. Árangurinn varð tímamóta-kosn-
ingasigur Framsóknar 1927. Tryggvi varð þá
Ættfræði
koti í Flatey, Brandssonar. Móðir
Guöjóns í Skjaldarbjarnarvík var
Ólína Sigurðardóttir frá Eyri.
Móðir Kristjáns var Anna Jónas-
dóttir, b. á Þóroddsstöðum í Hrúta-
firði, Eiríkssonar.
Foreldrar Jóhönnu voru Jakob, b.
í Reykjafiröi, Kristjánsson og Matt-
hildur Benediktsdóttir, b. í Reykja-
firði, Hermannssonar. Móðir Matt-
hildar var Ketilríður Jóhannsdóttir,
frá Kvíum í Jökulfjörðum.
Einarsdóttir, f. 14.3. 1924, húsfreyja
á Svarfhóli í Stafholtstungum.
Foreldrar Jóns Eyjólfs vom Ein-
ar Helgason, f. 9.8.1887, d. 14.6.1960,
bóndi á Grjóti, Selhaga og í Grísa-
tungu og síðar verkamaður í Borg-
arnesi, og k.h„ Helga Jónsdóttir, f.
31.7. 1885, d. 19.11. 1959, húsfreyja.
Ætt
Einar var sonur Helga, b. á Ás-
bjarnarstöðum í Stafhholtstungum,
Einarssonar, b. á Ásbjarnarstöðum,
bróður Jóns á Svarfhóli, langafa
Halldórs H. Jónssonar arkitekts,
fóður Garðars, húsameistara ríkis-
ins. Einar var sonur Halldórs fróða,
b. á Ásbjamarstöðum, Pálssonar.
Móðir Einars Helgasonar var
Guðrún Halldórsdóttir, b. og kirkju-
smiðs í Litlugröf i Borgarhreppi.
Helga var dóttir Jóns, b. á Há-
reksstöðum í Norðurárdal, Eyjólfs-
sonar, b. og skálds í Sveinatungu og
Hvammi í Hvítársíðu, Jóhannesson-
ar. Móðir Jóns var Helga Guð-
mundsdóttir, b. á Sámsstöðum í
Hvítársíðu, Guðmundssonar, af
Háafellsætt, afa Jóns Helgasonar,
skálds og prófessors.
Jón Eyjólfur er að heiman.
Jóhanna Kristvinsdóttir, Gillastöðum,
Laxárdal, Dalasýslu, verður jarðsungin
frá Hjaröarholtskirkju 10.2. kl. 14.00.
Sætaferð verður frá BSÍ kl. 10.30.
Útför Kjartans Jónssonar, fyrrv. leigubif-
reiðarstjóra, Kleppsvegi 46, fer fram frá
Áskirkju föstud. 9.2. kl. 13.30.
Baldur Gestsson, Ormsstöðum, Dala-
byggö, veröur jarösunginn frá Staðar-
fellskirkju laugard. 10.2. kl. 13.00.
Sætaferð veröur frá BSÍ kl. 8.30.
Hildur Bjarnadóttir, Árvegi 8, Selfossi,
verður jarösungin frá Hverageröiskirkju
laugard. 10.2. kl. 14.00.
Sigríður Hulda Einarsdóttir, Árskógum
8, Reykjavík, verður jarðsungin frá Há-
teigskirkju föstud. 9.2. kl. 13.30.
Minningarathöfn um Svein Birki Sveins-
son, Krossum, Árskógsströnd, fer fram
frá Stærra-Árskógskirkju 10.2. kl. 11.00.
Umsjón; Kjartan Gunnar Kjartansson
Jóna Valgeröur Kristjánsdóttir
sveitarstjóri í Reykhólahreppi
Ætt
Kristján var sonur Guðjóns, b. í
Skjaldarbjarnarvík við Geirólfsgnúp,
Kristjánssonar, lausamanns í Litlu-
Ávík, Loftssonar, b. í Litlu-Ávík,
Bjarnasonar, b. í Munaðarnesi,
Bjarnasonar, b. í Munaðarnesi, Arn-
grímssonar. Móðir Bjarna yngri var
Hallfríður Jónsdóttir. Móðir Lofts
var Jóhanna Guðmundsdóttir.
Móðir Kristjáns var Þórunn Ein-
arsdóttir, b. á Bæ, Guðmundssonar,
pr. í Ámesi, Bjarnasonar, b. í Fjósa-
Jón Eyjólfur Einarsson
fyrrv. fulltrúi í Borgarnesi
Jón Eyjólfur Einarsson, fyrrv.
fulltrúi kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Borgfirðinga í Borgarnesi, til heim-
ilis að Berugötu 18, Borgarnesi, er
sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Jón Eyjólfur fæddist í Stafholti í
Stafholtstungum í Mýrasýslu en
ólst upp í Borgarnesi frá 1930. Hann
var í Barna- og unglingaskólanum í
Borgamesi, lauk prófum frá Hér-
aðsskólanum í Reykholti og síðan
frá Samvinnuskólanum í Reykja-
vík.
Á unglingsárunum stundaði Jón
Eyjólfur ýmsa sumarvinnu í Borg-
amesi og var þá m.a. búðarsveinn
hjá kaupfélaginu, starfaði á skrif-
stofu SlS í Reykjavík 1945_46, hóf
störf hjá Kaupfélagi Borgfirðinga
1946 og hefur því starfað þar í hálfa
öld. Þar var hann fyrst gjaldkeri fé-
lagsins en hefur verið fulltrúi kaup-
félagsstjóra frá 1957.
Jón Eyjólfur sat í stjórn Ung-
mennafélagsins Skallagrims, Ung-
mennasambands Borgarfjarðar,
Bridgefélags Borgarness, Lions-
klúbbs Borgarness, Framsóknarfé-
lags Borgarness, Héraðsbókasafns
Borgarfjarðar, Starfsmannafélags
KB, situr í fulltrúaráði Samvinnu-
trygginga frá 1964, sat í skólanefnd
Borgamess 1962-82 og var formaður
hennar í nokkur ár.
Fjölskylda
Jón Eyjólfur kvæntist 27.5. 1950
Ástriði Helgu Jónasdóttur, f. 14.11.
1930, húsmóður og starfsmanni við
leikskóla. Hún er dóttir Jónasar
Pálssonar, bónda, vitavarðar og sjó-
manns í Elliðaey á Breiðafirði og
síðar í Stykkishólmi, og Dagbjartar
Níelsdóttur húsfreyju sem nú er bú-
sett í Stykkishólmi.
Böm Jóns Eyjólfs og Helgu eru
Jónas Hólm Jónsson, f. 14.1. 1950,
viðskiptafræðingur hjá Rikisbók-
haldinu í Reykjavík, kvæntur Val-
gerði Stefaníu Finnbogadóttur og
eiga þau saman tvær dætur, Helgu
Þóru, f. 22.10. 1982, og Sigríði Svölu,
f. 6.6. 1989, auk þess sem sonur
Jónasar frá því áður er Kristján
Emil, f. 16.7. 1971; Bragi Jónsson, f.
29.10. 1951, húsasmíðameistari og
mælingamaður hjá Vegagerð ríkis-
ins, búsettur í Borgarnesi, en dóttir
hans er Harpa Berglind, f. 16.5.1975,
en sambýliskona hans er Sonja
Hille; Sigurður Páll Jónsson, f. 23.6.
1958, rafvirki og sjómaður í Stykkis-
hólmi, en sonur hans er Bragi Páll,
f. 29.3. 1984, en sambýliskona Sig-
urðar er Hafdís Björgvinsdóttir og
er dóttir þeirra Björg Brimrún, f.
4.11. 1999; Einar Helgi Jónsson, f.
1.5. 1966, rafmagnsverkfræðingur í
Árósum, en kona hans er Unnur
Mjöll Dónaldsdóttir og eru börn
þeirra Amar Björn, f. 30.12.1996, og
Hekla Sóley, f. 7.5. 2000.
Systkini Jóns Eyjólfs: Karl Ein-
arsson, f. 10.1.1913, nú látinn, skrif-
stofumaður í Reykjavík; Helgi Ein-
arsson, f. 19.11. 1914, nú látinn, sjó-
maður í Borgarnesi; Helga Einars-
dóttir, f. 27.12. 1915, fyrrv. húsfreyja
í Grænuhlíð í Húnavatnssýslu, nú
búsett á Blönduósi; Guðrún Einars-
dóttir, f. 8.10.1918, fyrrv. húsfreyja í
Gilstreymi í Lundarreykjadal, nú
búsett í Borgamesi; Ragnhildur
'l'ryggvi Pórhallsson
forsætisráðherra í fyrstu vinstri stjórninni,
hreinni Framsóknarstjórn með stuðningi Al-
þýðuflokks, en Jónas varð dómsmálaráð-
herra. Stjómin var feikilega athafnasöm
og framfarasinnuð en missti stuðning
Alþýðuflokksins vegna ágreinings um
kjördæmamál. Tryggvi rauf þá þing
sem frægt varð 1931. í kjölfarið vann
Framsóknarflokkurinn sinn stærsta
sigur en flokkadrættir milli Tryggva
og Jónasar og almennt ósætti varð til
þess að Tryggvi sagði sig úr flokknum
og stofnaði Bændaflokkinn 1934.
Tryggvi naut almennra vinsælda og
var virtur af mótherjum sem samherjum.
Hann var fríður sýnum og fyrirmannleg-
ur, drenglundaður, hjartahlýr og glaðsinna.
Hann lést langt fyrir aldur fram 31. júlí 1935.
95 ára__________________________________
Laufey Einarsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 55, Reykjavík.
85 ára__________________________________
Jóhannes Stefánsson,
Hverahlíð 20, Hveragerði.
80 ára__________________________________
Markús Grétar Guönason,
Kirkjulækjarkoti 2, Hvolsvelli.
75 ára__________________________________
Guörún Hlíf Helgadóttir,
Reykhúsum 4c, Akureyri.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Kirkjusandi 3, Reykjavík.
Raymond George Anderson,
Mímisvegi 8, Reykjavík.
70 ára__________________________________
Sigríður Haraldsdóttir,
Gilsbakka 4, Hvolsvelli.
Sigurbjörg Sigurhannesdóttir,
Stórhoiti 24, Reykjavík.
60 ára__________________________________
Helga Bjarnadóttir,
Ljótarstööum, Kirkjubæjarklaustri.
Kristján Björnsson,
Fjóluhvammi lla, Egilsstöðum. Hann
verður að heiman.
50 ára__________________________________
Áslaug I. Þórarinsdóttir,
Skógarási 4, Reykjavik.
Elsa Björnsdóttir,
Nesvegi 53, Reykjavík.
Guölaug S. Sigurjónsdóttir,
Skarðsbraut 13, Akranesi.
Nína Breiöfjörö Steinsdóttir,
Austurbergi 38, Reykjavík.
Rúnar H. Vilbergsson,
Reynimel 52, Reykjavík.
■orunnborg Jónsdóttir,
‘3ragðavöllum, Djúpavogi.
40 ára__________________________________
Edda Freyja Frostadóttlr,
Fifulind 13, Kópavogi.
Haraldur Jóhannsson,
3ólstaðarhlíð 37, Reykjavík.
Lára Kristjánsdóttir,
Hvassaleiti 62, Reykjavík.
Pétur Jónsson,
Spítalastíg 10, Reykjavík.
Sólveig Jóhannsdóttir,
Ránargötu 9, Akureyri.
Stefán Valgarö Kalmansson,
Borgarbraut 25, Borgarnesi.
mm 1
n g a r ir>v
(ö 550 5000
@ vísir.is
'OD FAX
(O 550 5727
'CC | ■ |
IU s Þverholt 11, 105 Reykjavík
Andlát
Valdís Guðmundsdóttir, Álftamýri 48,
Reykjavík, lést á Landspítalanum við
Hringbraut aöfaranótt miðvikud. 7.2.
Aðalheiður Sigtryggsdóttir, Miðvangi
41, Hafnarfiröi, lést á St. Jósefsspítala
í Hafnarfiröi mánud. 5.2.
ívar Török, Hverfisgötu 50, Reykjavík,
lést föstud. 26.1. Jarðarförin hefur farið
fram.
Bára Kristófersdóttir lést í Kaliforníu
mánud. 29.1. Bálför hefur farið fram.