Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2001, Síða 3
e f n i
Leðurklædda stúlkan í sjónvarpsauglýsingu Sýnar í beinum útsendingum hefur
vakið óskipta athygli knattspyrnuáhugamanna sem annarra. Fókus komst að
raun um að á bak við leðrið er atorkusöm söng- og leikkona úr Kvennaskólan-
um sem heitir Halla Vllhjálmsdóttir
Halla Vilhjálmsdóttir, söng- og leikkona, segist vera mesti hrakfallabálkur í heimi. Þaö hefur þó ekki stoppaö hana í því aö leika í fjölda auglýsinga, skólaleikrita
auk þess sem hún er komin í lokaprufu í tveimur leiklistarskólum í London. Um þessar mundir leikur hún í auglýsingaherferö fyrir sjónvarpsstöðina Sýn.
„Ég er mesti hrakfallabálkur sög-
unnar og datt einu sinni niður foss
í Þýskalandi," segir Halla Vil-
hjálmsdóttir söng- og leikkona sem
meðal annars hefur sungið fyrir
mjólkurdropann Dreitil í víðþekkt-
um auglýsingum.
Hún leikur aðalhlutverkið í upp-
færslu Kvennaskólans á söngleikn-
um Kabarett sem frumsýndur verð-
ur í næsta mánuði. Sviðsljósið hef-
ur víða beinst að henni og nýlega
birtist hún iklædd leðri í auglýs-
ingu Sýnar. Þá stal hún senunni
með tilþrifamiklum söng sínum í
Gettu betur keppni Kvennaskólans
og Menntaskólans við Sund í sjón-
varpinu, að keppendum ólöstuðum.
Halla sækir nám í söng og hefur
nú sótt um leiklistarskóla í London.
„Ég hef búið í sama húsinu frá
því ég fæddist og maður hlýtur að
fara yfir um einhvem tímann. í
tveimur leiklistarskólanum í
London er ég komin í lokaprufu en
það eru reyndar litlar líkur á að
maður nái þar inn í fyrstu tilraun,"
segir hún.
Halla segist gjarnan lenda í
óhöppum.
„! síðustu viku sparkaði ég í mitt
eigið andlit þegar ég var á æfingu
fyrir Kabarett. Ég er mjög liðug og
get setið á hausnum á mér og nán-
ast farið úr axlarlið og snúið hönd-
unum. Það er mikið um dans og
hreyfingu í Kabarett og ég fór bara
of langt með fótinn og braut í mér
þrjár tennur. Annars líður varla
það ferðalag að ég slasi mig ekki.
Ég birtist eitt sinn í DV eftir að
hafa brennt á mér fótinn á Laugar-
vatni. Svo fór ég óvart niður mann-
gerðan foss á sundstað I Þýska-
landi. Það stóð Achtung en ég skildi
ekki þýskuna," segir hún.
Margar auglýsingar hafa skartað
Höllu í gegnum tíðina. Hún hefur
leikið hinn víðkunna mjólkurdropa
Dreitil frá þvi hún var 11 ára fram
á þennan dag. Þá söng hún titillag-
ið í Bugsy Malone á sínum tíma og
lék strák í harmleiknum Medeu í
Iðnó. Fyrir rúmu ári lék hún í kvik-
mynd Mikaels Torfasonar, Gems-
um, sem verður frumsýnd næsta
haust.
„Ég lék þar sextán ára gelgju og
fékk að gera hluti sem ég hef ekki
áður gert. Til dæmis að segja for-
eldrunum að éta skít,“ segir hún.
Halla er opin fyrir nýrri reynslu
og þyrstir i upplifanir.
„Þegar ég var lítil ætlaði ég að
prófa allt i heiminum. Þó ég hafi frá
blautu bamsbeini ætlað að verða
söngkona er ég til í að prófa ýmis-
legt annað. Mér þætti til dæmis for-
vitnilegt að prófa að fara á sjóinn
eða vinna í flski. Það er svo gaman
að koma við fiska,“ segir Halla Vil-
hjálmsdóttir.
Ólafur Darri Ólafsson er ekki geðveikur.
Hann klæðir sig samt einstaka sinnum
upp og þykist vera einhver annar. Fókus
leitaði skýringa hjá kappanum.
„Leikarastarfinu má líkja við til-
finningalegan hórdóm. Maður er
alltaf að selja og sýna tilfmningar
sem eiga í raun og veru bara að vera
manns eigin,“ segir Ólafur Darri
Ólafsson leikari.
Ólafur segist geta notað nánast
hvaða lífsreynslu sem er í starfi sínu
sem leikari.
„Ef manni er sagt upp í 8. bekk get-
ur maður notað það 10 árum seinna á
sviðinu. Það er erfiður hluti starfsins
að opinbera sjálfan sig á slikan hátt
en sá sem hefur lifað i glerbúri alla
sína hundstíð á erfitt með að verða
góður leikari," segir hann.
Þessa dagana er Ólafur að búa sig
undir hlutverk sitt í leikritinu Blúnd-
ur og blásýra sem frumsýnt verður í
Borgarleikhúsinu á laugardag.
„Ég fer með hlutverk Mortimers
sem er góði bróðirinn sem finnur
fjölda mannslíka í leikritinu. Hann er
alltaf í áfalli eða að búa sig undir
annað,“ segir hann.
Að sögn Ólafs veitir leikarastarfið
tímabundið frelsi frá gUdum samfé-
lagsins.
„Leikarinn fær að vera það sem er
kannski ekki samþykkt af samfélag-
inu og hann sleppur við að vera út-
hrópaður. Maður fær að bregða sér í
allra kvikinda líki og kynnist öðrum
persónum á djúpstæðan hátt. Munur-
inn á leikara og geðveikum manni er
að leikarinn kann að greina á milli
sjálfs síns og hlutverksins. Hins veg-
ar getur enginn leikari tekið sjálfan
sig algerlega út úr persónunni sem
hann túlkar. Hlutverk eru miskrefj-
andi en maður reynir að taka ekki
vinnuna með sér heim,“ segir hann.
Leikarar þmfa að nálgast þær per-
sónur sem þeir túlka og gUdir þá einu
hvort þær eru viðurstyggUegar and-
hetjur eða dáðir garpar.
„Anthony Hopkins var dáður fyrir
túlkun sína á mannætunni og
fjöldamorðingjanum Hannibal þótt
fólk sé almennt með viðbjóð á slik-
um karakterum. Hopkins hefur
þurft að fmna einhvem flöt á per-
sónu Hannibals sem hann gat skUið.
Fjöldamorðingjar eins og Hitler
gætu ekki lifað með sjálfum sér
nema þeir bæru með sér einhvers
konar réttlætingu fyrir verkum sin-
um þótt hún kunni að vera snargeð-
veik. í því liggur galdurinn að öðlast
einhvers konar sannfæringu innra
með sér fyrir hönd persónunnar,
hvað sem raunverulegri sannfær-
ingu leikarans líður. Það fæst ekki
sannfærandi leikur ef maður fyrirlít-
ur persónuna sem maöur er að
leika," segir hann.
Hann segir leikarastarfið á íslandi
gefa ágætlega af sér þrátt fyrir
orðróm um annað.
„Ég á vel fyrir salti i grautinn og
lít ekki út fyrir annað," segir Ólafur
Darri leikari.
íslenskur
Survivor:
Vinnur Kol-
brún Árna?
Mikael
Torfason:
„Visjúalæs
ei trópíkal
æland“
íslenskar
klámmyndastjörnur:
Allsber fyrir alþjód
Ung brúðhjón:
Á undan
öllum
öðrum
49 ástæður fyrir því að:
ísland er besta land
í heimi
Dave Matt-
hews Band:
Kanarnir
elska þá
Nelly Furtado:
Gerir hvað
sem er fyrir
frægðina
Robbi Chronic;
Rappið er
komið til
að vera
Ingó Olsen:
Fíkill af
lífi og sál
www.visir*is/fokus
fokusðfokus - is
1 í f i Ö
Traffic frumsvnd í daa
Frænkur með mvndiistasvninou
The Gift - formúlu soennumvnd
Snióbretti á Arnarhóli
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Hilmar Þór
af Robba Cronic
16. mars 2001 f Ó k U S
3