Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2001, Síða 8
A hverju ári láta um það bil 1500 pör pússa sig saman í hjónaband, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Frá
1996-99 var meðalaldur áður ógiftra brúðhjóna um 32 ár og tíðasti aldurinn var 27 ár. Það verður æ sjald-
gæfara með árunum að fólk undir tvítugu gifti sig en þó kemur það fyrir nánast á hverju ári. Þórunn Þor-
leifsdóttir hafði uppi á nokkrum giftum einstaklingum og fékk þá í spjall um hjónabandið og ýmislegt fleira.
Ungt fólk í hjónabandi
Afró dansað f brúðkaupsveislunni
Þann 17. febrúar siðastliðinn
giftu sig þau Kristín Ósk Ólafs-
dóttir, 20 ára, og Alseny Sylla, 22
ára, í Seljakirkju. Alseny er frá
Gíneu í Vestur-Afríku en hefur búið
héma í eitt ár og starfar sem
trommari í Kramhúsinu en Kristín
er eins og er aö leita sér að vinnu.
„Við kynntumst á djamminu í októ-
ber 1999 þegar hann var héma sem
gestatrommari í Kramhúsinu. Hann
átti upphaílega bara að vera i þrjá
mánuði, en þegar hann átti að fara
vildi hvorugt okkar slíta samband-
inu og við ákváðum að trúlofa okk-
ur. Hann fór í desember en strax í
janúar fór ég til hans og var úti í
tvo mánuði." Þegar þau Kristín og
Alseny kynntust áttu þau í smáerf-
iðleikum með samskipti. „Hann tal-
aði frönsku en enga ensku, þveröf-
ugt viö mig þannig að það var svo-
litið vesen. En hann var fljótur að
læra og nú tölum við ensku saman
þó hann skilji Qest í íslenskunni og
sé ófeiminn við að tala.“ Kristín
viðurkennir að þó þau séu ástfang-
in séu hjónin líka ólík. „Það hafa
komið upp smávægileg vandamál í
sambandi við ólíkan hugsunarhátt
og skoðanir en ekkert sem við get-
um ekki tekist á við,“ segir hún og
bætir því við að Alseny hafi verið
fljótur að aðlagast íslenskum að-
stæðum. „Hann var til að byrja með
mjög óvanur þeim þægindum sem
íslendingar lifa varla án, eins og
sjónvarpi og þvottavél til dæmis.
Hann keypti sér fyrst eldgamalt og
ónýtt sjónvarp en í dag sættir hann
sig ekki við neitt annað en full-
komnustu tæki sem til eru,“ segir
hún og hlær.
Hvernig fannst þér Afríka?
„Það var æðislegt að vera þar og
fjölskylda Alseny er besta fólk í
heimi. Það var komið fram við mig
eins og prinsessu og ég mátti varla
lyfta litlafmgri. En það er rosalega
heitt þarna og mjög frábrugðið ís-
landi. Ég gleymi aldrei þegar við
fórum i borgina Kindya til að heim-
sækja frænda Alseny. Eina klósettið
var útikamar sem var bara ein stór
hola á stærð við dekk á stórri gröfu.
Yfir holuna lágu tveir plankar sem
maður stóð á þegar maður var að
gera þarfir sínar. Holan var grunn
þannig að maður sá ofan í hana og
þar var allt morandi i eðlum, pödd-
um og alls konar kvikindum. Ég
forðaðist það af fremsta megni að
nota þetta svokallaða klósett til að
byrja með. Læknirinn minn hafði
varað við að borða grænmeti en í
Kindyu freistaðist ég til að borða
það, fékk í magann og þurfti alltaf
að vera á klósettinu. Það er varla
hægt að lýsa því hvað það var
óþægilegt að þurfa að fara út um
niðdimma nótt til að finna þessa
holu og vera alltaf hrædd um að
detta ofan í hana og verða bitin í
rassinn," segir Kristín hlæjandi en
bendir á að henni hafi ekki þótt
þetta fyndið þá.
Hvernig var brúókaupið?
„Það var meiri háttar. Véislan
var í Skíðaskálanum og það komu
um 100 manns. Vinir Alseny tóku
fram trommurnar og svo var spilað
og dansað afró. Þetta
var mjög skemmti-
legt.“ Kristín segir
að í nánustu framtíð
ætli þau að kaupa
íbúð og fara sem
fyrst að heimsækja
flölskyldu Alseny aft-
ur. Þar sem ættingj-
ar Alseny gátu ekki
komið í brúkaupið
hérna heima er
stefnan hjá hjónun-
um að gifta sig aftur
i Afríku á næsta ári.
„Gifting í Afríku er
mjög svipuð is-
lenskri athöfn en það
er miklu meira stuð í
kringum veisluna
sem stendur í þrjá
daga.“ Það er planið Alseny með sína heittelskuðu í fanginu.
hjá þeim að búa hér
en þau flytja kannski eitthvað ann-
að ef ekki tekst að gera meira úr
hans starfl sem trommari. „Ég veit
ekki hvort við flytjum til Afríku því
það er svo rosalega langt í burtu, en
kannski búum við þar í ellinni,"
segir hin nýgifta að lokum.
með fjölskyldunni er
Elvar segir að þau hjónin kunni vel við
Elvar Gunnarsson og Sigríður
Margrét Jónsdóttir eru búin að
vera gift í tæp þrjú ár en þau gengu
í það heilaga 18. júlí 1998 en þá var
hann 19 ára og hún nýorðin 18. Þau
eiga soninn Benedikt Efraím sem
fæddist sumarið 1999 og þessi unga
fjölskylda býr saman í íbúð í Hafn-
arfirðinum. Hjónin starfa bæði hjá
fasteignasölunni Húsinu þar sem
sig í foreldrahlutverkinu.
Elvar er sölumaður og Magga
starfar sem ritari. „Við töluðum
fyrst saman og kynntumst í partíi á
Valentínusdag ‘98 og mánuði síðar
byrjuðum við saman," segir Elvar
um hvemig þau hjónin hafi kynnst.
Varst þaö þú sem baðst hennar?
„Já, fyrst fékk ég leyfi hjá
tengdapabba og mánuði eftir að við
byrjuðum saman fór ég niður á hné
og spurði hana hvort hún vildi gift-
ast mér. Ég vissi bara að hún var
stúlkan í lífi mínu um leið og ég sá
brosið hennar og augun og heyrði
hláturinn hennar. Ég er alveg jafn
sannfærður í dag og ég var þá.“ El-
var bendir á að þótt það sé talið
ungt í dag að gifta sig 18-19 ára sé
ekki langt síðan það var mjög al-
gengt. „Ömmur okkar og afar fengu
á sínum tíma leyfi hjá forsetanum
til að gifta sig og var það talið mjög
eðlilegt. En í dag er viðhorfið að
sletta eins mikið úr klaufunum og
mögulegt er áður en gengið er í
hjónaband. Ég varð bara ástfanginn
snemma og ákvað því að gera sátt-
mála frammi fyrir Guði og mönn-
um og er feginn að hafa ekki þurft
að reyna hitt.
Hvernig var brúðkaupiö?
„Við giftum okkur og svo var far-
ið í óvænta brúðkaupsveislu sem
Magga vissi ekki af. Um kvöldið
keyrðum við í Borgames þar sem
við ætluðum að eyða brúökaups-
nóttinni í sumarbústað. Það sem
hún vissi ekki var að ég var búinn
að skipuleggja brúðkaupsferð til
Bandaríkjanna strax daginn eftir.
Þegar hún vaknaði um morguninn
gaf ég henni flugmiðana í umslagi í
morgungjöf. Ég tók viðbrögðin
hennar upp á VHS-kameru þegar
hún sá að flugið væri klukkan 16
þennan sama dag.“ En Elvar hafði
hugsað fyrir öllu og gert allar ráð-
stafanir og sent tengdamömmu sina
til að pakka fyrir Möggu. Ferðinni
var heitið til Indiana þar sem bróð-
ir Elvars bjó ásamt eiginkonu sinni.
„Við vorum i tvær vikur úti og
þetta var að öllu leyti æðisleg ferð.“
Þau hjónin fóru svo aftur út á sama
stað síðla sumars 1999 til að vera í
biblíuskóla í átta mánuði. Benedikt
var þá rétt mánaðargamall og fór
með foreldrum sinum út. „Þetta var
rosalega skemmtilegt og fjölskyldan
fékk tækifæri til að ferðast um.“
Hvernig hefur lagst í ykkur að
vera foreldrar?
„Það er frábært en auðvitað getur
það verið erfitt. Það koma góðir og
slæmir dagar. Okkur langar að eiga
fleiri böm en við ætlum samt að
fara rólega í það þar sem við viljum
eiga tíma fyrir okkur og strákinn
okkar. Ég er sannfærður um að
næst eignumst við stelpu. Þegar
Magga var ófrísk vissi ég að það
væri sfrákur en núna hef ég það á
tilflnningunni að næsta barn verði
lítil stelpa," segir Elvar brosandi.
„Ég þakka Guði fyrir gullfal-lega
konu sem stendur mér við hlið og
lítinn strák sem bíður eftir mér þeg-
ar ég kem heim úr vinnunni. Hver
dagur með þeim er mér afar dýr-
mætur,“ bætir hann við.
Mamma veit
er þijósk
eg
Það eru tvö ár síðan hin 19 ára
Hanna María Alfreðsdóttir og
hinn 27 ára Sidi Mohamed Bezzeg-
houd giftu sig. Þau kynntust á
skemmtistað í Reykjavík árið 1998
og ári seinna gengu þau í hjóna-
band. Fyrir átta mánuðum eignuð-
ust þau litla telpu sem fékk nafnið
Hera María. Sidi er frá Marokkó en
hefur búið hér i fjögur ár og vinnur
hjá Mjólkursamsölunni en Hanna
María er enn i barneignarfríi og er
að spá í að fara í nám að því loknu.
Hvers vegna vilduð þið gifta ykkur
svona fljótt?
„Sidi er múslími og samkvæmt
hans trú á maður ekki að vera sam-
an án þess að vera gift. Ég var bara
sautján ára þannig að við þurftum
að fá sérstakt leyfi hjá presti og for-
eldri. Það gekk allt saman vel upp
og kannski er það því að þakka að
ég er rosalega þrjósk og mamma
mín veit það,“ segir Hanna María
hlæjandi. Sidi kom fyrst til íslands
þegar hann var að heimsækja syst-
ur sína sem var búsett hér en er
reyndar flutt til Noregs núna. Svo
fékk hann atvinnuleyfi, varð ást-
fanginn af Hönnu Maríu og varð
hér eftir.
Var þetta stórt brúökaup?
„Nei, við fórum til sýslumanns og
héldum svo smápartí heima til að
fagna. Svo fórum við sumarið 1999
til Marokkó og giftum okkur aftur
þar samkvæmt múslímskum sið.
Það var alveg æðislegt að koma
þangað og hitta fjölskyldu hans. í
brúðkaupum í Marokkó má enginn
sjá brúðina fyrr en að athöfninni
kemur og ég var sett i hárgreiðslu
og skipti fjórum sinnum um kjól.
Eftir athöfnina var svo svakaleg
veisla. Þetta var í raun brúðkaups-
ferðin okkar þó að við færum
reyndar í íjögurra daga ferð til Par-
ísar.“ Hanna María segir að þau
Sidi hafi ekki rekið sig á að vera
með ólíkan bakgrunn enda séu bæði
rosalega frjálslynd og taki hvort
annað alltaf eins og það er. Hún seg-
ir Sidi vera bara nokkuð sleipan í
Hanna María og Sidl hafa gift sig tvisvar, annars vegar hjá sýslumanni í
Reykjavík og hins vegar samkvæmt múslímskum sið í Marokkó.
íslenskunni en af gömlum vana tali
þau hjónin yfirleitt saman á ensku."
Hver eru framtíóaráformin ykkar?
„Við erum nýbúin að kaupa okk-
ur íbúð saman í Grafarvoginum og
ég er að taka ákvörðun um hvaða
nám ég ætla í en mig langar að fara
í eitthvert iönnám, eins og til dæm-
is hárgreiöslu. Svo stefnum við á að
skira stelpuna í Marokkó með til-
heyrandi veislu næsta sumar. Þetta
er víst rosalega mikil athöfn þama
úti þegar börn eru skírð, lambi er
slátrað og svo er haldiö upp á þetta
með stórri veislu.
Þú hefur ekki tekió upp eftirnafn-
ið hans Sidi?
„Nei, Hera María fékk það en mig
langaði að halda í mitt fóðurnafn,“
segir Hanna María og brosir.
Giftingar og
skilnaðir ^
'96-'99
$
Árið 1999 giftu
sig cdls 1560 pör
en 473 fengu lög-
skilnað. Af þess-
um 1560 voru 4
karlmenn á
a 1 d r i n u m
15-19 ára og
31 kona. I ald-
urshópnum 20-24
ára þetta sama ár voru 115
brúðgumar og 226 brúðir.
Flest brúðhjónin árið 1999
voru þó á aldrinum 25-29 ára
og gildir það um bæði kynin
eða 433 brúðguma og 501
brúði. Lögskilnaðir voru alls
2001 á árunum 1996-99. Af
þeim 4002 einstaklingum sem
skildu var enginn karlmaður á
aldrinum 15-19 ára og aðeins
2 konur. Hins vegar skildu 28
karlmenn og 77 konur á aldr-
inum 20-24 ára frá 1996 til
1999. Flestir skilnaðir á þessu
tímabili voru í aldurshópnum
35-39 ára og á það jafnt við
um bæði kynin eða 375 karl-
menn og 387 konur.
f Ó k U S 16. mars 2001
8