Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Side 9
MÁNUDAGUR 26. MARS 2001 9 Fréttir Fyrsti rafræni Læknaskrift útrýmt rafrænt iseðillinn á ís- iandi var sendur frá lækni til lyf- sala sl. fimmtudag á Húsavík og komu þar ýmis stórmenni viö sögu. Eftir fjölsóttan fund um heil- brigöismál þar sem málið var m.a. kynnt brunaði Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðisráðherra upp á Heilusgæslustöð og hitti þar fyrir Sigurð Guðmundsson landlækni. Landlæknir greindi í sjónhending að ráðherra skorti mjög járn og rakti það til þess að Ingibjörg hefði gleymt að taka slátur sl. haust. Hann hafði því engar vöflur heldur ávísaði strax vænum járn- skammti til handa ráðherra og sendi lyfseðilinn síðan rafrænt í Húsavíkurapótek. Þegar ráðherra birtist þar 3 mínútum síðar var lyfsalinn Guðni Kristinsson tilbúinn með járnskammtinn og afhenti Ingi- björgu og sagði um leiö að í tOefni dagsins fengi hún 100% afslátt. Það er hugbúnaðarfyrirtækið Doc ehf. sem hefur hannað og smíðaö þennan rafræna lyfseðil. Lyfseðillinn er i senn tól fyrir lækna til að ávísa lyfjum, nálgast faglegar upplýsingar um lyf og draga úr líkum á lyfjatengdum mistökum. Innbyggð öryggisforrit gera lækni viðvart ef ávísað er lyfi sem ekki þykir henta tilteknum sjúklingi í ljósi líkamsástands, fyrri lyfjasögu eða sjúkdóma sem hrjá hann. Kerfið hefur verið próf- að og þróað á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík og gott sam- starf tekist með læknum og starfs- DV-MYND J. SIG. Ingibjörg Pálmadóttir tekur við járntöflunum í apótekinu eftir aö hafa feng- íö rafræna uppáskrift um það frá landlækni. fólki þar og starfsmönnum Doc ehf. Ingibjörg Pálmadóttir lýsti yfir mikilli ánægju með þróun þessa máls og taldi rafræna kerfiö aug- ljóslega auka öryggi sjúklinga og auðvelda eftirlit heilbrigðisyfir- valda með lyfjanotkun í landinu, auk þess að spara ýmsan kostnaö. Hún og fleiri sem tjáðu sig um málið minntust á „læknaskriftina" á lyfseðlum sem væntanlega heyrði sögunni til innan tíðar og um leið heilabrot lyfjafræöinga við að rýna í þær oft torráðnu rún- ir. -JS Sportvörugeröin flytur 31. mars 2001 að Skipholti 5. Óbreytt símanúmer, 562 8383 og 899 0000. Þú sæklr mlðstærð af pizzu með 2 áleggsteeundum á Þú sækir stóra (16") pizzu með 2 áleeesteeundum á < Jjiilíifam * ÁuvmfsirMú Sprengitilboð Komdu 'il hXiJBoðfn iT þér I j uffic n$$3ún

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.